Morgunblaðið - 09.10.1977, Qupperneq 1
72 SIÐUR
223. tbl. 64. árg.
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Um 100 stuðn-
ingsmenn Indíru
handteknir i gær
Nýju-Delhi8. okt. Reuter.
TÆPLEGA 100 stuðnings-
menn Indíru Gandhís,
fyrrum forsætisráðherra
Indlands, voru handteknir
í Nýju-Delhí í dag, er lög-
reglan Ieysti upp mót-
mælafund fyrir utan ríkis-
útvarpsbygginguna í borg-
Myrraín af Schlever. sem birtist f gærmorgun f franska bladínu Liberation. Gunnfáni “Rauðu
herdeildarinnar“ er f baksýn, en á spjaldinu fyrir framan Schleyer er áminningin um að málid
sé verulega farið að dragast á langinn. Þessi mynd af Schleyer ber þess Ijósan vott að hann
hefur grennzt mjög f prfsundinni, en litla myndin til hægri var tekin skömmu áður en honum
var rænt fyrir fimm vikum. (AP-símamynd)
„Fangi í 31 dag” leggur
að vestur-þýzku st jórn-
inni að flýta ákvörðun
Bonn —8. október — Reuter.
V-ÞVZKA öryggislögreglan leit-
ast nú við að ganga úr skugga um
hvort bréfið, sem í nótt barst
svissneskri fréttastofu, sé ófalsað,
en bréfið á að vera frá v-þýzka
iðnrekandanum Hanns-Martin
Schleyer, sem rænt var fyrir
Námuslys:
Tíu manns
er saknað
Welkom S-Afríku
8. október Reuter
Björgunarmenn unnu í
alla nótt við að bjarga
námamönnum úr Saai-
plaatsnámunni í S-Afríku,
eftir að 65 þeirra lokuðust
niðri á 900 metra dýpi er
lyfta slitnaði og féll til
botns er verið var að hífa
hana upp með 12 tonn af
gullgrjóti.
4 námamenn biðu þegar
bana er þeir urðu undir
lyftunni, en 10 manns er
saknað. 55 tókst að bjarga í
nótt. Óttast björgunar-
menn að mennirnir 10 séu
látnir, þar sem ekkert hef-
ur til þeirra heyrzt.
Lyftan var rétt að kom-
ast upp á, yfirborðið er
taugin slitnaði og hún féll
900 metra niður.
inni, þar sem verið var að
mótmæla þvf sem stuðn-
ingsmennirnir kölluðu
hlutdrægan fréttaflutning
af stuðningsfundum fyrr í
vikunnu.
Héldu þeir þvi fram að ekki
hefði verið minnzt á fjölmenna
fundi stuðningsfölks frú Gandhís
í útvarpi eða sjónvarpi, en sjón-
varpað og útvarpað hefði verið
frá fámennum fundum andstæð-
inga hennar úr Janataflokknum.
Lögreglan beitti táragasi og
handtók rúmlega 90 manns i
skjóli laga, sem banna samkomur
fleiri en 5 manna.
Blöð Indlandi skýrðu frá þvi í
dag, að Kongressflokkurinn und-
irbyggi nú að kjósa frú Gandhi á
ný forseta sinn og ætlaði þannig
að nota sér þá samúð, sem hún
nýtur eftir handtökuna fyrr í vik-
unni.
fimm vikum. Með bréfinu fylgdi
mynd af gfslinum með áletrun-
inni „Fangi f 31 dag“. Gögn þessi
birtust f franska blaðinu Libera-
tion í dag, en á m.vndinni eru
einkennisstafir „Rauðu herdeild-
arinnar“ eins og Baader-
Meinhofklfkan kýs að nefna sig.
1 bréfinu er Schleyer sagður
leggja mjög að Bonn-stjórninni
að flýta ákvörðuninni um hvort
samið skuli við mannræningjana.
Bréfið er dagsett 6. þessa mánað-
ar, en f dag hefur innanrfkisráð-
herra V-Þýzkalands, Werner
Maihofer, boðað til skyndifundar
þar sem ákvörðun verður tekin
um viðbrögð stjórnarinnar við
þessari framvindu mála.
Talið er að þetta lífsmark úr
herbúðum mannræningjanna sé
svar við skilaboðum, sem þeir
fengu frá Bonn-stjórninni 30.
september. Að þvi er næst verður j
komizt fóru þau skilaboð um
hendur Svisslendingsins Denis
Payot eftir að mannræningjarnir
höfðu enn ítrekað hótun sina um
að Schleyer yrði myrtur nema 11
hryðjuverkamönnum yrði sleppt
úr v-þýzkum fangelsum án tafar.
