Morgunblaðið - 08.06.1977, Page 1
32 SIÐUR
125. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. JUNI 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bretadrottning hyllt
GÍFURLEGUR mannfjöldi fagnaði
Elísabetu drottningu hvar sem leið
hennar lá um Lundúnaborg I gær,
sem var aðalhátíðisdagurinn í til
efni þess að liðinn er aldarfjórð-
ungur frá því að hún settist í
hásæti. Talið er að allt að fjögur
hundruð þúsund manns hafi safn-
azt saman við Buckinghamhöll,
þar sem mannfjöldinn hrópaði I
sífellu: „Við viljum fá drottning-
una." Kom hún þá ásamt manni
sínum út á svalirnar, og er það
mál manna, að aldrei hafi brezk-
um þjóðhöfðingja verið fagnað
svo mjög sem á þessum hátíðis-
degi.
í fyrrakvöld tók fólk að safnast
saman þar sem von var á drottn-
ingu og höfðu margir búið sig vel
undir hráslagalega nóttina. í sund-
um og dyraskotum sátu Lundúna-
búar dúðaðir teppum og yljuðu sér
á tei úr hitabrúsum til að tryggja
sér gott utsýni meðan drottningin
færi hjá ásamt föruneyti sínu.
Myndin hér að ofan var tekin er
drottnigin kom úr messu í dóm-
kirkju Sankti Páls í gær. (AP-
símamynd)
Vonir Ecevits
dvína stöðugt
(Sjá grein á bls. 14.)
Ankara, 7. júní. Reuter. AP.
BULENT ECEVIT, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar i Tyrklandi
og sigurvegarinn f kosningunum
um helgina, (trekaði í dag að
hann myndi reyna að mynda nýja
ríkisstjórn, en nú er orðið vafa-
samt hvort hann getur myndað
starfhæfa stjórn.
Embættismenn sögðu í dag að
þeir gerðu ráð fyrir að Lýðveldis-
flokkur Ecevits fengi 213 eða 214
þingsæti af 450 en ekki 222 eins
og Ecevits hélt fram í gær.
Suleyman Demirel forsætisráð-
herra sagði blaðamönnum að þar
sem enginn flokkur hefði fengið
stuðning meirihluta kjósenda
væri samsteypustjórn eina lausn-
in.
Ecevit lagði á það áherzlu í yfir-
lýsingu að stjórn Demirels yrði að
segja af sér þegar endanleg úrslit
lægju fyrir en ekki er búizt við að
Framhald á bls. 18
Begin falin stjóm-
armyndun — ítrekar
óskir um þjóðstjóm
Jerúsalem —7. júní — Reuter.
MENACHEM Begin, formanni
Likud — flokksins, sem fór með
sigur af hólmi í þingkosningun-
um í ísrael á dögunum, var í dag
formlega falin stjórnarmyndun.
Hann hefur enn á ný farið þess á
Hvar er Amin?
Lundúnum — 7. júní — Reuter — AP.
SEINT í gærkvöldi var enn allt á
huldu um ferðir Idi Amins
Ugandaforseta. Utvarpið í Kam-
pala tilkynnti í morgun, að Amin
væri lagður af stað áleiðis til
Bretlands og eftir mikið fjaðra-
fok víðs vegar um Evrópu til-
kynnti útvarpið að Amin væri
kominn á fyrsta áfangastað sinn á
leiðinni á samveldisráðstefnuna i
Lundúnum. Ekki var tekið fram f
þessari orðsendingu hver staður-
inn væri, en sagt, að að lokinni
viðdvöl í Arabarfki einu væri við
þvi búizt að forsetinn sigldi til
Bretlands frá Frakklandi, Vestur-
Þýzkalandi eða Norður-írlandi,
og væri hann væntanlegur til
Lundúna annaðhvort f dag eða á
morgun, miðvikudag. Var þvi
bætt við að þegar hefðu verið
gerðar ráðstafanir til að Amin
gæti siglt til Bretlands, en er
þangað kæmi mundi hann aka til
Lundúna.
Rétt eftir hádegi barst sú frétt
að flugvél Amins hefði óskað eftir
lendingarleyfi í Dublin, en stjórn-
völd þar lýstu því þegar yfir, að
flugvélin mætti lenda til að taka
eldsneyti, en Amin yrði meinuð
landganga. Var í fyrstu talið að
beiðni um lendingarleyfið hefði
borizt frá flugvélinni, en síðar
kom i ljós að írska sendiráðið i
Paris hafði haft milligöngu um að
koma skilaboðunum áleiðis.
Áreiðanlegar heimildir í Lundún-
um herma, að á ratsjárskermum
hafi ekki komið fram nein flug-
vél, sem ætla mætti að væri með
Úgandaforseta innanborðs. Um
fjögurleytið barst sú fregn, að
stór flugvél hefði sézt yfir Calais
við Ermarsund og hefðu nokkrar
orrustuflugvélar verið í fylgd
með henni. Var ekki vitað hvaðan
þetta föruneyti var og spurðist
ekki af þvi frekar.
