Morgunblaðið - 31.08.1977, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. AGÚST 1977
TEUUR OG MATTHÍAS
BÁÐIR TIL1. DEILDAR LIÐA?
Teitur Þórðarson
TEITUR Þórðarson hef-
ur sannarlega verið hval-
reki fyrir lið Jönköping í
sumar. Hann er lang-
markhæsti leikmaður
liðsins, hefur skorað 11
mörk, og aðeins einn
leikmaður hefur skorað
fieiri mörk í 2. deildinni
í Svíþjóð. í Smaalands
Folkeblad segir í fyrir-
sögn á forsíðu íþrótta-
blaðs þess s.l. mánudag:
„Teitur veikur — samt
sem áður Jönköpings
gulldrengur.“
Er þar fjallað um innbyrðis-
leik félaga íslenzku landsliðs-
mannanna, liðs Teits og Matt-
híasar * Hallgrímssonar s.l.
sunnudag, en þeim leik lauk
með jafntefli 1:1. Skoraði Teit-
ur eina markið í fyrri hálfleikn-
um og átti skínandi góðan leik
fram að hléi, en þá var honum
skipt útaf samkvæmt eigin ósk,
en Teitur var rúmliggjandi i
síðustu viku og var rétt að jafna
sig um helgina.
Hinn Islendingurinn, Matt-
hías Hallgrfmsson, kom hins
vegar inná i byrjun seinni hálf-
leiks og átti ágætan leik. Tókst
Halmia að snúa gangi leiksins
sér í vil, og skora jöfnunarmark
rétt fyrir leikslok. Var þetta
tíundi jafnteflisleikur Halmia i
röð, en lið Islendinganna eru
mestu jafnteflisliðin í deild-
inni, Halmia með 10 jafntefli,
Jönköping með 9. Þriðji Islend-
ingurinn, Vilhjálmur Kjartans-
son, leikur svo með Nörby og
hefur félag hans gert 9 jafn-
tefli. Eru liðin öll um miðja
deildina, Halmia með 20 stig,
Jönköping og Nörby með 19
stig.
Teitur er sá íslendinganna
þriggja sem staðið hefur sig
bezt i sumar og hefur nú úr
nokkrum tilboðum félága i 1.
deild að velja. Ennþá getur
hann ekki upplýst hvaóa félög
þetta eru, en segist reikna með
að halda frá Jörjköping í vetur.
Að visu er hann með samning
til haustsins 1978, en segist bú-
ast við að eitthvert félaganna i
1. deildinni kaupi samning
hans við félagið.
Matthias hefur iðulega átt í
útistöðum við hinn enska þjálf-
ara Halmia. Hefur Matthiasi
ekki verið treyst eins og þessi
leikreyndi leikmaður er vanur
og hefur hann ekki leikið með
liðinu alla leiki þess i sumar.
Segir Matthias að hann sé með
ágætt tilboð frá liði í 1. deild
upp á vasann, samningaviðræð-
ur séu i gangi og hann eigi von
á því að skrifað verði undir að
keppnistimabilinu loknu. Muni
hann ekki sakna Halmia mikið,
verði af samningum við lið í 1.
deild.
Vilhjálmi Kjartanssyni hefur
ekki vegnað vel með Nörby að
undanförnu. Hann byrjaði að
visu vel, en í siðustu leikjum
hefur hann ekki verið fastur
maður í liðinu.
í 3. deildinni leikur Þor-
steinn Ólafsson, fyrrum lands-
liðsmarkvörður frá Keflavik.
Er lið hans um miðja deiid.
Hefur Þorsteinn staðið sig vel
og líkar vel lffið í Svíþjóð, en
hann stundar þar efnafræði-
nám samhliða knattspyrnunni.
Er Morgunblaðið ræddi við
þá Teit og Matthias i Hollandi i
gær, var gott hljóð i þeim félög-
um.
