Morgunblaðið - 03.06.1977, Síða 20

Morgunblaðið - 03.06.1977, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JUNl 1977 Hátíðarhöld sjómanna- dagsins í Haf narf irði IIÁTÍÐARIIÖLD Sjómannadags- ins í Ilafnarfiröi hefjast kl. 8 á sunnudagsmorgun meö þvf aö fánar veröa dregnir að húni. Stuttu sfðar eða kl. 9.30 fara hafn- firzk skip og bátar f skemmtisigl- ingu með börn. Eftir hádegi eða kl. 13.30 verð- ur sjómannamessa í Þjóðkirkj- unni, prestur sérá Sigurður Guð- mundsson og að lokinni messu kl. 14.15 verður skrúðganga frá kírkju að hátíðarsvæði við at- hafnasvæði Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar. Þar verða flutt ávörp, fyrir hönd Slysavarna- deildarinnar Hraunprýði talar Hulda Sigurjónsdóttir og af hálfu sjómanna talar Eðvald Eðvalds- son skipstjóri. Þá verða aldraðir sjómenn heiðraðir. Að því loknu eða kl. 15.30 sýnir þyrla frá varnarliðinu björgun af sjó, siðan verður kappróður, koddaslagur o.fl. og sýning hraðbáta i höfn- inni. Kvöldfagnaður sjómanna hefst kl. 19 í Skiphóli. Merki og blöð dagsins verða afhent frá kl. 9 um morguninn í Bæjarbíói. Ekkí haldið áfram með veginn milli Kópa- vogs og Hafnarfjarðar LJÓST er að ekki verður haldið áfram með veginn milli Arnar- nessháls og Ilafnarf jarðar á þessu ári, frá þeim stað sem horf- ið var frá í fyrra, en þá var lokið við að gera fjögurra akreina veg að hálsinum. Snæbjörn Jónasson vegamála- stjóri sagði i samtáli við Morgun- blaöiö í gær, að enn væri ekki búið að ákveða hvar vegurinn ætti aö liggja i gegnum Garðabæ — 201 skip Framhald af bls. 36 sögn framleiðenda hristaranna hér, þá er alls ekki hægt aö búast við aö fleiri en 60 hrist- arar verði komnir í notkun í haust, þó framleitt sé eftir ítrasta mætti. Þau skip, sem fengu leyfi til síldveiða á s.l. hausti munu ekki fá leyfi í haust, en ein- hver brögö munu vera aö þvi aö sótt hafi veriö um síldveiði- leyfi fyrir þau. „Skipið” í Þjóðleik- húsinu ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur nú hafið sýningar á fær- eyska leikritinu „Skipinu" eftir nokkurt hlé.--- Leikurinn var sýndur í gærkveldi og verður aftur á fjölunum á laugardags- kvöldið. „Skipið“ hefur hlotið ágætar viðtökur leik- húsgesta. Töluvert hefur borið á því að sjómenn og fjölskyldur þeirra komi á leikinn og jafnvel heilu skipshafnirnar og starfs- fólk útgerðarfyrirtækja. ---Myndin er af Rúrik Haraldssyni og Hákoni Waage í hlutverkum sín- um. til Hafnarfjarðar og þótt ákvörð- un um það yrði tekin á næstu vikum, yrði ekki hægt að hefja framkvæmdir á þessu ári, þar sem þá ætti eftir að gera allar teikningar og hanna veginn. Því mætti búast við erfiðri umferð milli Kópavogs og Hafnarfjarðar i það minnsta á næsta ári. Morgunblaðið spurði Snæbjörn hvort nokkur ákvörðun hefði ver- ið tekin enn um vegarlagningu frá Breiöholtsbraut að Reykjanes- braut fyrir ofan Garðabæ og Hafnarfjörð. Kvað hann svo ekki vera. _____, Fyrsta kolmunna- trollið sett upp hjá Hampiðjunni Á NÆSTUNNI mun Hampiðjan í Reykjavík setja upp kolmunna- troll og verður það fyrsta troll sinnar tegundar, sem sett er saman hérlendis. Kolmunnatrollið verður svo- kölluð tvílembingsvarpa, þ.e. tveir bátar munu draga það en ekki er enn fyllilega ákveðið hvaða bátar reyna vörpuna fyrst. — Katla Framhald af hls. 36 ist vera 4,9 stig á Richter, og þá vantaði klukkuna 6 mínútur i þrjú. Hinn kippurinn sem mæld- ist 4 stig, kom 5 mínútum síðar. Þessir kippir fundust víða eins og í Vík, Mýrdal, Fagradal, Skaftár- dal og Snæbýli og eins