Morgunblaðið - 10.09.1977, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977
19
Unnið að viðgerðum á vatnsveitunni til Kisiliðjunnar.
Séð ofan í syðsta gíginn, brezkur jarðvísindamaður þræðir varlega yfir hraunið, sem enn var glóð undir í
gðrmorgun.
veðnu mynztri og
rinn byrjar á ný
en i Vestmannaeyjum rann
hraunið fljótlega í tveimur
meginelfum. Þá rann hraunið
miklu hraðara hér þar sem
hraunið var svo þunnfljótandi,
en í Vestmannaeyjum hins veg-
ar hægar þar sem það var mun
þykkara, sagði dr. Sigurður
Þórarinsson.
HÖFÐU VAKAÐ
ALLA IMÓTTINA
Er Morgunblaðsmenn voru á
ferð við gosstöðvarnar i gær-
morgun voru þar fyrir fjórir
enskir jarðvísindamenn. Höfðu
þeir komið að eldstöðvunum
fljótlega eftir að gosið byrjaði
og er við kvöddum þá um
klukkan 9 í gærmorgun var
ekkert fararsnið á þeim. Þeir
tóku myndir í gríð og erg,
pjökkuðu með verkfærum sin-
um i stökkt hraunið og ræddu
mikið sin á milli um hve skjótt
landið hefð breytzt, á hve
skömmum tima hraunið hefði
runnið.
— Við komum fljótlega eftir
að gosið byrjaði, misstum rétt
af fyrsta klukkutímanum, sáum
eldstólpana síðan hverfa og
ætlum okkur helzt ekki að fara
héðan fyrr en við getum gengið
að megingignum, sögðu Eng-
lendingarnir.
Þar sem hraunið var svo
þunnt storknaði það fljótt eftir
að rennslinu lauk, en það var
tilkomumikil sjón að sjá hraun-
fossana steypast fram af stöll-
um og sprungum i fyrrakvöld.
Lækirnir liðuðust síðan um
hraunið unz þeir slokknuðu í
útjaðrinum. Rauður bjarmi
eldsins lýsti upp nágrennið í
myrkrinu og fjöldi fólks fylgdist
með þessu mikla sjónarspili
náttúrunnar af hæðunum í
kring.
Morguninn eftir var ólíkt um
að litast. Hraunið storkið og
svart, himininn heiður og blár.
Aðeins saklaus strókur úr miðju
sprungunnar og hann átti eftir
að minnka er leið á daginn
Þessu gosi um 3 km norður af
Leirhnúk var greinilega lokið,
en hvað gerist á næstu mánuð-
um. Jarðfræðingar eiga vdn á
allu illu, óttast enn meira gos
og það jafnvel fyrr en seinna.
Hvar það verður veit enginn,
en ýmsar getgátur eru á lofti.
— Þetta er allt eftir
ákveðnu mynztri. Þegar landið
er komið í ákveðna hæð getum
við farið að reikna með eldgosi,
segir Sigurður Þórarinsson.
Landris hefst trúlega aftur i dag
og sami hringurinn byrjar á ný.
Viðlagatrygg-
ing bætir tjón
á þeim eigum sem
eru brunatryggðar
SEM kunnugt er hefur oróió all-
mikið tjón á sumum mannvirkj-
um nyróra við eldsumbrotin og
jarðhræringarnar og er það V’ið-
lagatrygging Islands, sem stofnuð
hefur verið með lögum, er kemur
til með að bæta að hluta það tjón
er orðið hefur. Til að fá nánari
upplýsingar um þessi mál ræddi
Mbl. við Sigurð Jónsson, fram-
kvæmdastjóra, en hann á sæti í
stjórn Viðlagatryggingar íslands.
— Viðlagatrygging Islands
bætir það tjón, sem orðið hefur af
völdum náttúruhamfara, t.d.
vegna eldgoss, snjóflóða eða jarð-
skjálfta, þ.e.a.s. tjón á þeim eign-
um, sem hafa verið bruna-
tryggðar. Iðgjald viðlaga-
tryggingarinnar er 0,25 prómill af
brunatryggingum og bætir hún
tjón á húsum, innanstokksmun-
um, vörubirgðum og slíku, en
ekki t.d. á þróm Kísiliðjunnar eða
vatnslögnum. Sagði Sigurður að
lagaákvæði viðlagatryggingar
væru ótviræð, en nokkrir erfið-
leikar hefðu verið á því hvernig
ætti að meðhöndla tjón á vatns-
lögnum.
