Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.09.1977, Blaðsíða 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11, SEPTEMBER 1977 Áhrifavaldarnir: Sókrates, Köstler og Solzhenitsyn MARXISMIM ER ÓPÍUM FÓLKSIVS Af \vju heimspekinfunum í Frakklandi, sem valdið hafa nmróti í frönskn menningarlífi EKKI er laust við að þ:ð ríki nokkur upplausn í menntamannaheiminum í Frakklandi og hefur svo verið um skeið eða allt frá því að nokkrir un«ir hujísuðir fóru að láta að sér kveða með ritum sínum. Þeir fóru þar ekki alfara- leið í þanka^angi franskra mennta- manna, þar sem Marx gamli og kenninsar hans hafa verið svo til einráð- ar sfðustu áratufíina. Þessir ungu menn afneituðu aftur á móti allri hugmynda- fræði hverju nafni sem hún nefnist en er þó sérstaklega í nöp við marxísk fræði, því að þeir telja að í sósíalismanum sé fólgið frjókorn einræðisins. Þarna kveður því við býsna nýstárlegan tón í franskri heimspekiumræðu, og ungu mennirnir hafa verið settir undir einn hatt og kenndir við Nýju heimspekina. skriparéttarhöldin i Moskvu, fangabúðirnar, aófarir kommúnista við að brjóta á bak aftur Ungverjalandsuppreisnína ásamt þróun kapitalismans á hóf- samari brautir og framþróun vel- ferðarþjóðfélaganna hafi beinlín- is gengið af hugmyndafræði 19. aldar dauðri. Hann segir það stað- reynd, að gamla hugmyndafræðin hafi glatað sannindum sínum og sannfæringarkrafti i augum hinna róttæku menntamanna, og fáir þenkjandi menn trúa því nú í raun og veru að unnt sé með áætlunargerð og samfélagslegri stýringu að koma á nýrri útópíu samfélagslegs samræmis. í krufningu sinni á samfélag- inu hafa heimspekingarnir nýju komizt að áþekkri niðurstöðu en þó með nokkrum öðrum hætti. Það sem þarna skiptir kannski fyrst og fremst máli er að þeir eru fulltrúar nýrrar kynslóðar gagn- rýnenda, sem sjá fram á bresti í stöðu marxismans einmitt þegar hann virðist standa hvað traust- ustuni fótum. Þeir fordæma sósialismann þegar meiri líkur eru á því en nokkru sinni fyrr að kosningabandalag jafnaðar- manna og kommúnista takist að ná völdum í þingkosningunum í marz n.k. og kalla kommúnista vonbiðla einræðisins i sama mund og Evrópukommúnisminn með fögrum fyrirheitum um að halda í heiðri leikreglur lýðræðisins, laðar til sín hópa menntamanna í Frakklandi, Italíu og á Spáni. Nýju heimspekingarnir vísa þó ekki einungis marxismanum á bug heidur hafa þeir einnig lýst fyrirlitningu sinni á kapítalism- an'um í ötlum sínum myndum. í stuttu máli þá þykja þeim hvers kyns kenningar hugmyndafræði- Þvi er haldið fram, að með tilkomu nýju heimspekinnar hafi ekki blómstrað jafn ákafar um- ræður um heimspekileg efni i reykjarkófi kaffihúsanna siðan tilvistarspekin existensíalisminn, Andre G lucksmann var upp á sitt bezta á sjötta ára- tugnum. Verk nýju heimspeking- anna hafa vakið slíka athygli, að bækur þeirra hafa undanfarið klifrað upp í hæstu hæðir á met- sölulistum í Frakklandi, þeir hafa verið kvaddir tíl kappræðna við hreintrúaða marxista í sjónvarpi og fengnir til fyrirlestrahalds á ítalíu, Spáni og Portúgal. Frakk- landforseti hefur boðið nokkrum þeirra til hallar sinnar til skrafs og leiðtogi franskra jafnaðar- manna, Mitterand, hefur látið hafa eftir sér að þessir ungu menn séu „of mikilvægir" til að unnt sé að afgreiða þá með stuttri umsögn en hefur heitið þvi að tjá sig nánar um skrif þeirra síðar meir og þá skriflega. Nýju heim- spekingarnir hafa þannig ekki þurft að kvarta undan tómlæti. Sú andstaða sem birtist í við- horfum nýju heimspekinganna gagnvart ýmsu, sem til þessa hafa nánast verið talin algild hug- myndafræðileg sannindi, eru þó ekki alveg ný af nálinni. Þvert á móti hafa ýmsir hugsuðir á Vesturlöndum látið frá sér fara verk í þessa veru og má þar kannski fyrstan nefna Arthur Köstler, sem e.t.v. má telja nokkurs konar guðföður heim- spekinganna ungu, en Köstler gekk snemma á fjórða áratugnum á hönd kommúnstum en hvarf úr þeim herbúðum aftur eftir sjö ára starf bitur og vonsvikinn. Þessi reynsla hans af brostnum fyrir- heitum