Morgunblaðið - 21.08.1977, Qupperneq 1
44 SÍÐUR
184. tbl. 64. árg.
SUNNUDAGUR 21. AGUST 1977
PrentsmiÖja Morgunblaðsins.
V oy ager II á
leið til Júpiters
Cape Canaveral, Florída
— 20. ágúst — Reuter
GEIMFARINU Voyager
II. verður skotið á loft í
dag til könnunar á plánet-
unum fjarst f sólkerfinu,
sem hvað minnst er vitað
um. Unnu sérfræðingar að
því í alla nótt að ganga frá
geimfarinu fyrir geimskot-
ið, en Titan-Centaur eld-
flaug mun bera það áleiðis
út í geiminn.
Um leið og hið fyrra af
tvíburageimförunum er
komið á braut áleiðis til
Júpiters og Satúrnusar
verður byrjað að undirbúa
ferð hins farsins, Voyager
I sem gert er ráð fyrir að
skjót a á loft 1. september
n.k. Voyager-áætlunin
kostar um 500 milljónir
Bandaríkjadala og tekur
það geimförin um tvö ár að
komast á fyrsta áfangastað.
Er áætlunin af mörgum
talin jafnvel flóknari en
lending Viking-
geimfarsins á Mars, þar
sem Voyagergeimförunum
er ætlað að starfa frá fjór-
um og upp í 12 ár til að
uppfylla vonir vísinda-
manna. Eru möguleikar á
því, að Voyager II verði
sendur ffram til að kanna
Úranus árið 1986 og síðan
Neptúnus árið 1989 en auk
þess ber hann skilaboð út í
Sexbura-
fæðing
Frakklandi
Albi, Frakklandi,
20. ágúst
FRÖNSK kona eignaðist hér i gær
sexbura, sem vógu milli 400 og
700 grömm hver. Tvö barnanna
létust fljótlega eftir fæöingu en
hin fjögur eru öll í súrefniskassa.
Konan er 29 ára að aldri.
/
1
geiminn frá jarðarbúum,
ef þar skyldi einhvers stað-
ar vera vitsmunalíf að
finna. Aðalmarkmið þess-
arar áætlunar er þó könn-
un Júpiters og nokkurra af
13 tunglum hans áður en
tekin verður stefnan á
Satúrnus og tungl hans.
Þar á meðal er Titan,
stærsta tunglið sem vitað
er um í sólkerfinu, hulið
þokumóðu og hugsanlega
með frumstætt lífríki að
mati vísindamanna.
Groucho
Marx
látinn
Los Angeles. 20. ágúsl — Reuler.
BANDARtSKI gamanleikar-
inn Groucho Marx, einn Marx-
bræðra, lézt í sjúkrahúsi hér i
nótt 86 ára að aldri. Groucho
var Ifklega vinsælastur þeirra
Marx-hræðra, þar sem hann
fékk milljónir kvikmynda-
húsagesta um allan heim til að
veltast um af hlátri þegar
hann reitti af sér fimm-
aura-brandara um leið og hann
tottaði stórslgar, sem hann
skyldi helzt aldrei við sig.
Hann hét fullu nafni Julius
Henry Marx og fæddist i New
York 2. október 1890. Hann
sagði eitt sinn um sklrnarnafn
sitt: „Það er allt betra en heita
þvf, enda held ég að það sé
skýringin á því að Sesar var
rnyrtur." Uppnefnið Groucho
hlaut hann af virðulegri tösku
sem hann bar alltaf meðan
hann starfaði f fjölleikahúsum
og kallaðist „Grouchbag'*.
Upphaflega voru þeir fimm
Marx-bræðurnir sem skemmtu
milljónum manna — fyrst f
fjölleikahúsum, þá kvikmynd-
um og loks f sjónvarpi en af
þeim er aðeins Zeppo á Iffi.
Chico lézt 1961, Harpo 1964 og
Gummo f maí fyrr á þessu ári.
ESJAN er Reykvfkingum engin nýiunda en svipmót hennar sem blasir við nú sfðla f ágúst er þó dálitið
sérstætt. Það er nefnilega nánast hvergi hvftan dfl að sjá á þessari f jalladrottningu höfuðborgarinnar
og mun það vera afar fágætt að Esjan sé svo auð sem nú. Ljósm. Mbl. Öl. K.M.
Vance farinn til Kina:
Varað við of mikilli
biartsýni á árangur
Washington. 20. ágúst
— Reuter, AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Banda
ríkjanna, Cyrus Vance, hélt I dag
áleiðis til Peking til fyrstu viðræðna
milli háttsettra fulltrúa Carter-
stjómarinnar og kínverskra leiðtoga.
