Morgunblaðið - 10.09.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977
V egurinn í sundur á 5 stöðum
- heitavatnslögnin margslitin
EINS OG fram kemur i frétt
annars staðar í blaðinu urðu
mestar skemmdir vegna nátt-
úruhamfaranna nyrðra við Kís-
iliðjuna í Bjarnarflagi. Hefur
fyrirtækið verið lokað síðan á
fimmtudagskvöld, en þar starfa
nú um 70 manns og vann stór
hluti þess hóps að viðgerum í
gær. Við Kröfluvirkjun urðu
engar skemmdir á mannvirkj-
um og holur á svæðinu virtust
vera að jafna sig i gær eftir að
þrýstingur hafði aukizt veru-
lega í þeim meðan á umbrotun-
um stóð.
Vegurinn frá Reynihlíð upp í
Námaskarð fór í sundur á fimm
stöðum laust fyrir miðnætti i
fyrrinótt. Var þá um nóttina
strax hafizt handa um viðgerðir
og var vegurinn greiðfær um
morguninn. Gliðnun og jarðsig
héldu þó áfram fram eftir degi
í gær þannig að vegurinn rofn-
aði aftur á nokkrum stöðum, en
fljótlega var gert við þær
skemmdir.
Kaldavatnsleiðslan í Kisiliðj-
una fór í sundur á tveimur stöð-
um og var unnið við viðgerð á
henni í gær. Umtalsverðari
skemmdir urðu á heitavatns-
lögninni úr Bjarnarflagi niður í
Reykjahlið og Voga, en leiðslan
þangað mun hafa farið í sundur
á 10—15 stöðum. Sömuleiðis
var unnið við viðgerðir á þeim
skemmdum í gær.
Við sprungumyndunina á
svæðinu og jarðsigið tognaði á
sima- og rafmagnslinum. Olli
það nokkrum vandræðum í
fyrrinótt, en starfsmenn Raf-
magnsveitna og Síma unnu i
gær við að auka i þar sem
strikkunin var mest.
Þar sem mestar skemmdir urðu á vegum f Bjarnarflagi var útlits
eins og á þessari mynd Friðþjófs.
Afleggjarinn að holunni sem gaus f fyrrinótt var lokaður vegna
sprungu, sem myndaðist í hamförunum. Borholurnar í Bjarnarflagi
f haksýn.
Þannig var umhorfs f rannsóknastofu Kfsiliðjunnar. (ljósm. Mbl.
Friðþjófur.
Þorsteinn Olafsson, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar, fyrir framan
skrifstofuhúsnæðið, sprungurnar á bflastæðinu fara víst ekki fram-
hjá neinum.
Sprunga opnaðist við skrif-
stofuhúsnæði Kísiliðjunnar og
eins og sjá má uppi í kverkinni
er stór sprunga á milli álm-
anna.
Rör sprakk f syðstu byggingu
Kísiliðjunnar og leðjan lak um
gólf.
Ein holan í
Bjarnarflagi
gaf sig alveg
TALSVERÐAR breytingar
urðu á borholunum i
Bjarnarflagi við umbrotin
þar í fyrrakvöld og er ein
holan þar alveg dottin
niður. Að sögn Benedikts
Steingrímssonar, jarð-
fræðings, er það hola 7,
sem er alveg dottin niður,
en hinar blása allar. Sagði
hann að aflmesta holan, nr.
10, væri óbreytt að því er
virtist, en ekki væri hægt
og varla vogandi að loka
holunum til að mæla þær.
1 holu nr.5 hefði fóðring gengið
upp um 14 sm og var enn hreyfing
við holuna seint í gærkvöldi. Er
þetta talsvert alvarlegt mál og
gæti holutoppurinn gefið sig.
Hola 4, það er holan sem spýtti
gjalli og hraunslettum í fyrrinótt,
þarf ekki að hafa eyðilagzt þrátt
fyrir átökin, en hins vegar þarf að
loka henni þegar hægist um á
svæðinu, en trúlega verður hægt
að gera við hana, að sögn Bene-
dikts.
Við Kröflu sagði hann að þær
breytingar hefðu orðið helztar að
þrýstingur hefði aukizt i holunum
og allverulega í fyrrakvöld.
Þrýstingurinn hefði minnkað þá
strax um nóttina og væri senn að
komast í sitt fyrra horf. Sagði
Benedikt að þróunin á Kröflu-
svæðinu væri sú sama nú og í
umbrotunum í aprílmánuði
siðastliðnum. Unnið var að því í
gær að taka sýni úr borholum á
báðum svæðum til að kanna hvort
efnainnihald hefði breytzt, t.d.
sýrumagn, eftir umbrotin. Tekur
tima að vinna úr þessum rann-
sóknum og niðurstöður þeirra
verða ekki ljósar fyrr en í næstu
viku.
Eldsumbrotin norðan við Leir-
hnúk virðast ekki hafa valdið
neinum skaða á Kröfluvirkjun og
þeim mannvirkjum, sem þar eru.
Guf uaflstödin í
Bjarnarflagi
óvirk í bili
Akureyri, 9. september —
GUFUAFLSTÖÐ Laxárvirkjunar
í Bjarnarflagi er algjörlega
óskemmd eftir jarðeldana og
landskjálftana I gærkvöldi ekki
einu sinni sprunga f vegg — sam-
kvæmt upplýsingum Óskars Þórs
Árnasonar, tæknifræðings hjá
Laxárvirkjun. Hins vegar er gufu-
veitan óvirk eða úr lagi gengin
með þeim afleiðingum að þrýst-
ingur féll hratt I gærkvöldi og
varð of lágur til þess að starf-
rækja stöðina, svo að vélar henn-
ar voru stöðvaðar milli klukkan
24 og 01 f nótt.
Enginn getur svarað því með
vissu, hve langan tíma tekur að
koma borholunni og gufuveitunni
í samt lag, en til þess þarf a.m.k.
nokkra daga. Þess vegna var
ákveðið i dag, að nota þann tíma
til að hreinsa túrbinu stöðvarinn-
ar, en það er á að gizka viku verk.
Óhreinindi og útfellingar í guf-
unni hafa aukizt mjög síðan jarð-
hræringar byrjuðu á svæðinu. Áð-
ur var talið nægilegt að hreinsa
túrbínuna árlega, en nú er orðin
full þörf á hreinsun eftir fjóra
mánuði, en síðast fór hreinsun
fram i maí i vor. Gasinnihald guf-
unnar hefur lika stóraukizt.
Þó að nú ríki nokkur óvissa um
ástand borholu og gufuveitu að
gufurafstöðinni, er hún sjálf
prýðilega nothæf og verður i vet-
ur ef ekkert óvænt gerist eða
frekari röskun verður á svæðinu.
Menn eru bjartsýnir á að stöðin
verði farin að skila fullum afköst-
um um aðra helgi, en frá henni
fást 3 megawött. —Sv.P.
Vestmannaeyjar:
Engin breyt-
ing í sölt-
unarmálum
ENGIN hreyfing var i söltunar-
málunum í Vestmannaeyjum í
gær og var staðan því óbreytt frá
því sem skýrt var frá i Morgun-
blaðinu i gær. „Ég hef ekkert
heyrt frá þeim í dag,“ sagði Jón
Kjartansson, formaður verkalýðs-
félagsins í Eyjum í samtali við
blaðið, en hann kvaðst hafa frétt
að flestir sildarsaltendur hefðu
farið til Reykjavíkur í gær.