Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 1
Sunnudagurinn
11. september 1977
Bls. 33 — 64
lengst af búið f GrænuborK í
Vogum, aldrei ient í neinu og ef
eitthvað var á seyði kvaðst hann
hafa misst af þvf. Reyndar kvað
hann það Reta verið jákvætt Ifka.
Hann var lengi sjómaður hætti
hátt á sjótugs aldri til sjós, en
lenfist var hann áeinum bát í 10
ár f Keflavík. Sá fórst á leiðinni
til Hafnarfjarðar með allri skips-
höfn. Hann var þá ráðinn á bátn-
um, en það náðist ekki f hann
fyrir þcnnan túr. Skipslélaui
hans var á leiðinni á sfmstöðina
að reyna að ræsa hann, en hitti
mann á leiðinni or hann hljóp í
skarðið.
Það er svona að vera ekki
’ feigur, sagði Baddi, en einkenni-
legt er þetta. Kona mannsins sem
fór f þennan túr f stað mfn, vildi
heldur að maður hennar
væri á mótorbátum en
trillum. Henni fannst það
öruggara. Það mannlega
ræður fáu.
Annars er þetta allt f
blfðskapnum, hólt Baddi
áfram, allt f blfð-
skapnum, stálhraustur
og ballfær
Framhald á næstu sfðu
GREIN ARNI JOHNSEN
MYNDIR RAGNAR AXELSSON
• Hann sat á vegamótunum við
Voga. Slappaði af á góðum eld-
hússtól og fylgdist með æðandi
umferðinni um Keflavfkur-
veginn, algjör andstæða við þessa
hraðbraut tækninnar og var að
voma yfir rollunum. Þeir reistu
fyrir skömmu heimilislegt mann-
virki á mótum Keflavfkurvegar
og Voga á Vatnsleysuströnd,
rolluvaktarkofa til þess að
fylgjast með rolluskjátum sem
ætluðu að gera sig heimakomnar f
Vogunum. Hann sagði að svona
ein og ein reyndi að skjótast, en
engin af hans rollum, þær kynnu
sitt fag.
Baldvin Oddsson heitir þessi
heiðurskempa. Við höfðum verið
að koma frá Keflavfkurflugvelli
að ræða við Luns framkvæmda-
stjóra NATO. Hann hafði 7
mfnútur lausar, Baddi hafði
nógan tfma, hefur aldrei haft
tfma til að vera að hugsa um
tfmann.
Þetta er ágætis kofi, sagði hann,
svo cru þeir búnir að setja
þennan ffna stromp á með hitun
og öllum græjum. Við höfum
verið f jögur hérna til skiptis á
vaktinni.
Hann lék á als oddi, kvaðst vea
Vogamaður frá upphafi til enda
og okkur renndi f grun að hann
væri af þeirri manngerðinni sem
aðcins eitt eintak er til f hverjum
bæ, eitt eintak af sérkennilegu og
sætu mannlífi sem hægt er að
státa af.
Hann rólaði sér f stólnum
meðan við spjölluðum vi hann og
dinglaði stafnum sfnum af og til.
Sat þarna eins og vættur Reykja-
nessins með forláta kaskeyti á
höfðinu með svo glansandi fínu
ennisbandi að gilt hefði f
dýrindis ballskó.
Þær eru svolftið á röltinu
skjáturnar, sagði hann, en það er
ekert að ráði, maður vinkar þeim
bara til baka.
Baddi kvaðst fæddur í Minni-
Vogum 13. sept. 1897. Hefði
sfðan flutt f Selvoginn í
tvö ár með pabba sfnum
og mömmu, staldrað
við f Narfakoti f
Njarðvfkum, en
„Glaðlyndi
er boðorð
númer eitt
hjá mér”