Morgunblaðið - 08.06.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.06.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JUNl 1977. Niðursetningu á túrbínum í Sigöldu- virkjun seinkað STJÓRN Landsvirkjunar ákvað fyrir stuttu ad fresta niðursetn- ingu á túrbínu nr. 2 og 3 í Sig- ölduvirkjun, þannig að túrbína nr. 2. verður nú ekki tilbúin til gangsetningar fyrr en í desember n.k. en upphaflega átti niðursetn- ingu þessarar túrbínu að vera lok- ið snemma á þessu ári. Halldór Jónatansson, fram- kvæmdastjóri hjá Landsvirkjun, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að áætlun um niðursetningu túrbínanna hefði verið endur- skoðuð með tilliti til seinkunar á byggingu járnblendiverksmiðj- Mosaikmynd stolið UM miðjan maímánuð upp- götvaðist stuldur á mosaikmynd eftir Valtý Pétursson listmálara af heimili hans við Marargötu. Myndin er 61x33 sentimetrar að stærð, og fylgir hér með ljósmynd af henni. Það eru tilmæli rann- sóknarlögreglunnar, að þeir, sem telja sig vita um hvar myndin er nú niðurkomin, hafi strax sam- band við rannsóknarlögregluna í Reykjavík. unnar i Hvalfirði. Því yrði túr- bína nr. 2 ekki tilbúin fyrr en í desember n.k. og túrbina nr. 3 ekki fyrr en í desember 1978, þannig að hún komi að fullu gagni veturinn 1979. Væri talið að ekki þyrfti á orku þessarar túr- bínu að haldafyrr. Halldór sagði, að ákvörðunin um að seinka niðursetningu túr- bínanna þýddi um leið frestun á útgjöldum fyrir Landsvirkjun, og talið væri, að við þessa umræddu seinkun færðust 100 milljónir kr. yfir á næsta ár. Framhald á bls. 18 Mokafli við Eyjar, en bátaflotinn bundinn Yfirvinnubannið stöðvar sjósókn að mestu „ÞAÐ IIEFUR verið ágætisafli 'hjá Eyjabátum að undanförnu bæði f troll og á humri, en vand- inn er sá að bátarnir geta lftið sem ekkert róið vegna yfirvinnu- bannsins og það má þvf segja að nær allur bátaflotinn sé bundinn á sama tfma og góður afli fæst eftir fádæma lélega vertíð," sagði Eyjólfur Martinsson hjá Isfélagi J-flokkur Seðlabankans: 25-30 millj. kr. bréf óseld SÖLU er nú að ljúka á J-flokki happadrættisskuldabréfa Seðia- bankans, alls 250 millj. kr., en 25—30 millj. kr. bréf eru óseld. Dregið verður 15. júní n.k. í happ- drættinu, en alls er dregið tiu sinnum árlega. Vinningar hverju sinni eru samtals 860 að fjárhæð 25 millj. kr. og þar af eru 5 vinn- ingar á 1 millj. kr. og 5 á 500 þús. kr. Vestmannaeyja í samtali við Morgunblaðið f gær. „Það hefur borizt mikill afli hingað að undanförnu,“ sagði Ey- jólfur, “og hann liggur undir skemmdum., Þess vegna varð að hefta róðra bátanna. Þá hefur talsvert verið hringt í okkur að norðan og frá öðrum landshlutum og okkur boðinn afli af togurum frá þeim stöðum, en að sjálfsögðu höfum við ekki getað tekið á móti afla frá þeim á meðan okkar bátar verða að vera bundnir. Sumir heimabátanna hafa orðið að liggja bundnir í landi í allt að vikutíma áður en þeir gátu farið út í tvo daga. Þetta er hörmungarástand og kemur mjög illa við alla hér eftir hina lélegu vertíð. Þannig er þetta einnig víðast í verstöðvum landsins þar sem fólk byggir sitt á fiskvinnslu. Þetta kemur mun minna niður á fólki annars staðar. Það er algengt að bátar sem hafa getað róið hafi komið með 25—30 tonn að landi f túr og allt upp í 57'A tonn eins og Danski Pétur kom með einn daginn, mest mjög væna og góða ýsu.