Morgunblaðið - 27.05.1977, Page 29

Morgunblaðið - 27.05.1977, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1977 29 .1] w æ VELVAKANDI SVARAR Í SÍMA 0100 KL. 10 — 11 FRÁ MÁNUDEGI r\F i/JArm^-Utá'u i? Að sinni ætla ég ekki að orðlengja þetta málefni frekar, en vil nú bíða svars þíns, og annarra sem kynnu að vilja svara framan- greindum spurningum. En ég hef margt fleira að segja um þetta efni, og spyr hvort þú viljir Ijá þessum athugunum frekara rými i dálkum þínum. Utvarpshlustandi." Því er hér til að svara að engin hafa borizt svörin eða umsagnir varðandi innihald framangreinds bréfs, en það er rétt að bíða og sjá hvort einhver hefur eitthvað við þetta að athuga. Ef bréfritari hefur eitthvað annað i poka- horninu væri heldur ekki úr vegi að fá að heyra um það, ef vera mætti að það kallaði frekar á and- svör en það sem komið er. ÞeSvSÍr hringdu . . . 0 Sérstök akrein fyrir strætisvagna? Ásgeir Guðmundsson: — Eg var í fyrra á Spáni og þar sá ég að sums staðar var sér- stök akrein fyrir strætisvagnaum- ferð. Þrjár akreinar voru i hvora átt og síðan ein sérstök fyrir strætisvagna og langferðabila og var hún merkt þannig að enginn vogaði sér að aka þar nema fyrr- greindir bilar. Mér var að detta i hug hvort ekki væri hægt að gripa til einhverra þannig aðgerða hérlendis til að leysa þennan vanda strætisvagnanna, sem virðist mjög mikill, þ.e. að hafa þetta í huga i þeirri framtiðar- skipulagningu sem nú og síðar mun fara fram á umferðaræðum á Stór-Reykjavikursvæðinu. Það er auðvitað ekki hægt að mætast á þessari sérstöku akrein, en það er þvi skipulagt þannig að vagnarnir aka alltaf hringleiðir, en ekki fram og til baka sömu eða svipaða leið. Einnig skal minnast þess að þetta er aðeins gert á miklum umferðargötum. Væri ekki hægt að taka eitthvert tillit til þess arna á næstu 10—20—30 árum þegar byggðin færist enn út og umferð verður sifellt erfiðari á vissum stöðum? 0 Opnagamla Kambaveginn? Guðjón: — Mér var að detta i hug hvort ekki væri hægt að opna aftur gamla veginn um Kambana, eða jafnvel það af gamla veginum SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlegu skákmóti i Le Havre i Frakklandi, sem nú er nýlokið, kom þessi staða upp i skák þeirra Böhms, Hollandi, og Kochievs, Sovétríkjunum, sem hafði svart og átti leik. ; um Hellisheiði, sem hægt er? Gæti ekki Ferðafélag Islands ýtt á með þetta eða Vegagerðin sjálf jafnvel eða þessir aðilar unnið saman að þessu máli? Þetta finnst áreiðanlega mörgum skemmtileg leið að fara og það má að vissu leyti segja að þessi vegur sé menningararfur frá fyrri árum ekki siður en Bernhöftstorfan eða svo finnst mér að minnsta kosti.— Það er að mörgu leyti rétt að gamlir vegir eru oft skemmtilegri leiðir en þeir nýju, þá er búið að taka af allar beygjur og króka, vegurinn er aðeins bein lína þvert yfir landið. Sjálfsagt eru fjölmargar leiðir sem þannig væri hægt að opna að nýju, en það er hins vegar ekki víst að sjóðir Vegagerðarinnar leyfi að haldið sé uppi tvöföldu vegakerfi þar sem það er ekki alveg lífs- nauðsynlegt. 0 t sund kl. 7? Það hafa nokkrir árrisulir sundkappar hringt og lýst sig fúsa til að taka undir þá ósk sem fram kom hér nýlega að sundstaðir opni heldur fyrr á morgnana en gert er, t.d. kl. 7. — Það eru margir, sem þua að mæta 1 i nuunuunu u kl.8,eagði einn þeirra og þetta er alltof mikill sprengur á manni þegar ekki er opnað fyrr en kl. 7:20 enda er alltaf komin biðröð 30—40 manns þegar hleypt er inn á slainu 7:20. Það er meira að segja komin bjalla sem gefur merkið. Það þyrfti án efa ekki allt starfsfólkið að mæta svo snemma, þvi það er ekki svo mikið að gera