Morgunblaðið - 22.09.1977, Side 17

Morgunblaðið - 22.09.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1977 17 „...mannlífid í frumstæðri nekt sinni...” Norræn kvik- myndavika hef st álaugardag FYRSTA norræna kvikmyndavikan hér á landi hefst laugardaginn 25. september og mun standa fram á sunnudag 2. október. Að vikunni standa samtök norrænu vinafélag- anna og Norræna húsið, og boð- uðu þau til blaðamannafundar af þessu tilefni. Hjálp við undirbúning — Samtök norrænu vinafélag- anna voru stofnuð árið 1973 og hafa þau haft nokkur verkefni með höndum. t.d var efnt til listahátíðar í Háskólabíói 1 apríl 1973 vegna eldsumbortanna á Heimaey og var ágóðinn af henni um 1 milljón kr , sem rann í Vestmannaeyjasöfnun- ina, sagði Hjálmar Ólafsson, fram- kvæmdastjóri samtakanna Hjálmar sagði, að við undirbúning norrænu kvikmyndavikunnar hefðu samtökin fengið mikla hjálp frá Arnljot Eng, fyrrum forstjóra kvik- myndahúsa Óslóarborgar og Frið- finni Ólafssyni bíóstjóra Á fundinum var einnig Ingibjörg Haraldsdóttir kvikmyndafræðingur, en hún hefur valið allar myndirnar á vikunni: „Ég valdi þær sem mér fundust beztar" — Ég var ráðinn til að velja myndirnar og fór til Norðurlanda til þess og valdi 9 myndir af u.þ.b. 40 sem ég sá Þessar myndir skiptast þannig á löndin, að tvær eru frá Danmörku, Noregi og Finnlandi, en þrjár frá Svíþjóð Ingibjörg sagði að flestar mynd- irnar væru frá siðasta ári, en ein þeirra væri frá 1973 — Ég fór út með það hugarfar að velja kvikmyndir sem höfðuðu til flestra, ég sá margar, en erfitt var að velja, og að lokum ákvað ég að velja þær sem mér fundust beztar Aðspurð hvaða mynd henni fynd- ist bezt af þessum sem hún valdi svaraði Ingibjörg: — Finnska mynd- in „Jörðin er syndugur söngur" er bezt að minum dómi og mestur fengur að henni enda talin vera ein bezta mynd sem Finnar hafa gert Þessi mynd á erindi til allra Lítið framboð af barnamyndum Ein barnamynd er sýnd á þessari viku, hún er sænsk og verður sýnd fimm sinnum, en aðrar myndir verða sýndar þrisvar sinnum hver — Ég ætlaði mér að fá a m k tvær barnamyndir á þessa viku, en það rikir kreppa í barnamyndakvik- myndagerð, framboðið af þeim er alls ekki nógu gott og flestar sem ég sá voru mjög óvandaðar, þvi varð einungis ein fyrir valinu Ingibjörg sagði að ekki væru haldnar svona kvikmyndavikur reglulega á öðrum Norðurlöndum, þar er meiri samgangur milli land- anna með myndir, en við fáum sjald- an að sjá kvikmyndir frá Norður- löndunum og ætti þetta því að vera kjörið tækifæri til að kynnast þeim .... lifið er barátta og dauðinn snöggur og grimmur" Frá Danmörku koma myndirnar „Drengir" og „Blindur félagi" ..Drengir" fjallar um þrjú tímabil í ævi ungs manns og lýsir uppeldi hans sem á að vera mjög gott og óaðfinnanlegt Myndinni lýkur þeg- Úrfinnsku myndinni „Sólarferð" Úrdönsku myndinni „Drengir". Á geðveikraspítalanum i „Nær og fjær" (sænsk). ar hann er orðinn 23 ára og sýnir ..útkomuna" Leikstjóri ..Drengja" Nils Malmros er sjálfmenntaður kvikmyndastjóri og þurfti að berjast til að vera úpp- götvaður. Leikstjóri myndarinnar ..Blindur félagi" heitir Hans Kristensen og þetta er þriðja mynd hans, eins konar framhald myndarinnar ,.Per” sem sýnd hefur verið hér á landi, og fjallaði um ungan mann sem var á móti kerfinu, „Blindur félagi" fjallar um aðgerðir vina til að hindra að gamalt hús i Kaupmannahöfn, sem þeir búa í, verði rifið Kvikmyndin " Jörðin er syndugur söngur" kemur frá Finnlandi og er eins og áður er sagt talin með lang- beztu myndum finnskum Leikstjóri hennar heitir Rauni Mollberg og er þetta hans fyrsta myn, þó að hann hafi starfað lengi sem leikstjóri og leikari i leikhúsum og sjónvarpi