“ LAN0SHAj?PDRÆTTI SJALFSTÆÐISFLOKKSINS VIMNINGAR: fjrrtfí K>. IM.MS,- 1, TH Ui»*snt«*9 ftfO rtuiiMtíum fyrtrS » 174.12B,- «. TOPnríWfiiirfFhgbMöw l»rtr í it t. rt( KH>Þtnar,r>*hutnm K». H1J»,- 8 Tf* Lomton nugtethim Tfttti Kt. Ul.Hm,- 1. íUim tfrtit Kf. 1*OOOð,- * UfVfrt* ttrit 9 Kt. fSO fJOB.- » «*fb>t%»t*<«tt fftitl Kr mMHtc 10 MMMttMir Ufv«f* fyrtrí fU 1*0060,- ♦1 Orv*f* fyrtrj *t léo.ooo,- »i. fO-«íf»*r Ont«» * tyrtrí Y«. fb>r«$*ró)r Uoafs tpitJ « >. fse oco^ 14. fyrtr t K, »80.000,- H*fW«fv>*t6»>»»i vfnmno* K* I Mf .IM,. j [ýera'kr. 300 i Dregið 11. júní 1977 [W~W~W1 .. ilmhiiuiM 1 ki < < vwian * ‘ f *fm» Kf*00 W6mtt m btjMna hi 11. Jöni 1870 Landshappdrætti Sjálístæðisflokksins: Dregið á laugardag LANDSHAPPDRÆTTI Sjálfstæðisflokksins er nú í fullum gangi, enda verður dregið n.k. laugardag. 11. júní. Þeir, sem enn eiga ógerð skil á heimsendum miðum, eru hvattir til að gera það hið fyrsta. Meðal vinninga eru ferðir til New York, London og Parísar, Stokkhólms og Kaupmannahafnar, auk sólarlandaferða svo sem til Mallorka og Ibiza. Afgreiðsla happdrættisins er I Sjálfstæðishúsinu á horni Háaleit- isbrautar og Bolholts og er hún opin allan daginn. Skrifstofan sér um að senda miða og sækja greiðslu, ef fólk óskar, en sfmanúmerið er 82900. Stjórn Pólýfónkórsins ásamt stjórnanda: Frá vinstri: Hákon Sigurgrfmsson, Sigrfður Öskarsdóttir, Ingólfur Guðbrandsson, Friðrik Eirfksson, Guðrún Guðjónsdóttir og Guðmundur Guðbrandsson. Styrktarhljómleikar Pólý- fónkórsins 17. og 22. júní r Vantar nokkuð á að endar nái saman vegna Italíufarar PÓLÝFÓNKÓRINN mun dag- ana 17. og 22. júní n.k. efna til sérstakra styrktarhljómleika f Háskólabfói og á fundi með fréttamönnum í gær kynntu forráðamenn kórsins þessa tón- leika og greindu frá hinni fyrirhuguðu ttalfuför um mánaðamótin júní — júlf. Guð- mundur Guðbrandsson, gjald- keri kórsins, sagði að leitað hefði verið eftir fjárstyrk til nokkurra fyrirtækja svo og til ríkis og hefði fengizt loforð fyrir einni milljón króna, eins og þegar er kunnugt um og að Reykjavíkurborg hefði ekki gefið neikvætt svar. Þá sagði Guðmundur að happdrætti væri f gangi til styrktar kórn- um, en vantaði enn nokkuð mikið á til áð endar næðu sam- an þar sem kostnaður við för- ina er um 20 milljónir. Ingólfur Guðbrandsson, stjórn- andi Pólýfónkórsins, sagði að von væri á fyrirgreiðslu á ítalíu í formi auglýsingaprentunar og annars sem óhjákvæmilega fylgdi slíku hljómleikahaldi og í sumum tilvikum væri einnig greitt fyrir flutning efnisskrár kórsins. Sagði Ingólfur að hér væri m.a. um að ræða opinbera fyrirgreiðslu, frá borgaryfir- völdum, svo og ferðamálayfir- völdum og listráðum. Aðspurður um hvað kórinn tæki sér fyrir hendur að lokinni þessari för svöruðu stjórnar- meðlimir hans að allt væri óráð- ið og þau hugsuðu ekki lengur en til 4. júlí er síðustu tónleik- unum á ítalíu verður lokið, en Ingólfur Guðbrandsson stað- festi að hann léti af stjórn kórs- ins eftir þessa söngför. Hér fer á eftir frétt frá Pólýfónkórnum um þessa styrktarhljómleika: „Pólýfónkórinn berst enn í bökkum með ítaliuför sína vegna fjárskorts. Mörgum fjár- sterkum stofnunum og fyrir- tækjum var serit bréf í vetur með beiðni um fjárhagsaðstoð. Nokkrir hafa brugðizt vel við og lagt fram allt að kr. 100 þúsund hver, en flestir látið beiðninni ósvarað enn. Þá barst kórnum einnar milljón króna styrkur úr ríkissjóði, sem er vel metin viðurkenning á starfi kórsiris og nægir fyrir ferða- kostnaði 7—8 manns i ítaliuför- inni. En þátttakendur í söngför- inni eru 180 talsins að meðtöld- um hljóðfæraleikurum og ein- söngvurum og kostnaður alls