Morgunblaðið - 10.09.1977, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977
13
4LIT4A1M
„Kremlverjar vígbúast, og rétt viðbrögð okkar vesturlandabúa við þeirri hættu eru
sterkar varnir landa okkar og hugsjóna."
eftir HANNES GISSURARSON
Vígbúnaður
Kremlverja
Enginn vafi er á því, að Kremlverjar vigbú-
ast. Ráðstjórnarríkin og fylgiriki þeirra hafa
fjórar milljónir manna undir vopnum, og
vopnabúnaður þeirra er orðinn mjög fullkom-
inn, en hefur til þessa verið frumstæðari en
vesturveldanna Kremlverjar nota 13% þjóð-
arframleiðslu Ráðstjórnarríkjanna til hernað-
arútgjalda, þeir hafa hert kúgunartökin á
þegnum sinum síðustu árin og hlutazt til um
mál Angólubúa, Eþíópíumanna og annarra
þjóða En mestu máli skiptir fyrir íslendinga,
að herskipum þeirra og kafbátum á Norður-
Atlanzhafi fjölgar í sífellu {nazistar í Þýzka-
landi áttu 57 kafbáta í stríðsbyrjun, komm-
únistar í Ráðstjórnarríkjunum eiga 175 kaf-
báta), enda sýndi Kúbudeilan Kremlverjum
fram á notagildi öflugs flota Af þessum
staðreyndum og mörgum öðrum má ráða, að
rússagrýlan gamla er enn lifandi og hefur öll
færzt í aukana, þó að hamur hennar sé annar
en á dögum Stalins: hún lætur hlátrasköll
sameignarsinna á Vesturlöndum ekki á sig
fá Og til þessara staðreynda verða fylgís-
menn vestrænnar samvinnu að taka afstöðu,
enda var umræðuefnið á ársþingi Samtaka
um vestræna samvinnu í aðildarríkjum At-
lanzhafsbandalagsins, sem haldið var i
Reykjavík 26. — 29 ágúst sl. Hvernig ber
að bregðast við hinni auknu hættu? Ég sat
þetta ársþing og ætla að fara fáeinum orðum
um efnið í þessari grein
Andstæðingar Atlanzhafsbandalagsins á
íslandi, „herstöðvaandstæðingar,” sýndu
reyndar ráðstefnudagana, að þeir eru það,
sem erlendir fræðimenn kalla „the lunatic
fringe'' — óvitar í stjórnmálum. Eitt dæmi
þrætubókar þeirra á það skilið að verða sígilt
Þjóðviljinn sagði 31 ágúst vegna viðtals
Morgunblaðsins við Belgann de Cumont,
einn þingmannanna.
sem ætla að herja á aðildarríkin, enn ósigur-
inn vís — þó að dregið hafi saman með því
og Varsjárbandalaginu síðustu árin Atlanz-
hafsbandalagið var ekki stofnað árið 1949
vegna væntanlegrar árásar Rauða hersins á
norðurálfuríkin, heldur til þess að gera þau
óárennilegri, ef svo má taka til orða Árið
1945 voru Ráðstjórnarrikin eina stórveldið i
Norðurálfu_vegna falls Þýzkalands, og Atlanz-
hafsbandalagið var nauðsynlegt til þess að
þau gætu ekki hagnýtt sér aðstöðu sina En
„herstöðvaandstæðingar” á íslandi klifa á
þeirri kenningu, að Bandaríkin og Ráðstjórn-
arríkin hafi skipt Norðurálfu i „áhrifasvæði”
að seinni heimsstyrjöldinni lokinni og stofn-
að hernaðarbandalögin, Varsjárbandalagið
og Atlanzhafsbandalagið, til þess að halda
völdum á þessum áhrifasvæðum Hvað er
1966 Viðbrögð bandamanna þeirra Kreml-
verja og Bandaríkjamanna, eru til marks um
eðlismun bandalaganna Rauði herinn gerði
innrás inn i Ungverjaland, Bandaríkjamenn
létu kenjar Frakka afskiptalausar
íslendingar verða að læra að rökræða um
varnarmál án þeirrar tilfinningasemi, sem
tekur völdin af skynseminni Þeir verða að
læra það, sem kalla má „rökfræði aðstæðn-
anna”, verða að vita, hverra kosta vestur-
landabúar og andstæðingar þeirra, Kreml-
verjar, eiga völ, vona hið bezta, en vera búnir
