Morgunblaðið - 22.09.1977, Page 27

Morgunblaðið - 22.09.1977, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1977' 27 því hann virtist vilja skila öllu sem hann vann þannig að hann gæti ekki um bætt. Hygg ég að kunnugir viður- kenni að hér sé ekki ofmælt. Mér er minnisstætt, að síðasta sumarið sem hann hafði fótavist, vafalaust farinn að heilsu, stóð hann margan dag er veður leyfði við slátt úti i óræktarmóa og hlífði sér hvergi, enda var slíkt ekki vani hans. Mundi og öðrum ekki hafa stoðað að aftra honum. Undraði mig hve mikið hey þetta var að lokum i svo erfiðu heyr- skaparsumri sem þetta var. Við að koma þessum heyfeng á sinn stað naut hann dyggilegrar hjálpar sonarsonar síns og annarra góðra vina. Þegar svo þetta var komið í vel upp gerðan galta, með yfir- breiðslu og neti yfir, gekk gamli maðurinn í kringum verk sitt og aðgætti nákvæmlega hvort allt væri ekki í lagi og er honum þótti sv^ vera tók hann upp pípu sina Qg kveikti í og sagði svo: ,,Nú skulum við koma inn og fá okkur kaffisopa." Að lokum vil ég svo tjá þeim látna einlæga þökk fyrir alla hans vinsemd i minn garð fyrr og síðar. Við biðjum höfund alls lífs að blessa hann á hans nýju lifsbraut. Eftirlifandi systir hans biður þessar línur að flytja honum sér- stakar hjartans þakkir fyrir öll þeirra samskipti og segir að á þau hafi aldrei fallið skuggi. Sólmundur Sigurðsson ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast f sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnubili. r. Islendingar flýjafrönsku í Montreal tSLENDINGUM búsettum f Que- bec-fylki f Kanada mun hafa fækkað talsvert að undanförnu og enn aðrir hyggjast flytjast þaðan á næstunni. t blaði tslendinga f Vesturheimi, Lögbergi — Heims- kringlu, nýlega segir að ástæðan fyrir þessu sé sú að nú verði franska aðalmálið f fylkinu og höfuðáherzla lögð á það mál f skólum. Ræðir blaðið við örn Árnason, sem verið hefur búsettur í Montreal i nokkur ár. Segir hann að margir séu þegar farnir frá Montreal, sumir aftur heim til Islands, en aðrir til annarra staða í Kanada. — Margir þeirra sem störfuðu hjá Air Canada í Montreal hafa nú fengið vinnu hjá fyrirtækinu í Winnipeg. Ekki er vitað með vissu hve margir tslendingar hafa flutst búferlum, en Örn sagði að nú væru ekki nema örfáir landar eftir i Montreal, hefur Lögberg Heims- kringla eftir Erni Arnasyni. Hart deilt á Kruger Jóhannesarborg, 19. sept. Reuter. HELZTI talsmaður stjórnarand- stöðunnar í Jóhannesarborg, Hel- en Suzman, hefur karfizt þess að dómsmálaráðherrann, James Kruger, segi af sér fyrir afglöp i starfi vegna máls Steve Biko, sem lézt í gæzluvarðhaldi f sfðustu viku. Frú Suzman fordæmdi harð- lega varðhaldslög landsins og málsmeðferð Krugers í þessu til- tekna tilfelli, og var henni ákaft fagnað á fjölmennum fundi, þeg- ar hún krafðist þess, að dóms- málaráðherrann segði af sér. Peningaskápur og skrifstofuhúsgögn. Til sölu vegna flutninga eru peningaskáp- ur, innanmál 40x60 cm., ásamt undir- skáp og nýleg skrifstofuhúsgögn, þ.e. stórt skrifborð með hliðarborði og hillu- skápur. Vel með farið. Upplýsingar í síma 13028 Iðnminja sýningM í Arbæ I dag kl. 15:00 á 20 ára afmæii Árbæ jarsafnsins opnar sérstök iðnminjasýning í sýningarsal Árbæjarsafns- ins. Á sýningunni verða sýnd gömul iðnverkstæði, hlutir úr iðnminjasafni Þjóðminjasafnsins, o.fl. Sýningin verður opin daglega frá kl. 16:00 — 22:00, og kl. 14:00 — 22:00 um helgar. Aðgangur er ókeypis. Sérstök fólksflutningabifreið, yfirbyggð af Agli Vil- hjálmssyni í Reykjavík fyrir 30 árum, flytur gesti iðn- kynningar frá Laugardalshöll til Árbæjarsafns. IÐNKYNNING í REYKJAVÍK ***** Vidarþiljur sem vekja athygh' IÐNSPÓNS VIÐARÞILJURNAR NÚ LOKSINS FYRIRLIGGJANDI í: □ ASKUR □ ÁLMUR □ EIK □ FURA □ HNOTA □ MAHONY □ OREGON PINE □ TEAK □ PALESANDER [—] WENGE Þær eru sérstaklega lakkaðar með síruhertu lakki. Ef um stærri pantanir er að ræða má velja spóninn sérstaklega Við komum á staðinn, tökum öll mál og sjáum um uppsetningu. Til afgreiðslu með stuttum fyrirvara. Staðfestar pantanir óskast sóttar sem fyrst IÐNSPÓNN H.F. Skeifan 8, sími 38555. Kalmar Grensésvegi 22 Reykiavlk sími 82645 innróttingar hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.