í bréfinu sem er handskrifað og
undirritað af Schleyer er því
haldið fram að Payot sé gagnslaus
milligöngumaður, um leið og bent
er á að rán „Japanska rauða hers-
ins“ á japönsku farþegaþotunni á
dögunum hafi leitt í ljós, að
„sumar ríkisstjórnir" séu fúsar til
að taka við föngum, sem látnir
séu lausir i skiptum fyrir gisla.
lNxiira Gandhi
Diefenbaker um
John F. Kennedy:
Hrokafull-
ur, ráðrík-
ur og illa
upplýstur
Toronto 8 október Reuter
JOHN Diefenbaker, fyrrum for
sætisráðherra Kanada, segir í
þriðja og síðasta bindi sjálfsævi
sögu sinnar, að John F. Kennedy,
fyrrverandi Bandarikjaforseti,
hafi verið maður, sem hefði auð
veldlega getað leitt heiminn fram
á barm kjarnorkustyrjaldar að-
eins til að sanna manndóm sinn
fyrir umheiminum, að hann væri
hugrakkur forystumaður vest
ræns lýðræðis.
Diefenbaker gagnrýnir Kennedy
harðlega og segir hann hafa verið
hrokafullan, ráðríkan og illa upp
lýstan og ef hann hefði ekki verið
kosinn forseti Bandaríkjanna hefðu
samskipti Kanada og Bandarikj
anna verið mun betn Meðal mála
sem Diefenbaker segir að sér haf
gramizt. nefnir hann tilraunir Kenn
edys til að koma í veg fyrir kornsölu
Kanadamanna til Kina, aðstoð hans
við frjálslynda i Kanada til að koma
stjórn íhaldsflokksins frá og svo að
hann hefði ekki ráðgazt við sig
meðan á Kúbudeilunni stóð
Diefenbaker var forsætisráðherra
árin 1957—1963
Manntjón í mikl-
um flóðum á Ítalíu
Feneyjum —8. októver — Reuter
AÐ MINNSTA kosti 10
manns hafa látið lífið og
margra er saknað í miklum
flóðum sem komið hafa í
Ný norsk barnalöggjöf:
Opinbert eftirlit með
velferð barna aukið
NORSKA stjórnin hefur lagt
fram I Stórþinginu frumvarp
að nýrri löggjöf um vernd
barna og ungmenna. en þar er
meóal annars gert rád fyrir því,
að skipaöur verði sérstakur um-
boðsmaður til að gæta hags-
muna þessa aldurshóps, svo og
aó hió opinhera hafi cftirlcidis
meiri álirif á stöðu barna innan
heimilisins. Veigamikill þáttur
hinnar nýju löggjafar beinist
aó þvi aó tryggja lagalegan rétt
barnsins í þjóðfélaginu.
Sá kafli frumvarpsins sem
lýtur að hlutverki umboðs-
mannsins er það, sem helzt hef-
ur orðið tilefni almennra um-
ræðna i þessu sambandi. Er
umboðsmanninum einkum ætl-
að að gæta hagsmuna barna og
ungmenna í sambandi við opin-
berar áætlanir en einnig að
gildandi lögum um velferð
barna sé framfylgt á viðunandi
hátt, og að lagalegur réttur
þeirra gagnvart hinum ýmsu
stofnunum þjóðfélagsins sé
ekki fyrir borð borinn.
Framhald á bls. 39.
Allesandria-héraði á Ítalíu.
Þorp á flóðasvæðinu hafa
einangrazt þar eð sam-
gönguleiðir eru tepptar og
símasamband rofið, en auk
þess hefur hraðbrautin
milli Feneyja og Mílanó
verið lokuð undanfarinn
sólarhring. Fara flóðin
vaxandi, en ljóst er að þau
hafa þegar valdið gífurlegu
tjóni.
Þriggja manna fjöl-
skylda i bænum Tortona
lét lífið þegar vatnselgur-
inn fyllti kjallaraíbúð. Er
óttazt að mun fleiri hafi
1 látiö lífið með sama hætti,
og er látlaust leitaó i hús-
um þar sem líkur eru á að
fólk hafist við og sé í hættu
statt.
Flóðin komu í kjölfar úr-
hellisrigningar sem nú hef-
ur staðið í fjóra daga lát-
laust.