við hinu versta Viðfangsefni fræðilegra al-
þjóðastjórnmála er það, sem getur gerzt að
gefnum aðstæðum (Hvers vegna tryggja
menn eignir sínar? Ekki vegna elds, heldur
eldhættu. Og brennuvargar sögunnar eru
innar á Miðnesheiði, en Norðmenn verða að
treysta á her sinn og hjálp bandamannanna
Kremlverjar gera varla árás á Noreg, en
mestu máli skiptir, að þeir eru í góðri að-
stöðu í öllum skiptum við Norðmenn, ef þeir
eiga kost árásar án hættu á kjarnorku-
styrjöld Og það er ekki fullvist að mati
herfræðinga, að her Atlanzhafsbandalagsins í
Norðurálfu geti komið Norðmönnum til
hjálpar undir öllum kringumstæðum eftir
slíka árás En auk hættunnar af vígbúnaði
Kremlverja eru sumir innviðir bandalagsins
veikir að mati Örviks: þjóðernishreyfingar í
sumum aðildarríkjanna, vandi ákvörðunar-
töku vegna neitunarvalds ríkjanna, sem taka
stundum skammtimahagsmuni þjóðarinnar
fram yfir langtímahagsmuni bandalagsins.
að ógleymdum andstæðingum bandalagsins
innan þess, vinstrisinnuðum sósialistum
(sem eru i sumum ríkjum þess annar armur
jafnaðarmannaflokka, en i öðrum sérstakir
flokkar) og kommúnistum (Fyrir skömmu
kom út bók í Noregi eftir Örvik, Kampen om
Arbeiderpartiet, um sókn vinstri arms
norska verkamannaflokksins til valda, en Ör-
vik hefur verið stuðningsmaður Verkamanna-
flokksins )
En hvernig ber að bregðast við hættunni?
Örvik telur, að bandalagið verði starfhæfara.
ef neitunarvald ríkjanna verði fellt niður og
ákvarðanir teknar með atkvæðagreiðslum En
ég efast um það (eins og margir aðrir þing-
mannanna gerðu), þvi að þessi réttarregla
hefur tryggt tilveru bandalagsins, við ákvarð-
anir þess verða öll aðildarríkin að geta sætt
sig, ella sundrast það En um flest annað er
ég sammála Örvik: Náin samvinna norð-
urálfuríkjanna og Bandaríkjanna getur
ein sannfært íbúana i Kremlkastala um
það, að norðursvæðið sé jafnvarið öðrum
svæðum. Atlanzhafsbandalagið verð-
ur að hafa þann vopnabúnað, sem nauðsyn-
legur er, til þess að það geti þjónað til-
gangi sínum, varnað Kremlverjum not-
hæfrar vigstöðu í Norðurálfu, án þess að efnt
Dr. Nils Örvik ræðir við forseta íslands.
VIÐBRÖGÐIN VIÐ HÆTTUNNI
mynda,i..
lags Nató, sem na._
Reykjavlk um slBustu ne,6..
Lætur nærri aö blaöið hafi birt
einar fimm opnur meö viötölum
viö fulltriiana. Kennir þar ab
sjálfsögöu margra grasa: sumir
viðmælendur Morgunblaösins
eru beinlinis skemmtilegir, eins
og sá sem hélt fram þessari at-
hyglisverðu skoöun: „Munurinn
á lýöræöisrfkjum og einræöis-
rikjum er sá aö I báöum eru
gerö mistök.” Sumir viömæl-
endanna hafa komist aö at-
hyglisveröum nærri heimspeki-
legum — kennski frekar há-
spekilegum — niöurstööum. Til
dæmis telur einn þeirra aö
áhugaleysi Vesturiandanna ■*
En de Cumont sagði I næstu setningu:
„En i lýðræðisrikjum er ávallt einhver, sem
segir: „Þetta eru mistök” — og þau verða
síðan leiðrétt " Augljósari rangfærslu hef ég
ekki fundið lengi í íslenzkum blöðum. Og ég
held, að de Cumont hafi komið að kjarna
stjórnmálanna: í lýðræðisríkjum reyna menn
að læra af mistökum sinum, i einræðisríkjum
að fela þau En einkum lögðu „herstöðva-
andstæðingar” orð i belg um nýtt vopn
Bandaríkjamanna: nifteindar-sprengjur (en
smiði á þeim hefur ekki enn verið afráðin).
