Morgunblaðið - 27.05.1977, Síða 23

Morgunblaðið - 27.05.1977, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1977 23 Jóhanna Hallvarðs- dóttir—Minningarorð Fædd: 19. júlí 1894 Dáin: 17. maí 1977 Jóhanna Hallvarðsdóttir var fædd í Skjaldabjarnarvík i Bjarnarfirði á Ströndum 19. júlí 1894. Hún lést á Landspítalanum í Reykjavík 17. mai s.l. eftir erfiða sjúkdómslegu á 83. aldursári. Foreldrar Jóhönnu voru Hall- varður Jóhannesson bóndi og Sig- ríður Dagsdóttir. Þau fluttu frá Skjaldabjarnarvík að Búðum i Sléttuhreppi, þegar Jóhanna var 10 ára. Þar vann hún á búi for- eldra sinna við hjásetur yfir kví- ám, en þá var það talið sjátfsagt að nota unglinga á hennar aldri til slíkra verka. Þegar Jóhanna var um tvítugt réð hún sig sem fanggæslu á Sæ- bóli í Aðalvík en þaðan var mikið útræði á þessum árum. Ennfrem- ur var hún í kaupavinnu á sama stað. Siðar fór hún til ísafjarðar og vann þar í vist, en þá var það talið eftirsókarverð framavon fyrir ungar stúlkur. Jóhanna leysti öll þessi störf af hendi með miklum myndarskap. Nú lá leiðin aftur til Horn- stranda, heim í þröngar vikur um- girtar háum fjöllum. Nú verða þáttaskil i lifi Jóhönnu. Hún flytur frá Búðum norður að Horni í Hornvík. Þar giftist hún Guð- mundi Kristjánssyni útvegsbónda þar. Hann var mikill atorkumað- ur. Hann stundaði útgerð og bjargsig jöfnum höndum. Hann þótti djarfur sigmaður, hann bauð hættum Hornbjargs byrginn á svo dirfskufullan hátt, að um var talað af mikilli lotningu. Jóhanna bjó manni sínum glæsilegt heimili á Horni. Þar var engin fátækt, nóg að bíta og brenna, um það sá bóndi hennar. Eftir sex ára sambúð dregur ský fyrir sólu. Guðmundur veikist af lungnabólgu og deyr eftir stutta legu. Miskunnarlaus örlög fyrir unga konu, sem er að byrja lífið með fögur fyrirheit um glæsta framtíð, en maðurinn með ljáinn spyr ekki um miskunn né afleið- ingar. Hann reiðir til höggs á björtum vormorgni i vikinni norður við Dumbshaf. Jóhanna stendur nú ein frammi fyrir dimmum örlögum. Nei, hún er ekki ein, hún á tvær ungar dætur, Elínu og Sigríði, sem fæddist vangefin, en þriðja barn- ið var ófætt. Nokkrum mánuðum siðar fæddist svo þriðja stúlkan, sem var látin bera nafn föður sins og heitir Guðmunda. Það þarf engum getum að þvi að leiða að það var mikil þrekraun fyrir ein- stæða konu með 3 ung börn á framfæri að komast af á þessum árum, engar tryggingar, engin opinber aðstoð, engin barnaheim- ili, engin vinna fyrir einstæðar mæður. Þá var ekki hrópað á dag- vistunarheimili eins og nú er gert við öll hugsanleg tækifæri. Jóhanna leysti öll þessi vandamál Tækni- ráðstefna blindra DAGANA 12.