Morgunblaðið - 03.06.1977, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JUNl 1977
Hátíðarhöld sjómanna-
dagsins í Haf narf irði
IIÁTÍÐARIIÖLD Sjómannadags-
ins í Ilafnarfiröi hefjast kl. 8 á
sunnudagsmorgun meö þvf aö
fánar veröa dregnir að húni.
Stuttu sfðar eða kl. 9.30 fara hafn-
firzk skip og bátar f skemmtisigl-
ingu með börn.
Eftir hádegi eða kl. 13.30 verð-
ur sjómannamessa í Þjóðkirkj-
unni, prestur sérá Sigurður Guð-
mundsson og að lokinni messu kl.
14.15 verður skrúðganga frá
kírkju að hátíðarsvæði við at-
hafnasvæði Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar. Þar verða flutt
ávörp, fyrir hönd Slysavarna-
deildarinnar Hraunprýði talar
Hulda Sigurjónsdóttir og af hálfu
sjómanna talar Eðvald Eðvalds-
son skipstjóri. Þá verða aldraðir
sjómenn heiðraðir. Að því loknu
eða kl. 15.30 sýnir þyrla frá
varnarliðinu björgun af sjó, siðan
verður kappróður, koddaslagur
o.fl. og sýning hraðbáta i höfn-
inni. Kvöldfagnaður sjómanna
hefst kl. 19 í Skiphóli. Merki og
blöð dagsins verða afhent frá kl. 9
um morguninn í Bæjarbíói.
Ekkí haldið áfram með
veginn milli Kópa-
vogs og Hafnarfjarðar
LJÓST er að ekki verður haldið
áfram með veginn milli Arnar-
nessháls og Ilafnarf jarðar á
þessu ári, frá þeim stað sem horf-
ið var frá í fyrra, en þá var lokið
við að gera fjögurra akreina veg
að hálsinum.
Snæbjörn Jónasson vegamála-
stjóri sagði i samtáli við Morgun-
blaöiö í gær, að enn væri ekki
búið að ákveða hvar vegurinn
ætti aö liggja i gegnum Garðabæ
— 201 skip
Framhald af bls. 36
sögn framleiðenda hristaranna
hér, þá er alls ekki hægt aö
búast við aö fleiri en 60 hrist-
arar verði komnir í notkun í
haust, þó framleitt sé eftir
ítrasta mætti.
Þau skip, sem fengu leyfi til
síldveiða á s.l. hausti munu
ekki fá leyfi í haust, en ein-
hver brögö munu vera aö þvi
aö sótt hafi veriö um síldveiði-
leyfi fyrir þau.
„Skipið”
í Þjóðleik-
húsinu
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur
nú hafið sýningar á fær-
eyska leikritinu „Skipinu"
eftir nokkurt hlé.---
Leikurinn var sýndur í
gærkveldi og verður aftur
á fjölunum á laugardags-
kvöldið. „Skipið“ hefur
hlotið ágætar viðtökur leik-
húsgesta. Töluvert hefur
borið á því að sjómenn og
fjölskyldur þeirra komi á
leikinn og jafnvel heilu
skipshafnirnar og starfs-
fólk útgerðarfyrirtækja.
---Myndin er af Rúrik
Haraldssyni og Hákoni
Waage í hlutverkum sín-
um.
til Hafnarfjarðar og þótt ákvörð-
un um það yrði tekin á næstu
vikum, yrði ekki hægt að hefja
framkvæmdir á þessu ári, þar
sem þá ætti eftir að gera allar
teikningar og hanna veginn. Því
mætti búast við erfiðri umferð
milli Kópavogs og Hafnarfjarðar i
það minnsta á næsta ári.
Morgunblaðið spurði Snæbjörn
hvort nokkur ákvörðun hefði ver-
ið tekin enn um vegarlagningu
frá Breiöholtsbraut að Reykjanes-
braut fyrir ofan Garðabæ og
Hafnarfjörð. Kvað hann svo ekki
vera. _____,
Fyrsta
kolmunna-
trollið sett
upp hjá
Hampiðjunni
Á NÆSTUNNI mun Hampiðjan í
Reykjavík setja upp kolmunna-
troll og verður það fyrsta troll
sinnar tegundar, sem sett er
saman hérlendis.
Kolmunnatrollið verður svo-
kölluð tvílembingsvarpa, þ.e.
tveir bátar munu draga það en
ekki er enn fyllilega ákveðið
hvaða bátar reyna vörpuna fyrst.
— Katla
Framhald af hls. 36
ist vera 4,9 stig á Richter, og þá
vantaði klukkuna 6 mínútur i
þrjú. Hinn kippurinn sem mæld-
ist 4 stig, kom 5 mínútum síðar.
