Morgunblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÖVEMBER 1977 3 Nafn pilts- ins sem lézt PILTURINN, sem beið bana er bíll féll ofan í gil í Bröttubrekku s.l, föstudagskvöld, hét Árni Daviðsson, til heimilis að Ljós- heimum 3, Reykjavik. Árni heit- inn var 16 ára gamall. Bankamenn skrifa undir samkomulag „SAMKOMULAGIÐ verður undirritað eftir hádegi á morgun, þriðjudag," sagði Sólon Sigurðs- son, formaður sambands banka- manna, er Mbl. ræddi við bann í gær, en á áttunda tímanum á sunnudagskvöld náðist samkomu- lag um nvjan kjarasamning milli sambands bankamanna og samn- inganefndar Bankanna. Sólon sagði að þetta samkomulag yrði lagt undir allsherjaratkvæða- greiðslu bankamanna, sem senni- lega færi fram einhvern daganna 9., 10. eða 11. nóvember. Um efnisatriði samkomulagsins vildi Sólon ekkert segja, þar sem ekki væri búið að skrifa undir. „En ég er eins ánægður með þetta samkomulag og hægt er að vera á annað boró, þegar um kjarasamn- ing er að ræða,“ sagði hann. „Launaskalinn er svipaður og menn hafa verið að semja um að undanförnu, en þar sem þetta eru fyrstu samningarnir, sem við ger- um, þá er eðlilega mjög margt nýtt í samkomulaginu.“ Morgunblaðinu tókst ekki i gær að ná tali af Björgvin Vilmundar- syni, formanni samninganefndar bankanna. Brezkir bílar hækka í verði HÆKKUN sterlingspundsins brezka gagnvart íslenzku krón- unni mun hafa þau áhrif að verð á brezkum vörum hér á landi hækkar nokkuð en þó verður hækkunin mest á brezkum bif- reiðum. Samkvæmt upplýsingum Þóris Jónssonar, forstjóra hjá Sveini Egilssyni hf., má gera ráð fyrir að verð á meðaldýrum brezk- um fólksbíl, sem kostar nú liðlega 2 milljónir króna, hækki um 70 þúsund krónur. Stofnuð samtök blaðaútgáfu til fundahalda um utanríkismál Vilja vekja umrœður og áhuga meðal ungs fólks ÞRÍR áhugamenn hafa m.vndað samtök til blaðaútgáfu og fundahalda um utanríkismál og valið þeim nafnið Samvinna Vesturlanda — sókn til frelsis. Þremenningarnir, sem eru Hannes H. Gissurarson, Kristján Hjaltason og Skafti Harðarson, boðuðu fréttamenn á sinn fund í gær og kvnntu þessi samtök, sem þeir kváðu vera alls óformleg, en þeir fyndu hjá sér hvöt til að vekja áhuga og umræðu rneðal ungs jsömvinna vesturlanda fólks um utanrfkismál, svo sem aðild að Nato, varnarsamvinnu við Bandarfkjamenn og fleiru. í þessu skyni hafa þeir staðið að útgáfu blaðs, er ber sama nafn og samtökin, og verður þvi dreift til nemenda allra fram- Forsfða blaðsins Samvinna V'esturlanda — sókn til frelsis. haldsskóla og háskólans. Meðal efnis í því eru greinar eftir Björn Bjarnason um viðhorfin í varnarmálum, Hannes Gissur- arson um hugsjón Vesturlanda og Skafta Harðarson um mann- réttindi o.fl. Þá svara Guð- mundur G. Þórarinsson, Davið Oddsson, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson. Jón Baldvin Hannibalsson og Sigurbjörn Magnússon spurningunni Hvers vegna kýst þú samvinnu Vesturlanda? Einnig eru grein- ar um frelsishreyfingar andófs- manna i kommúnistarikjunum, nýfengið frelsi Portúgala, Spánverja og Grikkja o.fl. sem þeir nefndu. Var blaðið kostað með frjálsum framlögum einstaklinga. Þá greindu þeir félagar frá því að þeir væru reiðubúnir til að koma.á fundi i framhalds- skólum landsins nú i nóvember- mánuði, ef málfundafélög skól- anna héldu slíka fundi, og hafa þeir skorað á herstöðvaand- stæðinga að mæta sér á þeirn fundum, en þegar hafa verið ákveðnir tveir slíkir fundir. Um tilganginn með stofnun þessara samtaka sögðu þeir: „Umræður um utanríkismál á íslandi hafa löngum verið kappræður, en ekki rökræður. skrum og skjall án allrar alvöru, en brýna nauðsyn ber til að ungt fólk, sem hefur fáar ákvarðanir tekið i stjórnmál- um, geri sér fulla grein fyrir þeim rökum, sem hniga að utanríkisstefnu íslendinga, aðildinni að Atlantshafsbanda- laginu, varnarsamvinnunni við Bandaríkjamenn og annarri samvinnu þeirra við vestrænar lýðræðisþjóðir — fyrir hugsjón Vesturlanda, mannréttindahug- sjóninni, fyrir muninum á lýð- ræðisskipulagi og alræðisskipu- lagi, markaðskerfi og miðstjórnarkerfi, réttarriki og lögregluríki. Aðstæðurnar breytast og stefnan með þeim, umræður eru nauðsynlegar, því að sofandahátturinn er hættu- legasti óvinur frelsisins.