inni í Þórs- mörk. Einar kvað enga sterka kippi hafa komið á eftir þessum tveim, en hins vegar hefði verið stanz- laus órói á svæðinu og væri þetta skarpasta skjálftahrinan, sem komið hefði á Kötlusvæðinu í fjölda ára. í apríl s.l. kom einn skjálftí sem mældist 4.5 stig á Richter. — Siðan í fyrrahaust hefur ekki liðið sú vika að ekki hafi ein- hverjir jarðskjálftar mælzt á mælinum hér á Skammadalshóli og allir hafa þeir átt upptök f norðanverðum Mýrdalsjökli. Það hefur lika verið stigandi i þessu allan timann og til gamans má geta þess að á laugardag fyrir hvítasunnu komu 12 skjálftar fram á mælinum. Á Skammadalshóli hefur verið jarðskjálftamælir frá árinu 1971. — Frá þeim tíma og að ég held frá 1970 hefur verið stanzlaus fjölgun jarðskjálfta sem hafa átt upptök sin undir Mýrdalsjökli og því tel ég ekki ósennilegt að Katla fari að láta kveða verulega að sér, jafn- vel á þessu ári, sagði Einar þegar Morgunblaðið spurði hann hvort Katla myndi gjósa á þessu ári. Áð lokum sagði Einar, að þótt hræringarnar í Kötlu frá því í fyrra haust væru orðnar miklar, væru þær vart eins miklar og 1967. — Verkfallið Framhald af bls. 36 flug félagsins leggst niður í dag, en á morgun verur flogið sam- kvæmt áætlun. Þjónar verða ekki í verkfalli, en hins vegar hljómlistarmenn. Þvi verða ekki dansleikir i kvöld, nema á þeim stöðum, þar sem unnt er að spila tónlist af plötum, diskótek. Samkvæmt upplýsingum frá Sigtúni munu þjónar vinna, en eigendur munu verða við dyrnar til miðnættis, en búizt er við að dyraverðir komi, en þá lýkur verkfallinu. Fata- geymsla verður ekki opin og tón- list verður af plötum. Þá verða öll kvikmyndahús lokuð i dag. — 18% sam- dráttur Framhald af bls. 36 þessa samdráttar, að menn teldu að þar kæmi helst til minnkun kaupmáttar fólks og að hluta breyttar neysluvenjur. Allt útlit væri nú fyrir sagði Jón að þörfin fyrir útflutnings- bætur með landbúnaðarvörum yrði meiri en áætlað hefði verið vegna þessa samdráttar þrátt fyrir að kindakjötsframleiðslan I haust hefði verið 5% minni en árið áður. Þróun mjólkurfram- leiðslunnar í sumar hefði þó þarna mikil áhrif. — Hjá Framleiðsluráði hafa verið ræddar ýmsar leiðir til að mæta þessum vanda og nýverið sendu Framleiðsluráð og Stéttarsamband bænda frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er stuðningi við það að söluskattur verði felldur niður af kjöti og/eða að hækka niður- greiðslur. Hafa menn þá helst í huga að auka niðurgreiðslur á smjöri og kindakjöti, því þar hefur salan dregist mest saman. Þá hafa fulltrúar bænda rætt þetta ástand við ráðherra ríkisstjórnarinnar en um hvort gripið verður til ein- hverra aðgerða er ekki hægt að segja á þessu stigi, sagði Jón að lokum. — Sérkröfuvið- ræður Framhald af bls. 36 í samningum, sem i gildi hafa verið, var gert ráð fyrir þvi aö tæknimenntað fólk gengi fyrir í aðstoðarstörf við lyfjagerð, en verzlunarmenn krefjast þess nú að tæknimenntað fólk gangi einn- ig fyrir um yinnu við afgreiðslu I apótekum og skuli ekki gengið fram hjá þessu fólki, sem lagt hefur að baki 3ja ára nám í Lyfja- tækniskóla íslands, og ráðið ófag- lært fólk. Morgunblaðið hafði i gær sam- band við Matthías Ingibergsson apótekara, formann Apótekara- félags Islands. Hann kvað apótek- in rekin fyrir sjúkratryggingafé og ljóst væri að apótekin gætu ekki gengið fram fyrir skjöldu og boðið eitthvað, sem framleiðslu- stéttirnar fá ekki og ekki er hægt að bjóða þeim. Þetta er það eina sem ég get sagt. Ég veit ekkert um