Morgunblaðið - 08.06.1977, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1977.
Herlög numin úr
gildi í Pakistan
Islamabad — 7. júní — AP.
HERLÖG voru numin úr gildi I
Karachi, Lahore og Ilyderabad I
dag, sem var þriðji dagur við-
ræðna Ali Bhuttos forsætisráð-
herra við st jórnarandstöðuna.
Haft var eftir Bhutto að með til-
liti til framvindu viðræðnanna
væri ástæða til að aflétta herlög-
unum þegar f stað.
Herlög voru sett f ofan-
greindum borgum 21. aprll s.l. en
þar féllu flestir þeirra rúmlega
300, sem urðu fórnarlömb blóð-
baðsins f landinu eftir þingkosn-
ingarnar f vor.
Talsmaður forsetans sagði á
fundi með fréttamönnum í
Islamabad í dag, að viðræður
stjórnarinnar og Þjóðarbanda-
lagsins gengju með ágætum, og
hefði stjórnarandstöðunni verið
tilkynnt á fundinum í dag, að frá
þvi að Bhutto tók ákvörðun um að
sleppa pólitiskum föngum fyrir
helgina, hefðu 12.900 manns verið
leystir úr haldi.
Sáttatillögurnar sem Bhutto
lagði fram á fundinum með full-
trúum Þjóðarbandalagsins í gær
voru annars vegar að þá lund að
haldnar verði nýjar kosningar
undir núverandi stjórn með sömu
frambjóðendum og kosið var um í
kosningunum 7. marz s.l. — án
nýrrar kosningabaráttu, og hins
vegar að haldnar verði nýjar
kosningar að undangenginni
kosningabaráttu og hafi flokkar
þá leyfi til að skipta um frambjóð-
endur að vild. Telja þeir, sem eru
Kindur
heimtar
Laiiirahn-kku. Breiðavíkurhreppi
— 7 júní.
OLGEIK Þorsteinsson, bóndi i
H:marsendum í Breiðuvíkur-
hreppi, heimti óvænt kindur af
fjalli seinni hlutann í maf. Þarna
var á ferð ær, sem hafði verið með
tvö lömb sl. sumar, hrút og
gimbur og voru þau bæði með
henni þegar kindin fannst. Ærin
var auk þess borin og hafði átt tvö
lömb en annað drepizt — af
völdum fugls eða dýrbfts.
Gimbrin var með lambi en ekki
borin.
Kindurnar voru i sérlega góðu
ásigkomulagi þegar þær fundust í
Mólsdal í Neshreppi utan Ennis
og var það Sæmundur Kristjáns-
son sem fann þær. Þarna hafa
þær verið í vetur, og komizt í
mjög góða haga, enda snjólétt á
þessum slóðum vetrarmánuðina.
— Valdimar.
r
Jón L. Arna-
son á mót í
Bandaríkjunum
TAFLFÉLAG Reykjavfkur hefur
ákveðið að bjóða íslandsmeistar-
anum, Jóni L. Árnasyni, á opið
skákmót f Philadeiphia f Banda-
rfkjunum, en mót þetta hefst 30.
júnf n.k.
Mótið er haldið í Sheraton-
hótelinu í borginni og verða tefld-
ar 9 umferðir samkvæmt Monrad-
kerfi. Er mót þettaata kallað
„World Open“, og er ljóst að þátt-
taka verður geysimikil. Verðlaun
nema alls um 5,2 milljónum ís-
lenzkra króna og fyrstu verðlaun
eru tæpar 400 þúsund íslenzkar
krónur.
Áformað er að Jón tefli á
Norðurlandamótinu í skák í
sumar og að hann taki þátt i
heimsmeistarakeppni unglinga í
haust.
hnútum kunnugir, að síðari kost-
urinn sé vænlegri fyrir stjórn
Bhuttos, en það hafi hins vegar
þann ókost frá sjónarmiði
stjórnarandstöðunnar, að dragast
kunni um allt að einu ári að kosn-
ingar fari fram. Verði niður-
staðan sú að taka fyrri kostinn
hafi stjórnin fremur möguleika á
að koma i veg fyrir fylgishrun, en
þá geti kosningarnar farið fram
þegar eftir nokkrar vikur.