Gerð þessarar sprengju (sem á að hitta
hernaðarskotmork og minnka likurnar á falli
óbreyttra borgara) verður þó ekki að rökum
gegn Atlanzhafsbandalaginu, því að öllum
vopnum, hvort sem þau eru i höndum lýð-
ræðissinna eða einræðissinna, er ætlað að
vega menn — þó að lýðræðissinnar voni, að
sá tími komi, sem geri vopnaburð ónauðsyn-
legan „Herstöðvaandstæðingar” ruglast á
tækjum og tilgangi, gera einfalda hugsunar-
villu. Það, sem máli skiptir, er tilgangur
Atlanzhafsbandalagsins
Tilgangur Atlanz-
hafsbandalagsins
Atlanzhafsbandalagið er umfram allt til
varnaðar, og það hefur þjónað þeim tilgangi
sínum ágætlega, tryggt friðinn i Norðurálfu
Vegna yfirburða þessa bandalags er þeim.
hægt að segja við þessa óvita? Þeir gera sér
enga grein fyrir þeim eðlismun, sem er á
samtökum lýðræðisríkja og einræðisríkja
Stjórnir lýðræðisrikja (og öll aðildarriki At-
lanzhafsbandalagsins eru lýðræðisríki) eru
réttir fulltrúar þjóða sinna, en valdhafar i
einræðisrikjum stigamenn, réttlausir valda-
ræningjar „Friðsamleg sambúð” lýðræðis-
rikja Vesturlanda og alræðisrikjanna í austri
en þess vegna fólksins i lýðræðisríkjunum
og foringjanna í alræðisríkjunum Og utan-
ríkisstefna lýðræðisríkja er að öllu jöfnu frið-
samleg (þvi að almenningur er friðsamur,
enda koma styrjaldir niður á honum), en
stefna alræðisrikja fer eftir foringjum þeirra
Það er þvi rökleysa, að Atlanzhafsbandalagið
sé til hernaðar, en ekki varnaðar Eða halda
„herstöðvaandstæðingar" þvi fram, að al-
menningur vilji ólmur i austurvíking? Riki
Atlanzhafsbandalagsins eru sjálfstæð, allar
ákvarðanir þess verður að taka samhljóða
(Það getur þess vegna litið aðhafzt í deilum
aðildarrikja, t d íslendinga og Breta og
Grikkja og Tyrkja ) Það er satt, að norðurálfu-
rikin eru á áhrifasvæði Bandaríkjanna og
Varsjárbandalagsríkin á áhrifasvæði Ráð-
stjórnarrikjanna, en Bandaríkjamenn skilja
orðið „áhrifasvæði” i öðrum skilningi en
Kremlverjar: það eru riki i samningsbundinni
samvinnu, en ekki leppríki undir kúgunar-
stjórn kommúnista Ungverjar rufu varnar-
samvinnu við önnur Varsjárbandalagsríki ár-
ið 1956, Frakkar við önnur Atlanzhafsríki
alræðissinnarnir.) Ekki ber að spyrja: „Koma
Rússarnir?” — þvi að þeirri fávíslegu spurn-
ingu er ekki unnt að svara, heldur: „Hverju
breytir Atlanzhafsbandalagið um vigstöðu
lýðræðisríkjanna (og Kremlverja) á alþjóða-
vettvangi?” Það er ekki verkefni fræðimanna
að lesa hug Kremlverja, það geta spákonur
gert. Það, sem menn hafa fyrir sér auk
beinna staðreynda, er reynslan af fyrri at-
höfnum þeirra, skilningur á kenningu þeirra
og kerfi, sem skilyrðir hugsun þeirra, og
kunnátta í rökfræði aðstæðnanna Og í Ijósi
alls þessa get ég ekki séð annað til trygging-
ar frelsi okkar og friðnum en trausta sam-
vinnu lýðræðisríkjanna í varnarmálum
Nyrzti hlekkurinn
veikastur
Norðmaðurinn dr Nils Örvik, prófessor í
alþjóðastjórnmálum við Drottningarháskóla
(Queen's University) í Kingston i Kanada,
hafði framsögu um fundarefni ársþingsins.
