Morgunblaðið - 08.06.1977, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JUNÍ 1977.
15
Frá umhverfisráðstefnunni:
Kref jast verður 200 mílna
landhelgi við Suðurskautslandið
Járnblendifélagið:
Fékk 1,8
milljarða
í fyrsta
umgang
ÍSLENZKA járnblendifélagið
hefur nú fengið afgreitt hið
fyrsta af þremur lánum, sem
félagið hefur fengið að láni frá
Norræna fjárfestingarbankanum
I Helsinki, en afgreiðsla þess fðr
fram I London hinn 1. júnf sl.
Verða þetta aðalstofnlán félags-
ins við byggingu kísiljárnverk-
smiðjunnar að Grundartanga.
Lán þessi eru veitt í ýmsum
myntum eftir nánara samkomu-
lagi milli aðila, en fjárhæð þeirra
er samtals sem svarar 200 milljón-
um króna eða um 7370 milljónir
fsl. króna eftir núverandi gengi.
Fyrsta lánið, jafnvirði n. kr. 50
millj., er f bandaríkjadölum, að
fjárhæð tæplega $ 9,5 milljónir
eða 1837 milljónir ísl. króna.
Hefur Norræni fjárfestingar-
bankinn nýlega boðið út skulda-
bréf í Bándaríkjunum, að fjárhæð
40 milljónir dala, og er lánið hluti
af andvirði þeirra. Vextir af lán-
inu verða 8.85% á ári til 1. júni
Í984, en verða þá endurskoðaðir
með hliðsjón af lántökukostnaði
bankans á þeim tíma. Endur-
greiðsla fer fram á árunum
1982—1992, þannig að lánstími
verður alls 15 ár.
Lánið er tryggt með veði í verk-
smiðju íslenska járnblendifélags-
ins, og verður veð Norræna fjár-
festingarbankans eina veðið á
verksmiðjunni. Ganga hluthafar
félagsins, íslenska ríkið og
Framhald á bls. 18
A ALÞJÓÐARÁÐSTEFNUNNI
um umhverfismál á Hótel Loft-
leiðum var f gær fjallað um mál-
efni er varða fsland sérstaklega,
og tóku fslendingar nokkurn þátt
f umræðum. Dr. Sturla Friðriks-
son lagði sfðdegis fram erindi um
eyðingu gróðurlenda og einhæfa
ræktun. Fyrsta erindið um morg-
uninn fjallaði um heimshöfin og
saltan sjó og umræðum á eftir
stjórnaði Jakob Jabobsson fiski-
fræðingur, en í umræðuhópnum
var m.a. Jakob Magnússon fiski-
fræðingur. Og um kvöldið var sér-
stakur fundur á dagskrá, sem
fjallaði um spurninguna: Er fs-
land mengað?
Dr. Sturla Friðriksson er annar
tveggja fyrirlesara frá íslandi,
sem hafa framsögu á ráðstefn-
unni. Sýndi hann með erindi sínu
i gær myndir af uppblæstri hér á
Iandi og gróðureyðingu.
Annars fjallaði hann um við-
fangsefnið almennt. í lok þess
velti hann fyrir sér þeirri spurn-
ingu hvernig yrði umhorfs í heim-
inum ef svo mikil fæðuþörf yrði
vegna fólksfjölgunar að nauðsyn-
legt reyndist að rækta að mestu
eina tegund plantna á öllu þurr-
lendi og ákveðna þörungategund i
sjónum til að standa undir fæðu-
þörf mannsins, en engin önnur
tegund fengi tækifæri til að kom-
ast að. En einhæf ræktun er víða
að verða áberandi. Slíkur einhæf-
ur fæðuflutningur milli plantna
og manns yrði óskemmtilegur. Og
hann spyrði: Er ekki frekar eðli-
legt að mannfólkið sætti sig í
tæka tíð við að takmarka mann-
fjölgunina og lifa í sátt við fandið
og leyfa fjölda af öðrum plöntum
og dýrategundum að njóta sín?
Urðu liflegar umræður um erind-
ið. En í umræðuhópnum voru pró-
fessor F. Raymond Fosberg frá
Bandaríkjunum, dr. Koonlin frá
Malaysiu og dr. Ted Hinds frá
Bandarfkjunum.
Prófessor Edward D. Goldberg
kynnti erindi sitt og dr. Sidney J.