Myndin á að gerast i litlu þorpi i suðurhluta Lapplands á eftirstriðsár- unum og ségir Ingibjörg um mynd- ina í leikskrá: „Hér er fjallað um mannlifið í frumstæðri nekt sinni, þar sem kynlif, ást og trúarbrögð eru náttúrufyrirbæri. þar sem lífið er barátta og dauðinn snöggur og grimmur Aðalpersónan er Marta, ung stúlka sem þroskast gegnum sumar. vetur. vor og haust og kynn- ist lifinu, ástinni og dauðanum " Hin finnska myndin heitir „Sólar ferð", og er stjórnað af einum þekktasta kvikmyndastjóra Finna. Risto Jarva „Sólarferð" er gamanmynd um mann sem ætlar í skiðaferð, en lendir óvart i sólarferð til Rhodos Bílasali sem stjórnar danshljómsveit Norsku myndirnar eru: „Sumarið sem ég varð fimmtán ára" sem stjórnað er af Knut Andersen, mjög umtöluð mynd, og hin myndin er „Við" sem Laila Mikkelsen stjórnar Hún fjallar um hvernig ungt fólk reynir að bjarga sér frá atvinnuleysi og vöruskorti sem skapast af krepp- um, en þetta er mynd sem sýna á hvað getur gerzt í náinni framtíð Búið er að nefna myndina „Agaton Sax" sem kemur frá Svi- þjóð og er barnamynd, en reyndar þannig að öll fjölskyldan á að hafa gaman af Þetta er teiknimynd og henni stjórnar Stig Lasseby „Sven Klang Kvintettinn" fjallar um bilasala sem stjórnar litilli dans- hljómsveit í hjáverkum. en hún á að gerast árið 1958, og lýsir samskipt- um hljómsveitarmeðlima, átökum þeirra um hvort hljómlistin eigi að vera söluvara eða eitthvað meira Stellan Olsson stjórnar myndinni og þess má geta að hún fékk verð- laun fyrir beztu leikstjórn 1976 hjá sænska kvikmyndatímaritinu „Chaplin" Þriðja kvikmyndin sem er frá Sví- þjóð heitir „Nær og fjær", og stjórnar henni Marianne Ahrne, hennar fyrsta mynd í fullri lengd Myndin fjallar um samskipti lækna og sjúklinga á geðveikrahæli, og um möguleika þeirra til að finna ást og skilning í samskiptum sínum við aðra Framhald ef vel tekst Sýningarnar verða haldnar í Nýja Bíói. og sagði Hjálmar Ólafsson að framkvæmdastjórn Nýja Bíós hefði sýnt mikinn skilning og hjálpsemi við framkvæmd hugmyndarinnar um þessa kvikmyndaviku — Við munum reyna að hafa framhald á svona norrænum kvik- myndavikum, ef að þessi tekst vel og aðsókn verður næg Það er til- gangur með þessari viku að kynna norrænar myndir og örva um leið áhuga stjórnenda kvikmyndahúsa á að hafa oftar norrænar myndir til sýninga i húsum sínum, sagði Hjálmar að lokum Miðaverð á myndirnar er það sama og venjulegt aðgöngumiða- verð Dagskrá kvikmyndavikunnar nor- rænu er þannig (breyting áskilin) Laugardagur 24 sept Kl 5 (opnun): Sven Klang Kvintett- inn. Kl 7 Blindur félagi Kl 9 Jörðin er syndugur söngur Sunnudagur 25 sept Kl 3 og 5 Agaton Sax (barnamynd) Kl 7 Sólarferð Kl. 9: Við Mánudagur 26 sept Kl. 5: Nær og fjær Kl 7: Drengir Kl 9 Sumarið sem ég varð fimmtán ára Þriðjudagur 27. sept Kl. 5: Blindur félagi Kl 7: Jörðin er syndugur söngur Kl 9: Sólarferð Miðvikudagur 28 sept Kl 5: Sólarferð Kl 7: Nær og fjær Kl 9 Blindur félagi Fimmtudagur 29 sept Kl 5: Jörðin er syndugur söngur Kl 7: Sven Klang kvintettinn Kl 9 Drengir Föstudagur 30 sept Kl 5: V.ð Kl 7 Sumarið sem ég varð 1 5 ára Kl 9 Nær og fjær. Laugardagur 1 okt Kl 5: Agaton Sax Kl 7: Við Kl 9 Sumarið sem ég varð 1 5 ára Sunnudagur 2 okt Kl 3 og 5 Agaton Sax Kl 7 Drengir Kl 9 Sven Klang Kvintettinn — Millión Framhatd af bls. 1 Sagói hún aó Bandarikjamenn greiddu iðulega tiu þúsund dollara. Auk þess verða kjör- foreldrar aö greiða ferðina til Beirut til að ná i börnin — Lífshagsmunir Framhald af bls. 1 marséraði og hljómsveit lék þjóð- söngva landanna. Með forsætis- ráðherra voru m.a. Ishkov sjávar- útvegsráðherra, Zunskov vara- utanríkisráðherra og Farafanov sendiherra Sovétríkjanna á