Morgunblaðið - 08.06.1977, Page 25

Morgunblaðið - 08.06.1977, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JUNÍ 1977. 25 fclk í fréttum ..Kru þau fkki sniöuíí", s»>gja K'*nilu konurnar af elliheimilinu o« hópasl krinKuni systkinin \iö inni>anKÍnn I sirkusinn. Minnstu systkin í heimi Fólk veigrar sér jafnvel ekki við að kfkja inn um glugga til að sjá þessi smávöxnu systkini. + Hópur blaðamanna og ljósmyndara beið spenntur á flugvellinum í Frankfurt eftir að vélin frá Stuttgart lenti. Þvf með henni áttu þeir von á minnsta manni f heimi og tveim systkin- um hans örlftið stærri. En blaðamennirnir urðu fyrir vonbrigðum þegar fólkið streymdi út úr vélinni þvf allir sem út komu virtust mjög eðlilegir hvað stærðina snerti. Einn Ijósmyndar- inn fór inn f vélina þegar allir voru komnir út. Kannski þetta hefði verið einhver misskilning- ur. En f aftasta sætinu f flugvélinni sem rúmar 253 farþega sátu systkinin þrjú eins og litlar dúkkur. Elstur systkinanna er Suleyman Eris. Hann er 24 ára og er minnsti maður í heimi, aðeins 78 sm. Bróðir hans, Ibrahim, sem er þrem árum yngri er 85 sm. og systirin Saye 18 ára er 95 sm. Þau koma frá Tyrklandi þar sem þau eiga þrjár systur og einn bróður sem öll eru eðlilega vaxin. Þau eru komin til Þýskalands til að vera skemmtikraftar f sirkus. Þar fá þeir vagn tii að búa í sem er innréttaður með tilliti til smæðar þeirra. Sjaldan er hægt að sjá það á þessu smávaxna fólki þegar það fæðist hver örlög þess verða. í dag er hægt að koma í veg fyrir að þessi börn hætti að vaxa þegar einkennin fara að koma í ljós. En hvernig átti Eris-fjölskyldan sem bjó f afskekktu tyrknesku þorpi að hafa hugmynd um að eitthvað væri til sem héti vaxtarhormón- ar? Eftir myndunum að dæma vekja þessi þrjú minnstu systkini í heimi mikla athygli hvar sem þau fara. Það er lfka gaman að vera áhorfandi f sirkus. Það eru margs konar erfiðleikar sem verða á vegi Suleymans, svona glös eru t.d. allt of stór til að hægt sé að halda á þeim. óvenju mikið um mislinga „ÞAÐ ER óvenju mikið um misl- ingatilfelli um þessar mundir f borginni, en þrátt fyrir aukning- una er faraldurinn ekki mjög út- hroiHHnr “ sap>ði Skúli Johnsen borgarlæknir í samtali við Mbl. f gær. Kvað Skúli stutt sfðan misl- ingafaraldur hefði verið á ferð- inni og því væru litlar líkur til þess að um mikla útbreiðslu yrði að ræða nú. Aðspurður sagði borgarlæknir að lítið væri um pestir í borginni og heilahimnu- bólgutilfelli hjá börnum hefðu ekki komið upp í marga mánuði. STERKUR vamarleikur! Vinnuvélar verkfæri og bifreiðar, sem eru stöðugt í notkun úfi í umhleypingasamri og óblíðri veðráttu láta fljótt á sjá. Vinnuhæfni og verðmæti tækjanna minnkar ef ekkert er að gert. Þetta vandamál verður ekki leyst í eitt skipti fyrir öll - en stöðugt viðhald með Hörpu-vinnuvélalakki er sterkasti varnarleikur sem völ er á til þess að sigrast á þessum vanda. Hörpu vinnuvélalakk er slitsterkt og ódýrt, og fæst í málningarverslunum um land allt. Thames and Hudson, London 8—16 June 1977 Stór sölusýning á listaverkabókum í BÓKAVERSLUN SNÆBJARNAR Hafnarstræti 9 og BÓKAVERSLUN SNÆBJARNAR Hafnarstræti 4 (uppi) \

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.