Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1977
35
Siijiincjíarinn
PHILIPS
Gjöf til Húsa-
víkurkirkju
Húsavík 9. september.
I GÆR VAR til moldar borin á
Húsavik Kristjana Sigtryggsdótt-
ir sem sin búskaparár bjó á Húsa-
vik en andaðist í Reykjavík 92 ára
að aldri. Kristjana var gift Albert
Flóventssyni, vel þekktum Hús-
víkingi á sinni tíð, en hann var
lengst af verkstjóri Húsavíkur-
hrepps og er látinn fyrir allmörg-
um árum. Börn þeirra hjóna,
Sigurlaug, Sigtryggur Flóvent og
Kristinn Kolbeinn hafa í dag af-
hent Húsavikurkirkju að gjöf 120
þúsund krónur til minningar um
foreldra sina og systkin sem látin
eru. —Fréttaritari.
Kjöttunnu
stolið
ÞAÐ uppgötvaðist s.l. fimmtu-
dagsmorgun að lás hafði verið
brotinn upp á geymsluskúr sem
stendur á lóð ibúðarhúss við Sól-
eyjargötu i Reykjavík. Við nánari
eftirgrennslan sást að búið var að
taka plasttunnu, en húsráðand-
inn, aldraður maður, hafói nýlega
lokið víð að salta tvo kjötskrokka í
tunnuna og ætlaði til vetrarins.
Er mjög bagalegt fyrir manninn
að tapa kjötinu og eru það tilmæli
Rannsóknarlögreglu ríkisins að
allir þeir, sem veitt geta einhverj-
ar upplýsingar i málinu, gefi sig
fram.
i litsjónvarp
meö eðlilegum litum
Umboðsmenn um land allt:
Akranes
Borgarnes
Bolungarvík
ísafjörður
Hvammstangi
Blönduós
Sauðárkrókur
Siglufjörður
Verslunin Valfell
Kaupfélag Borgnesinga
Virkinn hf
Póllinn hf
K / F V Húnvetninga
K/F Húnvetninga
K/F Skagfirðinga
Aðalbúðin
Ólafsfjörður
Akureyri
Akureyri
Húsavík
Vopnafjörður
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Eskifjörður
Verslunin Valberg
Akurvik hf
KEA
Þ. Stefánsson
K / F Vopnfirðinga
Stál hf
Kristján Lundberg
Elís Guðnason
Fáskrúðsfjörðu Guðmundur Hallgrimsson
Hornafjörður KASK
Hella Mosfell
Vestmannaeyjar Kjarni
Vestmannaeyjar Stafnes
Selfoss Radio og sjónvarpsstofan
Keflavik Stapafell hf
Hafnarfjörður Ljós og raftæki
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3. SÍMI 20455 — SÆTÚNI 8. SÍMI 15655
AlitíLVSINtíASIMINN KK:
22480
Allan Edwall, höfundur leiksins og tveir af aðalleikendunum, Harald G. Haraldsson og Jón Hjartarson.
„Gary kvartmilljón”
frumsýnt hjá L.R.
Næstkomandi miðvikudag verð-
ur hjá Leikfélagi Reykjavíkur
frumsýnt leikritið Gary kvart-
milljón, eftir Allan Edwall. Höf-
undur verksins er jafnframt aðal-
leikstjóri þess og Sigríður Haga-
lín aðstoðarleikstjóri. Vigdis
Finnbogadóttir leikhússtjóri er
þýðandi verksins, auk annarra í
samvinnu. Aðspurð um nafn leik-
ritsins sagði Vigdis, að erfitt hefði
verið að finna því heiti á islenzku,
en naí'nið Gary kvartmilljón hefði
komið fram og fyrirmyndin þá sú,
að Islendingar eru næstum kvart-
milljón að tölu. Að sögn Vigdisar
fjallar leikritið um ungan mann
„á uppleið", fjölskyldu hans og
lifsmynztur þessa fólks. Leikur-
inn er aðlagaður íslenzkum að-
stæðum og gerist þannig i Reykja-
vik. Ungi maðurinn Gary er
starfsmaður i stóru fyrirtæki i
borginni og faðir hans hafnar-
verkamaður hjá Eimskip. Að-
spurður um efni verksins sagði
höfundurinn verkið fela í sér
þjóðfélagsádeilu á þann veg, að
tæknimenningin þurrki út ein-
staklinginn i samfélaginu. Innan
hverrar fjölskyldu verði tengslin
minni með aukinni velmegun nú-
timaþjóðfélagsins. Aðalleikendur
eru Harald G. Haraldsson, Soffía
Jakobsdóttir og Jón Hjartarson.
Höfundur leikritsins er Islend-
ingum að góðu kunnur, en hann
er jafnframt vinsæll leikari i
heimalandi sínu, Sviþjóð. í is-
lenzka sjónvarpinu hefur hann
m.a. komið fram i „Vesturförun-
um“ og „Emil i Kattholti", sem
voru vinsælir framhaldsþættir.
Hann hefur annars skrifað leikrit
fyrir svið og útvarp, skáldsögur,
kvikmyndahandrit og fl. Leikritið
Gary kvartmilljón er skrifað 1970
og hefur verið sýnt víða um Norð-
urlönd við góðar undirtektir, og
einnig stendur til að setja það upp
i London á næstunni.
Þrjú íslenzk leikrit verða á fjöl-
unum í Iðnó í vetur. Skjald-
hamrar og Saumastofan verða
sýnd áfram, en sýningar á hvoru
um sig eru þegar orðnar um 150.
Um áramótin verður leikrit Birgis
Sigurðssonar, Skáld-Rósa, tekið
til sýninga, en leikstjóri er Þor-
steinn Gunnarsson. Blessað
barnalán, leikrit Kjartans Ragn-
arssonar, verður sýnt í Austur-
bæjarbíói i vetur. 1 Iðnó verður
einnig sett upp leikritið Refirnir,
eftir bandariskan höfund, Lillian
Hellman, sem Steindór Hjörleifs-
son leikstýrir. Fyrir börn ng full-
orðna verður leikrit eftir Böðvar
Guðmundsson, Sæmundur á seln-
um, en leikendur eru stangar-
brúður og verður samvinna höfð
við Leikbrúðuland með sýning-
arnar. Guðrún Svava Svavarsdótt-
ir sá um leikbrúðugerðina