Morgunblaðið - 08.06.1977, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.06.1977, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JIJNÍ 1977. Vlff) MORÖdK/ KAFFINU ttgré 9i____ Afsakið? En hvar er næsti dýralæknir? Við erum nú komin að hinum Hvenær getum við hætt áð hitt- miklu fossum, Níagarafoss- ast í leyni? unum. Göngum, göngum.. 99 BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Úrspilsþraut Suður gefur, norður og suður á hættu. Norður S. KDIO II. KD7 T. DG76 L. ÁG2 Suður S. ÁG9853 II. Á4 T. 3 L. D643 Suður opnar á einum spaða og vestur segir tvo tigla. Það er eðli- legt, að norður dobli en suður er ekki viss um, að rétt sé að spila það. Hann á að vísu tvo ása en aðeins einspil í tígli svo hann seg- ir tvo spaða. En að lokum verður suður sagnhafi í sex spöðum. Vestur tekur fyrsta slag á tígul- ás og skiptir síðan í hjartagosa. Hvernig hagar þú framhaldinu, lesandi góður? Vestur á auðvitað laufkónginn en virðist mega eiga aðeins eitt lauf með honum. Og sé spilið þannig þá er það auðvelt. En sé litið lengra sést, að sama er hversu mörg lauf hann á. Spil- ið er nefnilega ágætt dæmi um sjálfvirka kastþröng. Við tökum hjartagosann með ásnum og spil- um trompi tvisvar. Síðan lágt lauf, svínum gosanum og aftur tvisvar tromp. Hjartahjónin tekin og tígull trompaður en þá er stað- an þessi. Norður S. — H. — T. D L. Á2 Hér fer á eftir siðari hluti bréfs frá útvarpshlustanda, en fyrri hluti þess birtist í Velvakanda í gær: „Síðan gerðist nokkuð mark- vert, — Þulur: „Stefán íslandi og Henry Skjær (?) syngja svo næsta lag“...... ( og reyndist lagið vera dúett úr Perluköfurun- um eftir Biset, að þvi að best er vitað Algjörlega áróðurslaust efni. Vaknar sú spurning hvort þessi umskipti hafi verið vegna þess, að næsti liður sem þulur kynnti var morgunbæn séra Lárusar Halldórssonar. Þulur er nefnilega kunnur að þvi að vera með afbrigðum kurteis maður. — Eftir Perlukafaradúettinn hefst svo (göngu)-hátíðardagskráin aftur. Þulur: „Morgunstund barnanna hefst eftir stutta stund. Við höf- um tima til að hlýða á eitt lag áður. — Það eru Ingibjörg og Guðrún Helgadætur sem syngja Göngum göngum upp i gilið,,.... (lagið) .... „Þetta var gömul barnagæla Göngum göngum......... Morgunstund barnanna er næst á dagskrá .... (Sig. G.: Sumar á fjöllum — áróðurslaust.),, Eftir þetta voru lesnar fréttir, en eftir þær ofurlitill viðbótar- skammtur af hátíðarveðurlýs- ingu, og var siðan lesið úr forystu- greinum dagblaða, sem út komu, en efni þeirra verður ekki tí- undað að sinni, en eftir þann lestur heldur „hátíðardagskráin“ áfram: Þulur: „Klukkan er orðin hálf niu. . . . Morgunleikfimi er á dag- skrá klukkan 8.50....“ (Dagskrá útskýrð til hádegis) “.... En við ætlum að nota tímann og syngja og leika fram að morgunleikfimi, og t.d. um lognið, blátt er blessað lognið,„Ég held það leiki varla neinn vafi á þvi að nú er norið komið með kurt og pf“, segir Jón- as Árnason í ljóði sínu, sem Þrjú á palli og Sólskinskórinn syngja".. . . (lagið). ÞULUR. „Það var mikið sofið í þessu ljóði, — sofið allsstaðar. Sofið í fjöru og sofið á kodda i kyrrð og ró. — Nú er kannski mál að vakna, og þö fyrr hefði verið, því klukkuna vantar tuttugu og þrjár mínútur i niu. — Sumir vilja þó lúra frameftir, þeir eiga kannski fri. og það vildu Israels- menn gera á sfnum tfma þegar IVIóses vildi gera þeim rúmrusk á tfmum herleiðingar. — Hér er sunginn negrasálmur, því negrarnir þeir gerðu gjarnan lífs- reynslu Israelsmanna að sinni í söngvum. Þegar þeir sungu um áþján og herleiðingu. — Hér syngur útvarpskórinn Go down Moses, negrasálm. Einsöngvari er Jón Míúli Árnason." — Lagið, öll erindin sungin, — öll erindin, hvert fyrir sig, þrítaka setn- inguna Let my people go, lausleg þýðing: Lát þjóð