Morgunblaðið - 03.06.1977, Side 34
34 .
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JUNl 1977
Stjörnurnar voru í
statista hl utverkum
Það má segja með sanni að
stjörnurnar í liði Bobbv Charl-
tons hafi verið í statistahlutverk-
um í leiknum gegn Islenzka
landsliðinu á Laugardalsvellin-
um í fvrrakvöld. Öllum á óvart
léku íslen/ku piltarnir aðalhlut-
verkið og stórgóður leikur þeirra
gefur auknar vonir um gott gengi
í landsleikjum sumarsins.
Brezka stjörnuliðið olli að vísu
vonbrigðum en þegar haft er í
huga :ð geysisterkir leikmenn
skipa þar hverja stöðu er 5:2 sig-
ur landsliðsins hinn eftirtektar-
í 1. og
2. deild
STAÐAN í 1 deild íslandsmótssins í
knattspyrnu er nú þessi
Akranes 6 5 0 1 9:4 10
Valur 6 4 0 2 10 8 8
Keflavík 5 3 1 1 10 7 7
Víkingur 4 1 3 O 3:2 5
Fram 6 2 1 3 9:8 5
Breiðablik 5 2 1 2 6:6 5
Þór 6 2 1 3 8 10 5
ÍBV 4 1 1 2 2:3 3
FH 6 1 1 4 4:9 3
KR 4 0 1 3 1:5 1
Markhæstu leikmenn
Ingi Björn Albertsson Val 5
Kristinn Björnsson ÍA
Sumarliði Guðbjartsson Fram
Ólafur Oanivalsson FH
Pétur Pétursson FH
Staðan i 2 deild er þessi:
Haukar
KA
Ármann
Þróttur R
Selfoss
Reynir S
Völsungur
ÍBÍ
Þróttur N
Reyntr Á
0 1
0 0
5
5
4
4
4
4
2
1
1
0
Fylkir
lOára
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Fylkir í Ár-
bæjarhverfi átti 10 ára afmæli á
laugardaginn.
Af þessu tilefni hefur félagið
gert ýmislegt til hátíðarbrigða.
Helsti liður hátíðahaldanna er af-
mælishátíð, sem haldin verður
n.k. laugardag 4. júni. Hátíðin
hefst með því að safnast verður
saman við Yztabæ klukkan 13.15
og gengið i skrúðgöngu við undir-
leik lúðrasveitar að Fylkisvellin-
um. Stutt ávörp verða flutt, fim-
leikasýning, pokahlaup og kapp-
leikir yngri flokka félagsins í
knattspyrnu og handknattleik.
Einnig verður kaffisala.
verðasti. Landsliðið byrjaði af
miklum krafti og eftir hálftíma
hafði Ingi Björn Albertsson sent
boltann þrisvar i netið, fyrst með
góðu skoti rétt innan vitateigslínu
á 10. minútu, síðan úr vítaspyrnu
á 15. mínútu, eftir að Gísla Torfa-
syni hafði verið brugðið innan
teigs, og loks með skalla á 31.
mínútu eftir aukaspyrnu Atla Eð-
valdsonar.
Rétt fyrir hlé skoraði Bobby
Charlton ágætt skallamark en það
voru ekki liðnar nema 8 mínútur
af seinni hálfleik þegar Ólafur
Danivalsson hafði sent boltann í
markið með glæsilegum tilþrif-
um. Brian Kidd minnkaði muninn
en lokaorðið átti Guðmundur Þor-
björnsson með glæsimarki á 70.
minútu, hann lék á tvo menn og
skoraði með þrumuskoti.
Að ieik loknum sögðu Bobby og
félagar að þeir hefðu verið þreytt-
ir eftir flugferðina en þeir fóru
lofsamlegum orðum um íslenzka
liðið og kváðu þar sterkara en
þeir bjuggust við. Að íslenzkt úr-
Guðgeir til
Þýzkalands
eða Frakklands?