— Pólýfónkór
Framhald af bls. 2
meginhluta kostnaðar úr eigin
vasa. Þó gerir kórinn enn eitt
átak í fjáröflunarskyni, áður en
ítalíuferðin hefst, sem vonast
er að verði vei tekið af almenn-
ingi, og gefur um leið enn eitt
tækifæri til að njóta söngs kórs-
ins í nokkrum fegurstu verkum
tónlistarinnar.
Það verður tii nýlundu i
hátíðarhöldunum 17. júní að
Pólýfónkórinn heldur tónleika
í Háskólabíói og flytur ásamt
hljómsveit og einsöngvurum
Gioríu og Vivaldi og Magnificat
eftir Bach. Þriðja verkið á
efnisskránni er konsert í
d—moll fyrir tvær einleiks-
fiðlur og hljómsveit eftir J.S.
Bach. Einleikarar verða Rut
Ingólfsdóttir sem jafnframt er
konsertmeistari hljómsveitar-
innar og systir hennar María,
sem kemur frá Bandaríkjunum
til að taka þátt í hljómleika-
haldinu hér og á ítalíu. Ekki er
vitað til að þetta stórfagra verk
hafi verið leikið hér áður af
islenzkum tónlistarmönnum.
Tónleikarnir, sem hefjast kl. 5
síðdegis, ættu að verða þægileg
og skemmtileg hvild og tilbreyt-
ing frá útihátíðahöldum dags-
ins. Síðustu hljómleikar kórs-
ins hér á landi undir stjórn
Ingólfs Guðbrandssonar verða
miðvikudaginn 22. júní I Há-
skólabíói og verður þá flutt ora-
torían Messías eftir Hándel,
eitt vinsælasta og fegursta tón-
verk allra tíma. Mörgum mun
minnisstæður flutningur verks-
ins undir stjórn Ingólfs Guð-
brandssonar árið 1975, og
munu færri en vilja fá tækifæri
að hlýða á verkið í túlkun hans,
Pólýfónkórsins, hljómsveitar
og brezkra einsöngvara í
fremstu röð, því nú verður
flutningurinn ekki endurtek-
inn. Einsöngvarar verða
Kathleen Livingstone, sópran,
Ruth Magnússon, alto, Neil
Mackie, tenór og Michael
Rippon, bassi. Pólýfónkórinn
hefur árum saman gefið áheyr-
endum sínum kost á að hlýða á
valda tónlist gegn vægu gjaldi.
Aðgangseyrir að þessum
styrktartónleikum verður
hækkaður í kr. 2000 fyrir tón-
leikana 17. júní og kr. 3.000 að
Messíasi 22. júní. Áskrifendur
að báðum tónleikunum greiða
kr. 4.000 fyrir báða tónleikana
og má panta miða í síma 20100
og 26611.
Fullyrða má, að Reykvíking-
um gefst kostur á eftirminni-
legum tónleikum þessa daga og
jafnframt eiga þeir þess kost að
styrkja kórinn til stærsta
hljómleikaferðalags, sem farið
hefur verið frá íslandi til þessa.
Kórinn mun syngja 8 sinnum í
7 borgum It ’íu og í ráði er, að
hljómleikarnir verði kvikmynd-
aðir og hljóðritaðir fyrir ítalska
sjónvarpið. Hér er því um land-
kynningu að ræða, sem mikils
má af vænta og full ástæða til
að styðja í verki.
— Korkurinn
Framhald af bls. 32
frádráttar komi gæsluvarðhalds-
vist hans, 78 dagar. Ákærði greiði
einnig 900.000 kr. í sekt til ríkis-
sjóðs og komi 6 mánaða fangeisi í
sektar stað, verði hún ekki greidd
innan 4 vikna frá birtingu dóms
þessa. Upptæk skal til rikissjóðs
eftirtalin mynt: A: 68.100 ísl.
