Morgunblaðið - 21.08.1977, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. AGUST 1977
LÚÐVÍKA LUND
— Minningarorö
F. 8. júnf 1910.
D. 15. ágúst 1977.
Landið okkar er hrjóstrugt og
stundum harla kaldranalegt, og á
það ekki hvað sizt við um Mel-
rakkasléttu, grýtt og gróðurlitið
eins og landið er þar og opið fyrir
köldum stormum norðan úr
Dumbshafi. Og samt er gott að
búa þar nyrðra og hlýlegt mitt i
kuldagjóstrinum, því að þarna
hefur alltaf búið gott og hjarta-
hlýtt fólk, sem hefur kunnað að
milda allt umhverfi sitt með eðlis-
lægri þrautseigju, einlægri lífs-
gleði og hjálpfýsi við náungann.
Þar sem hér er það fólkið sjálft,
sem eru hin mestu auðæfi héraðs-
ins. Lúðvíka Lund var fædd á
Raufarhöfn 8. júní 1910, dóttir
Rannveigar og Mariusar Lund,
valinkunnra sæmdarhjóna. Þau
systkinin, börn Lundshjónanna,
voru sex: Lúðvíka, Grímur, Þor-
björg (d. 1960), Árni Pétur í Mið-
túni á Sléttu, María Anna.og upp-
eldissystirin Halldóra Öladóttir,
sem þau Lundshjónin gengu í for-
eldra stað. Æskuheimili Lúðvíku,
Lundshús á Raufarhöfn, var
ævinlega mannmargt, stórt í snið-
um og fastmótað af gamalli ís-
lenzkri og evrópskri menningu.
Systkini Mariusar útvegsbónda,
þau Jósefína, Meta og Niels Lund,
áttu einnig heimili sitt í Lunds-
húsi og Lúðvíka og þau systkinin
höfðu mikla ást á þessum frænd-
systkinum sinum. Vinnufólk var
oft margt i Lundshúsi, bæði árs-
menn og fólk i kaupavinnu og á
þessu stóra heimili ríkti ævinlega
líf og fjör. Vinnusemi var mikil
og mikils var aflað en nýtni og
sparsemi voru sjálfsagðar dyggð-
ir; þó var það ætið þessi fölskva-
lausa lífsgleði og gestrisni við
hvern sem að garði bar, sem var
aðalsmerki Lundsfjölskyldunnar,
enda heimilið nafntogað fyrir
rausn og fyrir þær móttökur sem
gestir og gangandi hlutu i því
húsi. Þær dyggðir, sem þeim
börnum Lundshjónanna voru inn-
rættar í uppeldinu, áttu sér djúp-
ar rætur i aldagamalli íslenzkri
menningu og einlægu kristilegu
hugarfari. Það veganesti reyndist
traust og grundvallað á bjargi.
Allt frá æskuárunum var Lúð-
víka aðdáandi fagurra lista. Hún
las mikið af góðum bókmenntum
og fylgdist þar vel með nýjung-
um; hún hafði gott auga fyrir
myndlist og vefnaði og prýddi
heimili sitt mörgum fögrum mun-
um. Beint úr móðurættinni kom
henni tónlistaráhuginn; það má
nefna, að Jón Laxdal tónskáld var
afabróðir hennar. Söngur og
hljóðfærasláttur var því mikið
iðkaður á heimili Lúðviku, því
músík var hennar líf og yndi allt
frá bernskuárunum.