í Evrópu og Afriku velta menn
þvi nú mjög fyrir sér hvar Amin
sé niðurkominn. Ein tilgátan er
sú, að ferðasagan sé eitt samfellt
gabb, — Amin hafi aldrei farið
frá Úganda og væri ekki á förum
þaðan. Flugstjórnarmenn í Nai-
robi, sem alla jafna fylgjast ná-
Framhald á bls. 18
leit við Verkamannaflokkinn, að
hann taki þátl í myndun nýrrar
stjórnar.
Begin hittir Simon Peres, for-
mann Verkamannaflokksins og
núverandi varnarmálaráðherra
tsraels, að máli á fimmtudaginn
til að ræða horfur á samkomulagi
um myndun þjóðstjórnar, en
Verkamannaflokkurinn hafnaði
tilmælum Begins um slíkt sam-
komulag rétt eftir að úrslit
kosninganna urðu kunn. í kvöld
ræðir Begin hugsanlega myndun
þjóðstjórnar við Yigal Yadin, for-
mann Lýðræðissinnaða umbóta-
flokksins.
Begin sagði á fundi með frétta-
mönnum í dag, að Israelsmenn
ættu nú við mikil vandamál að
stríða, jafnt innanlands sem út að
við, og væri afar æskilegt að á
slíkum tímum sæti þjóðstjórn við
völd. Hann sagði að Likudflokk-
urinn og Verkamannaflokkurinn
væru sammála um ýmis veiga-
mikil atriði utanríkismála, svo
sem það að Palestinumenn stofn-
uðu smáríki á vesturbakka Jór-
danár og á Gaza-svæðinu undir
stjórn PLO. Einnig væru báðir
flokkarnir þvi andvígir að israels-
Framhald á bls. 18
Hreinsað til í
flugher Spánar
Madrid, 7. júní. Rcuter. NTB.
SPÆNSKA stjórnin endurskipu-
lagði flugmálaráðuneytið í dag og
það er liður f ráðstöfunum sem
miða að þvi að binda enda á
stjórnmálaafskipti heraflans fyr-
ir kosningarnar f næstu viku.
Staða flugmálaráðherra, sem
nú er Carlos Franco Iribarne-
garay hershöfðingi verður ein-
göngu pólitisk. Yfirstjórn flug-
hersins verður í höndum flugher-
ráðsforseta, sem er ný staða, og
nýs flugherráðs.
Svipuð breyting var gerð á
skipulagi landhersins fyrir fimm
mánuðum til að gera hann ópóli-
tískan og breyta yfirstjórn hans
til samræmis við skipulag á stjórn
hermála í NATO — löndum.
Adolfo Suarez forsætisráðherra
ræddi í dag við yfirmenn herafl-
ans og lögreglunnar um öryggis-
ráðstafanir vegna þingkosning-
anna. Sprengja fannst í banka í
San Sebastian í Baskahéruðunum
í dag og var gerð óvirk. Veitinga-
Framhald á bls. 18
„Kem til að taka
upp þr áðinn’ ‘
segir Olav
Gundelach
„ÉG KEM til Reykjavíkur til
að taka upp þráðinn sem
slitnaði í heimsókn minni í
desember. Ég er enginn
stór og grimrri'ur björn.
Samvinna Islands og Efna-
hagsbandalagsins er náin á
mörgum sviðum og þvi er
eðlilegt, að við höfum einn-
ig samstarf um fiskveiði-
mál," sagði Finn Olav
Gundelach er fréttaritari
Morgunblaðsins i Briissel,
Ole Wúrtz, ræddi við hann í
gær.
„Tilgangur ferðarinnar er
ekki beinar samningavið-
ræður, heldur tilraun til að
koma á viðræðum," sagði
Gundelach ennfremur.
Eins og áður hefur komið fram í
fréttum verður brezki aðstoðarutan-
ríkisráðherrann Frank Judd í för
með Gundelach sem lagði á það
áherzlu, að ráðherrann kæmi hingað
í krafti þess að það væru Bretar sem
væru í forsæti ráðherranefndar Efna-
hagsbandalagsins um þessar mund-
ir en ekki sem brezkur ráðherra. „í
Reykjavík mun ég gera allt sem I
mínu valdi stendur í samræmi við
sameiginlega afstöðu aðildarrfkja
EBE. Ef eitthvað verður minnzt á
brezka togara þá mun það koma frá
mér en ekki Judd," sagði Gunde-
lach Hann kvaðst ánægður ef hægt
yrði á tveimur dögum að skapa
forsendur fyrir áframhaldandi sam-
bandi við íslenzku ríkisstjórnina Að
sjálfsögðu væri hann reiðubúinn til
að koma aftur til Reykjavíkur, en
hann hefði ekki áhuga á að gera það
of oft með formann Efnahagsbanda-
lagsins í kjölfari.
Andrúmfsloftið í aðalstöðvum
EBE var gott daginn áður en lagt var
upp í ferðina til Reykjavíkur og það
var á engan hátt lævi. blandið Ekki
verður annars vart en að vonir
manna um að koma á samningavið-
ræðum séu einlægar og afstaðan
virðist í stuttu máli vera sú. að ætíð
sé æskilegast að sambandinu sé svo
háttað að aðilar geti ræðzt við
Það er að sjáltsogðu ekkert leynd-
armál. að innan EBE eru það fyrst
Framhald á bls. 18