Morgunblaðið - 21.08.1977, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. AGUST 1977
43
Jan-Michael Vincent og Kay Lenz í WHITE LINE FEVER.
Verkamaður
í kúrekaleik
White Lint* Fever (Ofsinn við
hvítu línuna). Am, 1975.
Leikstjóri: Jonathan Kaplan.
Likt og Alvin Purple fer White
Line Fever ekki illa af stað. Ung-
ur maður kemur úr herþjónustu,
hittir unnustu sína þau eru gefin
saman og hefja búskap. Ljós-
myndum af þeim sem unglingum
er jafnframt brugðið upp og þær
sýna áhyggjulausa og eðlilega
unglinga. Þessu er öllu komið til
skila í upphafi myndarinnar und-
ir hinum ýmsu titlum, en þegar
því lýkur hefst alvara lífsins.
Ungi maðurinn festir kaup á stór-
um dráttarbíl, sem hann hyggst
reka upp á eigin spýtur til vöru-
flutninga hvert sem er. Hann
kemst hins vegar fljótlega að þvi,
að þessum viðskiptum er stjórnað
bak við tjöldin af mönnum, sem
stunda alls kyns smygl, sem þeir
neyða bílstjórana til að taka með í
farmi sínum. Ungi maðurinn,
Carrol Jo (Jan-Michael Vincent),
neitar aö taka þátt í þessu, en
hlýtur í staðinn rifbeinsbrot og
neitun um vinnu, hvert sem hann
snýr sér. Svar hans við þessu of-
beldi er að gripa til byssunnar og
neyða skipulagsstjórann til að
gefa skipun um að hlaða bílinn.
Upp frá þessu er um að ræða
stöðugan skæruhernað á hendur
Carrol Jo, hann er látinn flytja
ónýtan ávaxtafarm, logið upp á
kvik-4 w
fflUACK ■■
/íoonj \
J : ^
SIGURÐUR SVERRIR PÁLSSON
hann morði, billinn eyðilagður og
gerð tilraun til að brenna hann
inni ásamt eiginkonunni (Kay
Lenz, eftirminnileg leikkona með
Katharine Hepburn-yfirbragði,
sem áður hefur sést hér i mynd-
unum Breezy og The Great Scout
and Cathouse Thursday). Carrol
Jo fær að lokum nóg og ekur bíl
sínum blindaður af hatri gegnum
vel varið hlið fínu mannanna
(smyglaranna) og gegnum tákn
þeirra, glerstafina GH, fyrir fram-
an aðsetur þeirra, Glerhúsið.
Þetta er önnur mynd leik-
stjórans Kaplans (hann vann áð-
ur fyrir Roger Corman) og öll
tákn hans, verkamaður gegn
spilltu auðvaldi, eru meir en sýni-
leg. Hins vegar skortir myndina,
sem er yfirhlaðin slagsmálum og
fantakeyrslu, alla fínni drætti
persónusköpunar, þar sem mynd-
in er sett upp sem algóður/al-
vondur i stíl við gömlu kúr-
ekamyndirnar. Kvikmyndataka
Fred Koenekamps er með ágæt-
um en þrátt fyrir laglegt útlit
skortir myndina t.d. þann stíl,
sem var yfir mynd Spielbergs,
Duel. Fyrsta mynd Kaplans var
Truck Turner, þessi mynd stefnir
aðeins hærra en framtíð hans er
óviss eftir þriðju myndina, Mr.
Billion, sem hlýtur fremur lélega
gagnrýni, t.d. i águst-blaði Films
and Filming.
S.S.P
þaueiuöll laera
aí styðja á rétUi hnappana
- enda auSvelt mcS oiiveiu skolaritvélinni
oliuetti
31.040,-
2.6.800,-
31.040,-
Skrifstofutækni hf.
Tryggvagötu 121 Reykjavik
Box 454 - Sími 28511
Allt til skólans
Þú þarft ekki að leita víðar
EYV1UNDSSON
Austurstræti 18 Sími 13135