Þessir kippir fundust víða eins og
í Vík, Mýrdal, Fagradal, Skaftár-
dal og Snæbýli og eins inni í Þórs-
mörk.
Einar kvað enga sterka kippi
hafa komið á eftir þessum tveim,
en hins vegar hefði verið stanz-
laus órói á svæðinu og væri þetta
skarpasta skjálftahrinan, sem
komið hefði á Kötlusvæðinu í
fjölda ára. í apríl s.l. kom einn
skjálftí sem mældist 4.5 stig á
Richter.
— Siðan í fyrrahaust hefur ekki
liðið sú vika að ekki hafi ein-
hverjir jarðskjálftar mælzt á
mælinum hér á Skammadalshóli
og allir hafa þeir átt upptök f
norðanverðum Mýrdalsjökli. Það
hefur lika verið stigandi i þessu
allan timann og til gamans má
geta þess að á laugardag fyrir
hvítasunnu komu 12 skjálftar
fram á mælinum.
Á Skammadalshóli hefur verið
jarðskjálftamælir frá árinu 1971.
— Frá þeim tíma og að ég held frá
1970 hefur verið stanzlaus fjölgun
jarðskjálfta sem hafa átt upptök
sin undir Mýrdalsjökli og því tel
ég ekki ósennilegt að Katla fari að
láta kveða verulega að sér, jafn-
vel á þessu ári, sagði Einar þegar
Morgunblaðið spurði hann hvort
Katla myndi gjósa á þessu ári.
Áð lokum sagði Einar, að þótt
hræringarnar í Kötlu frá því í
fyrra haust væru orðnar miklar,
væru þær vart eins miklar og
1967.
— Verkfallið
Framhald af bls. 36
flug félagsins leggst niður í dag,
en á morgun verur flogið sam-
kvæmt áætlun.
Þjónar verða ekki í verkfalli, en
hins vegar hljómlistarmenn. Þvi
verða ekki dansleikir i kvöld,
nema á þeim stöðum, þar sem
unnt er að spila tónlist af plötum,
diskótek. Samkvæmt
upplýsingum frá Sigtúni munu
þjónar vinna, en eigendur munu
verða við dyrnar til miðnættis, en
búizt er við að dyraverðir komi,
en þá lýkur verkfallinu. Fata-
geymsla verður ekki opin og tón-
list verður af plötum. Þá verða öll
kvikmyndahús lokuð i dag.
— 18% sam-
dráttur
Framhald af bls. 36
þessa samdráttar, að menn
teldu að þar kæmi helst til
minnkun kaupmáttar fólks og
að hluta breyttar neysluvenjur.
Allt útlit væri nú fyrir sagði
Jón að þörfin fyrir útflutnings-
bætur með landbúnaðarvörum
yrði meiri en áætlað hefði verið
vegna þessa samdráttar þrátt
fyrir að kindakjötsframleiðslan
I haust hefði verið 5% minni en
árið áður. Þróun mjólkurfram-
leiðslunnar í sumar hefði þó
þarna mikil áhrif.
— Hjá Framleiðsluráði hafa
verið ræddar ýmsar leiðir til að
mæta þessum vanda og nýverið
sendu Framleiðsluráð og
Stéttarsamband bænda frá sér
yfirlýsingu þar sem lýst er
stuðningi við það að söluskattur
verði felldur niður af kjöti
og/eða að hækka niður-
greiðslur. Hafa menn þá helst í
huga að auka niðurgreiðslur á
smjöri og kindakjöti, því þar
hefur salan dregist mest
saman. Þá hafa fulltrúar
bænda rætt þetta ástand við
ráðherra ríkisstjórnarinnar en
um hvort gripið verður til ein-
hverra aðgerða er ekki hægt að
segja á þessu stigi, sagði Jón að
lokum.
— Sérkröfuvið-
ræður
Framhald af bls. 36
í samningum, sem i gildi hafa
verið, var gert ráð fyrir þvi aö
tæknimenntað fólk gengi fyrir í
aðstoðarstörf við lyfjagerð, en
verzlunarmenn krefjast þess nú
að tæknimenntað fólk gangi einn-
ig fyrir um yinnu við afgreiðslu I
apótekum og skuli ekki gengið
fram hjá þessu fólki, sem lagt
hefur að baki 3ja ára nám í Lyfja-
tækniskóla íslands, og ráðið ófag-
lært fólk.
Morgunblaðið hafði i gær sam-
band við Matthías Ingibergsson
apótekara, formann Apótekara-
félags Islands. Hann kvað apótek-
in rekin fyrir sjúkratryggingafé
og ljóst væri að apótekin gætu
ekki gengið fram fyrir skjöldu og
boðið eitthvað, sem framleiðslu-
stéttirnar fá ekki og ekki er hægt
að bjóða þeim. Þetta er það eina
sem ég get sagt. Ég veit ekkert
um málið að öðru leyti — sagði
Matthias Ingibergsson og bætti
því við að hann teldi að það orð
hefði farið af apótekunum, að þau
gerðu ekki illa við sitt starfsfólk
og ekki hefði verið kvartað undan
siíku hingað til.
