Morgunblaðið - 10.09.1977, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MANUDEGI
Svo mörg voru þau orð Margrét-
ar og ef aðstandendur sýningar-
innar hafa eitthvað við þau að
athuga er sjálfsagt að þeir setji
sig í samband við Velvakanda.
En svona inn á milli bréfanna
getum við litið á lltið vísukorn.
% Fyrsta gangan
Gömlum vísnakarli varð
þetta að orði þegar fregnir bárust
um framboðslista Alþýðubanda-
lagsins i Norðurlandskjördæmi
eystra:
Feigum verður flest
til tjóns
í frambjóðendahraki.
Að stilla fyrst upp
stráknum Jóns
var stutt með lófataki.
% Vangaveltur
eftir
landsleiki
„Mig langar að ræða nokk-
uð um landsleiki tslands i knatt-
spyrnu i sumar og að sjálfsögðu
ætla ég að stikla á stóru. Það er
enginn vafi á þvi að landsliðs-
mönnum okkar hefur farið mjög
mikið fram á síðustu árum og þótt
við höfum tapað nokkuð stórt í
HM-leikjum okkar við Hollend-
inga og Belga þá hefur islenzk
knattspyrna alls ekki sett niður
við það. Ég tel samt að islenzka
landsliðið geti orðið mun sterkara
en það er, það hefur verið lögð á
það alltof mikil áherzla að fá at-
vinnumennina i Iandsleikina.
Þessir menn æfa sama og ekkert
með landsliðinu, oft eru þeir al-
veg æfingarlausir, en eru samt
látnir ieika með liðinu og jafnvel
þótt þeir hafi verið i hálfsmánað-
ar sumarfrii erlendis. Er þetta nú
hægt? Þettagetur nú ekki gengið
svona til lengdar. Það er mitt álit
að það eigi bara að velja þá leik-
menn í landsliðið, sem eru hér
heima og geta komið þvi við að
æfa með þvi. Það er samæfingin,
sem skiptir mestu máli og skapar
meistarana. Þetta eiga landsliðs-
nefndarmenn að vita. Það hafa
margir af okkar sterkustu knatt-
spyrnumönnum ekki fengið tæki-
færi með landsliðinu í sumar og
það er engu likara en þeir sem
eiga sæti í landsliðsnefnd K.S.Í.
haldi að landsliðið eigi að vera
óbreytt næstu 10 árin.
Þeir menn sem stjórnna þess-
um málum horfa si og æ framhjá
okkar sterkustu leikmönnum eins
og t.d. Pétri Péturssyni, Tómasi
Pálssyni, Þorsteini Bjarnasyni,
sem ég tel vera langbezta mark-
mann landsins um þessar mundir,
einnig mætti nefna Olaf Július-
son, Sigurlás Þorleifsson og Karl
Sveinsson, svona mætti lengi
telja. Þetta eru allt mjög sterkir
leikmenn, sem verðskulda lands-
liðssæti nú þegar. Það hefur tölu-
vert verið rætt um landsliðsþjálf-
ara okkar, Tony Knapp, hér í Vel-
vakanda og hefur hann verið
.gagnrýndur mjög. Mér hefur
fundizt þessi gagnrýni að sumu
leyti ósanngjörn og sumt af því
sem sagt var um hann var varla
prenthæft, því enginn á að setjast
í dómarasæti og dæma þá menn
sem hann þekkir ekki. Tony
Knapp er góður maður og hann
hefur staðið sig vel i sinu starfi og
á þakkir skildar fyrir það.
1730—6804.“
Ekki fleiri orð um það, en Vel-
vakandi fær ekki betur séð en
bréfritari setjist einmitt i dóm-
arasæti þar sem hann gagnrýnir
störf landsliðsnefndar. En þar
sem Velvakandi er litið heima i
þessum fræðum hættir hann sér
ekki út i vangaveltur með bréfrit-
ara, en býður landsliðsnefnd að
senda svör ef hún sér ástæðu til
þess
Þessir hringdu . . .
0 Styðjum fslenzk-
an iðnað
Kona:
— Mér finnst að rikis-
stjórnin ætti að banna allan inn-
flutning á skipum og stuðla að því
að innlendar skipasmiðastöðvar
fái að smíða þau skip, sem við
þurfum á að halda. Það er alltaf
verið að kaupa þau frá útlöndum,
en það er hægt að smíða mjög
mörg þeirra hérlendis, eða svo
hefur manni skilizt. Einnig á að
stuðla að þvi að innlendu stöðv-
arnar fái allar þær viðgerðir og
viðhald, sem þarf að gera á Is-
Ienzka flotanum og styðja með því
hinn íslenzka iðnað.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
A IBM skákmótinu í Amster-
dam í júlí kom þessi staða upp í
skák ítalans Tatai, sem hafði
hvitt og átti leik, og ungverska
stórmeistarans Adorjans
19. e6 — fxe6, 20. Rxe6 — g5
(Staða svarts var einnig vonlaus
eftir 20... Dxe6, 21. Hel — Df5,
22. Db4!) 21. Hel! Svartur gafst
upp. Eftir 21. . ,gxh4, 22. Dg4 hót-
ar hvítur máti á g6 og þá gengur
ekki að leika 22.. .De6 vegna 23.
Rg7+ — Kd8, 24. Rf5.
% Ekki sannleik-
anum samkvæmt?
Helga Hansen:
— Mig langar að andmæla
frélt I Mbl. 3. sept. um konu á
útsölu, því það er ekki rétt að
umrædd kona hafi verið með
frekju og pilsaþyt heldur tók lög-
reglumaðurinn feil og fór með
ranga konu á stöðina. Það þarf að
vanda þennan fréttaflutning bet-
ur og hafa ekki aðeins söguna frá
öðrum aðilanum.
HÖGNI HREKKVÍSI
Hann hlaut sérstök verðlaun fyrir að vera
elskulegurhundur!
Sumarbústaður á Austurlandi
Til sölu eru tveir fallegir sumarbústaðir á
Austurlandi, annar í Hellisfirði og verða veiði-
réttindi í Hellisfjarðará látin fylgja ákveðinn
árafjölda eftir samkomulagi. Hinn í landi
Skuggahlíðar í Norðfjarðarsveit ásamt 2500 fm
skógi vaxinni lóð. Upplýsingar gefur
Guðmundur Ásgeirsson sími: 97-7677
Neskaupstað.
Kjúklingar kr. 1200 kg
10 stk. í kassa 990 kr. kg
Úrvals unghænur kr. 790 kg
10 stk. í kassa 690 kr. kg
OPIÐ
LAUGARDAGA
8—12