um 20 milljónir. Ferðasjóður- inn er því enn léttur og horfur á, að kórfélagar verði að greiða Framhald á bls. 18 Erfiðiega gengur að útvega skólastúlkum sumarvinnu NOKKUÐ verr hefur reynzt nú að útvega vinnu fyrir skólafólk yfir sumarið en um sama leyti í fyrra samkvæmt þeim upplýsingum sem Morgunblaðið fékk i gær hjá Ráðingarskrifstofu Reykjavfkur- borgar, Atvinnumiðlun stúdenta og Atvinnumiðlun menntaskóla- nema. Einkum á þetta þó við um stúlkur og eru þess dæmi að helmingi fleiri stúlkur séu á bið- lista eftir vinnu en piltar. Að sögn forsvarsmanna Ráðningarskrifstofu Reykjavíkur hefur gengið þokkalega það sem af er að útvega því skólafólki vinnu í sumar, sem þangað hefur leitar, en þó virðast vinnuveit- endur á hinum almenna vinnu- markaði tregari til að ráða skóla- fólk nú en t.d. í fyrra og er ótryggu ástandi á vinnumarkaði kennt um. Hins vegar hefur Reykjavikurborg sjálf tekið við verulegum hluta þess skólafólks sem fengið hefur vinnu hingað til. Á biðlista hjá Ráðningaskrif- stofunni í fyrradag voru 73 skóla- piltar eldri en 16 ára á biðlista hjá skrifstofunni og 115 skólastúlkur eri samsvarandi tölur á sama tíma í fyrra voru 64 piltar og 105 stúlk- ur. Hinn 1. júní sl. höfðu alls 168 stúlkur og 298 piltar leitað til ráðingarskrifstofunnar eftir sumarvinnu. Hjá atvinnumiðlun stúdenta fékk Morgunblaðið þær upplýs- ingar að sæmilega hefðf gengið til þessa að verða piltum úti um sumarvinnu en hins vegar ýæri það mun erfiðara hvað stúlkurnar áhrærði. Þegar óskað væri eftur stúlkum til starfa væri óskin jafn- vel skilyrði i þá veru, að hún yrði að líta sæmilega út eða að stúlkurnar þyrftu að kunna eitt- hvað fyrir sér í vélritun og þar fram eftir götunum. Yfirleitt væru engir slíkir fyrirvarar eða skilyrði um ráðningu piltanna, og yfirleitt væri vinna sem stúlkurnar fengju verr launuð. Þá kom fram að þess væru nokkur merki að vinnuveitendur biðu átekta vegna ótta við víðtækari verkföll en nú eru, og eins, að minna væri um ráðningar í bygg- ingariðnað en oftast áður, svo að þar virtist vera um einhvern sam- drátt að ræða. Atvinnumiðlun Kópavogur: Á SUNNUDAGSKVÖLI) var tveimur 14 og 15 ára gömlum piltum úr Kópavogi bjargað af kili skútu sinnar, sem hvolfdi skammt undan Kársnesi, en þá voru piltarnir að koma út Naut- hólsvfk. Þegar þeim var bjarg- að voru þeir orðnir kaldir en leið að öðru leyti vel, og báðir voru f björgunarvestum. Feður beggja piltanna, sem eiga heima við Sunnubraut, stúdenta hefur hingað til útvegað nálægt 70 manns sumarvinnu en alls hafa 120—30 stúdentar leitað til miðlunarinnar. Svipað var uppi á teningnum hjá Atvinnumiðlun menntaskóla- nema. Þar eru nú um helmingi fieiri stúlkur en piltar á biðlista eftir sumarvinnu. Tekizt hefur hingað tii að útvega um 70 manns sumarvinnu en til miðlunarinnar hafa leitað eitthvað á annað hundrað menntaskólanemendur. Aðallega eru það ýmis smá fyrir- tæki, sem skyndilega vantar starfskraft, sem leitatil miðlunar- innar og einnig hefur byggingar- iðnaðurinn tekið við drjúgum hluta piltanna. fylgdust með ferð þeirra frá Nauthólsvík yfir f Kópavog um kl. 20 á sunnudagskvöld en þá var orðið kalt með norðan átt. Rétt utan við Kársnesið hvolfdi skútunni en piltarnir komust strax á kjöl. Feður þeirra höfðu samband við lögregluna, sem hefur aðgang að gúmmíbáti Hjálparsveitar skáta í Kópa- vogi, en báturinn er geymdur Framhald á bls. 18 Tveimur piltum bjargað af kili skútu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.