Maraþonlestur Biblíunnar:
365 blaðsíður lesn-
ar í gærkveldi
VERIÐ var að lesa 17. kafla f
annarri konungabók Biblíunnar á
blaðsíðu 365 I gærkveldi, er
Morgunblaðið hafði samband við
safnaðarheimili aðventista f
Keflavík. Það eintak, sem lesið er
upp úr, er 1.109 blaðsíður.
Lestur Biblíunnar á að taka um
það bil 70 klukkustundir, en hann
hófst í fyrrakvöld klukkan 20.
Verður bókin lesin i einni strik-
lotu unz lestrinum verður lokið og
er áætlað að það verði um klukk-
an 20 á sunnudagskvöld.
Lítið var um áheyrendur í gær-
morgun, en þegar á daginn leið
fjölgaði þeim. I fyrrinótt kom
maður til að hlýða á lesturinn
klukkan 02, en að öðru leyti voru
það aðeins lesarar sem voru við-
staddir lesturinn yfir blánóttina.
Skipulagðir eru hópar þriggja
einstaklinga, sem taka að sér lest-
ur fjórar klukkustundir í senn og
les hver 20 mínútur í senn. I gær
höfðu alls 23 lesið, margir oft.
Fólk er velkomið og getur fengið
að lesa ef það óskar þess.
I tilefni þessa maraþonlesturs
er opin sýning i safnaðarheimil-
inu á gömlum Biblium, sem
fengnar hafa verið að láni i
Landsbókasafninu. Þá er til sölu á
staðnum minnsta Biblia i heimi,
ensk útgáfa á mikrófilmu og eru
allar blaðsíður hennar 1.245 að
tölu á fleti sem er 3x3 cm. Má lesa
Bibliuna með smásjá. Þetta
míkrófilmueintak kostar 315
krónur.
Fær menntamála
ráðuneytið
V í ðis-húsið?
FJARVEITINGANEFND Alþing-
is eða meiri hluti hennar hefur
fyrir sitt leyti samþykkt að mæla
með kaupum á húseign Trésmiðj-
unnar Vfðis að Laugavegi 166.
Samkvæmt upplýsinguni Gisla
Blöndal, hagsýslustjóra, standa
nú samningar yflr milli rikisins
og eigenda hússins, en Gfsli sagði
að sér væri ekki kunnugt um,
hvort nokkrar tölur væru þar
komnar á blað, að því er varðar
kaupverð hússins.
Gisli sagði að hugmyndin væri
sú, að ríkið notaði húsið undir
menntamálaráðuneytið, Rikisút-
gáfu námsbóka, Fræðslumynda-
safn ríkisins og skylda starfsemi.
Samkvæmt upplýsingum Karv-
els Páimasonar, alþingismanns,
sem sæti á í fjárveitinganefnd var
rætt í nefndinni, er málið var til
umræðu þar um 250 til 260 millj-
ón króna kaupverð hússins, en að
siðan þyrfti um 390 milljónir
króna til þess að koma þvi i það
ástand, sem þyrfti fyrir áður-
nefnda sjarfsemi.
Rannsókn tveggja
morðmála lokið
LOKIÐ er hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins rannsókn morðmál-
anna tveggja sem upp hafa komið
að undanförnu, þ.e. i fanga-
geymslu lögreglunnar við Hverf-
isgötu og Rauðhóla. Samkvæmt
upplýsingum Hallvarðs Einvarðs-
sonar og Arnar Höskuldssonar er
nú aðeins beðið eftir niðurstöðum
geðrannsókna og réttarkrufning-
ar i öðru málinu og verða þau
send saksóknara til umfjöllunar
þegar niðurstöður hafa fengizt.
Borgarfjarðarprófastdæmi
HÉRAÐSFUNDUR Borgarfjarð-
arprófastsdæmis verður haldinn
að Saurbæ á Hvaifjarðarströnd
n.k. sunnudag 11. september og
hefst með guðsþjónustu i
Hallgrimskirkju kl. 14. Séra
jólafur Jens Sigurðsson, sóknar-
prestur i Bæ, prédikar. Settur
prófastur, séra Jón Einarsson i
Saurbæ, flytur yfirlitsskýrslu um
heiztu störf kirkjunnar frá siðasta
héraðsfundi. En aðalmál fundar-
ins verður álit Starfsháttanefndar
þjóðkirkjunnar, sem sent hefur
verið til allra sóknarnefnda í
landinu.