málið að öðru leyti — sagði Matthias Ingibergsson og bætti því við að hann teldi að það orð hefði farið af apótekunum, að þau gerðu ekki illa við sitt starfsfólk og ekki hefði verið kvartað undan siíku hingað til. Sérkröfuviðræður héldu áfram í gær með öðrum starfshópum. Samkvæmt upplýsingum Torfa Hjartarsonar sáttasemjara voru bæði járniðnaðarmenn og bygg- ingarmenn í viðræðum við við- semjendur sína án leiðsagnar sáttasemjara. „Var það með ráð- um gert að gefa þeim frið til þess að ræða saman,“ sagði Torfi Hjartarson. Þá voru bókagerðar- menn í sérkröfuviðræðum í Hamrahlíðarskólanum í gær, svo og bakarar og siðan var gert ráð fyrir að aðalsamninganefndir kæmu þar saman í gærkveldi klukkan 21. Þá voru tveir hópar í sérkröfuviðræðum á Loftleiða- hótelinu í gær, matreiðslumenn og starfsfólk í veitingahúsum. Verzlunarmenn eru 26,46% af launþegum innan ASÍ og á meðan þeir hafa ekki gengið frá sérkröf- um slnum hafa aðeins 44,93% launþega afgreitt sérkröfur sinar, en um leið og verzlunarmenn hafa gert það og töldu menn að ekki gæti lengi staðið á atriði sem þessu með starfsfólk apótekanna mjög lengi, hafa 71,39% launþega innan ASÍ afgreitt sérkröfur sin- ar innan 2'A% rammans í tiilögu sáttanefndar. Vegna þessarar deilu við apó- tekarana var allt útlit fyrir að afgreiðslufólkið legði niður vinnu í apótekunum i dag og mun það vera fyrsta sinni, sem slíkt gerist, enda hafði ekki verið gefin undanþága frá verkfallinu í gær. — Sjónarmið Framhald af bls. 21 þannig að þau komi bændum strax að notum 4) Sjálfstæðisflokkurinn telur, að landbúnaður eigi örugga framtíð á íslandi. ef rétt er haldið á fram- leiðslu- og markaðsmálum í þvi sambandi leggur flokkurinn áherslu á. að rannsókna- og leiðbeininga- starfsemi sé beint af alefli að hag- nýtum viðfangsefnum til þess að leita lausna á vandámálum fram- leiðslu, finna leiðir til að lækka fram- leiðslu- og vinnslukostnað og auka söluverðmæti framleiðslunnar. — Hann lenti í hópi Framhald af bls. 17 eyrarbrunanum á Akureyri 1906 og síðan f Hótel íslandsbrunanum í Reykjavik. En Einar málaði ávallt og tók starf sitt alvarlega. Aldrei varð hann þó ríkur maður af list sinni, og þegar hann fluttist ásamt fjölskyldu sinni frá Norðurlandi til Reykjavíkur var fjárhagurinn ekki betri en það að kornabarn þeirra hjóna fluttu þau með sér í ávaxta- körfu. Þingvellir voru Einari hugleikið viðfangsefni og oft fór hann þang- að á hjóli sfnu um helgar þegar vinnu var lokið. Þá var málað og teiknað f beit yfir helgina og að- eins krækt f krfu í nokkrar stundir til þess að láta mestu þreytuna líða úr sér. Einar skreytti einnig margar kirkjur landsins og t.d. er nýlega búið að lagfæra og endurnýja skreytingu hans á Prestbakka- kirkju. Sá staður og umhverfið var honum mjög hugleikið og t.d. kvað hann eftirfarandi vfsu í ferð sem hann fór á Kaldbak með séra Magnúsi á Prestbakka: Á Kaldbaki, konungi fjalla, kysi ég helzt mér gröf. Nú sjáum við Síðuna alla og suður um reginhöf. Þeir sem heimsækja sýningu Einars Jónssonar í Asmundarsal fá leiðsögn og frásagnir ættingja hans. Þar hanga myndir sem t.d. meistari Kjarval taldi með perlum fslenzkrar myndlistar, en þær hafa farið hljótt eins og Hjalti sagði um föður sinn: „Hann lenti f hópi þeirra sem komu hljóðlega og hann fór hljóðlega aftur." — á.j. — Um 485 millj. Framhald af bls. 2 unum og Austurdeild og í níunda og tíunda áfanga Seljahverfis. Þá verður röskum 77 milljónum króna varið til malbikunar í Vatnagörðum frá Flugskálavegi að