Is- landi. Eftir athöfnina við Kremlar- múra var haldið í Katrínarsal Kremlarhallar, sem er allur gulli sleginn um loft og veggi. Gólfið er úr góðviði og innlagt mislitum viði, einhver íburðarmesta ívera sem blaðamaður Mbl. hefur kom- ið í. Fyrst snerust viðræðurnar, sem fram fóru á rússnesku og íslenzku með aðstoð túlks, um fiskveiði og hafréttarmál. Því næst var rætt um viðskiptamál þjóðanna og óhagstæðan vöruskiptajöfnuð ís- iendinga. Þá var rætt um menn- ingarmál, aðild íslendinga að NATO eins og áður er getið, Öryggismál og almennt um al- þjóðamál, vigbúnað og hvers vegna þjóðir vígbyggjust og hefðu varnir. Rætt var um afvopnun og Vietnam, afstöðu Sovétrikjanna til Kína og einnig var rætt um SALT-viðræðurnar. Geir Hallgrímsson sagði í við- tali við Morgunblaðið að ágrein- ingsefnum rikjanna í hafréttar- málum fækkaði greinilega. Hann sagðist hafa lagt á það ríka áherzlu, að lífshagsmunir strand- ríkja yrðu tryggðir. Hann kvað sjónarmið Sovétríkjanna hafa verið almenns eðlis, að tryggja bæri hagsmuni allra. Þá var rætt um vísindaleg sam- skipti, einkum hvað varðaði fisk- verndun og Geir Hallgrímsson sagðist hafa látið i ljós að hann teldi menningarsamskipti land- anna í eðlilegum farvegi. Hann kvað Kosygin hafa sagt að Sovét- stjórnin hefði verið gagnrýnd fyr- ir að Bolshoiballettinn væri yfir- leitt dansandi alls staðar annars staðar en i Moskvu. Þvi hefði hann sagt að ballettinn væri velkominn til Islands. Á meðan viðræðurnar fóru fram skoðaði Erna F’innsdóttir, ásamt föruneyti, Tretjakov- listasafnið og síðan Ríkisbókasafn Sovétríkjanna. Loks fóru for- sætisráðherrahjónin í heimsókn i Moskvuháskóla, þar sem Geir Hallgrimsson var sæmdur heiðursmerki háskólans. í skólan- um eru um 28 þúsund stúdentar og 1500 kennarar. Dagskránni lauk síðan í kvöld með kvöldverði sem Kosygin hélt til heiðúrs islenzku forsætisráð- herrahjónunum og var hann hald- inn í gulli slegnum Granovitajasal stóru Kremlarhallarinnar. Í fyrramálið verður skoðunar- ferð um Moskvu og Kreml. i hádeginu verður opinbert hádegisverðarboð íslenzká for- sætisráðherrans og síðan verður skoðuð Þjóðarbúskaparsýning Sovétríkjanna. Um kvöldið verða opinberu gestirnir í Bolshoileik- húsinu. — Lance Framhald af bls. 1 náinn vinur hans, þar sem Lanee kvaðst hafa afráðið að segja af sér starfi. ,,Mér er hryggð i huga á þessari stundu. Hann er góður mað- ur,“ sagði forsetinn og bætti við að þrátt fyrir þetta stæði trú hans á heiðarleika og ráð- vendni Lanee óhögguð. Carter var í nokkurri geðshræringu að sjá. Hann ítrekaði hvað eftir annað að hann þekkt Bert Lanee eins og sjálfan sig og hann vissi hann vera góðan og heiðarlegan mann. Carter sagði að sá áburður sem Lance hefói verið borinn væri ger- samlega ósannaður og ekkert hefði hann heyrt né séð sem hefði dregið úr trausti sinu á Lance. — Líbanskar Framhald af bls. 1 óhemju mikilvægt að bardögum yrði samstundis hætt. Bardagar héldu áfram á svæðunum i suðurhluta Libanons í dag og eldflaugar sem var skotið frá libönsku landsvæði lentu nyrzt í Israel að þvi er fréttir hermdu í kvöld. Lentu fyrstu eld- flaugarnar á bænum Safad, sem er um 15 km frá landamærunum. Slösuðust nokkrir við þennan atburð. Talsmaður israels sagði að nokkru síðar hefðu flaugar lent á fleiri borgum og bæjurn^ israelar svöruðu i sömu mynt. Að öðru leyti voru fréttir frá þessum stöðum mjög óljósar i kvöld og ekki auðvelt að átta sig á hvernig framvinda mála er þar nú. Svo virtist þó í kvöld, að israelskar hersveitir, sem hafa farið yfir líbönsku landamærin, væru að festa sig betur i sessi og stæðu yfir bardagar milli þeirra og Palestinuskæruliða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.