Sérkröfuviðræður héldu áfram
í gær með öðrum starfshópum.
Samkvæmt upplýsingum Torfa
Hjartarsonar sáttasemjara voru
bæði járniðnaðarmenn og bygg-
ingarmenn í viðræðum við við-
semjendur sína án leiðsagnar
sáttasemjara. „Var það með ráð-
um gert að gefa þeim frið til þess
að ræða saman,“ sagði Torfi
Hjartarson. Þá voru bókagerðar-
menn í sérkröfuviðræðum í
Hamrahlíðarskólanum í gær, svo
og bakarar og siðan var gert ráð
fyrir að aðalsamninganefndir
kæmu þar saman í gærkveldi
klukkan 21. Þá voru tveir hópar í
sérkröfuviðræðum á Loftleiða-
hótelinu í gær, matreiðslumenn
og starfsfólk í veitingahúsum.
Verzlunarmenn eru 26,46% af
launþegum innan ASÍ og á meðan
þeir hafa ekki gengið frá sérkröf-
um slnum hafa aðeins 44,93%
launþega afgreitt sérkröfur sinar,
en um leið og verzlunarmenn
hafa gert það og töldu menn að
ekki gæti lengi staðið á atriði sem
þessu með starfsfólk apótekanna
mjög lengi, hafa 71,39% launþega
innan ASÍ afgreitt sérkröfur sin-
ar innan 2'A% rammans í tiilögu
sáttanefndar.
Vegna þessarar deilu við apó-
tekarana var allt útlit fyrir að
afgreiðslufólkið legði niður vinnu
í apótekunum i dag og mun það
vera fyrsta sinni, sem slíkt gerist,
enda hafði ekki verið gefin
undanþága frá verkfallinu í gær.
— Sjónarmið
Framhald af bls. 21
þannig að þau komi bændum strax
að notum
4) Sjálfstæðisflokkurinn telur, að
landbúnaður eigi örugga framtíð á
íslandi. ef rétt er haldið á fram-
leiðslu- og markaðsmálum í þvi
sambandi leggur flokkurinn áherslu
á. að rannsókna- og leiðbeininga-
starfsemi sé beint af alefli að hag-
nýtum viðfangsefnum til þess að
leita lausna á vandámálum fram-
leiðslu, finna leiðir til að lækka fram-
leiðslu- og vinnslukostnað og auka
söluverðmæti framleiðslunnar.
— Hann lenti
í hópi
Framhald af bls. 17
eyrarbrunanum á Akureyri 1906
og síðan f Hótel íslandsbrunanum
í Reykjavik. En Einar málaði ávallt
og tók starf sitt alvarlega. Aldrei
varð hann þó ríkur maður af list
sinni, og þegar hann fluttist ásamt
fjölskyldu sinni frá Norðurlandi til
Reykjavíkur var fjárhagurinn ekki
betri en það að kornabarn þeirra
hjóna fluttu þau með sér í ávaxta-
körfu.
Þingvellir voru Einari hugleikið
viðfangsefni og oft fór hann þang-
að á hjóli sfnu um helgar þegar
vinnu var lokið. Þá var málað og
teiknað f beit yfir helgina og að-
eins krækt f krfu í nokkrar stundir
til þess að láta mestu þreytuna
líða úr sér.
Einar skreytti einnig margar
kirkjur landsins og t.d. er nýlega
búið að lagfæra og endurnýja
skreytingu hans á Prestbakka-
kirkju. Sá staður og umhverfið var
honum mjög hugleikið og t.d.
kvað hann eftirfarandi vfsu í ferð
sem hann fór á Kaldbak með séra
Magnúsi á Prestbakka:
Á Kaldbaki, konungi fjalla,
kysi ég helzt mér gröf.
Nú sjáum við Síðuna alla
og suður um reginhöf.
Þeir sem heimsækja sýningu
Einars Jónssonar í Asmundarsal fá
leiðsögn og frásagnir ættingja
hans. Þar hanga myndir sem t.d.
meistari Kjarval taldi með perlum
fslenzkrar myndlistar, en þær hafa
farið hljótt eins og Hjalti sagði um
föður sinn: „Hann lenti f hópi
þeirra sem komu hljóðlega og
hann fór hljóðlega aftur." — á.j.
— Um 485 millj.
Framhald af bls. 2
unum og Austurdeild og í níunda
og tíunda áfanga Seljahverfis. Þá
verður röskum 77 milljónum
króna varið til malbikunar í
Vatnagörðum frá Flugskálavegi
að Kleppi og rúmlega 100 milljón-
um er varið til malbikunar í nýju
iðnaðarhverfin við Vesturlands-
veg.
