Morgunblaðið - 21.08.1977, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 21.08.1977, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1977 „Elvis er ekki dáinn -hann er ódauðlegnr” Sex knnnir söngvarar minnast Elvis Preslevs Hvernig var Elvis Presley sem söngvari að mati íslenzkra poppsöngvara og hafði hann einhver áhrif á söngstíl þeirra og sviðsframkomu? Þessari spurningu velti Slagbrandur fyrir sér, þegar hann var farinn að jafna sig eftir áfallið vegna fréttarinnar um lát Elvis Presleys. Sex kunnir söngvarar svöruðu spurningum Slagbrands um þetta efni og birtast svör þeirra hér. „Hann var alveg stórkostlegur. Hann kom meö alveg nýjan stfl í hreyfingum og raddbeitíngu og — merkilegt nokk — hélt sínu striki í 20 ár," segir Ragnar Bjarnason. — Telurðu, aö hann hafi haft áhrif á söngstfl þinn? „Nei, ekki vil ég nú segja þaö. Eg var byrjaður að syngja nokkru áöur en hann kom fram. En þaö varö geysi mikil breyting viö komu hans. Áður söng maður „standard" tónlist, en nú varð miklu meira um rokk. Auðvitað fylgdist maður með því sem hann var að gera og söng hans lög. En það getur enginn sungið þau eins og Presley." — Hvort fannst þér honum fara fram eða aftur með aldrinum? „Honum var alljaf að fara fram og hann var langbeztur undir það sfðasta, sem alhliða söngvari. Fyrst söng hann bara rokklög, en eftir því sem hann eltist og þroskaðist, fór hann að fást við fjölbreyttari tónlist og mér fannst hann virkilega góður undir lokin.“ „Hann var alltaf mitt uppáhald á fyrstu árum mínum á þessu sviði og mér fannst mikið til hans koma,“ segir Sigursteinn Hákonarson (Steini í Dumbó). „Upphaflega var það fram- koma hans sem vakti athygli mína og svo var það þessi sérstaki söngstfll, til dæmis þegar hann söng negrasálma. Þeir voru alltaf í mestu uppáhaldi hjá mér af tónlist hans.“ — Telurðu hann hafa haft áhrif á söngstíl þinn? „Já, það tel ég, sérstaklega í þessum rólegu lögum. Ég var alltaf meira fyrir þau." — Hvað fannst þér um söng hans hin sfðari ár? „Mér fannst hann frekar vera í aftur- för. Þessi gamli sjarmi var að mestu leyti farinn af honum. þó að stíllinn væri enn svipaður og áður.“ „Elvis er ekki dáinn — hann er ódauðlegur, hann iifir áfram," segir Björgvin Halldórsson. „En það er ofsa- lítið eftir þegar hann er farinn — þetta er höfuðlaus her. Hann var og er kóng- urinn í rokkinu." — Finnst þér hann hafa haft áhrif á þig sem söngvara? „Já, hann hefur haft áhrif á alla. Hann var aigert mótunarafl i lífi unga fólksins sl. 15—20 ár. Ailt hjálpaðist að, hvernig hann söng, leit út, hagaði sér — hann hafði einhverja töfra sem allir eru að reyna að ná.“ — Hvað fannst þér um söngferil hans síðarí árin? „Hann var orðinn svolftið stappur í lokin. Það var farið að hrúga plötum með honum á markaðinn. Ef maður kemur inn í plötubúð í útlöndum getur maður séð samansafn af alls konar plötum, sem eru teknar upp á tónleik- um, jafnvel bara með einum lélegum hljóðnema. Þetta eru lélegar plötur sem hafa flætt yfir markaðinn, þetta hefur ekki verið gert eins vel og í fyrstu. Það er RCA-fyrirtækið sem gef- ur piöturnar hans út og nú er bara að vona að þeir eyðileggi hann ekki eins og þeir eyðilögðu Jim Reeves. En nú hlakkar áreiðanlega í þeim og þeir SÍKursteinn Hákonarson BjörKVÍn Halldórsson Pálmi (iunnarsson Stefán Jónsson Berti Möller Ragnar Bjarnason setja plötupressurnar í gömlu verk- smiðjunum af stað aftur... Nú á að græða." Og Björgvin heldur áfram: „En ég gagnrýni hann ekki. Þegar hann söng lag, þá gat maður heyrt að þetta var Presley. En það var fullt af öðrum gæjum sem voru að reyna að stæla hann, enginn þekkir þá lengur. Presley var sérstaklega góður söngvari, til dæmis þegar hann söng sálma, það var sérstaklega vel gert. — Ég er einn af milljónum aðdáenda hans." „Hann var mjög góður söngvari og stóð sig frábærlega vel gegnum árin," segir Stefán Jónsson i Lúdó. „Hann virtist ná svo vel til fólksins."_ — Heldurðu að hann hafi haft áhrif á þinn söngstfi? „Nei, alls ekki. Ég var aldrei neinn Presley-dýrkandi þannig séð, hann var ekki endilega á þeirri lfnu sem ég var að eltast við." — Hvort fannst þér hann vera í framför eða afturför hin síðari ár? „Þetta fer eftir því hverju maður er að sækjast eftir. Honunt fór fram sem söngvara, enda þótt hann hafi ekki dottið inn i þá lfnu sem hefur verið vinsælust síðustu árin.