Morgunblaðið - 21.08.1977, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. AGUST 1977
29
Björn Mapósson:
„ Jákvæð brónn
íslenzkrar
tónlislar’ ’
Björn Magnússon er 25 ára
gamall sálfræðinemi, bróðir
þeirra Hans, Jóns og Gunnars
Gíslasona í hljómsveitinni Viki-
vaka. Hann er, eins og bræð-
urnír, ekki laus við tónlistar-
bakteríuna og er nú að taka
upp fyrstu stóru plötuna sina
fyrir Polydor-fyrirtækið í Svi-
þjóð. Slagbrandur hitti hann að
máli í stúdíói Hljóðrita hf. i
Hafnarfirði, þar sem hann var
að leggja síðustu hönd á hljóð-
blöndun tveggja íslenzkra laga
sem hann hafði hljóðritað hér í
sumarfríinu sinu og notar e.t.v.
á stóru plötuna.
..Tónlistarferill minn hefur
þróazt út frá samstarfi við
bræður mína," sagði hann. „Ég
hef verið í hljómsveitum í
Gautaborg og einnig spilað
stundum með Vikivaka, en þó
ekki verið fastur liðsmaður
hljómsveitarinnar. Ég gerði
eina tveggja laga plötu fyrir
Polydor í fyrra með aðallaginu
„Open u.p ypur window". Þetta
lag var sent í útvarpsþáttinn
Poppkeppni Evrópu og einnig
flutti ég það í sjónvarpi í Sví-
þjóð. Síðan byrjaði ég á stóru
plötunni i vetur og er langt
kominn með hana, vantar
1—2 lög upp á til að Ijúka við
hana."
Hér dvaldist Björn í um mán-
aðartíma, heilsaði upp á ætt-
ingjana og fór síðan í stúdíóið
og tók upp lögin „Breakdown"
eftir Magnús Kjartansson og
„Welcome on another" eftir Jó-
hann G. Jóhannsson og Guð-
mund Reynisson. Meðal þeirra
sem komu við sögu í undir-
leiknum voru Magnús Kjartans-
son, Sigurður Karlsson, Tómas
Tómasson, Björgvin Gíslason
og Þorsteinn Magnússon.
..Ég er að velta þvi fyrir mér
hvort ég geti notað þau á þessa
plötu," sagði Björn. „Ég hef
mikinn áhuga á því, en verð að
vega það og meta þegar búiði
er að taka upp allt efnið sem til
greina kemur. En ef þau lenda
ekki á þessari plötu, þá koma
þau sterklega til greina á þá
næstu."
Björn er að hefja lokasprett-
inn i sálfræðináminu, býst við
að Ijúka því um áramótin og
eftir það telur hann næstum
öruggt að hann leggi aðal-
áherzlu á tónlistina um skeið.
„Ég vil sjá hvernig það reynist,
en ég hef þó alltaf fæturna á
jörðinni með þessa menntun á
bak við mig."
í lokin spurði Slagbrandur
hann álits á íslenzkri popptón-
list:
„Mér finnst hún hafa batnað
mikið," svaraði hann, „ og stú-
dióið hefur áreiðanlega átt sinn
þátt í þvi. Það hefur skapað
möguleikana fyrir fólkið að fá
stúdíóreynsluna, sem er nauð-
synleg. Það sem ég hef heyrt
finnst mér mjög gott. Þetta
hefur snúizt meira upp í að
tónlistin sé gerð fyrst og fremst
fyrir íslenzkan markað og það
er jákvæð þróun að minu mati,
enda þótt ég sé sjálfur að gera
tónlist fyrir erlendan markað."
stöðuít á nppleið
gaf Slagbrandi á dögunum. En
fyrst skal þó útskýrt hvernig á
því stendur, að Björn er
Magnússon, en þeir bræður
hans eru sagðir Gíslasynir. Fað-
ir þeirra, Magnús Gíslason, er
skólastjóri lýðháskólans í Kúng-
elv í Svíþjóð. Þar í landi bera
börn sama eftirnafn og foreldr-
arnir og því eru bræðurnir
Gislasynir í Svíþjóð, en ef þeir
stíga niður fæti hér á landi, eru
Hljómsveitin Vikivaki. (Frá vinstri): Jón, Kenny, Hans og
Gunnar fyrir aftan.
þeir Magnússynir samkvæmt
íslenzkri venju.
