Morgunblaðið - 09.10.1977, Blaðsíða 1
72 SIDUR
223. tbl. 64. árg.
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Um 100 stuðn-
ingsmenn Indíru
handteknir í gær
Nýju-Delhí8. okt. Reuter.
TÆPLEGA 100 stuðnings-
menn Indíru Gandhís,
fyrrum forsætisráðherra
Indlands, voru handteknir
í Nýju-Delhí í dag, er lög-
reglan leysti upp mót-
mælafund fyrir utan ríkis-
útvarpsbygginguna í borg-
Myrrífin af Schle.ver, sem birtist f gærmorgun f fransKa blaðiiíu Liberation. Gunnfáni "Rauðu
herdeildarinnar" er f baksýn, en á spjaldtnu fyrir framan Schleyer er áminningin um ao málio
sé verulega farið að dragast á langinn. Þessf mynd af Schleyer ber þess Ijósan vott að hann
hefur grennzt mjög f prfsundinni, en litla myndin til hægri var tekin skömmu áour en honum
var rænt fyrir fimm vikum. (AP-símamynd)
„Fangi í 31 dag" leggur
ad vestur-þýzku st jórn-
inni ad flýta ákvörðun
inni, þar sem verið var að
mótmæla því sem stuðn-
ingsmennirnir kölluðu
hlutdrægan fréttaflutning
af stuðningsfundum fyrr í
vikunnu.
Héldu þeir þvi fram að ekki
hefði verið minnzt á fjölmenna
fundi stuðningsfölks frú Gandhis
í útvarpi eða sjónvarpi, en sjón-
varpað og útvarpað hefði verið
frá fámennum fundum andstæð-
inga hennar úr Janataflokknum.
Lögreglan beitti táragasi og
handtók rúmlega 90 manns i
skjóli laga, sem banna samkomur
fleiri en 5 manna.
Blöð : Indlandi skýrðu frá þvi i
dag, að Kongressflokkurinn und-
irbyggi nú að kjósa frú Gandhi á
ný forseta sinn og ætlaði þannig
að nota sér þá samúð, sem hún
nýtur eftir handtökuna fyrr í vik-
unni.
Diefenbaker um
Bonn — 8. október — Reuter.
V-ÞYZKA öryggislögreglan leit-
ast nú við að ganga úr skugga um
hvort bréfið, sem í nótt barst
svissneskri fréttastofu, sé óf alsað,
en bréfið á að vera frá v-þýzka
iðnrekandanum Hanns-Martin
Schleyer, sem rænt var fyrir
Námuslys;
Tíu manns
er saknað
Welkom S-Afríku
8. október Reuter
Björgunarmenn unnu f
alla nótt við að bjarga
námamönnum úr Saai-
plaatsnámunni í S-Afríku,
eftir að 65 þeirra lokuðust
niðri á 900 metra dýpi er
lyfta slitnaði og féll til
botns er verið var að hífa
hana upp með 12 tonn af
gullgrjðti.
4 námamenn biðu þegar
bana er þeir urðu undir
lyftunni, en 10 manns er
saknað. 55 tókst að bjarga í
nótt. Óttast björgunar-
menn að mennirnir 10 séu
látnir, þar sem ekkert hef-
ur til þeirra heyrzt.
Lyftan var rétt að kom-
ast upp á, yfirborðið er
taugin slitnaði og hún féll
900metraniður.
tinini vikum. Með bréfinu fylgdi
mynd af gfslinum með áletrun-
inni „Fangi f 31 dag". Gögn þessi
birtust í franska blaðinu Libera-
tion í dag, en á myndinni eru
einkennisstafir „Rauðu herdeild-
arinnar" eins og Baader-
Meinhofklfkan kýs að nefna sig.
t bréfinu er Schleyer sagður
leggja mjög áð Bonn-stjórninni
að flýta ákvörðuninni um hvort
samið skuli við mannræningjana.
Bréfið er dagsett 6. þessa mánað-
ar, en í dag hefur innanríkisráð-
herra V-Þýzkalands, Werner
Maihofer, boðað til skyndifundar
þar sem ákvörðun verður tekin
um viðbrögð stjórnarinnar við
þessari framvindu mála.
Talið er að þetta lífsmark úr
herbúðum mannræningjanna sé
svar við skilaboðum, sem þeir
fengu frá Bonn-stjórninni 30.
september. Að þvi er næst verður
komizt fóru þau skilaboð um ;
hendur Svisslendingsins Denis
Payot eftir að mannræningjarnir
höfðu enn itrekað hótun sina um
að Schleyer yrði myrtur nema 11
hryðjuverkamönnum yrði sleppt
úr v-þýzkum fangelsum án tafar.
