Morgunblaðið - 21.08.1977, Side 13

Morgunblaðið - 21.08.1977, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. AGUST 1977 Kristfn á heimili sfnu f Reykjavfk. Kristfn fklædd hinum skraut- lega kjól sem hún fékk að gjöf frá marokkönskum höfðingja. Höfðinginn sem aldrei hafði séð hvfta konu áður. Þetta flakk mitt byrjaði nú allt með þvi að ég fór til Noregs i janúar s.I. og hugðist ráða mig þar í vinnu sem og tókst. Ég fékk vinnu svo til strax á fjalla- hóteli i Gausdal sem er stutt frá hinum fræga bæ Lillehammer, sagði Kristín Þorsteinsdóttir, er Morgunblaðið hitti hana á heimili sínu hér i bæ fyrir stuttu, en þá var hún nýlega komin úr viðburðarikri ferð um lönd hirðingja í Marokkó þar sem sums staðar hafði aldrei sézt hvitur maður áður. Ég vann á hótelinu fram í miðjan april, en á þeim tima hafði ég kynnst mjög vel norskri stúlku sem þarna vann, en hún var trúlofuð ungum manni frá Marokkó. Það talað- ist svo til með okkur að við hittumst i borginni Malaga á Spáni i lok mánaðarins en áður Eins og áður sagði var okkur tekið með kostum og kynjum, m.a. var okkur fljótlega boðið i mat og þar var á boðstólum búðingur sem er eingöngu borðaður i Marokkó, en hann er búinn til úr korni og húðaður með sykri. En hinn raunveru- legi þjóðarréttur þeirra Marokkóbúa eru kjúklingar sem eru á borðum daglega og jafnvel oft á dag. Einnig kom í ljós að nær alla sina vöru fær fólk með vöruskiptum, þvi pen- ingar þekkjast varla þarna uppi til fjalla. Þetta fólk er að miklu leyti afkomendur þeirra hirðingja sem lifðu i Sahara- eyðimörkinni áður en hirð- ingjalif var þar bannað á árinu 1967. I einni ferð okkar um svæðið komum við í þorp þar sem höfð- ætlaði ég að ferðast um megin- landið. Ég fór sem sagt um miðjan apríl af stað og kom við i Kaup- mannahöfn, Paris, Barcelona og Madríd áður en ég hitti vini mina’i Malaga. Þessa leið ferð- aðist ég með lestum og lang- ferðabilum. Það hafði nú bætzt einn i hópinn til viðbótar þeim skötu- hjúum en það var vinur stráks- ins frá Marokkó. Við ákváðum að leigja bil til ferðarinnar og siðan var haldið af stað yfir til Marokkó. Alls staðar þar sem við kom- um var okkur mjög vel tekið af ibúunum. Við héldum fljótlega til fjallasvæðanna þar sem hirð- ingjarnir búa, en þaðan voru einmitt strákarnir tveir sem þarna voru. Svæðið hét Bienz Naize en þar höfðum við sama- stað og fórum svo i nokkurra daga ferðir þaðan. Við bjuggum í kofa, sem gerður var úr leir og var með stráþaki, en það er sá byggingarstíll sem þarna tíð- kast nær eingöngu. Það sem vakti furðu mina strax var hversu fólk var fá- frótt, fáir höfðu séð hvitt fólk og jafnvel var til fólk sem hreinlega vissi ekki að til væri fólk með þessum litarhætti. Þá er greinilegt að fræðsla á öðr- um sviðum er ekki meiri. Fáir þekktu löndin í Evrópu, flestir kunnu ekkert nema arabisku, en nokkrir þekktu þó frönsku þar sem Marokkó er fyrrum ný- lenda Frakka. Þaö vár ekki nema i stórum borgum og stöð- um sem feröamenn koma að staðaldri sem einhverjir voru sem töluðu ensku. ur þarna en hann er nefndur „brandari". Sauðagærur eru þær sængur sem þetta fólk notar til að halda á sér hita á næturnar en ein- staka menn eiga þó ofin teppi sem þeir hafa fengió vöruskipt- í ferðum okkar um borgirnar var okkur