Plata Vikivaka heitir „Cruis-
ing". Á henni eru 10 lög og
hafa Hans og Jón samið átta
þeirra og Jón átti hlut að samn-
ingu þess níunda. Allir textar
eru á ensku. Ýmsir hljómlistar-
menn aðstoðuðu við undirleik,
en kunnastur þeirra sem lögðu
hönd á plóg við gerð plötunnar
er þó upptökustjórnandinn,
Claes af Geijerstam, eða
Clabbe, eins og Sviar kalla
hann. Hann var i eina tíð liðs-
maður hljómsveitarinnar Ola
och Janglers, en nú er hann
kunnastur sem hljóðstjóri Abba
á hlómleikum
Vikivaki er með samning við
tónlistaforlagið Bohus, en það
hafði síðan milligöngu um gerð
samningsins við CBS. I
samningnum er kveðið á um
gerð þriggja stórra platna á
þremur árum og er sú fyrsta nú
að koma á markað i Svíþjóð og
á íslandi. Auk þess hafa verið
gefnar út tvær plötur með lög-
urrv-af henni og sú fyrri, með
lögunum „Crazy Daisy" og
„Cruisin'", ver einnig send á
markað í Sviss, Austurríki og
Frakklandi og fer e.t.v. á mark-
að í Englandi. Hin síðari er með
laginu „Soulstar" og verður
e.t.v. send á markað í þessum
löndum líka. Það lag var fyrir
nokkru sent af hálfu Svíþjóðar
til þátttöku í útvarpsþættinum
„European Pop Contest" sem
er sendur út mánaðarlega í
Englandi, Þýzkalandi, Spáni,
Hollandi, Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð og e.t.v. víðar. í þætt-
inum eru leikin tvö lög frá
hverju þátttökulandi og slðan
greiða unglingar atkvæði þeim
lögum sem þeim lízt bezt á. Er
þetta svipað fyrirkomulag og I
söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva. Þegar Vikivaki tók
þátt í keppninni varð lag þeirra
I öðru sæti, en 10 cc náði
fyrsta sætinu og Harpo þvi
þriðja.
Sem fyrr sagði lék hljóm-
sveitin I klúbbum I London I
fyrra og hélt þangað aftur I vor
og hlaut góðar viðtökur. Stend-
ur nú til að koma henni i hljóm-
leikaferð um England með
þekktri hljómsveit og er CBS-
fyrirtækið reiðubúið að standa
straum af þeim kostnaði sem
þetta hefði i för með sér.
Hljómsveitin er nú byrjuð að
vinna að nýrri stórri plötu og
fer í stúdíó í næsta mánuði.
Þótt fyrrnefndur Claes af
Geijerstam sé stórt númer i
Svíþjóð, þá hefur hljómsveitin
þó í hyggju að fá sér annan
upptökustjórnanda og hefur
einmitt staðið í því að velja
hann.
CBS-fyrirtækið í Svíþjóð hef-
ur mikla trú á hljómsveitinni og
kynnir hana sem sína helztu
rokkhljómsveit Ákvað fyrirtæk-
ið að auglýsa Vikivaka á ráð-
stefnu allra CBS-fyrirtækjanna í
London. Samningur hljóm-
sveitarinnar við CBS er mjög
hagstæður og felur m.a. i sér
ótakmarkaðan upptökutima og
aðstoð færustu hljómlistar-
manna. Polydor-fyrirtækið
gerði hins vegar lítið til að
auglýsa hljómsveitina og af
þeirri ástæðu sagði hún upp
samningnum við það fyrirtæki.
Að sögn Björns og fleiri sem til
Vikivaka þekkja hefur hljóm-
sveitin líka tekið miklum fram-
förum að undanförnu og er
miklu betri en þegar hún gerði
fyrstu plötuna og lék á íslandi.
Hins vegar geta íslendingar
ekki sannreynt þetta fyrst um
sinn nema með þvi að hlusta á
plötuna, því að ekki er búizt við
að hljómsveitin komi hingað til
landsins á næstunni.
Ruth Reginalds hefur
sungið inn á nýja stóra
plötu sem ber nafnið
„Ruth Reginalds". Á
plötunni eru þrettán lög,
þar af fimm íslenzk. Höf-
undar þeirra eru Jóhann
G. Jóhannsson, sem
samdi þrjú íög, Ölafur
Haukur Símonarson og
Jón Sigurðsson. Þessir
þrír sömdu einnig text-
ana við lög sip, en textar
við erlendu lögin eru eft-
ir Ellert Borgar Þor-
valdsson (5), Þórhall
„Ladda“ Sigurðsson, Vil-
hjálm Vilhjálmsson og
Þorstein Eggertsson (2).
Platan var hljöðrituð i
stúdíói Hljóðrita hf. í
Hafnarfirði í april og maí
1977. Framan af stjórn-
aði Þórður Árnaspn upp-
tökunni, en sagan segir,
að eitthvaó hafi sletzt
upp á vinskapinn milli
hans og söngkonunnar
ungu og hún hreinlega
rekið hann! Tók þá Vil-
hjálmur Vilhjálmsson við
stjórn upptöku. Nokkrir
kunnir hljómlistarmenn
sáu um undirleik: Ragn-
ar Sigurjónsson, Tómas
Tömasson, Magnús
Kjartansson, Þórður
Árnason, Gunnar Orms-
lev, Jakob Magnússon og
Valgeir Skagfjörð. Þeir
Laddi og Jóhann G.
sungu aðalraddir með
Ruth í sínu laginu hvor
og bakraddir sungu Vil-
hjálmur, Jóhann G.,
Magnús, stúlkur sem
heita Ingunn, Ásta og
Sirrý, og auk þess alnafn-
ar Bakkabræðra, þeir
Gisli, Eiríkur og Helgi, að
því er segir á plötuum-
slagi. Meðal kunnra laga
á plötunni eru tvö úr
myndinni „Bugsy
Malone“ og ýmsir gamlir
slagarar íslenzkir og er-
lendir.
(Jtgefandi plötunnar er
Hljómplötuútgáfan hf.