við að opna og hleypa þessum fyrsta hópi inn, svo ég held að ekki verði af þessu mjög mikill kostnaðarauki. Einnig finnst mér að mætti vera lengur opið á sunnudögum en til kl. 15, t.d. þegar gott er veður og fólk vill gjarnan vera úti við með börn sin, þá eru sundstaðir einna ákjósanlegastir, þvi margt fólk kemst ekki annað og hefur ekkert annað að fara. SIGGA V/óGÁ * llLVtm 28.. .Hxh3!, 29. cxb6+ — Kb8, 30. bxa7+ — Kxa7, 31. Kxh3 — Hh8+, 32. Kxg3 — Hh3 + !! og eftir þessa síðari hróksfórn svarts gafst hvítur upp, því að eftir 33. Kxh3 — Dh5 + , 34. Kg3 — Dh4 + , 35. Kg2 (35. Kf3 — Dh3 mát) Dh2+ verður hann mát. Sigurveg- ari á mótinu varð Sveschnikov, Sovétríkjunum með ll'A v. af 15 mögul. Næstír komu landar hans Kochiev og Beljavsky með 10'/í v. hvor. Fjórði varð svo júgóslav- neski stórmeistarinn Matulovic. með 10 v. AV Vv/' VÓ tffí NÝ Vfc'tfWA VINN'bT Vl^ ÍG Vom AQ • \im v/ó w wtisnóm MANN V/ÍL'ÍW W'flUtf IH ViAN/V ^AoA/AS Ctffá A9 ctU Göfr (k" liui rr wAm'Ww* & % W V<y(0R \CA0P T/m /S) SplfKM éirnt"' — Maðurinn með hasshundinn Framhald af bls 11 nokkrum árum voru unnin skemmdarverk á bílnum mínum — eitri var hellt inn í húsið mitt og annar hundurinn, Skuggi, stór- slasaður... En auðvitað heldur fólk að ég sé með stórborgar- hasar, þegar ég skýri frá þessu. Lengi vel hafði ég hundana i þvottahúsinu heima hjá mér. Eina nótt vaknaði ég upp við hávært gelt og læti. Rauk ég fram i þvottahús og sé náunga á leið út um gluggann. Prins sem er í eðli sínu ljúfur og ræðst aldrei á fólk var augsýnilega i drápsham. Hann hafði verið blóðgaður á fæti, með sprautu get ég mér til — og ég þurfti að byrja á því að róa hann meðan náunginn, sem inn hafði brotist var farinn veg allrar veraldar. Eftir þetta þorði ég ekki að hafa hundana í þvotta- húsinu og flutti þá í kjallara húss- ins, sem síðar varð þeim til lifs. Eina nótt varð ég nefnilega var við einkennilega lykt í húsinu. Hélt ég fyrst að þetta kæmi frá frystikistu sem er i þvottahúsinu og fór þangað fram. Þar hafði gluggi verið opnaður og „tetraklór" sýnilega hellt ofan á ofnana, þvi ég skreið um húsið með blautan klút fyrir vitunum og kom börnunum út (Þorsteinn á sex börn). Tvö þeirra sváfu sam- fleytt í sólarhring á eftir. Fyrir þremur árum var brotist inn i kjallarann eftir að hundarn- ir höfðu verið fluttir þangað. Síð- ar þakkaði ég forsjóninni fyrir að Skuggi var af Scháfer-kyni, þvi þeirra eðli er ótrúlega grimmt ef einhver ætlar að rðast á þá. Þegar ég kom i kjallarann þessa nótt, var þar allt á rúi og stúi og Skuggi dró á eftir sé afturlappingar og var alblóðugur. Fatatætlur og blóðslettur voru á við og dreif um kjallaragólfið. En hann hafði sýnilega borið sigur úr býtum, við hvern svo sem bardaginn stóð. Á Skugga þurfi að gera skurðaðgerð eftir þessi átök. Ég varð var vió þessa áreitni, sem kom í bylgjum, þegar ég hafði komist á snoðir um eitthvað og einhverjum hefur verið kunn- ugt um það að nú byggi ég yfir einhverjum nýjum upplýsingum. En þetta hefur gengið klakklaust siðastliðin tvö ár. Um tíma var ástandið þó þannig, að Kópavogs- lögreglan stóð vakt fyrir utan hús- ið hjá mér allan sólarhringinn." HÞ. Hjólhýsi til sölu Sérstaklega vel með farið Eccles Evrópa 455 hjólhýsi til sölu. Uppl. í síma 81177 milli kl. 1 7 — 1 9. Til sölu og afhendingar strax JCB 8D 1 973 vökvabelta- grafa. JCB 6C 1969 vökvabeltagrafa. Ámoksturstæki á Bröyt X2 og X2B. Góðir greiðsluskilmálar. Útvega einnig erlendis frá allar tegundir vinnu- véla og tækja. Upplýsingar ísima 91-83151. VERZIUNIN 3 frasteffens © r t 5151 Laugavegi 58-Sími 11699

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.