Morgunblaðið - 10.09.1977, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977
Ályktun framkvæmdastjóra fiskvinnslustöðva á Austurlandi:
Meginorsök vandans
er mikil verðbólga
FUNDUR framkvæmda-
stjóra fiskvinnslustöðva á
Austurlandi, haldinn í
Valaskjálf fimmtudaginn
1. september 1977, ályktar
eftirfarandi:
Rekstrarerfiðleikar þeir, sem
rætt hefur verið um að undan-
förnu hjá frystihúsum á Suð-
vesturlandi, eru að mati fundar-
ins ekki bundnír við einstaka
landshluta, heldur eiga við um
allt land.
Rekstrarerfiðleikar þessir
steðja heldur ekki einungis að
frystíiðnaðinum heldur ekki siður
að saltfisk- og skreiðarverkun i
landínu.
Vandi þessi er einkum tvíþætt-
ur.
í fyrsta lagi er m að ræða aug-
ljósan stórfelldan rekstrarhalla,
þar sem allur rekstrarkostnaður
hefur hækkað til muna meir en
nettóskilaverð afurða i íslenzkri
mynt, en í öðru lagi er um að ræða
mjög mikinn rekstrarfjárskort.
Væntanlesa dylst engum, að
meginorsök þessa tvíþætta vanda
er sú mikla verðbólga sem er i
landinu og veldur þvi að þrátt
fyrir hagstæðustu markaðsskil-
yrði er ástandið slikt sem raun
ber vitni.
Greinilegt er af skrifum ýmissa
blaða undanfarið, að vanrækt hef-
ur verið að kynna nægilega hag
fyrírtækja i sjávarútvegi og þýð-
ingu þeirra fyrir útflutningsfram-
leiðslu þjöðarinnar.
Samtök sjávarútvegsins verða
sem fyrst að gera átak i þessum
efnum.
Þcssi undirstöðuatvinnuvegur
verður að geta greitt sínu fólki
góð laun og þróazt á eðlilegan
hátt, en slíkt hefur ekki verið
hægt undanfarið, hvað þá nú.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum, eru ýmis fiskvinnslu-
fyrirtæki stöðvuð eða að stöðvast.
Á Austurlandi eru nú öll fisk-
vinnslufyrirtæki rekin með tapi.
Skuldasöfnun er gífurleg og í
raun ekki hægt að halda rekstri
áfram á eðlilegan hátt.
Undirstaða alls atvinnulífs á
Austurlandi er sjávarútvegur og
þvi er reynt að halda fyrirtækj-
unum gangandi eins lengi og
hægt er.
Það er nú gert með því að nota
fé annarra í reksturinn, með því
að safna lausaskuldum.
Þeir menn, sem sinna stjórn-
unarstörfum, eyða nú tima sinum
í að slá lán fyrir næstu útborgun,
eða að svara innheimtumönnum.
Svona ástand er óviðunandi
með öllu og veldur margvíslegu
tjóni.
Ráðamenn þjóðarinnar virðast
enn ekki líta rekstrarafkomu fisk-
vinnslustöðva nógu alvarlegum
augum. Nægileg gögn liggja þó
fyrir, til þess að hægt sé að taka á
málinu.
Eftirtaldir aðilar vilja nú taka
undir með öðrum fulltrúum fisk-
vinnslufyrirtækja og ítreka nauð-
syn skjótra ráðstafana til þess að
tryggja áframhaldandi rekstur
fiskvinnslufyrirtækja.
1 húfi er atvinna fjölda fólks
sem vinnur við fiskvinnslu og
raunar fleiri, þar sem ekki er nóg
að eyða gjaldeyri, það þarf að afla
hans líka.
Eftirtaldir menn voru kosnir í
nefnd til þess að vinna að hags-
munum fiskvinnslustöðva á
Austurlandi í þessum málum:
Aðalsteinn Jónsson, Eskifirði,
H:llgrímur Jónasson, Reyðarfirði
og Gisli Jónatansson, Fásk-
rúðsfirði.
Eftirtalin fyrirtæki áttu fram-
kvæmdastjóra á fundinum.
Hraðfrystih. Eskifj. Eskif.
Fiskvinnslan hf., Seyðisf.
Norðursfld hf., Seyðisf.
Síldarvinnslan hf., Neskaupst.
Fiskverkun G.S.R., Reyðarf.
Hraðfrystih. Stöðvarf. hf.,
Stöðvarf.
Kaupfélag A-Skaftfellinga, Höfn.
Tangi hf. Fiskvinnsla, Vopnaf.
Hraðfrystih. Breiðdælinga
Breiðdalsv.
Kaupfélag Héraðsbúa, Reyðarf.
Hraðfrystihús Fáskrúðsf. hf„
Fáskrúðsf.
Frá Timburverzlun Árna Jónssonar
& Co. h.f., Laugavegi 148
í dag auglýsum við óhúðaðan vatnsþolinn krossvið, gólfkrossvið og
eldtefjandi krossvið.
Á sama stað í blaðinu höfum við sl. tvo daga auglýst aðrar tegundir
af krossvið t.d. húðaðan og rásaðan.
VATNSÞOLINN KROSSVIÐUR WBP
Gerð Þykkt Stærð verð pr plötu án söluskatts Verð pr fermeter án söluskatts.