SVO getur farið að Guðgeir
Leifsson leiki í 1. deild þýzku
knáttspyrnunnar næsta
keppnistímabil. Félagið Rot
Weiss Essen hefur áhuga á þvi
að kaupa Guðgeir og hefur
félagið átt viðræður við félag
Guðgeirs, Charleroi, en engar
ákvarðanir hafa verið teknar
en sem komið er.
Guðgeir sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að hann
væri nú á sölulista hjá
Charleroi. Kvað hann 5—6
félög hafa spurzt fyrir um sig,
félög í Belgíu, Frakklandi og
Þýzkalandi. Guðgeir vildi ekki
nefna félögin, sem hér um
ræðir né þá upphæð, sem
Charleroi hefur sett upp fyrir
hann, kvað það ekki tímabært
ennþá. Hann sagði að málin
skýrðust í þessum mánuði, en
Guðgeir hefur m.a. átt viðræð-
ur við forystumenn þýzka liðs-
ins.
Guðgeir er væntanlegur til
landsins á mánudaginn og
kvaðst hann tilbúinn að leika
gegn Norður-írum í næstu
viku, ef þess væri óskað.
valslið með alla atvinnumennina
fjarri skuli sýna slikan glæsileik
rennir enn frekar stoðum undir
þær kenningar að knattspyrnan á
íslandi sé nú betri en nokkru
sinni fyrr. Allir leikmenn is-
lenzka liðsins áttu góðan dag,
aðalmenn jafnt sem varamenn, og
það verður höfuðverkur fyrir
landsliðsnefndina að taka út
menn fyrir atvinnumennina.
Menn eins og Ingi Björn, Guð-
mundur, Gísli, Sigurður Dagsson
og fleiri virðast fastir i sessi eftir
þennan leik.
Og siðast en ekki sist fengu
hinir 8070 áhorfendur að sjá
skemmtilega knattspyrnu og þeir
fengu mikið fyrir sinn snúð.
— SS.
ÞANNIG voru mörkin skoruð.
Ingi Björn sést skora á tveim-
ur efstu myndunum, það sið-
ara er víti og hann skoraði
þriðja markið með skalla.
Næst kom röðin að Ólafi Dani-
valssyni að leika á markvörð-
inn og neðsta myndin sýnir
Jaekie Charlton hjálparlausan
þegar Guðmundur Þorbjörns-
son skorar fimmta markið.
Aukín spenna í keppni 2. deildar
eftir sigur Hauka yfir Þrótti
IIAUKAR unnu Þrótt, Reykjavík
verðskuldað i 2. deild í fyrrakvöld
og er baráttan því 1 aigleymingi í
deildinni. Lokatölur leiksins
urðu 2:1, en í hálfleik var staðan
2:0 fyrir Ilauka. Leikið var á
Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.
Leiðindaveður var þegar leikur-
inn fór fram, strekkingsvindur á
annað markið og léku Haukarnir
undan vindinum í fyrri hálfleik.
Þeir sóttu þá mun meira og skor-
uðu tvö mörk. Guðjón Sveinsson
skoraði bæði mörkin og voru þau
bæói mjög óvenjuleg. Fyrra
markið kom strax á 3. mínútu.
Guðjón var þá með boltann úti við
endamörk og ætlaði að gefa fyrir.
Öllum á óvart skrúfaðist boltinn
yfir markvörðinn og hafnaði í
markinu út við stöngina. Seinna
markið kom á 21. mínútu. Þá var
Guðjón staddur út við hliðarlfnu
nálægt miðlínunni og skaut háum
bolta á markið og þar hafnaði
hann.
1 seinni hálfleik jafnaðist leik-
urinn nokkuð en Haukarnir voru
þó allan tímann sterkari aðilinn.
Eina mark Þróttar kom á 75. mín-
útu og skoraði Stefán Stefánsson
markið.