Kleppi og rúmlega 100 milljón- um er varið til malbikunar í nýju iðnaðarhverfin við Vesturlands- veg. Gangstéttir verða lagðar við Lækjargötu, frá Kalkofnsvegi í átt að Ingólfsgarði, f Einarsnesi, Leirulæk, Grensásveg sunnan Miklubrautar, Stóragerði, Álm- gerði, við Grensásveg frá Álm- gerði að Bústaðavegi, í Borgar- gerði, Langagerði, Traðarlandi, Sævarlandi, Stjörnugróf, Undra- landi, Vogalandi, Arnarbakka, Núpabakka, Réttarbakka, í Dal- seli og Fífuseli. Alls verður rösk- um 23 milljónum króna varið til þessara framkvæmda. Lftið eitt lægri upphæð eða 22,7 milljónum króna verður varið til gerðar gangstfga við Framnesveg, Umferðarmiðstöðina, milli Skip- holts og Hjálmholts, frá Eskihlíð að Hafnarfjarðarvegi, Bakka- gerði, Teigagerði, Byggðarenda, Ljósalandi, Skriðustekk, Stranda- seli að Tunguseli, frá Stekkjar- bakka að Engjaseli, frá Dalseli að Fffuseli og við Völvufell. — Rhódesía Framhald af bls. 1 innrásarsveitanna að menn sinir myndu halda áfram aðgerðum þar til tekist hefði að eyðileggja allar búðir þeldökkra þjóðernissinna á svæðinu. Voru Rhódesfusveitirn- ar þá um 100 km fyrir innan landamæri Mosambique. Talsmenn Bandaríkjastjórnar, sem í gær varaði Rhódesíumenn við, að annaðhvort drægju þeir lið sitt til baka eða tækju afleiðing- unum, sögðu í einkaviðræðum við fréttamenn í Washington í dag, að Bretar og Bandaríkjamenn ihug- uðu refsiaðgerðir gegn Rhódesiu- stjórn, t.d. með því að fordæma innrásina á vettvangi S.Þ. og beita efnahagslegum þrýstingi gegnum S-Afríku, sem sér Rhódesíu fyrir eldsneyti og helztu nauðsynjavörum. — Hagvöxtur Framhald af bls. 2 grasafræðingurinn próf. Nicholas Polunin. Gert er ráð fyrir að 20—30 islenzkir vfsindamenn taki þátt I ráðstefnu þessari, auk hinna er- lendu þátttakenda. Munu tveir ísendingar flytja erindi á ráð- stefnunni. Það eru þeir Gunnar G. Schram prófessor, sem ræðir um setningu alþjóðalaga um um- hverfismál og dr. Sturla Friðriks- son, sem fjallar um gróðureyð- ingu og ræktunarmöguleika. Þá munu Ragnar Halldórsson forstj. álversins í Straumsvík og Eyjólf- ur Sæmundsson verkfræðingur við Heilbrigðiseftirlit ríkisins taka þátt í sérstökum fundi um mengun á íslandi. Erindi, sem flutt verða á ráðstefnu þessari og umræður, verða gefin út á vegum Mcmillan bókaforlagsins í Lundúnum. — Spítalarnir Framhald af bls. 2 ingum, svo og sinntu röntgen- deildir bæði Landspitalans og Borgarspítalans að verulegu leyti utanaðkomandi fólki. Skýringuna á auknu starfsliði mætti að nokkru rekja til umfangsmeiri starfsemi þessara stofnana en verið hefði áður fyrr, auk þess sem aukinn fjöldi starfsliðs bætti umönnun sjúklinga og stuðlaði þannig að færri legudögum þegar á heildina væri Iitið. — Verbúðarlíf Framhald af bls. 26 þegar mikið væri að gera nýttust hvíldartímarnir því betur S.l. sumar kváðu þær hafa verið mikið af skólafólki í verbúðunum, bæði unglingaskólafólki. mennta- skóla- og háskólafólki og innan þessa samfélags hefði myndazt mjög heilbrigður og góður félags- skapur þannig að fremur hefði verið eins og um eina stóra fjölskyldu hefði verið að ræða en ekki hóp einstaklinga úr öllum áttum. Töldu þær fráleitt að stimpla verbúðafólk með einhverjum svallstimpli eins og stundum bæri við Herbergi þeirra bar vott um það hvernig þær stöllur eyddu frítfma sfnum, þvf myndskreytingar voru af ýmsu tagi og í spjalli við þær komu fram þroskaðar og jákvæðar hug- myndir um lífið sjálft og gildi þess. — Sigurgeir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.