Morgunblaðið - 03.06.1977, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.06.1977, Qupperneq 1
36 SIÐUR 122. tbl. 64. árg. FÖSTUDAGUR 3. JÍJNl 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Allt vid þad sama í Hollandi Assen, Hollandi, 2. júní. Reuter — AP. SAMNINGAVIÐRÆÐUR hol- lenzkra stjórnvalda við mólúkksku hryðjuverkamennina, sem enn halda 59 manns í gísl- ingu í lest og skóla skammt frá Assen, voru í strandi i kvöld og Mólúkkarnir skutu f reiðikasti á tvo sjónvarpsturna, sem lögregl- an hafði reist til að fygljast með atburðarásinni á svæðinu. Kröfð- ust þeir þess að turnarnir yrðu rifnir niður þegar f stað. Joop den Uyl forsætisráðherra Hollands sagði í sjónvarpsræðu í kvöld að margir dagar kynnu að líða þar til samningar tækjust um lausn gislanna. Báðir aðilar hafa hafnað tillögum hinna um mili- göngumenn, en ekki hefur fengist upp gefið um hverja var að ræða. Hafði stjórnin áður fallist á kröfu skæruliðanna um að milligöngu- maður yrði fenginn til að vinna að lausn deilunnar. Talsmaður hollenzka dóms- málaráðuneytisins sagði í dag, að ljóst væri að þessi skæruliðahóp- ur væri miklu harðari i horn að taka en hópurinn, sem rændi lest- inni í Beilen fyrir hálfu öðru ári. Sá hópur hefði ekki talað um ann- að en stjórnmál alla 12 daga um- sátursins, en nú væri ekki minnst á stjórnmál. Skæruliðarnir krefjast sem kunnugt er að 21 S- Mólúkkúmanni verði sleppt úr fangelsum f Hollandi, en þessir menn hafa allir verið dæmdir fyrir skæruliðastarfsemi m.a. fyrir lestarránið i Beilen og að þeim verði tryggt að þeir fái að fara frjálsir ferða sinna úr landi. Hefur ríkisstjórn Hoilands visað þessum kröfum á bug. Bygging hrundi og 50 fórust Reeife, 2. júnf. Reuter. • SJÖ hæða bygging f bænum Jaboatao skammt fra Recife f Brazilfu hrundi til grunna f nótt og fréttir þaðan herma að minnsta kosti 50 hafi beðið bana. Rúmlega 100 manns voru f byggingunni þegar hún hrundi. 1 byggingunni voru verzlanir, skrifstofur og fbúðir. Rhódesía: Menahem Begin leiðtogi Likudflokksins, og Yigael Yadin, leiðtogi Lýðræðisbreytingaflokksins áður en þeir hófu viðræður um myndun samsteypustjórnar f Tel-Aviv f dag. Sjá frétt á bls. 16. Símamynd AP Andófsmenn ákærdir í Póllandi Varsjá, 2. júnf .AP SKRIFSTOFA ríkissaksókn- arans í Póllandi sagði f gær að pólsku andófsmennirnir 11, sem handteknir voru f sl. mánuði, yrðu ákærðir fyrir að hafa skaðað pólitfska hags- muni Póllands. Ef þeir verða sekir fundnir eiga þeir yfir höfði sér allt að 5 ára fangels- isdóm. í hópi mannanna eru 6 af helztu forystumönnum varnarnefndar verkamanna sem sett var á laggirnar til að aðstoða verkamenn, sem hand- teknir voru í kjölfar óeirðanna í Póllandi í fyrrasumar vegna fyrirhugaðrar hækkunar á matvælum. Rússar vara við alvarleg- um alþjóðalegum afleiðingum Liðið kallað heim segja Bretar London, Moskvu og Salisbury 2. júní. AP. HEIMILDIR í Lundúnum hermdu í dag, að Rhódesíu- stjórn hefði tilkynnt David Owen, utanríkisráðherra Bretlands, að hún hefði kallað til baka lið sitt frá Mosambique. Owen sendi Smith harðorða orðsendingu í gær og fordæmdi innrásina. Owen, sem kom heim frá Norður-suður-ráðstefnunni síðdegis í dag, fór þegar á fund með helztu ráðgjöfum sínum til að ræða Rhódesíu- málið. Tass-fréttastofan fordæmdi í dag harðlega innrás Rhódesíu og varaði stjórn Ian Smiths við því að innrásin gæti haft alvarlegar alþjóðlegar afleiðingar. Þá sakaði Tass einnig Breta um að hafa örvað Rhódesíumenn til innrásar- innar. í tilkynningu Tass, sem greinilega hafði verið samþykkt af æðstu valdamönnum Sovétríkj- anna, sagði að Rhódesíustjórn hefði gert „sjóræningjainnrás" inn i Mosambique, sem nýlega hefði undirritað vináttusamning við Sovétríkin. Þessar aðgerðir kynþáttahatara undir forystu Ian Smiths hefðu aðeins orðið til þess að skapa enn meiri spennu í