“ Frá vinstri: Kristján Hjaltason, Hannes H. Gissurarson og Skafti Harðarson. Biðlistar eftir nýjum sím- um verða margir og langir — segir póst- og símamálastjóri um synjunina á hækkunarbeiðni „1 ÞEIRRI fjárhagsáætlun, sem forráðamenn Pósts og síma lögðu fyrir okkur var gert ráð fyrir framkvæmdum á næsta ári fyrir um tvo milljarða króna, en á þessu ári fyrir um 1220 milljónir. Þetta er aukning um 64%, sem töluvert umfram áætlaða verð- bólgu næsta árs, þannig að þetta bendir til aukins framkvæmda- magns og það teljum við í and- stöðu við stefnu stjórnvalda," sagði Georg Ólafsson, formaður gjaldskrárnefndar, er Mbl. spurði um ástæður þess að nefndin lagð- ist gegn beiðni Pósts og síma um 33% hækkun, en eins og Mbl. skýrði frá fyrir helgi staðfesti ríkisstjórnin synjun á hækkunar- beiðni Pósts og síma. „Við teljum að stefna stjórn- valda sé frekar að draga úr opin- berum framkvæmdum heldur en auka þær og þess vegna vill nefndin bíða með endanlega ákvörðun í málinu, þar til fjárlög hafa verið afgreidd," sagði Georg Ólafsson. „Það er fyrirsjáanlegt aó við lendum í vandræðum vegna þess- arar synjunar og þau vandræði verða fyrst og fremst þannig að fólk getur ekki fengið nýja síma,“ sagði Jón A. Skúlason, póst- og símamálastjóri, er Mbl. ræddi við hann. „Þessar fyrirhuguðu fram- kvæmdir eru stækkanir á stöðv- um og bæjarsimkerfum, því alls staðar þenst byggðin út, og svo þarf auðvitað líka fleiri simalínur milli bæja og landshluta. Það er ljóst, að ef af þessum fram- kvæmdum verður ekki, þá skap- ast vandræðaástand og biðlistar eftir nýjum simum verða bæði margir og langir. Hins vegar erura við búnir aó gera ráðstafanir vegna þessara framkvæmda og binda okkur mik- ið, þvi það er ársafgreiðslufrestur á þessum tækjum, þannig að ég veit hreint ekki, hvað verður, ef það á að skrúfa alveg fyrir þessar framkvæmdir. Annað er það, að launahækkanirnar, sem við þurf- um að greiða á næsta ári vegna nýgerðra kjarasamninga, nema um 1.5 milljarði króna.“ Jón A. Skúlason kvaóst vilja benda á það, að Póstur og sími rukkaði inn geysiháar fjárhæóir hjá notendum, sem ekki rynnu til fyrirtækisins heldur í rikissjóð. Nefndi hann að á þessu ári fengi rikissjóður um milljarð frá Pósti- og sima i aðflutningsgjöldum og söluskatti. Vegir á Vestfjörðum tepptust um helgina UM helgina var vonzkuveður á Vestfjörðum og eftir því sem Hjörleifur Ólafsson vegaeftirlits- maður tjáði Morgunblaðinu i gær, þá spiiltist færð víða á vegum þar, en ofankoma var þó nokkur. Heiðar á Vestfjörðum urðu margar ófærar eins og Þorska- fjarðarheiði, Breiðadalsheiði, Botnsheiði og Hrafnseyrarheiði. Þá varð ófært á Klettheiði i A- Barðastrandarsýslu en hana átti að ryðja á ný i gær. Þá sagði Hjörleifur, að hálka væri víða á vegum á Norðurlandi og á Austfjörðum. Naglar eða ekki naglar? ÞAÐ ÞARF varla að taka fram að þegar haustar fara ökumenn að huga að búnaði til vetrar- aksturs og þá hefur oft farið fram nokkur umræða i fjöl- miölum um gagnsemi nagla- hjólharða. Til að fá upplýsing- ar um hver skuli vera löglegur búnaður bifreiða til aksturs i snjó og hálku var rætt við Guðna Karlsson forstööumann Bifreiðaeftirlits rfkisins svo og tvo fulltrúa tryggingafélaga til að heyra þeirra á lit. Guðni Karlsson sagði það vera bundið í reglugerð, en þar stæði m.a. að þegar vænta mætti isingar ætti að hafa snjó- tXVAMMUtUIU KALLAR A AUKNA AÐGÆZLU keðjur á hjólbörðum eða annan búnað svo sem grófmynztraða hjólbarða eða hjólbarða með nöglum, sem veitt gætu viðnám. „Ekki leysir þessi búnaður samt ökumenn undan því,“ sagði Guðni, „að sýna ítrustu varkárni í hálku, en það hefur sýnt sig að menn treystu um of á naglana og vil ég ekki endi- lega reka áróður fyrir þvi að eingöngu sé ekið á naglahjól- börðum ef hægt er að komast hjá því hér á höfuðborgarsvæð- inu, og ef ökumenn geta hagað ferðum sinum þannig að þeim komi að gagni hálkueyðingin, sem gatnamálastjóri hyggst koma á. Annars er þetta mat ökumanna hverju sinni og ef þeir ekki þurfa t.d. skyndilega að aka út úr bænum hvernig sem aðstæóur eru ættu gróf- mynztraðir hjólbarðar að nægja.“ Ólafur Bergsson hjá Sjóvá tók í sama streng og Guðni og sagði að varðandi tjón sem kæmi til kasta tryggingafélaga Framhald á bls. 37. Naglar eða ekki naglar. Slíta þeir götuniim óhóflega? Konia þeir í veg fyrir stórfellt tjón af völdum árekstra?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.