kommúnismans hefur verið grundvöllur flestra verka hans fram á þennan dag. Bandaríski þjóðfélags- fræðingurinn Daniel Bell hefur einnig haldið því fram í einni bók sinni, að ýmsir atburðir tuttugustu aldarinnar, svo sem legs eðlis vera beinlinis hættu- lega blekkingu. Nýju heimspekingarnir hafa ekki myndað með sér formleg samtök heldur er þetta lauslega tengdur hópur átta eða níu menntamanna, sem hafa i grund- vallaratriðum komizt að þeirri sömu niðurstöðu, hvilíkt hjóm hugmyndafræðin sé en þá greinir á um ýmis atriði. Þeir eru á aldrinum frá 28 ára til fertugs og byggja margir hverjir á ekki ósvipaðri reynslu. Stúdenta- og Bernhard-Henri Levy verkamannaóeirðirnar miklu 1968, sem nærri höfðu steypt stjórn De Gaulle úr valdastóli, hafa sett mark sitt á þá flesta. Þeir telja að kommúnistar hafi þar svikizt aftan að þessari hreyf- ingu fjöidans og í því skyni að stilla til friðar innan flokksins hafi þeir gerzt handbendi stjórn- arinnar í viðleitni hennar að berja óeirðirnar á bak aftur. Allir hafa orðið fyrir verulegum áhrif- um frá Solzhenitsyn og verkum hans, þar sem hann sýnir fram á hörmungar fangabúðanna i Sovét- ríkjunum en um leið mannlega reisn þeirra manna sem það viti gista. Sumir þeirra sögðu skilið við sovézka kommúnismann og leituðu á náðir Maós en urðu þar einungis fyrir enn meiri von- brigðum er þeir spurðu þá kúgun sem á sér stað í þessu stóra landi. Fyrirmynd þeirra nú er fyrst og fremst Sókrates — heim- spekingurinn spuruli, and- stæðingur ríkisins. En hverjir eru þá þessir nýju heimspekingar? Andre Glucksmann er einn helzti framámaður þeirra og afkastamikill rithöfundur. Hann nánast drakk í sig kommúnismann með móður- mjólkinni. Foreldrar hans urðu að flýja til Frakklands frá Þýzka- landi nasismans og hann var orð- inn félagi í Kommúnistaflokkn- um franska aðeins 14 ára gamall. Síðan lá leið hans á náðir Maós og síðar var hann viðriðinn ýmsa aðra öfgahópa vinstri manna unz hann sneri við blaðinu, ekki sízt fyrir áhrif frá verkum Solzhen- itsyn. Hann hefur rannsakað heimspekilega skipan nútimans, eins og hún þróaðist i kjölfar kenninga Fichte, Hegel, Marx og Nietzsche á 19. öld og gerir þá ábyrga fyrir hugtakinu „mannleg visindi“ er geri ríkjum nútímans kieift að stjórna þegnum sinum og fyrir að hafa fundið upp hug- myndina að hinni algjöru byltingu, þar sem fortíðin er þurrkuð út til að koma um kring heilaþvotti á fólkinu í nafni hinnar fögru nýju veraldar. Glucksmann segir, að i Frakk- landi núna sé að vaxa úr grasi hópur ungra sósialista, sem á ný þarfnist fyrirheitsins um umbylt- ingu þjóðfélagsins en neiti því að grannskoða hvað raunverulega hafi gerzt fyrir tilstilli sósialism- ans. „Það er ekki fyrr en maður hefur gert sér ljóst, að riki er ekki síður hættuiegt en einokun einka- framtaksins, að maður kemst að raun um að þjóðnýting • iðnaðarins, eins og vinstri menn leggja til, mun engu breyta,“ segir hann. Bernard-Henri Levy er aðeins 28 ára að aldri eða 12 árum yngri en Glucksmann, hefur kennaragráðu í heimspeki, á að baki feril sem vinstri sinnaður blaðamaður og starfar nú við út- gáfufyrirtæki í París. Hann hefur lagað dálítið til hina gamalkunnu alhæfingu Leníns og segir: „Marxisminn er ópíum fóiksins." Hann hefur af þvi áhyggjur, að margt ungt fólk vilji ekki viður- kenna fyrir sjálfu sér, að kapitalisminn, sem það hafi svo lengi skoðað sem óvin sinn, og sósíalisminn séu i raun sami grauturinn, og af tvennu illu kjósi hann nú fremur kapitalismann. Jean-Marie Benoist er aðstoðarprófessor við einn háskól- ann i Frakklandi og stingur nokkuð í stúf við aðra í hópi Nýju heimspekinganna, því að hann á að baki feril innan stjórnkerfisins í tíð De Gaulle. Hann heldur þvi fram, að heimspekin likt og póli- tiskar skoðanir hafi um langt skeið verið yfirþyrmd af kenningum Marx og Maós. Tima- bilið nú sé ekki ósvipað því er var þegar Galileo átti í höggi við hina aristótelísku þráhyggju i upphafi endurreisnarinnar og hann sér

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.