—16. apríl sl. var haldin i London ráðstefna á vegum tækninefndar Evrópu- deildar alheimssamtaka blindra. Var þar fjallað um þrjú megin málefni, þ.e. umferli blindra, skipulagningu umhverfis og bygginga; lestrartæki fyrir blinda og nýjungar á sviði prentunar blindraleturs; og tæknilega að- stoð við þróunarlöndin. Var þátt- takendum skipt í umræðuhópa sem höfðu það verkefni að ræða og skila niðurstöðum um ofan- greind málefni. Ráðstefnuna sátu fulltrúar frá 24 löndum Evrópu, Norður-Ameriku og Ástraliu. Fulltrúar Blindrafélagsins voru Elínborg Lárusdóttir blindrarráð- gjafi og Arnþór Helgason. sjálf. Hún stundaði bjargferðir eins og karlmennirnir gerðu og fékk sinn hlut. Hún stundaði bú- skap, vann við fisk, allt þetta varð hún að leggja á sig til þess að geta haft börnin sin hjá sér, en það var hennar stærsta gleði í lifinu að þurfa ekki að láta þau fara til vandalausra. Henni auðnaðist að hafa Sigriði hjá sér til fertugsald- urs en nú dvelur hún á Kópavogs- hæli. Ár líða, sár gróa, líf Jóhönnu þokast í sólarátt. Jóhanna ræður til sin vinnumann, Oddmund Guð- mundsson, ættaðan af Austur- Ströndum. Með honum átti hún einn son og heitir hann Grimur. Oddmundur andaðist, þegar son- ur þeirra var á öðru ári. Sonurinn ungi var sólargeislinn, sem lýsti móður sinni í myrkri sorgar og örvæntingar. Árið 1934 kemur Stefán Þor- björnsson að Horni, ungur, glæsi- legur maður. Nokkru síðar ræður Stefán sig sem ráðsmaður hjá Jóhönnu. Þessi ákvörðun Stefáns átti eftir að verða þeim mikil gæfa. Þau hafa búið saman i 43 ár. Jóhanna og Stefán eignuðust eina dóttur, Guðbjörgu, búsetta í Bolungarvík við Isafjarðardjúp. Árið 1945 flytja Jóhanna og Stefán frá Horni til Súðavíkur, eru þau þar til ársins 1957 er þau flytja til Isafjarðar. 1962 flytja þau til Reykjavíkur og kaupa sér íbúð á Háagerði 65. Jóhanna hafði eitt sinn orð á þvi við mig, að kærustu minn- ingarnar _ætti hún frá Skjalda- bjarnarvik og Horni. Fyrir tæpu ári síðan flytja þau að Hrafnistu. Þá var Jóhanna far- in að heilsu, lifskrafturinn á þrot- um eftir sviptibylji stormasamrar ævi i sorg og gleði. Elín dóttir hennar andaðist árið 1964 frá tveimur ungum dætrum. Jóhanna var trúuð kona. Hún sagði við mig, að hún hefði aldrei komist í gegnum lifið án trúar á æðri mátt. Þetta var hennar trú. Á hverju sem gekk í lífi hennar einkenndi hana alltaf hið góða skap og hin mikla gjafmildi, þó ekki væri alltaf af miklu að taka. Ég hef verið beðinn af aðstand- endum hinnar látnu að þakka hjúkrunarfólki og læknum, einkum þó Landspítalans, fyrir einstæða hjúkrun. Lifshlaup Jóhönnu föðursystur er á enda runnið. Ég vil þakka henni fyrir allar elskulegu stund- irnar, sem ég átti á heimili hennar. Ég votta aðstandendum hennar mína dýpstu samúð. B.G. Mig langar að kveðja frænku mína, Jóhönnu Hallvarðsdóttur, með örfáum orðum. Ég var víst 11 ára, þegar ég varð svo lánsamur að fá að dvelja á heimili hennar i þrjá mánuði af minni sex mánaða skólagöngu fyr- ir fermingu. Ég var ekki hár í loftinu en ansi orðhvatur og þurfti þvi oft á hjálp að halda þegar í harðbakka sló. Þá brást hún mér aldrei, blessunin. Jóhanna var einstök gæðakona og þvi gleymi ég aldrei, hve barn- elsk hún var. Mest var þó gaman að sjá hana, þegar henni ver sýndur hvitvoðungur. Þá varð breytingin alveg óútskýranleg. Það var einhvern veginn eins og hún hætti að vera fullorðin, allt breyttist, hún sjálf, röddin, málið varð óskiljanlegt, einhverskonar sambland af hjali, skrikjum og pinulitlu nefhljóði. Ég