Gangstéttir verða lagðar við
Lækjargötu, frá Kalkofnsvegi í
átt að Ingólfsgarði, f Einarsnesi,
Leirulæk, Grensásveg sunnan
Miklubrautar, Stóragerði, Álm-
gerði, við Grensásveg frá Álm-
gerði að Bústaðavegi, í Borgar-
gerði, Langagerði, Traðarlandi,
Sævarlandi, Stjörnugróf, Undra-
landi, Vogalandi, Arnarbakka,
Núpabakka, Réttarbakka, í Dal-
seli og Fífuseli. Alls verður rösk-
um 23 milljónum króna varið til
þessara framkvæmda.
Lftið eitt lægri upphæð eða 22,7
milljónum króna verður varið til
gerðar gangstfga við Framnesveg,
Umferðarmiðstöðina, milli Skip-
holts og Hjálmholts, frá Eskihlíð
að Hafnarfjarðarvegi, Bakka-
gerði, Teigagerði, Byggðarenda,
Ljósalandi, Skriðustekk, Stranda-
seli að Tunguseli, frá Stekkjar-
bakka að Engjaseli, frá Dalseli að
Fffuseli og við Völvufell.
— Rhódesía
Framhald af bls. 1
innrásarsveitanna að menn sinir
myndu halda áfram aðgerðum þar
til tekist hefði að eyðileggja allar
búðir þeldökkra þjóðernissinna á
svæðinu. Voru Rhódesfusveitirn-
ar þá um 100 km fyrir innan
landamæri Mosambique.
Talsmenn Bandaríkjastjórnar,
sem í gær varaði Rhódesíumenn
við, að annaðhvort drægju þeir lið
sitt til baka eða tækju afleiðing-
unum, sögðu í einkaviðræðum við
fréttamenn í Washington í dag, að
Bretar og Bandaríkjamenn ihug-
uðu refsiaðgerðir gegn Rhódesiu-
stjórn, t.d. með því að fordæma
innrásina á vettvangi S.Þ. og
beita efnahagslegum þrýstingi
gegnum S-Afríku, sem sér
Rhódesíu fyrir eldsneyti og helztu
nauðsynjavörum.
— Hagvöxtur
Framhald af bls. 2
grasafræðingurinn próf. Nicholas
Polunin.
Gert er ráð fyrir að 20—30
islenzkir vfsindamenn taki þátt I
ráðstefnu þessari, auk hinna er-
lendu þátttakenda. Munu tveir
ísendingar flytja erindi á ráð-
stefnunni. Það eru þeir Gunnar
G. Schram prófessor, sem ræðir
um setningu alþjóðalaga um um-
hverfismál og dr. Sturla Friðriks-
son, sem fjallar um gróðureyð-
ingu og ræktunarmöguleika. Þá
munu Ragnar Halldórsson forstj.
álversins í Straumsvík og Eyjólf-
ur Sæmundsson verkfræðingur
við Heilbrigðiseftirlit ríkisins
taka þátt í sérstökum fundi um
mengun á íslandi. Erindi, sem
flutt verða á ráðstefnu þessari og
umræður, verða gefin út á vegum
Mcmillan bókaforlagsins í
Lundúnum.
— Spítalarnir
Framhald af bls. 2
ingum, svo og sinntu röntgen-
deildir bæði Landspitalans og
Borgarspítalans að verulegu leyti
utanaðkomandi fólki. Skýringuna
á auknu starfsliði mætti að
nokkru rekja til umfangsmeiri
starfsemi þessara stofnana en
verið hefði áður fyrr, auk þess
sem aukinn fjöldi starfsliðs bætti
umönnun sjúklinga og stuðlaði
þannig að færri legudögum þegar
á heildina væri Iitið.
— Verbúðarlíf
Framhald af bls. 26
þegar mikið væri að gera nýttust
hvíldartímarnir því betur
S.l. sumar kváðu þær hafa verið
mikið af skólafólki í verbúðunum,
bæði unglingaskólafólki. mennta-
skóla- og háskólafólki og innan
þessa samfélags hefði myndazt
mjög heilbrigður og góður félags-
skapur þannig að fremur hefði verið
eins og um eina stóra fjölskyldu
hefði verið að ræða en ekki hóp
einstaklinga úr öllum áttum. Töldu
þær fráleitt að stimpla verbúðafólk
með einhverjum svallstimpli eins og
stundum bæri við
Herbergi þeirra bar vott um það
hvernig þær stöllur eyddu frítfma
sfnum, þvf myndskreytingar voru af
ýmsu tagi og í spjalli við þær komu
fram þroskaðar og jákvæðar hug-
myndir um lífið sjálft og gildi þess.
— Sigurgeir.