Morgunblaðið - 21.08.1977, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGUST 1977
21
með mannlegu yfirbragði."
Hann hreif með sér
menntamenn, verkamenn,
bændur og síðan hefur
þetta tímabil verið kallað
„tékkneska vorið.“ Ritkoð-
un var numin úr gildi, allar
hömlur sem lagðar höfðu
verið á tjáningarfrelsi
sömuleiðis. Augu heimsins
beindust að Tékkóslóvakíu
og því sem þar var að ger-
ast og margir ólu þá von í
brjósti að Tékkóslóvökum
myndi takst að halda sínu
striki án þess að Sovét-
menn skærust í leikinn.
Samt fór fljótlega að bóla á
því að þeir hefðu á prjón-
unum áform um að stöðva
þessa þróun, sem vitanlega
gekk þvert á hagsmuni
þeirra. Þrátt fyrir allt
froðnusnakk Sovétríkj-
anna og uppgerðar
umburðarlyndi á þessum
tíma var augljóst að hverju
stefndi. Það styrkti að vísu
stöðu Dubceks um sinn að
bæði Tito, forseti Júgó-
slavíu, og Ceauscesu, for-
seti Rúmeníu, vottuðu hon-
um hollustu. En það dugði
ekki til. Og þann 21. ágúst
1968 fór að hausta að í
Tékkóslóvakíu; þegar
bryndrekar Varsjárbanda-
lagsríkjanna — ruddust yf-
ir landamærin og tróðu
niður allar hugsjónir
þeirra manna sem þá höfðu
skamma hríð leyft
tékknesku þjóðinni að
finna bragð frelsisins.
Raust vormannanna frá
1968 er að vísu hljóðnuð.
En áhrif þeirra urðu ekki
afmáð. Og enn eygja sjálf-
sagt margir í Tékkó-
slóvakíu von um að ein-
hvern tíma komi betri tíð
og að baráttan hafi þá ekki
verið háð til einskis.
þingforseti, Svoboda forseti,
Dayan dap-
ur vegna
afstöðu
USA til PLO
Tel Aviv, 19. ág. AP.
MOSHE Dayan, utanrikisráð-
herra, Israels, sagði i dag, að hann
hefði „þungar áhyggjur" af þvi að
Bandaríkin kynnu að taka upp
viðræður við PLO- Frelsisfylk-
ingu Palestínu en ekki kvaðst
Dayan þó eiga von á því að Banda-
rikin neyddu ísraelsmenn til að
eiga viðræður við Palestínu-
Araba. I viðtali við dagblaðið Ma-
ariv sagði Dayan einnig, að það
væri sennilega óhjákvæmilegt að
Bandaríkin tækju upp stefnu á
Genfarfundunum um Miðaustur-
lönd sem yrði til þess að Israels-
menn yrðu þar einangraðir. Hann
sagði að allt benti til vaxandi vin-
fengis og hlýhugar Bandaríkja-
manna til PLO og væri til þessa
ilit að vita og málið alvarlegt.
Hann sagði að ekki tjóaði að
hugsa um sérstakan varnarsamn-
ing Bandaríkjanna og Israels til
að tryggja öryggi Israels. „Við
getum ekki treyst á erlend öfl og
við viljum ekki að Bandarikja-
menn telji sig skuldbundna til
blóðfórna á israelsku landi.“
sagði Dayan.
Frakkar lýstu i dag áhyggjum
sinum vegna ákvarðana Israels-
manna um að bæta félagslega
stöðu herteknu svæðanna og tóku
undir þá gagnrýni sem fram hef-
ur komið meðal Araba að með
þessu væru ísraelsmenn hægt og
rólega að innlima svæðin i riki
sitt._______________
— Fiskvinnslu-
nefndin
Framhald af bls.44
fyrir og fiskkaupin hefur hún
fengið I gegn um Fiskifélagið. Þá
hefur hun og fengið gögn um sam-
setningu afurðanna. Ur þessu er
verið að vinna núna og svo koma
reikningarnir eftir helgína".
Glært og tært
frá fyrsfu tíð
Thermopane, einangrunargler frá J3elgíu
31 árs framúrskarandi reynsla á Islandi
FRÓN HF
UMBOÐS-OG HEILDSALA SKÚLAGÖTU 28 REYKJAVlK SlMI 11400 TELEX 2216 PÓSTBOX 727 SlMNEFNI KEX