Holts um hafið og fiskstofnana.
lliiinil'urtK-tk \ppli;itliv'*11kvtnL.ii1 L,1 \m l.ttk Htt.tm I IjttLi't w'VI
Ræddi hann mest um mengun af
völdum geislavirkra efna, DDT og
fleiri eiturefni og hugsanlegar að-
ferðir til að stemma stigu við
þeim. Benti hann með dæmum á
að það tekur visindamenn og al-
menning um áratug að vita um,
rannsaka og bregðast við hættu-
legum mengunarefnum, sem ber-
ast með sjávarafurðum til manns-
ins. í umræðuhópnum um erindin
voru auk Jakobs Magnússonar,
próf. Anitra Thorhag, sem eink-
um hefur fengizt við rannsóknir í
heitum höfum, og dr. Rudolf, sem
hefur rannsakað ástandið i hafinu
við Suðurheimskautið. Hún benti
m.a. á það, að hiti má ekki í heit-
um höfum hækka meira en um 3
stig til að allt líf hverfi þar, og séu
þau að þvi leyti mjög viókvæm.
En dr. Rudolf sagði, að þó rétt
væri að hafið við Suðurskautið
væri eitt framleiðslumesta haf
heims, þá væri helmingur alls lifs
þar einnar tegundar, ljósáta. Á
henni lifði selur, hvalir og fuglar,
og þessi dýr hyrfu öll ef eitthvað
kæmi fyrir þessa einu fæðuteg-
und. Þarna veiða 90 þjóðir ómælt,
en enginn hefur þar lögsögu eða
skyldur. Var lagt til að i ályktun
þessarar ráðstefnu yrði farið
fram á, að í hafréttarlögum, sem
nú eru til meðferðar hjá S.Þ.,
verði einnig gert ráð fyrir 200
milna veiðilandhelgi við Suður-
heimskautslandið, þar sem eng-
inn býr en notað er til vísindaiðk-
ana. Sama gildi um óbyggðar eyj-
ar. Þar sem nú er rætt um á
hafréttarráðstefnunni, að allir
megi veiða þar sem heimaþjóð
nýti ekki fiskstofna, þá verði í
slíkum tilfellum yfirráð undir
ákvörðun visindamanna.
Tvö önnur mál voru til umræðu
á þinginu: Fjallaði annað eftir
nokkra höfunda og um almennt
umhverfi mannsins á jörðinni og
hitt um áhrif og hættur þéttbýlis,
innleitt af Belgíumanninum
Pierre Laconte.
í kvöldfundinum um mengun á
íslandi tóku þátt Ragnar Hall-
dórsson, forstjóri álverksmiðj-
unnar, Eyjólfur Sæmundsson frá
heilbrigðiseftirlitinu, dr. Dieter
Altenpohl, tæknilegur fram-
kvæmdastjóri Alusuisse og dr.
Sturla Friðriksson. En einnig
voru almennar umræður. En
vegna yfirvinnubannsins er ekki
hægt að segja frá kvöldfundinum.
Ættlandið kvatt og haldið til Bandarfkjanna. Fyrstu fslensku hestarnir
fluttir héðan til Bandarfkjanna f nokkur ár. Ljósm. Kr. 01.
30 íslenzkir hestar
fluttir til Ameríku
í FYRRA kvöld lagði flug-
vél frá Iscargo upp í fyrsta
flug félagsins með vörur
til Bandarfkjanna en félag-
ið hefur fengið leyfi til að
fljúga til sex borga í
Bandaríkjunum. Farmur
vélarinnar f þessu fyrsta
flugi voru 30 íslenskir
hestar og eru það jafn-
framt fyrstu íslensku hest-
arnir, sem fluttir eru til
Bandarfkjanna héðan í
nokkur ár. Hestarnir eiga
að fara til Long Island í
New York-fylki.
Samkvæmt upplýsingum frá
Iscargo er ekki fullráðið hvenær
fastar áætlunarferðir með vörur
til Bandaríkjanna héðan og heim
aftur hefjast en vonast er til að
það verði síðar í sumar. Að sögn
Magnúsar Yngvasonar hjá
Búvörudeild SÍS, eru hestarnir 30
fluttir út í framhaldi af Ameríku-
reiðinni miklu sl. sumar og er
vonast til að þetta geti orðið upp-
hafið að meiri hrossaútflutningi
vestur um haf.
íslenskur
tamningamaður, Sigurður
Ragnarsson frá Neskaupsstað, fer
út með hestunum og er ætlunin
að hann dvelji ytra I einn til tvo
mánuði og þjálfi hestana.
Hin nýja rafeindastýrða Kenwood Chef
— vinnur hratt og ótrúlega vel
Með aðstoð hjálpartækja, af-
kastaði hin nýja rafeindastýrða
Kenwood Chef öllu þessu á
skemmri tíma en 1!4 klst.
vegna þess að hún er 15% afI-
meiri. Hún getur einnig hnoðað í
einu 30% sta*rra deig. Hún hland
ar og þeytir á fjórðungi skemmri
tíma. llún er því auðveldari og
hagkvæmari í notkun.
Hina ýmsu aukahiuti er auð-
veldara að tengja og eru þeir
fjölvirkir og vinua veL Ilin raf-
eindastýrða Kenwood Chef er
- Hka léttari og meðfærilegri. en
allt þt'tta hjáipar til að gera mat-
argerðina auðveldari.