í bréfinu sem er handskrifað og
undirritað af Schleyer er því
haldið fram að Payot sé gagnslaus
milligöngumaður, um leið og bent
er á að rán „Japanska rauða hers-
ins" á japönsku farþegaþotunni á
dögunum hafi Ieitt í ljós, að
„sumar rikisstjórnir" séu fúsar til
að taka við föngum, sem látnir
séu lausir i skiptum fyrir gísla.
Imfira Gandhi
John F. Kennedy:
Hrokafull-
ur, ráðrík-
ur og illa
upplýstur
Toronto 8 október Reuter
JOHN Oiefenbaker, fyrrum for-
sætisráSherra Kanada, segir i
þriðja og si'Sasta bindi sjálfsævi-
sögu sinnar, að John F. Kennedy,
fyrrverandi Bandarikjaforseti,
hafi verið maSur, sem hefði auö
veidlega getað leitt heiminn fram
á barm kjarnorkustyrjaldar a8
eins til að sanna manndóm sinn
fyrir umheiminum, að hann væri
hugrakkur forystumaSur vest-
ræns lýðræðis.
Diefenbaker gagnrýnir Kennedy
harðlega og segir hann hafa verið
hrokafullan, ráðrikan og illa upp-
lýstan og ef hann hefði ekki verið
kosinn forseti Bandarikjanna hefðu
samskipti Kanada og Bandarikj-
anna verið mun betri Meðal mála,
sem Diefenbaker segir að sér hafi
gramizt, nefnir hann tilraunir Kenn-
edys til að koma í veg fyrir kornsölu
Kanadamanna til Kína, aðstoð hans
við frjálslynda í Kanada til að koma
stjórn íhaldsflokksins frá og svo að
hann hefði ekki ráðgazt við sig
meðan á Kúbudeilunni stóð
Diefenbaker var forsætisráðherra
árin 1957—1963-
Manntjón í mikl-
um flóðum á ítalíu
Feneyjum — 8. októver — Reuter
AÐ MINNSTA kosti 10
manns hafa látið lífið og
margra er saknað í miklum
flóðum sem komið hafa í
Ný norsk barnalöggjöf:
Opinbert eftirlit með
velferð barna aukið
NORSKA stjórnin hefur lagt
fram ( Stórþinginu frumvarp
að nýrri löggjöf um vernd
barna og ungmenna, en þar er
meðal annars gert ráð fyrir því,
að skipaður verði sérstakur um-
boðsmaður til að gæta hags-
muna þessa aldurshóps, svo og
að hið opinbera hafi eftirleiðis
meiri áhrif á stöðu barna innan
heimilisins. Veigamikill þáttur
hinnar iiy.jii iöggjafar beinist
að því að tryggja lagalegan rétt
barnsins í þjóðfélaginu.
Sá kafli frumvarpsins sem
lýtur að hlutverki umboðs-
mannsins er það, sem helzt hef-
ur orðið tilefni almennra um-
ræðna i þessu sambandi. Er
umboðsmanninum i'inkum ætl-
að að gæta hagsmuna barna og
ungmenna í sambandi við opin-
berar áætlanir en einnig að
gildandi lögum um velferð
barna sé framfylgt á viðunandi
hátt, og að lagalegur réttur
þeirra gagnvart hinum ýmsu
stofnunum þjóðfélagsins sé
ekki fyrir borð borinn.
Framhald á bls. 39.
Allesandria-héraði á ítalíu.
Þorp á flóðasvæðinu hafa
einangrazt þar eð sam-
gönguleiðir eru tepptar og
símasamband rofið, en auk
þess hefur hraðbrautin
milli Feneyja og Mílanó
verið lokuð undanfarinn
sólarhring. Fara flóðin
vaxandi, en ljóst er að þau
hafa þegar valdið gífurlegu
tjóni.
Þriggja manna fjöl-
skylda i bænum Tortona
lét lífið þegar vatnselgur-
inn fyllti kjallaraíbúð. Er
óttazt að mun fleiri hafi
•ilátið lífið með sama hætti,
og er látlaust leitað i hús-
um þar sem líkur eru á að
fólk hafist við og sé í hættu
statt.
Flóðin komu í kjölfar úr-
hellisrigningar sem nú hef-
ur staðið í fjóra daga lát-
laust.