krónur B: 16 ensk pund C: 200
spánskir pesetar D: 845 hollensk
gyllini E: 220 bandarískir dalir F:
1 kanadiskur dalur. Einnig skal
upptækt til rikissjóðs jafnvirði
4.500 bandarískra dala úr við-
skiptareikningi nr. 30934 og 6.650
bandarískra dala úr viðskipta-
reikningi nr. 31233, báðum við
Champlain Valley Federal Sav-
ings and Loan Association, Mal-
one, New York BNA. Ákærði
greiði allan kostnað sakarinnar,
þar af kr. 90.000 í saksóknarlaun
til ríkissjóðs og kr. 110.000 sem
réttargæslu- og málsvarnarlaun
til skipaðs verjanda síns hdl. Páls
A. Pálssonar."
Svo sem fram hefur komið í
Mbl., lagði unnusta Smiths pen-
ingana inn á bankareikninga í
Bandarikjunum. Stúlka þessi,
Barbara Burl, fer nú huldu höfði
og er talið að hún hafi tekið pen-
ingana með sér, svo það gæti orðið
erfitt fyrir íslenzk yfirvöld að ná
þeim i sína vörzlu.
— Ferðamenn
Framhald af bls. 32
Hótel Loftleiðum, kvað einnig
áhrifa þessa óvissuástands þegar
vera farið að gæta varðandi rekst-
urs þess hótels og benti m.a. á að
nýtingin í maí sl. hefði verið lak-
ari nú en í sama mánuði í fyrra.
Kynnu menn þar ekki aðrar skýr-
ingar en þær að óvissan um verk-
fallsaðgerðir hefði þar haft sin
áhrif. Hins vegar kvað hann bók-
anir fyrir júnímánuð hafa staðist
allvel til þessa en á það atriði færi
þó ekki að reyna fyrir alvöru fyrr
en lengra liði á mánuðinn.
— Vonir
Ecevits
Framhald af bls. 1
það verði fyrr en eftir einn til tvo
daga.
Demirel sagði um þá yfirlýs-
ingu Ecevits að hann ætlaði að
mynda stjórn: „Enginn getur lýst
sig forsætisráðherra". Hann sagði
að þar sem enginn flokkur hefði
fengið meirihluta væru „þeir sem
héldu að þeir hefðu meirihluta í
hlægilegri aðstöðu".
Hann sagði að hægriflokkar
hefðu til samans fengið stuðning
meirihluta kjósenda. Sérfræð-
ingar telja að Réttlætisflokkur
Demirels fái 187 eða 188 þingsæti,
Þjóðernisflokkurinn 16 eða 17 og
Hjálpræðisflokkurinn 23 til 26
þingsæti.
Miklar bollaleggingar eru hafn-
ar um myndun samsteypustjórnar
þótt flokkur Ecevits hafi sagt að
hann ætli að stjórna einn.
— Hreinsað til
Framhald af bls. 1
hús í bænum eyðilagðist í spreng-
ingu í gær og orkuver og endur-
varpsstöð voru sprengd í loft upp
um helgina.
Samkvæmt Gallup-
skoðanakönnun frá Miðflokka-
sambandi Suarezar forsætisráð-
herra og jafnaðarmannaflokkur
Felipe Gonzales álika mikið fylgi í
kosningunum en kommúnistar
verða í þriðja sæti. Hins vegar
hefur helmingur kjósenda ekki
gert upp hug sinn samkvæmt
skoðanakönnuninni. Kjörsókn
mun verða um 80%.
— Begin falin
stjórnarmynd-
un í ísrael
Framhald af bls. 1
menn kölluðu heriið sitt til baka
að vopnahléslinunni, sem hefði
verið í gildi fyrir sex daga striðið
1967, svo og þátttöku hinna svo-
kölluðu Frelsissamtaka
Palestínumanna í friðarviðræð-
um. Begin kvaðst þó ekki vilja
draga dul á að alvarlegur ágrein-
ingur væri milli Likud-manna og
Verkamannaflokksins, en sagði
að viðsjár í þjóðmálum samein-
uðu þessa flokka.
Helzti ágreiningur flokkanna
varðar þá afstöðu Likud-manna
að vilja undir engum kringum-
stæðum yfirgefa vesturbakka
Jórdanár, en Verkamannaflokk-
urinn aðhyllist ýmisskonar mála-
miðlun varðandi slíkar ákvarðan-
ir í samræmi við tilslakanir, sem
Arabar kunna að fallast á i hugs-
anlegum friðarsamningum.