Hinn 13. nóvember 1932 giftist
Lúðvika Leifi Eiríkssyni frá Rifi
á Melrakkasléttu, hinuni ágætasta
manni, og settust ungu hjónin að
á Raufarhöfn, þar sem Leifur
gerðist kennari og var síðar kjör-
inn oddviti bæjarins einmitt á
þeim árum, þegar atvinnuumsvif-
in á Raufarhöfn voru í hámarki,
og oddviti hafði fram úr mörgum
vanda að ráða. Skömmu eftir að
ungu hjónin höfðu stofnað heim-
ili, byggðu þau sér fallegt tvílyft
einbýlishús skammt frá Lunds-
húsi og nefndu „Harðangur" og
húsfreyjan unga brá eins og töfra-
sprota yfir nýja húsið þeirra og
gerði það brátt að fögru og smekk-
legu heimili, þar sem rikti fjör og
kátína sem laðaði alla að eins og
var um æskuheimili Lúðvíku. Þau
hjónin Lúðvíka og Leifur Eiríks-
son eignuðust fjögur börn, öll hin
mannvænlegustu, en þau eru nú
öll uppkomin og hafa fyrir löngu
stofnað sín eigin heimili og búa
hér syðra. Þau eru: Eysteinn,
Rannveig, Ingibjörg og Erlingur.
Barnabörnin urðu og mörg, en
það var engin hætta á, að ekki
fyndist nægilegt hjartarúm hjá
Lúðviku ömmu fyrir hvert og eitt
einstakt barnabarn, því öll þessi
stóra fjölskylda var henni hjart-
fólgin og hún bar hag barna sinna
og barnabarna meira fyrir brjósti
til hinztu stundar en sinn eiginn.
Lúðvika Lund var fríð kona og
tiguleg; góðmennskan og lifsgleð-
in geislaði af henni og í björtum,
hýrum augunum leyndist nær
alltaf bros, þannig að hvar sem
hún kom, lagði gleði og birtu yfir
umhverfið. Alls staðar var hún
aufúsugestur og heimili hennar
sjálfrar var jafnan fullt af glöðum
gestum, vinum þeirra hjóna. Fjöl-
skylda mín og ég vorum svo lán-
söm að búa i mörg annasöm ár í
næsta nágrenni við Lúðvíku og
Leif Eiríksson og vináttan við þau
hjónin varð okkur dýrmæt, og í
þau 30 ár, sem liðin eru frá því ég
kynntist Lúðvíku fyrst, hefur
aldrei slegið fölskva á þau kynni.
Hvar sem hún kom nærri, leystust
stór og smá vandamál eins og af
sjálfu sér; heimili hennar stóð
mér og fjölskyldu minni ævinlega
opið og bjarta, hlýja brosið henn-
ar Lúllu yljaði og vermdi svo und-
ursamlega, að það birti yfir
manni til langframa; öllum lagði
hún gott eitt til og alltaf var hún
boðin og búin til að hjálpa og
liðsinna, þar sem þörfin kallaði.
Henni var göfugmennskan i blóð
borin og eðlislæg.
Arið 1958 fluttust þau hjónin
hingað suður og keyptu húseign-
ina Faxatún 14 i Garðabæ. Húsið
var aðeins fokhelt, þegar þau
festu kaup á því, og bæði hjónin
unnu sleitulaust að því að gera
þetta hús að því smekklega og
aðlaðandi heimili, sem það nú er.
A meðan líf og heilsa Lúðviku
entist, átti hún mörg hamingju-
söm ár á þessu síðasta heimili
sínu. Allir gömlu vinir þeirra
hjóna rötuðu fljótt heim að Faxa-
túni 14 og fjölmargir nýir bættust
í þann hóp hér syðra.
Undir það síðasta voru þung-
bær veikindi borin með rósemi og
því æðruleysi sem henni var eig-
inlegt, en í erfiðleikunum naut
hún ástríkrar umönnunar eigin-
manns síns og barna, allt þar til
augun lokuðust i hinzta sinn.
Þegar við höfum nú misst sjónar
á þessari góðu og trygglyndu vin-
konu um sinn, þá verður eftir
tómarúm i hjartanu, sem enginn
annar getur fyllt. Fjölskylda mín
og ég vottum Leifi Eiríkssyni,
börnum ykkar, barnabörnum og
systkinum Lúðvíku dýpstu samúð
okkar.