“ „Ég hélt ofsalega mikið upp á hann," sagði Pálmi Gunnarsson. „Hann var svo sterkur í upphafi rokktfmabilsins. Ég lenti í endanum á því tfmabili og mér fannst hann frumlegastur og lang- beztur." — Teiurðu hann hafa haft áhrif á söngstil þinn? „Nei ek.vt á stilinn. Þá þýðir lítið fyrir hvern og einn að vera að stæla þessa stórkarla. En það hafa margir lært geysilega mikið af honum." — Fannst þér honum fara fram með árunum? „Nei, mér fannst þetta frekar stefna niður á við. Gæðin voru auðvitað alltaf mikil og hann hafði góðar hljómsveitir til undirleiks, en einhvern veginn var ekki sami andinn yfir þessu. Það var sérstakur neisti í rokkinu áður." „Hann var mikilmenni I poppheimin- um og þegar hann kom inn í poppið, þá jvarð alveg gífurleg breytíng á þvf bviði," segirBerti Möller í Lúdó. „Hann var mjög góður söngvari og það ivar alveg greinilegt að hann söng ekki síður af tilfinningu en kröftum." — Heldurðu að hann hafí haft áhrif á þinn söngstfl eða sviðsíramkomu? „Ekki á sviðsframkomu, því að þegar ég var að syngja, var ég yfirleitt með hljóðfæri f höndunum. En eflaust hef ég reynt að lfkja eftir söng hans eins og margir aðrir." — Fannst þér honum fara fram með árunum? „Maður heyrði auðvitað miklu sjaldnar til hans sfðustu árin, en ég held að honum hafi ekki farið aftur. Hann var orðinn miklu þroskaðri sem söngvari." Og Berti bætir við að lokum: „Ef maður hiustar á gömlu plöturnar hans sem voru svo vinsælar á sínum tíma og ber þær saman við mörg lög sem ganga f dag, þá heyrir maður greinilega hans áhrif. Hann á ftök f ákaflega mörgum tónlistarmönnum." Björn Magnússon Vikivaki Hvað gerir starfsfólk kynn- ingardeildar CBS- plötufyrirtækisins í Svíþjóð þegar til stendur að gefa út stóra plötu með hljómsveit sem að þremur fjórðu hlutum er skipuð íslendingum og heitir í þokkabót islenzku nafni, sem enginn Svíi skilur? Starfsfólkið skrifar æviágrip hljómsveitar- innar og dreifir því til fjölmiðla. Hvað gerir Slagbrandur þeg- ar hann-fær slíkt ágrip í hend- ur? Hann snarar því á íslenzku og birtir það í tilefni af því, að plata hljómsveitarinnar er í þann mund að koma á markað hér á landi og einnig í tilefni af samtalinu við Björn Magnús- son, sem birtist hér á síðunni, en hann er bróðir íslending- anna þriggja sem eru liðsmenn Vikivaka. Og hér kemur ævi- ágripið: „Vikivaki er nafnið á mjög gömlum íslenzkum þjóðdansi. Það er þó ekki mjög sennilegt, að víkingarnir hefðu haft áhuga á að dansa eftir tónlist hljóm- sveitarinnar Vikivaki. Þetta er sannarlega tónlist nútímans. Bræðurnir þrir, Hans, Jón og Gunnar Gíslasynir, fluttust með foreldrum sínum frá íslandi til Svíþjóðar árið 1966. í nýja húsinu var háaloft tilvakð til að fremja hávaða á H : ns og Jón fóru með trommurnar og gítar- inn þangað upp og nokkrum vikum síðar voru þeir búnir að stofna hljómsveit með félögum úr nágrenninu. Litli bróðirinn Gunnar fékk enn ekki leyfi til að vera uppi á háaloftinu með leikföngin sín. Nokkrum árum síðar hafði Vikivaki nóg að gera í spila- mennsku í klúbbum i Gauta- borg. Hans og Jón byrjuðu einnig að semja lög sjálfir. Sumarið 1974 fannst drengjunum timi til kominn að heimsækja gamla Island og þeir fóru þangað í þriggja vikna hljómleikaferð. Áður en þeir fóru frá Svíþjóð hljóðrituðu þeir lög til að færa útvarpsstöð á íslandi. Þetta segulband barst til eyrna sænskum upptöku- meistara, sem kom Vikivaka i kynni við Polydorhljómplötu- fyrirtækið, þar sem þeir hljóð- rituðu fyrstu stóru plötuna sína, „Oldsmobile”. Af plötunni voru tekin lög á litla plötu sem hét „Didn't I" og varð i fjórða sæti í útvarpsþættinum Popp- dómur Evrópu árið 1 975. Næsta sumar ferðaðist hljómsveitin aftur um ísland. í þetta skiptið gekk þeim svo vel að ferðin var framlengd í tvær vikur. Þann 4. júlí lék Vikivaki fyrir þúsundir æstra ba'nda- rískra hermanna á Nato- stöðinni í Keflavík og eftir það var mjög sótzt eftir þeim til að leika í öllum hermannaklúbb- um á íslandi. 1976 fór Vikivaki i ferð til Englands. Er hér var komið sögu var bróðirinn Gunnar vax- inn úr grasi og gekk i hljóm- sveitina. Þeir léku í mörgum helztu klúbbunum í London og gekk mjög vel. Er þeir komu aftur heim til Svíþjóðar fóru þeir að semja nýtt efni á aðra stóru plötuna sína, sem nú er að koma á markað á vegum CBS- fyrirtækisins. Liðsmenn Vikivaka: Hans Gíslason, fæddur 1954, gítar, píanó og söngur. Jón Gíslason, fæddur 1955, trommur og söngur. Gunnar Gíslason, fæddur 1959, gítar og söngur. Kenny Olsson, fæddur 1 956, bassi. Svo mörg voru þau orð Við þetta er þó ýmsu að bæta, samkvæmt upplýsingum sem bróðir þeirra Hans, Jóns og Gunnars, Björn Magnússon,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.