Flokkur Yadins hefur að mörgu
leyti sömu stefnu og Verka-
mannaflokkurinn hvað snertir
friðarsamninga, og telja stjórn-
málaskýrendur, að hann kunni að
geta stuðlað að málamiðlun og
gegni þannig úrslitahlutverki við
myndun þjóðstjórnar.
— Hvar er Amin?
Framhald af bls. 1
kvæmlega með umferð um flug-
velli i Úganda, segja, að þar hafi
engin flugvél hafið sig til flugs
um það leyti sem útvarpið í Kam-
pala skýröi frá brottför Amins. Sé
Amin hins vegar á ferðinni er
talið að flugvélin sé libýsk og að
Arabarikið umrædda sé Libýa.
í Lundúnum voru embættis-
menn með böggum hildar vegna
yfirvofandi heimsóknar Amins í
allan dag. Bretar hafa gefið Amin
í skyn svo ekki verður um villzt að
nærveru hans í Bretlandi er ekki
óskað, og koma þar ekki aðeins til
greina siðferðileg sjónarmið og
öryggisvandamál, heldur óttinn
við að Amin varpi skugga á hátíð-
arhöldin vegna aldarfjórðungsaf-
mælis drottningarinnar á valda-
stóli, svo og samveldisráðstefn-
una.
— Fiskurinn
Framhald af bls. 13
um í fyrsta flokk og 4% í annan.
Stórfiskur var 32,19% aflans,
59,38% voru millifiskur á bilinu
54—70 sm og 8,43% voru á bilinu
50—54 sm.
Kaldbakur kom út með 96%
þorsksins í fyrsta flokk og alla
ýsuna, en 4% af þorskinum fóru i
annan flokk. Af þorskinum voru
61% 75 sm og yfir og 35% á bilinu
54—74 sm. 4% voru á bilinu
50—54 sm. Af ýsunni voru 75%
54 sm og yfir og afgangurinn á
bilinu 40—53 sm. Ufsinn.sem fór
allur í fyrsta flokk, skiptist 61%
85 sm og yfir og 39% 54—84 sm.
Um Sléttbak er litið að segja
þarna, því hann fór ekki út fyrr
en 30. desember. Þó er rétt að
geta þess að 92% af þorskafla
hans og allur ýsuaflinn fóru í
fyrsta flokk og af þorskinum
reyndust aðeins 4% 50—54 sm, en
63% 75 sm og yfir.
Þegar þessar tölur eru lesnar og
haft í huga, að allt að 10% þorsk-
aflans mega vera á bilinu 43—50
sm. Af þessum undirmálsfiski er
ekki eitt einasta kiló á þessum
nótum og þá stendur nú lítið eftir
af fullyrðingunum um geysilegt
smáfiskadráp þarna vestra um
áramótin."
— „Kem til
að taka upp
þráðinn,,
Framhald af bls. 1
og fremst Bretar, sem beita þrýstingi v
í von um að fá aðgang að íslands-
miðum, en Gundelach heldur því
hins vegar eindregið fram, að hann
fari ekki til Reyikjavíkur af þeirri
ástæðu.
T:ki málin þá stefnu að Frank
Judd gleymi hlutverki sínu sem full-
trúi EBE og láti þess gæta um of, að
hann er brezkur ráðherra, er sagt að
hann verði hinum þaulreynda
Gundelach ekki erfiður Ijár í þúfu. í
bækistöðvum EBE segja menn að
Judd viti ekki ýkja mikið um fisk,
heldur sé hann sérfræðingur í mál-
efnum Afríku. Hann var á sínum
tíma andvígur aðild Breta að EBE,
en þeir sem, þekkja hann vel, segja,
að hann hefði vart barizt til síðasta
blóðdropa fyrir skoðanir sínar á
þeim málum
— Járnblendi-
félagið
Framhald af bls. 15
Elkem-Spigerverket a/s, ekki i
ábyrgð fyrir láninu. Á hinn bóg-
inn hefur verið gerður samningur
milli félagsins og hluthafa þess,
þar sem hluthafarnir taka að sér
að tryggja útvegun á nægilegu
fjármagni handa félaginu til að
ljúka við byggingu verk-
smiðjunnar. Er þetta svonefndur
lúkningarsamningur, gerður með
heimild í 6. gr. laga um járn-
blendiverksmiðju í Hvalfirði. Var
hann undirritaður hinn 31. mai
s.l., og á bankinn aðild að honum.