strax bent á, að ekki væri tryggilegt fyrir stúlkur einar síns liðs að fara í gegnum hinar svokölluðu medinur, en medinur eru götur nefndar þar sem mjög fátækt fólk býr og er með alls konar skranvarning til sölu fyrir framan hjá sér. Þess eru dæmi að ráðizt hafi verið á ferðafólk sem er eitt síns liðs þarna. í þessum smáverzlunum er mikið um að fólk verði að prútta til að fá vöruna á skap- legu verði. Einu dæmi kynntist ég. Ég fór ein inn i verzlun og spurði um verð á leðurveski sem þar fékkst. Kaupmaðurinn sagði, að ég fengi þetta á mjög góðu verði eða á 600, en eftir smáprútt var hann korninn nið- ur i 450 sem var algjört sérverð bara fyrir mig. Ég fór út án þess að verzla en sendi þess í stað annan strákinn frá Mar- okkó inn, þá kostaði veskið að- eins litlar 200. Hvað skoðanir fólks á þjóðfé- lagsmálum varðar þá kom greinilega i ljós að fólk er and- snúið kónginum og voru menn yfirleitt sammála i borgunum um að koma þyrfti á lýðræðis- skipulagi. En fólkið i fjalla- héruðunum var það illa að sér að það hafði ekki skoðun á þessu máli. Þegar kosningar Framhald á bls. 34 inginn hafði aldrei fyrr séð hvítt fólk. Þar var okkur boðið til veizlu, og að sjálfsögðu voru kjúklingar aðalrétturinn. Þar komu sérstakir menn með lif- andi kjúklinga sem við áttum að velja. Siðan var þeim'slátrað með viðeigandi viðhöfn. Er við kvöddum þennan höfðingja gengu tvær af þremur eigin- konum hans fram og færðu okkur að gjöf sérstakan skraut- klæðnað. Þá komum við að vatni einu sem íbúarnir töldu vera heilagt og allra meina bót og vildu endilega að við stigjum i það til þess að verjast hvers konar kvillum i framtiðinni. En þrátt fyrir alls konar hjátrú er fólkið mjög trúað og tilbiður Allah stöðugt. Sem dæmi má nefna, að einu sinni fékk ég dálítinn hita og þá komu tvær konur og báðu heitt og innilega til Allah um að mér bötnuðu veikindi mín. Einnig lenti ég þarna bæði i skirnarveizlu og trúlofunar- veizlu. t skirnarveizlunni komu allir saman i moskunni en svo nefnast guðshús þeirra. Þetta var sjö dögum eftir að barnið fæddist. Komið er með lifandi sauð sem presturinn sker á háls og hann síðan matreiddur og setzt að snæðingi. En það er nokkuð fróðlegt, að þessi slátr- un er einasta verkefni prests- ins. 1 trúlofunarveizlum hins vegar er allt annað uppi á teningnum. Þar eu eingöngu samankomnar konur, ekki sjálfur eiginmaðurinn. Brúður- in er vafin hvitum klæðum þannig að ekki sést í hana. Síð- an fara allar konurnar fram á gólfið en brúðurin fer bak við þær og er þá tekið frá andliti hennar. Þá eru einhver jurta- smyrsl borin i hót hennar og i andlit og þau látin vera þar í ákveðinn tima. Við þessa að- gerð verður húðin öll rauðleit. Þá er annað einkennilegt en það er að eiginmaðurinn tilvon- andi gefur föður brúðarinnar ákveðna hluti i heimanmund. Fólk á þessum slóðum neytir mikils brauðs og ekki er óalgengt að bakað sé tvisvar á dag en segja má, að aðferðir, sem notaðar eru, séu mjög frumstæðar. Brauðdeigið er sett á fjöi sem síðan er haldið yfir eldi meðan brauðið bakast. Þá má ég til með að minnast á ávöxt einn sem er mikið borðað- Kristfn I hópi félaga sinna f marokkönskum bæ, þriðja frá vinstri. „Þetta var nýr æ vintýraheimur ’ ’

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.