Ingibjörg Vilhjálmsdóttir
KVEÐJA
„Þér K€*fið var allt,
sem ^etur prýtt:
Kleðinnar liros og viðmót hlýtt,
þó vekti þér sorg isinni.
Trú þin «af þér
f stríði styrk,
stór ok KÖfug ok mikilvirk.
o« samhoðin sálu þinni.“
(Dr. Sveinn E. Björnsson)
Þessi orð látins góðvinar Lúllu
og Leifs eiga vel við um tengda-
móður mina, sem kvaddi okkur á
kyrrlátu sumarkvöldi. Það er
erfitt að átta sig á þeirri stað-
reynd, að hún skuli vera horfin
sjónum okkar, svo vel bar hún
veikindi sin. En lögmáli lifsins
verður ekki breytt.
Lúlla var glæsileg kona og öll-
um þeim kostum búin, 'sem eina
konu mega prýða. Hún var með
afbrigðum ættrækin og vinamörg,
enda leið öllum vel í návist henn-
ar. Frá henni streymdi sú hlýja og
góðvild, sem öllum er ógleyman-
leg er henni kynntust.
Á heimili tengdaforeldra minna
ríkti alltaf hinn glaði andi gest-
risninnar og verður mér ætíð
minniststæð sú mikla umhyggja
og ástúð, er þau báru hvort fyrir
öðru.
I huga mínum varðveiti- ég
minninguna um yndislega konu,
og bið góðan Guð að geyma ástrik-
an eiginmann hennar.
A.G.
— Þetta’ var ...
Framhald af bls. 13
standa fyrir dyrum þá heimtar
það ekki eins og flestir bætt
kjör, heldur fór þetta fólk ein-
göngu fram á að fá prest fyrir
hverja mosku en eins og
ástandið er þjónar einn og sami
presturinn nokkrum moskum.
Eftir um fimm vikna ferðálag
um þetta mjög svo sérkennilega
land kvöddum við og héldum
aftur yfir til Malaga. Þegar ég
var að fara þaðan varð ég fyrir
því óláni að fótbrjóta mig svo
að það batt enda á þá fyrirætl-
an mina að vinna áfram i Nor-
egi svo ég mátti hypja mig heim
til íslands strax.
En ertu þá ekki farin að
hugsa um aðra ferð til fjarlæg-
ari staða? — Jú, ég held nú
bara, það er eins konar sjúk-
dómur hjá mér þessi ævintýra-
þrá. Ég hef geysilegan áhuga á
að ferðast til Austurlanda, t.d.
Kambódiu og Vietnam sagði
þessi viðförla stúlka að lokum.
Giscard
til Korsíku
Paris 19. ágúst Reuter.
VALERY Giscard d’Estaing,
Frakklandsforseti, tilkynnti i dag
að hann myndi fara i heimsókn til
Korsiku fljótlega. Á eyjunni hef-
ur allt logað i sprengjutilræðum
og átökum upp á siðkastið. Forset-
inn greindi frá þessu eftir að
hann hafði rætt við tvo fulltrúa
frá Korsiku sem komu sérstak-
lega á hans fund til að ræða mál-
ið. Forsetinn mun hafa skýrt
þeim frá þvi að það væri hans
hlutverk að vernda einingu lýð-
veldisins og að vinna að þvi að
framfylgja lögunum. Hvatti hann
sendimennina til að setja sér
sama markmið og beita áhrifum
sínum hjá eyjarskeggjum.
Flugvél
hrapaði
Wannerooííe. Vestur-þvzkalandi
19. ágúst — Reuter.
LlTIL flugvél hrapaði til jarðar á
frisnesku ferðamannaeynni
Wangerooge og létust fjórir að
minnsta kosti. Ekki var vitað
hvort þessir fjórir hföðu verið
með vélinni, eða hvort um var að
ræða vegfarendur á jörðu niðri.