Hann taldi takmark Kremlverja aukin áhrif i
Norðurálfu án hættu á kjarnorkustyrjöld, en
veikustu hlekki varnarkveðju Atlanzhafs-
bandalagsins norðursvæðið, ísland og Nor-
eg. Það er eina svæðið, sem er ekki varið
kjarnorkuvopnum, en um hernaðargildi þess
þarf ekki að deila, landabréfið ber það með
sér íslendingar hafa leyst vanda sinn með
varnarsamningi við Bandaríkjamenn, árás á
ísland er árás á Bandaríkin vegna herstöðvar-
Langdrægar eidflaugar Kremlverja sýndar á Rauða torginu
sé til vígbúnaðarkapphlaups en útgjöld til
varna eru i lýðræðisrikjum komin undir skiln-
ingi almenninga
Haukar.
dúfur — og uglur
Skilningur almennings á tilgangi Atlanz-
hafsbandalagsins er lífsnauðsynlegur Eg tek
undir með Örvik, að vesturlandabúar
eiga að leggja áherzlu á jákvæðar hugsjónir
sínar, en ekki á ágalla andstæðinganna —
sem allir eru sammála um, líka „evrópu-
kommúnistarnir”. Sterkasta vörn Vesturlanda
er lifandi vitund vesturlandabúa um hugsjón-
ir þeirra — um frelsi til visindarannsókna,
listsköpunar, viðskipta og annarra mannlegra
samskipta Atlanzhafsbandalagið er varnar-
stofnun þessara hugsjóna, en engar stofnanir
geta gegnt hlutverki sínu, nema einstakling-
arnir innan þeirra hafi til þess vit og vilja
Vesturlandabúar eiga að hafna hinu frum-
stæða kommúnistahatri kalda striðsins, en
án þess að verða jafnundanlátssamir við
kommúnista og skammsýnir menn voru við
nazista á sínum tima Þeir eiga hvorki að vera
„haukar” né „dúfur”, heldur „uglur" — taka
rökvislega afstöðu til staðreyndanna Og
sumar þeirra gefa tilefni til bjartsýni Lýðræði
hefur sýnt lífsmátt sinn á Spáni, i Portúgal og
Grikklandi, mannréttindabarátta gerzku and-
ófsmannanna, sem Carter bandaríkjaforseti
hefur stutt drengilega, hefur komið mörgum
i skilning um rétt einstaklinganna til frelsis,
„evrópukommúnisminn” eða norðurálfu-
stefnan er til marks um hugsjónalega upp-
gjöf fimmtu herdeildar Atlanzhafsbandalags-
ins, einstaklingar ná betri árangri i hagkerfi
Vesturlanda en í miðstjórnarkerfi sameignar-
sinna, þvi að framtak þeirra fær að njóta sin
(framleiðni er t d 30% meiri í Vestur-
Þýzkalandi en í Austur-Þýzkalandi)
Við skulum ekki gleyma því, að vígbúnað-
ur Kremlverja er í rauninni til vitnis um veilur
þeirra. Þeir kunna enga aðra aðferð til þess
að láta að sér kveða á alþjóðavettvangi Þeir
eiga ekki sigursælar hugsjónir, og enginn
trúir þvi lengur, að sameignarskipulag þeirra
sé til fyrirmyndar Þeir hafa einungis hernað-
armáttinn, nakið vopnavaldið — án þess
geta þeir ekki gegnt hlutverki tröllveldis Þá
vantar siðferðiiegan þrótt, þvi að „enginn,
sem eitt sinn hefur áttað sig á því, mun
tilleiðanlegur að láta Fjallræðuna i skiptum
fyrir feigðargaldra þeirra manna, sem á vor-
um dögum öllum öðrum fremur eru haldnir
ergi gerræðis og grimmdaræðis," eins og
Gunnar Gunnarsson skáld kvað að örði i
frægum fyrirlestri, Vestrænni menningu og
kommúnisma.