— Leikurinn við Hollend-
inga verður ugglaust mjög erf-
iður og ég á ekki von á þvi að
Íslendingar nái stigi i leiknum,
sagði Teitur Þórðarson, — ég
held að Hollendingar vinni með
2—3 marka mun, en það væri
Ég heímta stærrí sigur en síðast
- SAGÐIERNST KEPPEL. HOLLEWZKIEINVALDURINN
— ÞETTA verður örugglega
erfiður leikur, það eru allir leikir
erfiðir, — aðeins mismunandi
erfiðir var það fyrsta sem Erst
Keppel, þjálfari og einvaldur hol-
lenzka landsliðsins, sagði í einka-
viðtali við Morgunblaðið í
Nijmegen i gær. Þegar Morgun-
blaðið ræddi við Keppel var hann
nýkominn af æfingu með lið sitt,
en hollenzka liðið hefur að undan-
förnu dvalið í æfingabúðum hol-
lenzka knattspyrnusambandsins
og æft þar við hinar fuilkomnustu
aðstæður. Keppel er nú í fyrsta
að vera fimm ár i Belgíu og
samkvæmt reglum belgíska
knattspyrnusambandsins verð
ég ekki þá talinn lengur útlend-
ingur, en i hverju liði niega
leika þrir útlendingar. Samn-
ingur minn við Standard Liege
er laus i vor og hvað ég geri þá
er alls óvíst enn. Standar hefur
boðið mér endurnýjun samn-
ings, en ég er ekki enn ákveð-
inn hvað ég geri. Það er ýmis-
legt í deiglunni og ég ætla að
bíða og sjá hver framvinda
mála verður — hvort ég fæ
betri tilboð annars staðar frá,
og hvað mikið verður í boði. Á
þessu stigi málsins get ég að-
eins sagt það, að það kemur
ýmislegt til greina, sagði Ásgeir
Sigurvinsson að lokum.
Það kemur ekki á óvart að
Asgeir skuli hafa fengið tilboð
um að endurnýja samning sinn
við Standard Liege. Hann hefur
staðið sig frábærlega vel með
þessu sterka liði og er nú heil-
inn í leik liðsins. Ásgeir er að-
eins 23 ára að aldri og sannar-
lega maður framtíðarinnar i
evrópskri knattspyrnu. Stórfé-
lög Spánar og Vestur-
Þýzkalands hafa verið í sam-
bandi við hann að undanförnu
t.d. Real Madrid og Borussia
Mönchengladbach. Það kæmi
þó undirrituðum ekki á óvart,
að ef Asgeir skipti um félag í
vor yrði belgíska liðið
Anderlecht fyrir valinu.
skiptið með hollenzka landsliðið,
og eru miklar vonir bundnar við
þennan frábæra þjálfara, sem
þykir reyndar skaphundur hinn
mesti.
— Rudi Krool hefur sagt að
hann búizt við ruddalegum leik
af hálfu Islendinganna?
— Ég þekki ekki íslenzka liðið
og þótt Rudi segi að leikmenn
þess leiki ruddalega, þá er það
hans skoðun en ekki min. Hann
hefur leikið gegn íslandi, ekki ég.
— Þekkir þú ekkert til ís-
lenzku landsliðsmannanna?
— Ég þekki aðeins leikmann
Islands, Asgeir Sigurvinsson og
fullyrði að hann er einn albezti
erlendi leikmaðurinn í belgísku
knattspyrnunni. Hann er geysi-
lega fjölhæfur og ennþá vaxandi
leikmaður. Aðra leikmenn liðsins
þekki ég ekki; en er þess fullkom-
lega meðvitandi að lið sem nær
eins góðum árangri og íslending-
ar hafa náð að undanförnu er
sterkt lið sem hefur fleira til
brunns að bera en að leika rudda-
lega knattspyrnu.
— Verður Asgeirs sérstaklega
gæll í leiknum?
— Ég vil ekkert segja um ein-
stök atriði leikskipulags okkar,
annað en það að við munum leika
4-3-3 með sóknarleik og mörk í
huga. Annað vil ég ekki segja
nema þá það að við munum
sannarlega vita af Ásgeiri Sigur-
vinssyni.
— Eru Hollendingar ekki þeg-
ar öruggir að komast í úrslitin f
Argentínu?
— Alls ekki. Við eigum þrjá
leiki eftir í riðlakeppninni og
hver einasti þeirra er mikilvægur
og erfiður. Ég viðurkenni að við
erum komnir langt, en við erum
ekki komnir alla leið til
Argentfnu.
