Morgunblaðið - 21.08.1977, Síða 3
Foster
Ferðin
gekk
mjög
vel
ENGLENDINGARNIR tveir, Michael
Foster og Geoff Hunter, sem
undanfarnar vikur hafa róið á
tveimur kajökum umhverfis ísland,
hafa nú lokið hringferð sinni og
fóru frá Seyðisfirði í gærkvöldi með
Smyrli áleiðis til Skotlands.
í samtali við Morgunblaðið
sögðu þeir að ferðin hefði verið
alveg frábær frá upphafi til enda
Þeim hefði að vísu miðað heldur
hægt fyrri hluta ferðarinnar til
Reykjavíkur frá Seyðisfirði en síðar
hefðu þeir unnið það upp í góðu
veðri yfir Faxaflóa, fyrir Snæfells-
jökul og alla leið til Suðureyrar við
Súgandafjörð en þar höfðu þeir
nokkurra daga viðdvöl
Þá ætluðu þeir að hitta Jóhann
Pétursson, vitavörð á Hornbjargi,
en voru það óheppnir að Jóhann
var nýfarinn i frí. Þaðan gekk ferðin
nokkuð vel inn á Húnaflóa En þar
lentu þeir i sterkum vindi og gerðu
nokkurra daga hlé á ferðinni og
fóru í heyskap með bændum þar i
sveit.
Síðan lá leið þeirra til Flateyrar á
Skjálfanda, en þar urðu þeir að láta
fyrirberast í nokkra daga vegna
sterkra norð-vestanvinda og kulda
Svo var kuldinn mikill að þeir létu
fyrirberast í svefnpokum mikinn
hluta dagsins Ferðin til Kópaskers
gekk mjög vel, en þar höfðu þeir
tveggja daga viðdvöl. Lokakafla
leiðarinnar fyrir Langanes til
Seyðisfjarðar fóru þeir frekar ró-
lega, þar sem veður var mjög sér-
kennilegt að þeirra mati, glampandi
sól og logn á morgnana, en undir
hádegi fór að aukast vindurinn og
fljótlega hrönnuðust upp ský á him-
ininn og skömmu eftir hádegi var
komin úrhellis rigning.
„Hingað komum við svo 16
ágúst s.l en munum halda héðan
með Smyrli á laugardagskvöld til
Skotlands en þaðan munum við
keyra til Suður-Englands þar sem
við búum báðir,” sögðu þeir félag-
ar.
Að lokum vildu þeir koma á fram-
færi sérstöku þakklæti til allra
þeirra vingjarnlegu íslendinga sem
þeir höfðu hitt á ferð sinni.
Hunter
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1977
3
Hálfrar
aldar
afmæli
Hellu
minnzt
NÚ ÞESSA dagana heldur
Hella upp á hálfrar aldar af-
mæli sitt, sem er 20. ágúst, með
ýmsum hætti. Hátíðarhöldin
hófust á föstudaginn með opn-
un iðnsýningar í tengslum við
dag iðnaðarins. I gær var svo
hin eiginlega afmælishátíð.
Dagskrá hátiðarinnár var
mjög fjölbreytt, en hún hófst
klukkan 13.30 með setningu
Sigurðar Haraldssonar frá
Kirkjubæ. Þar á eftir var helgi-
stund þar sem sr. Stefán Lárus-
son talaði. Aðalhátíðarræðan
var siðan flutt af Ingólfi Jóns-
syni.
Þá var minnisvarði um land-
námsmann Hellu, Þorstein
Björnsson afhjúpaður. Siðan
voru Veittar viðurkenningar
fyrir snyrtileg hús og lóðir.
Þjóðdansasýning var þar á eft-
ir. Að lokum var opnuð mál-
verka- og Ijósmyndasýning sem
er hin fjölbreyttasta. I gær-
kvöldi var svo hátiðardansleik-
ur i Hellubiói.
Þess má að lokum geta að
iðnsýning, málverka- Qg ijós-
myndasýning verður opin dag-
ana 21.—25. ágúst frá klukkan
13.30—22.00 daglega. Af hálfu
hreppsnefndar Rangárvalla-
hrepps sáu um skipulagningu
hátiðarhaldanna þau Sigurður
Haraldsson, Kirkjubæ, Páll G.
Björnsson, Hellu, Unnur Þórð-
ardóttir, Hellu, Sjöfn Árnadótt-
ir, Hellu, og Einar Kristinsson,
Hellu.
Hella
x ITALIA \
Lignano —
Gullna ströndin:
1. ágúst — 2 eða 3 vikur
7. sept. 2 vikur
Verð frá kr.
, 63.400,00 X,
/' SPANN
Costa Brava
Lloret de Mar:
26. ágúst — 2 eða 3 v
2. sept. — 2 eða 3 vik
9. sept. — 2 vikur
. Verð frá kr
Ík 59-900,00
Costa del sol
Torremolinos
25. sept. — 2. vikur
9. okt. — 3 vikur
heimferð yfir London
Verð frá kr
. 612004H)
rðaskrífstofan
AFBORGUNARSKILMÁLAR
2Q|wsu
ndút
afganginn á C mánuðum
Þessi hagstæðu kjör býður
Ferðaskrifstofan Útsýn
í eftirtaldar ferðir:
v.
• , .. ■'
\