Frá íslenska jðmblendifélaginu hf.)
— Niðursetningu
á túrbínum...
Framhald af bls. 2
Að sögn Halldórs hefur túrbina
nr. 1 reynzt mjög vel það sem af
er og engir tæknilegir gallar kom-
ið fram á henni enn, en ekki hef-
ur verið hægt að keyra hana á
fullu álagi, þar sem vatnsborðs-
hæð I Ióninu er ekki komin í fulla
hæð enn og verður vart fyrr en í
ágúst, þegar búið verður að þétta
lónið fullkomlega, þ.e.a.s. ef ein-
hver leki kemur fram í veggjum
þess.
— Sjónvarpsmynd
Framhald af bls. 32
stjóra sjónvarpsins, verður þar
m.a. rætt um hugmynd for-
ráðamanna islenzka sjónvarps-
ins um samvinnu milli norska
og íslenzka sjónvarpsins um að
semja sérstaka dagskrá um
Snorra Sturluson, sem sýnd
verði áramótin 1978—79 í til-
efni 800 ára afmælis Snorra.
— Fréttaritari.
— Piltum bjargað
Framhald af bls. 2
skammt þar frá sem bátnum
hvolfdi. Svo vel vildi til að einn
af félögum Hjálparsveitar
skáta var í húsinu þar sem bát-
urinn er geymdur og hratt
hann bátnum á flot ásamt
feðrum piltanna og kom lög-
reglan að í því. Fór faðir annars
piltsins, lögreglumaður og
maðurinn frá Hjálparsveitinni
út að skútunni og náðu í strák-
ana. Gekk sú ferð vel og fóru
piltarnir heim til sín og hresst-
ust brátt. Hins vegar tók nærri
tvo tíma að ná skútunni á land.
— Minning
Þóra
Framhald af bls. 23
sem hún vissi að þrufti hjálpar
með. Fórnarlund hennar var
óvenjuleg og oft furðaði maður
sig á þvi, hve mikið hún lagði á
sig, stundum sárlasin, til að hlúa
að öðrum, eða til að létta þeim
erfiðið. Það var hennar aðals-
merki alla ævi að hjálpa öðrum og
hlúa að þeim sem á hjálp þruftu
að halda.
Þóra varð bráðsvödd heima hjá
sér, laugardagskvöldið 28. mai.
Hún var búin að elda matinn þeg-
ar kallið kom. Hún hafði notað
kvöldið til að skjótast upp á spít-
ala, til að hitta þar og gleðja
dótturdóttur sina og nöfnu.
Þóra var hress og kát, henni
leið vel, hún var að hlúa að öðr-
um, hjálpa fram á siðustu stund.
Ferð Þóru yfir móðuna miklu
verður ekki erfið, fólk með slíkt
hjartaþel fær góða heimkomu.
Þakkarhug minn til kærrar
tengdamóður minnar get ég ekki
túlkað svo sem ég vildi. — Þvi
segi ég aðeins:
Þökk fyrir þennan röska aldar-
fjórðung, sem leiðir okkar hafa
verið samofnar. Himnaföðurinn
veitti henni ríkuleg laun fyrir sín
mörgu góðverk.
Hjalti Pálsson.
Kveðja frá samstarfsfólki
í dag er kvödd hinstu kveðju
frú Þóra Ágústsdóttir, Bárugötu
37, sem lézt 28. maí s.l. Við, sem
störfum hjá Dráttarvélum hf. og
kynntumst Þóru á liðnum árum,
munum sakna hennar og sér í lagi
hressilegs skaps og lífsgleði, sem
einkenndi hana í ríkum mæli. Við
munum ávallt minnast Þóru og
þeirra mörgu ára, sem við áttum
samleið með henni.
Eiginmanni Þóru, Karli Jóns-
syni, fyrrv. skipstjóra, börnum
þeirra, tengdabörnum, barna-
börnum svo og öðrum ættingjum
vottum við okkar dýpstu samúð
og erum þess fullviss, að minning-
in um hjartahlýju hennar og lífs-
gleði muni milda sorg þeirra.
Arnór Valgeirsson.