Morgunblaðið - 03.06.1977, Side 1
36 SIÐUR
122. tbl. 64. árg.
FÖSTUDAGUR 3. JÍJNl 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Allt vid þad
sama í Hollandi
Assen, Hollandi, 2. júní. Reuter — AP.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR hol-
lenzkra stjórnvalda við
mólúkksku hryðjuverkamennina,
sem enn halda 59 manns í gísl-
ingu í lest og skóla skammt frá
Assen, voru í strandi i kvöld og
Mólúkkarnir skutu f reiðikasti á
tvo sjónvarpsturna, sem lögregl-
an hafði reist til að fygljast með
atburðarásinni á svæðinu. Kröfð-
ust þeir þess að turnarnir yrðu
rifnir niður þegar f stað.
Joop den Uyl forsætisráðherra
Hollands sagði í sjónvarpsræðu í
kvöld að margir dagar kynnu að
líða þar til samningar tækjust um
lausn gislanna. Báðir aðilar hafa
hafnað tillögum hinna um mili-
göngumenn, en ekki hefur fengist
upp gefið um hverja var að ræða.
Hafði stjórnin áður fallist á kröfu
skæruliðanna um að milligöngu-
maður yrði fenginn til að vinna að
lausn deilunnar.
Talsmaður hollenzka dóms-
málaráðuneytisins sagði í dag, að
ljóst væri að þessi skæruliðahóp-
ur væri miklu harðari i horn að
taka en hópurinn, sem rændi lest-
inni í Beilen fyrir hálfu öðru ári.
Sá hópur hefði ekki talað um ann-
að en stjórnmál alla 12 daga um-
sátursins, en nú væri ekki minnst
á stjórnmál.
Skæruliðarnir krefjast sem
kunnugt er að 21 S-
Mólúkkúmanni verði sleppt úr
fangelsum f Hollandi, en þessir
menn hafa allir verið dæmdir
fyrir skæruliðastarfsemi m.a.
fyrir lestarránið i Beilen og að
þeim verði tryggt að þeir fái að
fara frjálsir ferða sinna úr landi.
Hefur ríkisstjórn Hoilands visað
þessum kröfum á bug.
Bygging hrundi
og 50 fórust
Reeife, 2. júnf. Reuter. •
SJÖ hæða bygging f bænum
Jaboatao skammt fra Recife f
Brazilfu hrundi til grunna f nótt
og fréttir þaðan herma að
minnsta kosti 50 hafi beðið bana.
Rúmlega 100 manns voru f
byggingunni þegar hún hrundi. 1
byggingunni voru verzlanir,
skrifstofur og fbúðir.
Rhódesía:
Menahem Begin leiðtogi Likudflokksins, og Yigael Yadin, leiðtogi Lýðræðisbreytingaflokksins áður
en þeir hófu viðræður um myndun samsteypustjórnar f Tel-Aviv f dag.
Sjá frétt á bls. 16. Símamynd AP
Andófsmenn
ákærdir í
Póllandi
Varsjá, 2. júnf .AP
SKRIFSTOFA ríkissaksókn-
arans í Póllandi sagði f gær að
pólsku andófsmennirnir 11,
sem handteknir voru f sl.
mánuði, yrðu ákærðir fyrir að
hafa skaðað pólitfska hags-
muni Póllands. Ef þeir verða
sekir fundnir eiga þeir yfir
höfði sér allt að 5 ára fangels-
isdóm. í hópi mannanna eru 6
af helztu forystumönnum
varnarnefndar verkamanna
sem sett var á laggirnar til að
aðstoða verkamenn, sem hand-
teknir voru í kjölfar óeirðanna
í Póllandi í fyrrasumar vegna
fyrirhugaðrar hækkunar á
matvælum.
Rússar vara við alvarleg-
um alþjóðalegum afleiðingum
Liðið kallað heim segja Bretar
London, Moskvu og Salisbury 2. júní. AP.
HEIMILDIR í Lundúnum hermdu í dag, að Rhódesíu-
stjórn hefði tilkynnt David Owen, utanríkisráðherra
Bretlands, að hún hefði kallað til baka lið sitt frá
Mosambique. Owen sendi Smith harðorða orðsendingu í
gær og fordæmdi innrásina. Owen, sem kom heim frá
Norður-suður-ráðstefnunni síðdegis í dag, fór þegar á
fund með helztu ráðgjöfum sínum til að ræða Rhódesíu-
málið.
Tass-fréttastofan fordæmdi í
dag harðlega innrás Rhódesíu og
varaði stjórn Ian Smiths við því
að innrásin gæti haft alvarlegar
alþjóðlegar afleiðingar. Þá sakaði
Tass einnig Breta um að hafa
örvað Rhódesíumenn til innrásar-
innar. í tilkynningu Tass, sem
greinilega hafði verið samþykkt
af æðstu valdamönnum Sovétríkj-
anna, sagði að Rhódesíustjórn
hefði gert „sjóræningjainnrás"
inn i Mosambique, sem nýlega
hefði undirritað vináttusamning
við Sovétríkin. Þessar aðgerðir
kynþáttahatara undir forystu Ian
Smiths hefðu aðeins orðið til þess
að skapa enn meiri spennu í
suðurhluta Afrfku og gætu haft i
för með sér alvarlegar alþjóðlegar
afleiðingar. Yfirlýsing brezku
stjórnarinnar um að hún myndi
undir engum kringumstæðum
beita valdi gegn stjórn Smiths
Norður-Suðurráð-
stefnan út um þúfur?