BIRKI-COMBI 4 mm 150x1 50 cm 1.100- 489 -
BIRKI-COMBI 4 mm 120x270 cm 1.590 - 491 -
BIRKI-COMBI 6 'h mm 120x270 cm 2 510 - 775 -
BIRKI-COMBI 9 mm 120x240 cm 2 900 - 1 007,-
BIRKI-COMBI 12 mm 120x270 cm 4 380 - 1.352,-
BIRKI-COMBI 12 mm 150x300 cm 5.990 - 1.331 —
BIRKI-COMBI 15 mm 120x270 cm 5 450 - 1 682,-
BÁTAKROSSV 9 mm 500x150 cm 11 280 - 1.504 -
birki-combi FURA/GRENI 6'/2 mm 120x270 cm 2.220 - 685 -
FURA/GRENI 9 mm 120x270 cm 2.910 - 898 -
FURA/GRENI 12 mm 120x270 cm 3 750,- 1.157-
GÓLFKROSSVIÐUR VATNSÞOLINN Þykkt Stærð Verð pr plötu án söluskatts Verð pr fermeter án söluskatts
12 mm 50x150 cm 1 270 - 1 693 -
15 mm 50x1 50 cm 1.540 - 2 053 -
ELDTEFJANDI KROSSVIÐUR VATNSÞOLINN
Þykkt Stærð Verð pr plötu án söluskatts Verð pr fermeter án söluskatts
3/8"—10 mm 122x244 cm 4 860 - 1 633,-
Á sama stað í blaðinu á morgun auglýsu m við spónaplötur og trétex.
PLÖTURNAR FÁST HJÁ OKKUR
Timburverzlun Árna Jónssonar Et Co. h.f.,
Laugavegi 148, símar 113333 - 11420
Hjartapuntur og fleiri skrautgrös
GRÖSÍ VENDI
„Hver er að breiða ullina sína
úti í flóa?
Tandurhreint er hennar lin,
heitir fífa vina mín.“
Flest hafið þið eflaust séð
hvitar fífubreiður úti í mýri og
flóa, þ.á.m. inni í miðri Reykja-
vik, að kalla. Hið hvíta eru svif-
hár á aldini fifunnar, sem þess
vegna getur borist langar leiðir
með vindi. Fifuhárin voru áður
snúin saman í Iýsislampakveiki
en þeir lampar voru helstu ljós-
tæki fyrrum viða um Norður-
lönd: „Ljósið kolunnar lék um
Snorra, lýsti sagnheim feðra
vorra.“
Reynt hefur verið að vefa og
spinna úr fifu líkt og baðmull
en hún þykir ekki nógu sterk til
þeirra nota.
En fífa er ágæt í endingar-
góða vendi til skrauts. Þá skal
tína fífuna snemma þ.e: fljót-
lega eftir að hún verður hvít,
áður en hárin fara að losna.
Best er að hengja fífuna ný-
tínda upp í smá vöndum til
þerris inni á loftgóðum stað þar
sem ekki skín sól. Hún getur
upplitast eða hvíti liturinn
dofnað í sterku sólskini.
Vöndur úr fífu og punti.
Þegar fífan er orðin vel þurr
má binda hana í stærri vendi og
hengja upp eða láta standa í
vasa. Hún getur þá haldist fall-
ega hvít allan veturinn og jafn-
vel árum saman.
Fifurnar eru raunar tvær,
önnur — hrafnafifan — með
einn hvitan koll, hin — klófífan
— með fleiri. Vendir af þeim
verða því ekki nákvæmlega
eins.
Margir tína einnig punt í
vendi og þá aðallega stóra fall-
ega blágráa gljáandi snarrótar-
punt sem víða vex, bæði á
þurru og hálfröku landi, rækt-
uð og óræktuðu. Getur orðið
hnéhár eða meir, með stórum
puntskúf. Blöðin snörp átöku.
Puntvendina skal einnig taka
tímanlega og þurrka á sama
hátt og fifuvendi. Þeir geta lika
enst mjög lengi.
Melgras er lika gott í vendi,
það er stinnt og stórvaxið eins
og flestir vita, notað til sand-
græðslu og fyrrum sem korn-
jurt í Skaftafellssýslum og við-
ar. Stórar og stinnar starir eru
og vel hæfar i vendi, einnig
vallhæra o.fl. og korntegundir.
Sumir hafa fleiri en eina teg-
und í sama vendi. í görðum er
ræktaður hjartapuntur og fleiri
skrautgrös góð í vendi.
Ekki má gleyma reyrnum ís-
lenska er vex víða úti um hag-
ann. Raunar tvær ilmgrasateg-
undir: ilmreyr og reyrgresi.
Það er aðallega blöðin sem ilma
lengi og þægilega þegar búið er
að þurrka þau á sama hátt og
áður var nefnt. Reyrgrasið hef-
ur breið blöð sem oft eru nefnd
reyr og það eru þau sem mest
hafa verið notuð um öll Norður-
lönd. Þið getið hengt upp reyr-
vönd til ilmbætis. Alsiða var að
hafa reyr i fatakistum og skáp-
um svo fötin ilmuðu og mölur
sækti minna í þau. Reynið reyr-
inn!
Fífuvöndurinn á myndinni er
ársgamall — slík er endingin!
II).