— Nú er þetta fyrsti leikurinn
þinn sem einvaldur og þjálfari
hollenzka landsliðsins?
— Já, það er rétt. Mér skilst að
ég verði eini nýliðinn f þessum
leik. Ég legg þvi sérstaklega
mikla áherzlu á þennan leik. Ég
verð að fá góð úrslit í mfnum
fyrsta landsleik. Ég vil ekki nefna
neinar tölur, en ég heimta stærri
sigur en 1—0 eins og var gegn
Islandi í fyrrahaust sagði Ernst
Keppel að lokum.
íslendingar eru
— ISLENDINGAR hafa engu
að tapa og þeir munu berjast
eins og ljón og leika ruddalega
knattspyrnu, ef ég þekki þá
rétt, var haft eftir Rudi Krool,
fyrirliða hollenzka landsliðsins
í knattspyrnu, f einu dagblað-
anna hér í gær.
Hollenzka landsliðið æfði í
Zest á mánudag og þriðjudag,
en kom þá um kviildið til
Nijmegen.
Fvrir sigur í leiknum við ls-
lendinga í kvöld fá hollenzku
leikmennirnir uppha'ð sem
nemur allt að 230 þúsundum
króna — fer það reyndar nokk-
uð eftir áhorfendaf jölda og
markamun hver upphæðin
Rudi Krool — fyrirliði hollenzka landsliðssins. Hann segir að Isiend-
ingar leiki ruddalega knattspyrnu, en landsliðsþjálfarinn telur það
ekki vera skýringuna á velgengi fslendinga að undanförnu.
31
N
Matthfas Hallgrfmsson
gaman ef við næðum að skora
mörk hjá þeim. 4—5 á móti 2
væru ekki slæm úrslit fyrir
okkur. Þessi leikur er of mikil-
vægur fyrir Holland til þess að
þeir taki nokkra áhættu. Ann-
ars hefur verið hálf leiðinlegt
að vera miðherji í íslenzka lið-
inu að undanförnu. Við höfum
alltaf verið í vörn, þetta hefur
verið eilíft streð. I sumar hefur
þetta þó lagazt verulega og við
eigum vel frambærilegt lið,
sem gaman er að leika með.
Leiðrétting
ÞAR sem greint var frá úrslit
um Bikarkeppni FRÍ I 1. deild
var sagt að Kristinn Arinbjörns-
son hefði hlaupið fyrir FH. Hið
rétta mun vera að Einar Guð-
mundsson hafi hlaupið en ekki
Xristinn. Þá misritaðist árang-
ur Hildar Harðardóttur i kúlu-
varpinu, sagður 7.61 metri en
á að vera 8.24 metrar.
Keppt í
aukagreinum
Frjálsiþróttasamband íslands
hefur ákveðið að 100 m
grindahlaup og stangarstökk
drengja- og sveinameistara-
móts íslands og 100 m grind
stúlkna- og meyjameistara-
mótsins fari fram samhliða
greinum í Unglingakeppni FRÍ,
sem háð verður á Kaplakrika
velli í Hafnarfirði n.k. laugar-
dag og sunnudag. Þessum
greinum var frestað þegar mót-
ið fór fram á Akranesi fyrr i
sumar. Þátttöku ber að til-
kynna til Haralds Magnús-
sonar, en þátttaka er opin.
ruddar
verður, en öruggt er að þeir fá
ekki minna en 200 þúsund
krónur, takist þeim að sigra í
leiknum. Er þetta nokkru
hærri upphæð en þeir fengu
fyrir sigur f leik við Englend-
inga á Wembley-leikvanginum
í Lundúnum síðasta vetur. Úr-
slitin þar urðu 2—0 fyrir Hol-
•and og skoraði Jan Peters bæði
mörk Hollendinganna. Verði
jafntefli í leiknum f kvöld fær
hver leikmaður upphæð sem
svarar til 100 þúsund íslenzkra
króna, en sigri tslendingar hins
vegar i leiknum fá hollenzku
leikmennirnir samt sem áður
dágóða upphæð, eða um 75 þús-
und krónur.