suðurhluta Afrfku og gætu haft i för með sér alvarlegar alþjóðlegar afleiðingar. Yfirlýsing brezku stjórnarinnar um að hún myndi undir engum kringumstæðum beita valdi gegn stjórn Smiths Norður-Suðurráð- stefnan út um þúfur? I*ar[s. 2. júnl. AP. MIKILL ágreiningur kom í morg- un upp á fundi rfkra og snauðra þjóða á Norður- Suður-ráðstefnunni í Parfs um meðferð orkumála og var í kvöld óljóst hvenær ráðstefnunni lyki og hver endanlegur árangur hennar yrði. Ágreiningur þessi kom upp rétt er alhliða lausn var f sjónmáli um aðgerðir til að takast á við efnahagsvandamálin, sem aðskilja ríku og fátæku þjóð- irnar. Á fundinum í gær náðist samkomulag um hráefnasjóðinn svokallaða, sem á að vera tæki til að framkvæma hráefnaáadlanir viðskiptanefndar Sameinuðu þjóðanna, en hún miðar m.a. að því að draga úr verðsveiflum og tryggja hráefnaframleiðendum fastan markað. Cyrus Vance, utanrikisráðherra Bandaríkjanna, yfirgaf fundinn í morgun og hélt heimleiðis, en skipaði Richard Cooper aðstoðar- utanríkisráðherra fulltrúa sinn. 19 þróunarlönd og oliufram- leiðslulönd vísuðu í morgun á bug tillögu iðnaðarrikjanna 8 um að komið yrði á fót fastanefnd til að fjalla um orkumál og iðnaðarrikin gátu ekki sætt sig við gagn tillögu ríkjanna 19, en ekki hefur verið upplýst í hverju sú tillaga er fólg- in. Heimildir í París hermdu í kvöld að fulltrúar beggja hópa hyggðust gefa út sérstakar til- kynningar, þar sem fram komi að fundurinn hafi algerlega mistek- ist eða því sem næst. Ráðstefna þessi hófst fyrir 18 mánuðum og átti að ljúka i gær. í kvöld var ekki ljóst hvenær henni lyki endanlega eða hvort tækist á sið- ustu stundu að berja saman mála- miðlunartillögu. hefði verið bein uppörvun til stjórnarinnar um að láta til skar- ar skríða. Síðan sagði: „Tass hef- ur heimild til að lýsa því yfir að öll ábyrgð á afleiðingum innrásar- innar hvílir á herðum kynþátta- fordómarikisstjórnanna i suður- hluta Afríku og erlendra stuðn- ingsmanna þeirra." Engin opinber tilkynning hefur komið frá Rhódesíustjórn um að lið hennar hafi verið kallað til baka og í dag sagði yfirmaður Framhaid á bls. 20. Belgía: Stjórnin féll eftir eina klukkustund Briissel, 2. júní. AP — Reuter. í KVÖLI) var allt óljóst um lausn stjórnarkreppunnar f Belgiu, eftir að 4 af ráðherrum nýmynd- aðrar stjórnar Leo Tindemans mættu ekki til að sverja embættiseið aðeins einni klukku- stund eftir að forsætisráðherrann hafði opinberlega tilkynnt um myndun nýrrar stjórnar á blaða- mannafundi. Tindemans gekk þá þegar á fund Baudouins konungs og sagði af sér. Mun konungur taka afstöðu til lausnarbeiðnar- innar á morgun. Tindemans vildi í kvöld ekkert segja við frétta- menn um hvert hann héldi að framhaldið yrði, en sagðist m.vndu fara í að kanna stöðuna eftir stutta hvfld. Stjórnarmvnd- unartilraunirnar f landinu hafa nú staðið í T vikur, eða frá þvf að úrslit f þingkosningunum lágu fyrir. Fjórir flokkar áttu aðild að stjórninni, sem Tindemans taldi sig hafa myndað. Flokkur hans, Kristilegi sósialistaflokkurinn var með 10 ráðherra, sósíalistar meö 9 og tveir minni flokkar, Volksunieflokkur flæmskumæl- andi manna og FDF, flokkur frönskuinælandi höfðu 2 ráðherra hvor. Flokkarnir 4 hafa 173 þing- sæti af 212 i þinginu. Ráðherrarn- ir 4 sem ekki mættu, voru allir úr einurn armi flokks Tindemans, en þeir lýstu yfir óánægju með þau ráðherraembætti, sem þeim hafði verið úthlutað. Þeir voru Paul Boeynants aðstoðarforsætisráð- herra og varnarmálaráðherra, Alfred Calicice félagsmálaráð- herra, Antoine Gumblet land- búnaðarráðherra og Joseph Michael menntamálaráðherra. Fimm hlupu fyrir lest á fimm stöðum Tokyo. 2. júnl. Reuter Fimm konur á aldrinum 31 til 57 ára sviptu sig lífi með því að hlaupa í veg fyrir járnbrautar- lestir á fimm stöðum í Tokyo í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.