Morgunblaðið - 10.09.1977, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977
39
Grundvallarhugsjónin enn í fullu gildi
— Félagsleg staða
Ungmennafélags íslands
er mjög sterk um þessar
mundir — sennilega
sterkari en oftast áður.
Þótt verkefnin séu að
mörgu leyti önnur nú en
í upphafi, þá er grund-
vallarhugsjón hreyfing-
arinnar enn hin sama —
mannrækt og vaka yfir
unnum sigrum, sögðu
þeir Hafsteinn Þorvalds-
son, formaður UMFl, og
Sigurður Geirdal, fram-
kvæmdastjóri félagsins, í
viðtali við Morgunblaðið
í gær, en UMFÍ heldur
sitt 30. sambandsþing á
Þingvöllum um helgina.
Er það jafnframt tíma-
mótaþing í sögu samtak-
anna, þar sem á þessu ári
eru liðin sjötíu ár frá
stofnun þess.
— Sem dæmi um þá þróun
sem orðið hefur og þann aukna
áhuga sem er á hreyfingunni
má nefna, að árið 1970 voru
félagar í UMFÍ um 10 þúsund,
en eru um þessar mundir orðn-
ir rösklega 19 þúsund, sagði
Hafsteinn Þorvaldsson. — Fé-
lagatalan hefur þvi nær tvö-
faldazt á þessum sjö árum og
það sem er enn ánægjulegra er
þó að æ stærri hluti félaganna
er virkur í starfinu. Iþrótta-
starfið er enn veigamesti þátt-
urinn hjá UMFl og verður það
sjálfsagt á ókomnum timum, en
starf að félagsmálefnum hefur
einnig margfaldazt og er það
ekki sizt að þakka félagsmála-
skóla UMFÍ sem starfað hefur á
undanförnum árum, en skóli
þessi hefur hvarvetna verið
mjög vel sóttur. Hafa alls verið
haldin 129 námskeið á vegum
skólans hjá sambandsaðilun-
um, en námskeiðunum hefur
þó verið nokkuð misskipt á
milli þeirra, og er það afleiðing
þess hve fáir kennarar hafa
verið virkir. Væri það mjög
æskilegt að sambandsaðilarnir
sjálfir yrðu sjálfum sér nógir
hvað kennara snertir.
Sigurður Geirdal, fram-
kvæmdastjóri UMFl, sagði að
sá þáttur starfsins sem hvað
mest gróska hefði verið í að
undanförnu væri samskipti við
útlönd. — A þeim þætti starfs-
ins er gífurlegur áhugi, og við
höfum verið svo heppnir að ná
mjög góðu samstarfi við
bræðrafélög okkar á Norður-
löndunum, sérstaklega þó f
Danmörku, og höfum við átt
mjög vinsamleg og mikil sam-
skipti við þau félagasamtök á
undanförnum árum og áhugi er
á þvt að efla það starf enn
meira.
Landsmót Ungmennafélag-
anna er sá þáttur starfs UMFl
sem er einna mest áberandi, en
segja má að mót þetta séu litlir
Ölympíuleikar islenzkrar æsku.
Hafa komið fram svipuð vanda-
mál við framkvæmd landsmóta
að undanförnu og við fram-
kvæmd Ólympíuleika, þ.e. að
mótin eru orðin svo umfangs-
mikil, að erfitt er að fá staði til
þess að sjá um þau. Þannig átti
t.d. næsta landsmót UMFÍ að
vera á Dalvík, en þegar til kom
reyndist ekki unnt að hafa það
þar og mun mótið verða á Sel-
fossi. Þeir Hafsteinn og Sigurð-
ur voru spurðir að því hvort
ekki væri uppi áforn um að
breyta landsmótunum þannig
að þau yrðu auðveldari í fram-
kvæmd.