Baader
í læknis-
meðferð
Stuttgart, 19. ágúst Reuter.
ANDREAS Baader og tveir fylgis-
manna hans úr Baader-Meinhof
stjórnleysingjasamtökunum hafa
verið teknir til sérstakrar læknis-
meðferðar og fluttir úr klefum
sinum á sjúkradeild fangelsisins.
Þeir hafa verið í hungurverkfalli
siðustu daga. Talsmaður dóms-
málaráðuneytisins sagði frá þessu
í dag, en i fyrradag var skýrt frá
þvi að Gudrun Ensslin, ein af
dæmdum Baader-Meinhof skæru-
liðum, hefði verið flutt á sjúkra-
hús af sömu ástæðu.
Andreas Baader var orðinn svo
máttfarinn af matarleysi að hann
missti meðvitund og líðan Jan
Carls Raspe var litlu betri. Þau
þrjú voru dæmd í lifstíðarfangelsi
i april sl.
t Eiginkona min, móðir okkar og amma.
LÚÐVÍKA lund.
verður járðsungin mánudaginn 22 ágúst Athöfnin hefst i
kl 13.30, siðan verður jarðsett að Görðum að lokinni kveðjustund i
Garðakirkju
Leifur Eiríksson
Eysteinn Leifsson fna Guðmundsdóttir
Rannveig Leifsdóttir Haraldur Sigurjónsson
Ingibjorg Leifsdóttir
Erlingur Leifsson Arndfs Gunnarsdóttir
og barnaböm
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
KRISTÍN SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
húsfreyja,
Hrafnabjörgum, Arnarfirði
sem andaðist 13 ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju-
dagmn 23 ágúst kl 3 e h
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á
minningarsjóð systkinanna frá Hrafnabjörgum hjá Slysavarnafélagi
íslands
Anika Ragnarsdóttir Guðjón Ármann Eyjólfsson
Bergþóra Ragnarsdóttir Guðjón Jónsson
Guðmundur Ragnarsson
Gunnar Ragnarsson Anna Skarphéðinsdóttir
Höskuldur Ragnarsson Guðmunda Guðmundsdóttir
Sigríður Ragnarsdóttir
og barnaböm.
t
Innilegar þakklr fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
móður okkar. tengdamóður, ömmu og langömmu
GUÐBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR
fri Raufarfelli
Engilbert Þorvakfsson
Jóhanna Þorvaldsdóttir
Sigurjón Þorvaldsson
Elln Þorvaldsdóttir
t
Alúðar þakkír fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginkonu minnar. móður, tengdamóður og ömmu,
HALLFRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR.
Tobbakoti, Þykkvabæ.
Sérstakar þakkir sendum við mágkonu hinnar látnu fyrir alla hjálpina i
veikindum hennar
Sigurður Bjömsson
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir Óskar Sigurgeirsson
Sigurbjartur Sigurðsson Guðbjörg Jónsdóttir.
og barnaböm
t
Alúðarþakkir sendum við þeim fjölmörgu vinum og ættingjum er
vottað hafa okkur samúð sína við andlát og útför eiginmanns, föður,
sonar og bróður
HAUKS HÓLM KRISTJÁNSSONAR,
loftskeytamanns
Ásbúðartröð 3, Hafnarfirði
Einnig þakkir til starfsfólks ferðaskrifstofunnar Landsýn bæði hér og i
Puerto Ros fyrir ómetanlega aðstoð
Rósa Marfa Hinriksdóttir
Frímann Hauksson
Kristján Hauksson
Kristfn Hauksdóttir
Haukur Hauksson
Marta Eirfksdóttir Ingimundur Hjorleifsson
Sigrfður Ingimundardóttir Finnur Guðmundsson
V4
l\y
mRHLE
STIMPLAR
OG SLÍFAR
i VÉLINA
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
zshecdO
VERZLUN-SIMI 22104
BTAUTARHOLT 16 REYKJAVIK