hef aldrei séð tvö börn skemmta sér betur, og svo var innlifun hennar djúp og falslaus, að það tók hana tölu- verðan tíma að vera aftur full- orðin. Þá er víst best að orðlengja þetta ekki meir en óska frænku minni góðrar heimkomu og þakka henni alla hennar góðvild og óbil- andi trúmennsku við lífið og gró- andann. Manni hennar, börnum og barnabörnum votta ég samúð mina. Magnús Stefán. Elskuleg amma okkar, Jóhanna Hallvarðsdóttir frá Horni, verður jarðsett í dag. Hún lést á Land- spítalanum 17. maí s.l. eftir erfiða iegu. Margt kemur upp i hugann þegar minnast skal ömmu, en hér verður fátt eitt upp talið. Það má segja að líf hennar hafi verið erfið ganga á stundum, en með léttu hugarfari og dugnaði komst hún yfir allar torfærur. Við systurnar nutúm elsku hennar í riku mæli alla tíð, ekki hvað minnst er við vorum yngri. Við minnumst gleðistundanna þegar við máttum fara í heimsókn til hennar inn í Súðavík og dvelja hjá henni um stund. Þar liðu dagar sem aldrei gleymast. Einn- ig minnumst við erfiðari stunda þegar veikindi steðjuðu að á heimili okkar og tilveran litaðist dekkri litum, þá var það okkar gæfa að geta komið til hennar, þar sem hún mildaði allt og aftur birti til. Hún kenndi okkur mikið af sálmum og bænum, því af slíku efni ásamt ljóðum kunni hún mjög mikið. Það var alltaf svo hlýtt og bjart i kringum ömmu, þar sem hún létt á fæti og snögg í hreyfingum vann öll sin verk. Þó að veikindi segðu oft til sin i seinni tíð, hélt hún alltaf sálar- þreki sínu, allt til hinztu stundar. Við kveðjum nú ömmu með hjartans þökk fyrir allt. Guð blessi minningu hennar. Iðunn og Freyja. + Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför SIGUROAR FINNBOGASONAR. Stöðlakoti, Fljótshlíð Sérstakar þakkir sendum við læknum og starfsfólki sjúkra- hússins á Selfossi og öllum þeim sem styttu honum stundir i veik- indum hans Fyrir hönd aðstandenda, Jórunn Þorgeirsdóttir. + Móðir okkar + INGIBJORG ÞÓRÐARDÓTTIR Móðir mín. frá Laugabóli ÞJÓÐBJÖRG J. PÁLSDÓTTIR, Garðabraut 1 0 Týsgötu 3, Akranesi andaðist 26. maí. andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 26 maí. Július Sigvaldason. Fyrir hönd tengdabarna og barnabarna. dætur hinnar látnu. + KARLV. GUOBRANDSSON + Eiginmaður minn og fósturfaðir BJÖRGVIN ALEXANDERSSON, frá Hafnarfirði, andaðist að Hrafnistu 25. maí s.l. Risabjörgum, Hellissandi, verður jarðsunginn laugardaginn 28 mai að Ingjaldshóli Kristin Hjorleifsdóttir og börn. Kveðjuathöfnin hefst kl. 2 frá heimili hans. Andrea Kristjánsdóttir. Kristensa Andrésdóttir. MOSFELUNGAR Kjörverð íKjörvali WC SANI 12 R. Á kr. 634 - NAUTAHAKK KR . 770 - WCMETE0R4R.Á KR. 247,- NAUTAGRILLSTEIK KR . 730 - HVEITI P.B. 5. LBS. KR. 216- NAUTABÓGSTEIK . KR.730 - HVEITI P.B. S.R KR. 150- NAUTAGULLASH KR. 1.530 - STRÁSYKUR 1 KG. .. KR. 96- NAUTABUFF KR. 1.650 - KAFFI KAABER I.P. .... KR. 370 - NAUTA T-BEIN . KR. 1.242 - MOLASYKUR 1 KG. ... .... KR. 144- NAUTALUNDIR KR. 2.050 - ÓHv< " 'AJ- r rr?:. Gerið verðsamanburð tJjÍ0M*VCMÍ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.