mína lausa. Eg hef fram að þessu Velvak- andi góður, staðist freistinguna að leggja út af þessum dæmalausa texta og skal nú ekkert segja annað en það, að þegar hér var komið hljóta margir að hafa skellt upp úr, en ég hef einnig heyrt að sumir hafi reynt að segja eitt- hvað, en ekkert betra orð fundið en þetta gamla og góð:: Svei. Nú var undirritaðan farið að lengja eftir ákveðnum Göngu- dagahátfðarþætti, sem hann eftir bestu samvisku minnist ekki að niður hafi fallið á gönguhátíðis- dögum. — Og viti menn, það var eins og við manninn mælt: Þulur: „Og við ætlum að halda áfram að syngja og leika, núna þegar klukkuna vantar tuttugu Vestur S. — H. — T. K L. K7 Austur Skiptir ekki máli Suður S. 9 II. — T. — L. D6 Og síðasta trompið brýtur vörn vesturs. ÞAÐ VERÐUR EKKI FENGIÐ, SEM FARIÐ ER 31 ekki nógu gáfulegt. Veiztu það að þeir sem þjást mest af þvf sfðarnefndu, það eru einmitt gáfumennirnir sjálfir... Hemmer var sýnilega kom- ínn f mun betra skap núna. —„Mér tekst vfst ekki að sannfæra þig? Nei. Nei. En það verður aJdrei neitt úr þér ef þú ferð á þvers við allt f sjálfum þér og lætur tilfinningarnar flæða út um allt. 1 listamanni býr alltaf egóismi og hann verð- ur að taka þvf. Og meira að segja verður hann að huga að sfnum egóisma, þvf að ella er hann ekki fær um að gefa af sér — skapa list. Listin er sköpuð f dýpt, í leit- un eftir meiri skfrleika, Ijósi. — Hvaða skfrleika, hugsaði Peter — hvaða ijósi. Hemmer ætti að geta skilið... En Peter gat ekki komið þvf saman í orð sem Heminer ætti að geta skilið. Þeir heyrðu fótatak í stof- unni. Hemmer reis snögglega á fætur og starði til dyra. Það var Lena sem var að koma. VII Peter lá vakandi f rúminu og heyrði að Lena kom, að hún opnaði dyrnar að herberginu sfnu, að hún gekk nokkur skref eftir ganginum, að það brakaði f hurðarsnerlinum. — Ertu sofandi? spurði hún lágt. — Nei. — Má ég koma inn. — Já. Hún leit f kringum sig f her- berginu, færði til dót á stól, kom nær honum, settist að lok- um á rúmkantinn. Hún var f sömu fötunum og þegar hún kom fyrr um kvöldið til þeirra f vinnustofuna. t sfðbuxum og blússu. — Hvað hefur komið fyrir? hvfslaði hún. — Ég veit að eitt- hvað hefur komið fyrir, en þið segið mér ekkert. Hvers vegna? — Ég veit ekki hvers vegna Hemnftr segir ekkert. En ég veit hvers vegna ég geri það ekki. — Hvers vegna? — Átti hann að segja að hann treysti henni ekki? Já, því ekki það? En Peter sagði ekkert. Er ég hræddur um að hún fari aftur, hugsaði hann — ekki bara núna þessa stund, heldur fyrír fullt og allt? — Hvers vegna? endurtók hún. — Það skiptir engu. Það er bara svoleiðis. — Er það út af bréfunum? Hann þagði. — Það er sem sagt út af þeim? — Með öðru. — Hverju þá? Nú var hann búinn að segja svo mikið að hann gat fuilt eins látið það allt saman flakka. — Það eru horfnar nokkrar teikningar héðan. Hún greip andann á lofti. — Ileldur Victor að ég hafi stolið þeim? Framhaldssaga eftir Bernt Vestre. Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi. — Nei. — En þú heldur það. — Ég veit það ekki. — Hvaðsegir Victor. — Hann segir að það sé óhugsandi að þú hafir tekið þær. — En þú ert ekki sammála. — Ég þekki þig mjög lítið. Og svo var það þetta með bréf- in. IIún blfstraði lágt. — Og þá hefurðu sannfærzt um að ég hafi Ifka tekið teikn- ingarnar? Hún var bersýnilega að velta fyrir sér hvort hún átti að fara. Hann fann daufa ilmvatnslykt frá henni og hann vissi að ef hann tæki til máls myndi hann vart hafa vald á rödd sinni. — Þú vilt engu svara. — Ég vil helzt ekki trúa »ð þú hafir tekið þær, tókst hon- um að st.vnja upp. Ilann sá hún fitlaði með fingrunum við hárið á sér, hugsandi á svip. — Hvar hefurðu verið? spurði hann rámri röddu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.