Hjá Haukum var Gúðjón
Sveinsson beztur en lið Þróttar
átti slakan dag. Góður dómari
leiksins, Einar Hjartarson, sýndi
Halldóri Arasyni gula spjaldið.
—HVH.
Nafn féll niður
Á ÍÞRÓTTASÍÐUNNI í gær féll
niður nafn Sigurbjörns Gunnars-
sonar, en hann skrifaði um leik
Þórs og Vals.
Valur
AÐALFUNDUR Knattspyrnu-
félagsins Vals verður haldinn í
kvöld klukkan 20 í félagsheimil-
inu að Hlíðarenda. t „Venjuleg
aðalfundarstörf.
Þróltarar sækja að marki Hauka í leiknum á Kapla-
krikavelli.
KA vann heppnissigur á ísafirði
KA FEKK tvö mikilvæg stig í
baráttunni 1 2. deild f fyrrakvöld,
þegar liðið keppti við ísfirðinga á
ísafirði. KA sigraði 1:0 og var það
f hæsta máta ósanngjarn sigur.
isfirðingarnir sóttu miklu meira 1
leiknum og áttu m.a. fjögur
stangarskot en ekki vildi boltinn í
netið.
Sunnan gola var þegar leikur-
Knattspyrnan um helgina
inn fór fram og léku KA menn
undan vindinum í f.h. Strax á 2.
mínútu átti Haraldur Leifsson
gott skot á mark KA en boltinn
fór rétt framhjá. KA menn hófu
skyndisókn, löng sending barst
fram völlinn og Ármann útherji
skoraði eina mark leiksins.
KA sótti öllu meira í fyrri hálf-
leiknum og varði Hreiðar Sig-
tryggsson í nokkur skipti mjög
vel skot að marki ísfirðinga. í
seinni hálfleiknum sóttu ísfirð-
ingar meira og þeir léku betur
saman, en broddinn vantar í sókn-
ina.
Beztu menn ísfirðinga voru
Hréiðar markvörður, Ómar Torfa-
son, og Gunnar Pétur en í liði KA
var Gunnar Blöndal beztur.
Dómari var Auðunn Einarsson.
Kostnaður við ferð dómaratríós-
ins var 41 þúsund krónur og inn-
koma af Ieiknum 55 þúSund, svo
megnið af peningunum rann til
dómaranna.
ÓÞ/SS.
UM helgina verða leiknir fjórir
leikir f 1. deild íslandsmótsins f
handknattleik. Dagskrá íslands-
mótsins er annars sem hér segir:
Laugardagur 4. júnf:
1. deild:
Laugardalsvöllur KR-Þór kl. 14.
Keflavíkurvöllur ÍBK-ÍBV kl. 14
Akranesvöllur ÍA-Vikingur kl. 15
Kópavogsvöllur UBK-Fram kl. 16.
2. deild:
Selfossvollur Selfoss-KA kl. 14
Kaplakrikavöllur Haukar-
Völsungur kl. 15
Keflavíkur völlur Reynir S-
ísafjörður kl. 17
Árskógsvöllur Reynir-Þróttur R
kl. 16
Laugardalsvöllur Ármann-
Þróttur N kl. 17
3. deild:
Varmárvöllur Afturelding-USVS
kl. 16
Fellavöllur Leiknir-Hveragerði
kl. 16
Þorlákshafnarvöllur Þór-Hekla
kl. 16
Fáskrúðsfjarðarvöllur Leiknir-
Huginn kl. 17.15
Vopnafjarðarvöllur Einherji-
Austri kl. 16.
Sunnudagur 5. júní:
3. deild:
Hornafjarðarvöllur Sindri-Höttur
kl. 15
Mánudagur 6. júní:
1. deild:
Laugardalsvöllur Valur-FH ki. 20.
Aðalfundur
Knattspyrnufélagsins Vals verður haldinn I
Félagsheimilinu að Hlíðarenda föstudaginn 3.
júní kl. 20:00. Stjórnin.