Ekki er þó gert ráð fyrir að þessi
fundur muni leiða til meiriháttar
breytinga á samskiptum Bandarlkj-
anna og Kína heldur sé hér fyrst og
fremst um könnunarviðræður að
ræða. Vance kemur til Kina ásamt
tiu manna fylgdarliði og stendur
frammmi fyrir því vandamáli að
hvika i engu frá skuldbindingum
Bandarikjanna gagnvart Formósu á
sama tima og vonazt er eftir að fullu
stjórnmálasambandi verði komið á
milli Kina og Bandarikjanna.
Blaðafulltrúi Bandaríkjaforseta
skýrði frá þvi, að viðræður Vance við
kínverska ráðamenn munu aðallega
snúast um alþjóðamál almennt, enda
þótt búast niætu vu) að bætt samskipti
Bandaríkjanna og Kína yrðu einnig á
dagskrá Af hálfu bæði utanrikisráðu-
neytisins bandariska og talsmanna
Hvíta hússins hefur verið lögð mikil
áherzla á að draga úr óhóflegri bjart-
sýni á árangur af þessum fundi.
Vance hefur gert það Ijóst varðandi
málefni Formósu að hvernig sem fram-
vindan verði í að bæta sambúðina við
Kina muni Formósa ekki verða skilin
eftir úti i kuldanum, en ráðamenn i
Peking hafa á sama tíma aldrei Ijáð
máls á þvi að komið verði á fullu
stjórnmálasambandi við Bandaríkin
meðan þau viðurkenni Formósustjórn-
ina Af hálfu ráðamanna i Peking er
litið á málefni Formósu sem innanríkis-
mál og það sé því ekki til umræðu á
alþjóða vettvangi
Sómalir vara Rússa
við ögrandi afstöðu
Nairobi, 20. ágúst — Reuter.
SÓMALlUSTJÖRN hefur sakað
Sovélrfkin, bandamann sinn, um
ögrandi afstöðu f átökunum milli
Sómala og Eþíópfumanna út af
Ogaden-héraði, þrætuepli þessara
tveggja nágrannarfkja. Asakanir
þessar, sem útvarpað var f nótt f
Mogadishu, höfuðborg Sómalfu,
bera með sér vaxandi ágreining
milli Sómalfu og Sovétrfkjanna
eftir að Rússar tóku að sjá
Eþíópfumönnum fyrir vopnum.
I útvarpssendingunni sagði, að
Sómalir hefðu ekki áhuga á því að
upp úr slitnaði i vináttu þeirra og
bandalagsrikis þeirra vegna
þeirrar gildru sem stjórnin i
Addis Ababa hefði lagt, og að
Sómalíustjórn vonaði að málin
þróuðust ekki á það stig, þannig
að Sovétrikin héldu sig að
minnsta kosti utan við átökin úr
því að þau gætu ekki stutt frelsis-
hreyfingar Vestur-Sómaliu og
Eritreu.
Hins vegar var í útvarpssend-
ingu varað við því, að ef Rússar
héldu fast við „ögrandi afstöðu“
sina til þessa máls myndi
Sómaiiustjórn ekki hika við að
grípa til gagnaðgerða og Sómali
myndi þá hvergi skorta vini, sem
stæðu með þeim.
Ástralía:
Dularfull kona
með kameldýr á
eyðimerkurgöngu
Pcrth. ÁstraHu 20. ágúst. — AP.
DULARFULL kona, sem geng-
ur undir nafninu Kamelkonan,
nálgast nú leiðarenda á um
1000 kflómetra göngu sinni yfir
óbyggðir Mið-Astraliu ásamt
fjórum kameldýrum og hundi.
Lögregla og starfsmenn af-
skekktrar trúboðsstöðvar hafa
tvivegis séð til ferða konunnar,
sem er á leið yfir einhverja
mestu auðn veraldar, Gibson-
eyðimörkina. Konan hefur ver-
ið kölluð Kamelkonan vegna
kameldýranna sem hún hefur
meðferðis, en enginn hefur
hingað til getað sagt frekari
deili á henni eða um tilgang
hennar með þessu ferðalagi.
Dennis Barell, bóndi, er einn
þeirra sem séð hefur til ferða
konunnar. Hann kveðst hafa
rekizt á eldstæði hennar er
hann var á leið yfir miðhluta
Astralíu. „Þegar ég sá eldinn,
snarhemlaði ég og hrópaði upp
yfir mig,“ sagði hann í viðtali í
Melbourne. „Hún var gull-
falleg, tunglið skein, kameldýr-
in htmdu upp við runna og
bjöllurnar á hálsi þeirra gullu i
þögn óbyggðanna."
Konan lagði upp frá Ayers-
kletti, ein hverjum stærsta
kletti veraldar, i miðhluta
Astraliu fyrir tveimur mánuð-
um og átti aðeins250 km ófarna
til bæjarins Wilmuna i vestur-
hluta Astralíu.