Morgunblaðið - 01.11.1977, Page 7

Morgunblaðið - 01.11.1977, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1977 7 Að vera sjálf- um sér sam- kvæmir í ábyrgri afstöðu Opinber starfsmaður, Ingimar Karlsson, ritar um nýafstaðna kjaradeilu i dagblaðið Tímann sl. föstudag. Hann segir m.a.: „En hvernig fengu þeir opinberir starfsmenn þennan aukna samnings- rétt á síðasta ári? Að mínu mati náðist þessi árangur með því, að sannfæra nauman meirihluta al- þingismanna um að opin- berir starfsmenn væru færir um að fara með verkfallsréttinn án þess að misnota hann. Það voru forystumenn BSRB og þá ekki síður forystu- menn einstakra hinna stærri bæjarstarfsmanna- félaga, sem unnu að þvi að fá lögin frá 1915 af- numin. Jafnframt var þvi margoft lýst yfir innan samtakanna, að ekki ætti að beita þessu vopni nema i ýtrustu neyð, þ.e. sýna vopnið en beita því af fyllstu gát. Hverjir hafa staðið við þessi orð sín nú? Um það verður hver og einn að dæma að feng- inni reynslu. Að mínu mati er það ekki til far- sældar fyrir okkur opin- bera starfsmenn, ef for- ystumenn okkar meta meira að vinna sér lýðhylli innan samtakanna heldur en að vera sjálfum sér samkvæmir og taka ábyrga afstöðu. Við erum að visu óvanir vopnaburði sem þessum og klaufaleg mistök því eðlileg." Stærstu mistökin Enn segir Ingimar Karis- son: „Að mínu mati verða stærstu mistökin þó tæp- lega afsökuð með við- vaningshætti. Þessi mis- tök voru þau, að halda áfram að sarga verkfalls- vopninu i bein rikisvalds- ins dag eftir dag og nótt eftir nótt, eftir að fyrir- sjáanlegt var að árangur yrði enginn fram yfir það, sem fórnað var. Næstum Ingimar Karlsson allir þóttust þessa daga sjá. að mismunurinn á fórnum félagsmanna og ávinning þeirra yrði nei- kvæður i krónutölu, þó ekki sé talað um skaða þjóðarinnar i heild og þá jafnframt okkar sjálfra sem einstaklinga. Augu forystumanna BSRB virt- ust ekki lengur opin fyrir þessum staðreyndum. Svo var að sjá. að sama hefði hent þá og það, sem stundum kemur fyrir böm að leik í sandkassa, eink- um þegar þau hafa eign- azt góðar skóflur, þeir virtust hafa mokað sandi i augun hver á öðrum, þannig að þeim förlaðist sýn. Fyrir opinbera starfs- menn er ekki einungis um verulegan skaða að ræða. heldur er augljóst, að verkfallsvopnið hefur aldrei sömu egg aftur. eft- ir að það hefur verið mis- notað eins og nú." Bæjarfélögin brutu ísinn ‘ Sem dæmi um kjara- bætur, sem bæjarstarfs- mannafélög opnuðu leið að, nefnir greinarhöfund- ur: „Vinnuskylda féll niður á laugardögum fyrir skrif- stofufólk og ýmsa aðra starfshópa. Aukin réttindi fyrir laus- ráðið fólk í veikindum. Hækkað vaxtaálag. Færsla á milli launa- flokka eftir 15 ára starf, og siðast en ekki sizt, per- sónuuppbótin i desember eftir vissan starfsaldur, sem StRv samdi um fyrst allra bæjarstarfsmannafé- laga árið 1974. Allar þessar kjarabætur og margar fleiri hafa rikis- starfsmenn fengið á eftir bæjarstarfsmönnum." Hafa ber i huga, að bæj- arstarfsmannafélögin gerðu öll mun betri samn- inga nú eftir nokkurra daga verkfall, heldur en félögum ríkisstarfsmanna stóð þá til boða. Að minu áliti og flestra annarra, sem að þessum samning- um stóðu, þá vorum við að vinna heildarsamtök- unum gagn með þessum samningum. Þeim var auðveldara að fara i kjöl- farið og binda þannig endi á verkfallið án verulegra fórna. Rikisstarfsmenn hafa ekki hingað til hikað við að taka upp i kröfur sinar þau atriði. sem bæjar- starfsmenn höfðu áður fengið." LADA 1000 Nýr bíll á íslandi Komið og skoðið LADA 1600 Verð ca. 1585 þús. Hagstæðir greiðsluskilmálar Biíreiðar & Landbúnaðarvélar hí. Sudurlandsbraut 14 - Heykjavik - Simi illllHMl Tann ENSKIR PENINGASKÁPAR eldtraustir — þjófheldir heimsþekkt framleiðsla. E. TH. MATHIESEN H.F. DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIROI — SIMI 51888 Er byrjuð með megrunarkúrana aftur Vil vekja sérstaka athygli á 10 tíma meqrunarkúrum Meqrun arnudd. partanudd og afslöppunarnudd Nudd — sauna — mælingar — vigtun — matseðill Njudd- oq snyrtistofa Astu Baldvinsdóttur, Hrauntungu 85 Kópavogi Opið til kl. 1 0 öll kvöld Bilastæði. Sími 40609 Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir í hvert skírteini Svipmyndir sf. Hverfisgötu 18 Gegnt Þjodleikhusinu Romanze — dyrindisstell frá Rosenthal. Fágaö form. Því næst sem gegnsætt postulín. Romanze er árangur margra ára þróunar í efnisblöndun og framleiðsluaðferðum. Þess vegna hefur Wiinblad og Wohlrab tekist að hanna sannkallað meistaraverk: Romanze — dýrindisstell frá Rosenthal. A. EINARSSON & FUNK Laugavegi 85

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.