I*ar[s. 2. júnl. AP.
MIKILL ágreiningur kom í morg-
un upp á fundi rfkra og snauðra
þjóða á Norður-
Suður-ráðstefnunni í Parfs um
meðferð orkumála og var í kvöld
óljóst hvenær ráðstefnunni lyki
og hver endanlegur árangur
hennar yrði. Ágreiningur þessi
kom upp rétt er alhliða lausn var
f sjónmáli um aðgerðir til að
takast á við efnahagsvandamálin,
sem aðskilja ríku og fátæku þjóð-
irnar. Á fundinum í gær náðist
samkomulag um hráefnasjóðinn
svokallaða, sem á að vera tæki til
að framkvæma hráefnaáadlanir
viðskiptanefndar Sameinuðu
þjóðanna, en hún miðar m.a. að
því að draga úr verðsveiflum og
tryggja hráefnaframleiðendum
fastan markað.
Cyrus Vance, utanrikisráðherra
Bandaríkjanna, yfirgaf fundinn í
morgun og hélt heimleiðis, en
skipaði Richard Cooper aðstoðar-
utanríkisráðherra fulltrúa sinn.
19 þróunarlönd og oliufram-
leiðslulönd vísuðu í morgun á bug
tillögu iðnaðarrikjanna 8 um að
komið yrði á fót fastanefnd til að
fjalla um orkumál og iðnaðarrikin
gátu ekki sætt sig við gagn tillögu
ríkjanna 19, en ekki hefur verið
upplýst í hverju sú tillaga er fólg-
in.
Heimildir í París hermdu í
kvöld að fulltrúar beggja hópa
hyggðust gefa út sérstakar til-
kynningar, þar sem fram komi að
fundurinn hafi algerlega mistek-
ist eða því sem næst. Ráðstefna
þessi hófst fyrir 18 mánuðum og
átti að ljúka i gær. í kvöld var
ekki ljóst hvenær henni lyki
endanlega eða hvort tækist á sið-
ustu stundu að berja saman mála-
miðlunartillögu.
hefði verið bein uppörvun til
stjórnarinnar um að láta til skar-
ar skríða. Síðan sagði: „Tass hef-
ur heimild til að lýsa því yfir að
öll ábyrgð á afleiðingum innrásar-
innar hvílir á herðum kynþátta-
fordómarikisstjórnanna i suður-
hluta Afríku og erlendra stuðn-
ingsmanna þeirra."
Engin opinber tilkynning hefur
komið frá Rhódesíustjórn um að
lið hennar hafi verið kallað til
baka og í dag sagði yfirmaður
Framhaid á bls. 20.
Belgía:
Stjórnin féll eftir
eina klukkustund
Briissel, 2. júní. AP — Reuter.
í KVÖLI) var allt óljóst um lausn
stjórnarkreppunnar f Belgiu,
eftir að 4 af ráðherrum nýmynd-
aðrar stjórnar Leo Tindemans
mættu ekki til að sverja
embættiseið aðeins einni klukku-
stund eftir að forsætisráðherrann
hafði opinberlega tilkynnt um
myndun nýrrar stjórnar á blaða-
mannafundi. Tindemans gekk þá
þegar á fund Baudouins konungs
og sagði af sér. Mun konungur
taka afstöðu til lausnarbeiðnar-
innar á morgun. Tindemans vildi
í kvöld ekkert segja við frétta-
menn um hvert hann héldi að
framhaldið yrði, en sagðist
m.vndu fara í að kanna stöðuna
eftir stutta hvfld. Stjórnarmvnd-
unartilraunirnar f landinu hafa
nú staðið í T vikur, eða frá þvf að
úrslit f þingkosningunum lágu
fyrir.
Fjórir flokkar áttu aðild að
stjórninni, sem Tindemans taldi
sig hafa myndað. Flokkur hans,
Kristilegi sósialistaflokkurinn
var með 10 ráðherra, sósíalistar
meö 9 og tveir minni flokkar,
Volksunieflokkur flæmskumæl-
andi manna og FDF, flokkur
frönskuinælandi höfðu 2 ráðherra
hvor. Flokkarnir 4 hafa 173 þing-
sæti af 212 i þinginu. Ráðherrarn-
ir 4 sem ekki mættu, voru allir úr
einurn armi flokks Tindemans, en
þeir lýstu yfir óánægju með þau
ráðherraembætti, sem þeim hafði
verið úthlutað. Þeir voru Paul
Boeynants aðstoðarforsætisráð-
herra og varnarmálaráðherra,
Alfred Calicice félagsmálaráð-
herra, Antoine Gumblet land-
búnaðarráðherra og Joseph
Michael menntamálaráðherra.
Fimm hlupu
fyrir lest á
fimm stöðum
Tokyo. 2. júnl. Reuter
Fimm konur á aldrinum
31 til 57 ára sviptu sig
lífi með því að hlaupa í
veg fyrir járnbrautar-
lestir á fimm stöðum í
Tokyo í dag.