— Það er rétt, að landsmótin
eru orðin það umfangsmikil að
erfitt er að finna þeim stað,
sögðu þeir, — en hitt er greini-
lega vilji allra að mótin haldi
þeirri reisn sem yfir þeim hef-
ur verið, og verður því hvergi
hvikað af þeirri braut sem hef-
ur verið mörkuð. Það er greini-
legt að flest sambandsfélög
UMFl miða starf sitt mikið við
landsmótin og eru þau þvi veru-
legur hvati til starfs. íþrótta-
fólkið sjálft er einnig farið að
gera meiri kröfur til aðstæðna á
Stjórn UMFÍ: Þóroddur Jóhannsson, Ólafur Oddsson, Jón Guðbjörnsson,
Hafsteinn Þorvaldsson, Guðjón Ingimundarson, Bergur Torfason og Björn
Ágústsson.
landsmótum en áður, einfald-
lega vegna þess að þvi finnst að
svo miklu að keppa. Við viljum
heldur ýta undir þessa þróun
en hitt, og er nú t.d. áformað að
tveir fyrstu menn i hverri grein
frjálsra iþrótta á næsta lands-
móti fái utanlandsferð og dvöl i
æfingabúðum ytra. Sjálfsagt
verða nokkrar breytingar á
landsmótum í framtíðinni, og
er t.d. áformað að fækka starfs-
íþróttagreinum á næstu lands-
mótum, þannig að aðeins verði
keppt i þeim greinum sem eru
vinsælastar hjá áhorfendum.
Um fjármál UMFI sögðu Haf-
steinn og Sigurður.
— UMFl berst i bökkum
fjárhagslega, enda opinber að-
stoð tiltölulega lítil. Þó fengum
við nokkra leiðréttingu okkar
mála á siðasta ári. Má nefna að
árið 1975 fengum við 2.7 millj-
ónir króna frá hinu opinbera,
en veltan var 12 milljónir
króna. 1976 voru þessar tölur
4.6 milljónir króna og 16.6
milljónir króna og á þessu ári
fáum við 10 milljónir króna en
áætluð velta er 30 milljónir
króna. Helztu tekjur aðrar en
opinberi styrkurinn er lands-
happdrætti, en fyrirkomulag
þess er þannig að sambandsfé-
lögin hafa einnig af þvi tekjur,
og síðan er stefnt að þvi að sem
flest verkefni sambandsins
standi undir sér fjárhagslega.
Um helztu framtíðarverkefni
UMFI sagði Hafsteinn Þor-
valdsson:
— Á komandi sambands-
þingi verður væntanlega fjallað
mest um það sem við köllum
eigin verkefni UMFÍ. Helzti
framtíðardraumur okkar er að
koma upp glæsilegri þjónustu-
miðstöð i Reykjavík, en það er
ekki vanzalaust að 70 ára gam-
all félagsskapur sem er jafn
öflugur og UMFÍ skuli ekki
hafa yfir eigin húsnæði að ráða.
UMFÍ rekur skrifstofu í
Reykjavík, og er þar orðið alltof
þröngt um okkur, ekki sízt
vegan þess að sambandsfélögin
sækja æ meira eftir margvis-
legri þjónustu skrifstofunnar.
Æskilegt væri að hafa aðstöðu
til þess að efla þennan þátt
starfsins enn meira, og jafnvel
skapa aðstöðu til þess að taka á
móti hópum ungmennafélaga
sem koma til höfuðborgarsvæð-
isins til keppni. Að öðru leyti
má segja að grundvallarverk-
efni framtiðarinnar verði hin
sömu og hafa verið hingað til,
en auðvitað er stefnan að efla
starfið og færa það út eins og
kostur er.
Fiölskylduhátíð
í höllinni
. X'
X
A sýningunni Heimilið '77 er eitthvað
\ fyrir alla í fjölskyldunni, unga sem aldna
Heimsókn í Laugardalshöll er ódýr fjöl-
skylduskemmtun, sambland af gamni og
alvöru, allt eftir því hvað hver vill.
Fjórar glæsilegar tískusýningar í dag
klukkan 2, 4, 6 og 9.
Metaðsókn frá opnun sýningar segir
meira en mörg orð.
Missið ekki af
sýningarviðburði ársins.
Næstsíðasti dagur.
Laugardagur íLaugaidal Lokumámorgun
HEIHILIÐ77 0$
Vinningar i gestahappdrætti:
17 Sharp litsjónvarpstæki frá Karna-
bæ og fjölskylduferð til Flórida á
vegum Útsýnar.
Dregiö daglega.
H
SlGASTOfAN HFI