Morgunblaðið - 10.09.1977, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977
íbúar í Höfnum,
sem eru óánægðir
með svœðarýmkun
fyrir dragnótabáta:
Kalmann Sigurrtsson. Við hryRfíjuna ligKur trillan hans, Farsæll.
Jósef Borgarsson oddviti. Vilhjálmur Magnússon.
Hólmfrfður Oddsdóttir f Merki-
nesi.
„Getnr fleytt
einnm útgerðarmanni yfir
erfiðan hjalla en ræðnr litln nm þjóðarhag”
—ÞEIR hjá Hafrannsóknastofnun tala um það sem röksemd fyrir
þessum leyfisveitingum að auka þurfi sóknina í vannýtta fiskstofna og
í þessu tilfelli kolastofninn, sem sagður er hálfnýttur. En mér finnst
það dálítið skrítin aðferð til að auka nýtingu kolastofnsins með því að
opna aðeins lítið svæði og þá einmitt fyrir landi Hafnarhrepps, sem
hefur verið verr settur með aflahriigð en mörg önnur sveitarfélög auk
þess sem menn eru sammála um að dragnótin sé eyðileggingartæki.
Við vitnm að í Faxaflóanum eru miklu stærri kolasvæði og ef ætlunin
er að beina bátunum f kolann þá ætti að opna allan Faxaslóann. Þessi
opnun hér getur kannski fleytt einum útgerðarmanni yfir erfiðan
hjalla en þetta litla svæði ræður litlu um þjóðarhag, sagði Jósef
Borgarsson, oddviti Hafnarhrepps f samtali við blaðamann Morgun-
hlaðsins, sem heimsótti Hafnirnar í vikunni og ræddi við fólk á
staðnum vegna opnunar svæðisins út af Höfnum fyrir dragnótaveiðum.
Það er verið að
fara aftan að okkur
Jósef sagði að fyrir nokkrum
árum hefði Fiskifélag íslands leit-
að eftir umsögn sveitarstjórnar-
innar í Höfnum um veiðiheimild-
ir á svæðinu frá Stafnsnesi að
Reykjanestá. Hefði umsögn
sveitarstjórnarinnar jafnan verið
neikvæð gagnvart dragnótaveið-
um á svæðinu. Haustið 1975 sagði
Jósef að gefið hefði verið leyfi til
dragnótaveiða á Hafnarieirunum
og Sandvíkunum og hefðu þá ver-
ið að þessum veiðum tveir bátar
frá Olafsvík. Svæðinu var lokað
fljótlega aftur en áður hafði
hreppsnefnd Hafnarhrepps mót-
mælt þessum veiðum við sjávarút-
vegsráðuneytið. í fyrra voru þess-
ar veiðar leyfðar aftur en bannað-
ar eftir að Jósef oddviti hafði
gengið á fund sjávarútvegsráð-
herra, sem eftir það sendi tvo af
starfsmönnum sínum til fundar
við ibúa Hafnarhrepps. Á þeim
fundi náðist samkomuiag, að sögn
Jósefs, um að friðaða svæðið í
Faxaflóa skyldi framvegis miðast
við línu dregna úr Reykjanesi í
Malarrif en ekki úr Garðsskaga í
Marlarrif eins og áður. — Eftir
þetta samkomulag höfum við hér
í Höfnum litið svo á að svæðið út
af Höfnum fylgdi Faxaflóasvæð-
inu og yrði ekki opnað t.d. fyrir
dragnótaveiðum nema Fióinn
yrði þá allur opnaður, sagði Jósef.
—Ef nú á bara að opna hér
fyrir utan finnst okkur að farið sé
aftan að okkur í þessu máli, en
væri Faxaflóinn allur opnaður þá
horfði þetta öðruvísi við og væri
ekki einkamál okkar. Þetta er það
lítið svæði, sem veiðarnar eru
leyfðar á nú, að bátarnir draga i
einu hali milli hraunbrúnanna og
þessi dragnótaveiði getur haft
áhrif á fiskgengd á þau mið, sem
smábátaeigendur hér sækja á.
Svo er þetta svæði ekki síður upp-
eldíssvæðí fisks en Faxaflóinn
sjálfur. Við höfum alveg sama álit
á dragnótaveiðum á okkar miðum
og Akurnesingar og aðrir, sem
eru harðir andstæðingar drag-
nótaveiða á sínum miðum.
Ekki gert með
þjóðarhag í huga
—Við hér í Höfnum getum ver-
ið sammála þeirri stefnu að beina
fiskveiðum í aðra stofna en þorsk-
inn en þá verður að gera það með
öðrum hætti en hér er gert og þá
með þjóðarhag í huga. Ef sú væri
raunin hér þá værum við ekki
með mótmæli. Nú er einnig rætt
og’deilt um, hvort ráðherra eða
Hafrannsóknastofnun eigi að
segja til um hvernig rétt sé að
ganga um fiskimiðin. Ég get verið
sammála því að sérfræðingar Haf-
rannsóknastofnunarinnar eigi
þar að ráða ferðinni að verulegum
hluta en þeir verða þá að gera það
trúverðuglega, þannig að íbúarnir
fallist á aðgerðirnar. Við ætlum
ekki að mótmæla því að fiskstofn-
ar séu nýttir með þjóðarhag i
huga en, ef það er niðurstaða sér-
fræðinga stofnunarinnar að rétt
sé að heimila kolaveiðar með
dragnót á Hafnarleirunum en
ekki í Garðsskagasjó, þá tek ég
ekki mark á Hafrannsóknastofn-
un fyrir fimmeyring. Annars er
það alveg ljóst að það er hvorkí
ráðherra né Hafnrannsóknastofn-
un sem ráða þessum málum held-
ur pólitískir þrýstihópar — og þar
— Þeir eru hér uppi í kál-
görðum, sagði frúin í
Merkinesi og benti á drag-
nótabátinn, sem við sjáum
á þcssari mynd.
.
■
, -
'-x
<4:'v
Ljósm. Mbl. Ol.K.M