Morgunblaðið - 08.06.1977, Side 5

Morgunblaðið - 08.06.1977, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JUNÍ 1977. 5 Rektot M.R. ánægður „Höfuðatriði eru nafn og séreinkenni” FYRIR sfðustu helgi kom það fram I samtali Mbl. við mennta- málaráðherra að hann er and- vígur nafnbreytingu á Mennta- skólanum í Revkjavík — M.R. t gær spurði Mbl. Guðna Guð- mundsson rektor Menntaskól- ans um hvort hann hefði verið ánægður með svör Vilhjálms Hjálmarssonar ráðherra. „Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með yfirlýsingu hæst- virts menntamálaráðherra,“ sagði rektor, „að hann sé and- vígur nafnbreytingu á Mennta- skólanum i Reykjavík, þar með tel ég mig hafa ástæðu til að ætla, að inntak skólans fái einn- ig að halda sér, þ.e.a.s. að hann verði ekki gerður að hluta af einhverju „fjölbrautakerfi“ í mið- og vesturbæ, eins og tillög- ur liggja fyrir um.“ En úr því blaðið vekur máls á þessu við mig, langar mig að fá að bæta við: „Ég tel það höfuðatriði, að skólinn haldi nafni sínu og sér- einkennum. Hann haldi áfram að búa menn undir háskóla- nám, ekki aðeins á íslandi, heldur einnig úti um allan heim, eins og hann hefur gert öldum saman." — Varðandi fyrri nafnbreyt- ingar á skólanum sagði rektor, þá voru þær gerðar úti í Kaup- mannahöfn til samræmis við breytingar, sem verið var að gera á dönsku skólakerfi og breyttu raunverulega engu um tilgang skólans, þ.e.a.s. niður- felling grískukennslu o.fl. Það breytir hins vegar miklu um tilgang skólans, hvort hann á að vera „almenn bóknámsbraut í f jölbrautakerfi“ eða ekki. — Vissulega er það rétt, sem ráðherrann segir, sagði Guðni, að nám og kennsla hljóta að breytast eftir breyttum kröf- um. En þá vaknar spurningin hvort á að koma á undan breyt- ingin á kennslu og námi eða krafan um breytingu? Hér virð- ist mér vera farið öfugt að: með framhaldsskólafrumvarpinu er gert ráð fyrir mjög róttækum breytingum á námi, en Háskóli íslands, til að mynda, hefur ekki mér vitanlega gert neinar kröfur um, að stúdentar skuli hafa lokið minna námi nú en áður til að fá inngöngu. Þvert á móti. Þess er hins vegar getið í athugasemdum með frumvarp- inu, að afleiðing af því kunni að verða sú, að breyta þurfi regl- um um inntöku nemenda í Há- skóla íslands. Af hverju ekki líka í þá erlenda háskóla, sem íslendingar sækja til? sagði Guðni rektor M.R. að lokum. Útivist gefur út göngu- og fjallakort ÚTIVIST hefur bryddaö upp á nýjung, útgáfu göngu- og fjallakorts fyrir útilífsgarpa. Slík kort hafa áður þekkst erlendis. N ordfirðingar kaupa togara á 295 miUj. kr. SÍLDARVINNSLAN h.f. í Neskaupstað hefur fest kaup á 453 tonna skut- togara í Frakklandi og er kaupverðið 295 milljónir króna. Jóhann K. Sigurðs- son framkvæmdastjóri út- gerðar Síldarvinnslunnar sagði i samtali við Morgun- blaðið í gær, að enn væri ekki búið að ganga algjör- lega frá kaupunum hér- lendis, en hann byggist frekar við það þeir fengju leyfi til kaupanna, enda kaupverðið mjög hagstætt eða 295 milljónir kr. Sagði Jóhann, að togarinn væri vel búinn tækjum, með Atlas- dýptarmælum, og 1500 hestafla Krepel aðalvél. Lítið þyrfti að breyta honum áður en hann gæti hafið veiðar, en þó þyrfti að rétta af lestargólf, og breyta tilhögun á aðgerðarþilfari, en áætlað væri að togarinn kostaði tilbúinn á veiðar með veiðarfærum og fiskikössum um 340 milljónir króna. Eins og fyrr segir er togarinn sem Sildarvinnslan hefur fest kaup á 453 rúmlestir. Hann ber nafnið Délos og er frá Dunkirque. Lengd hans er 46 metrar og breidd 10.50 metrar. Markmiðið með útgáfunni er að hvetja fólk til göngu- ferða og útivistar og kjör- orð á kortinu er „Göngu- ferð er gott trimm“. Jón I. Bjarnason, einn forstöðu- manna Útivistar, tjáði Mbl. að fjallakortið fengju þeir, sem legðu leiðir sinar á fjöll í ferðum Útivistar. Eru kortin skráð á nafn viðkomandi og i þau ritað i hvert skipti, sem fjallgöngugarpurinn gengur á fjall, sem er yfir 500 metrar að hæð. Er siðan kvittað í kortið af fararstjóra Utivistar og stimplað með sérstökum stimpli. í göngukortið eru skráðar göngu- ferðir með Utivist og kvittað á sama hátt og fær við komandi frítt i tiundu hverju ferð. Kortin eru afhent án endurgjalds. Á bakhlið kortanna er mynd af „trimmkarlinum" enda er útgáfa kortanna i samvinnu við íþrótta- samband íslands, sem styður þessa starfsemi, enda gangan VIÐRÆÐUNEFND frá Efnahags- bandalagi Evrópu er væntanleg hingað til lands f dag, mið- vikudag til viðræðna við íslenzk stjórnvöld um fiskveiðimál. í nefndinni eiga sæti af hálfu EBE Gundelach, aðalsamningamaður bandalagsins, Frank Judd, brezk- ur ráðherra sem verið hefur í forsæti ráðherraráðs bandalags- ins undanfarið, Gallagher, sem áður hefur komið hingað til áþekkra viðræðna og De Kergor- er fyrir alla Gönguferd er gott trinmi. elzta fþróttagrein sögunnar að sögn Jóns. Þá er þess aðeins ógetið, að kortin eru góð heimild um þær fjalla- og gönguleiðir, sem hver útilífsgarpur hefur farið. ely, sem fer með málefni banda- lagsins gagnvart þjóðum er standa utan bandalagsins. Fund- ur þessara manna með islenzkum ráðamönnum verður á fimmtudag og væntanlega i ráðherrabústaðn- um. Gert er ráð fyrir að af hálfu íslands muni taka þátt i viðræð- unum Einar Ágústsson utanríkis- ráðherra og Matthias Bjarnason sjávarútvegsráðherra ásamt em- bættismönnum. EBE-menn til við- ræðna í dag Utsala — R vminaarsa' AÐEINS ÞESSA VIKU - 0PIÐ frá kl. 1 - 6. íslenzk alullargólfteppi og alullar-ríaband. Allt selst á hálfviröi. TEPPI HE Súðarvogur 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.