Morgunblaðið - 01.11.1977, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 01.11.1977, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1977 13 Rímað og stuðlað Katrín Jósepsdóttir: ÞANKAGÆLUR. ljóð. 80 bls. Bókaforlag Odds Björnssonar. Akureyri, 1977. KATRÍN Jósepsdóttir er mér ókunn að öðru leyti en því sem hún kynnir sig í ljóðum sínum. Af þeim ræð ég að hún sé ekki mjög ung skáldkona. Hún yrkir um samkomu sem haldin var fyrir fimmtán árum. Form kvæða hennar er þó greinilega mótað af tísku sem var komin til ára sinna 1962. Af ýmsum kvæðum bókar- innar ræð ég að Katrín sé eða hafi verið Akureyringur. I kvæðinu Hin fögru blóm segir hún »bær- inn minn« um Akureyri. Og í kvæðinu Vaðlaheiði horfir hún »á höfuðstaðinn norðanlands« frá hjalla handan fjarðar. Katrín rímar og stuðlar. Sýni- lega lætur hún það sitja í fyrir- rúmi. Eitt ljóð sitt nefnir hún Er vorsins harpa (heitir eftir fyrstu orðunum' í fyrstu ljóðlinunni). Fyrsta lfna kvæðisins endar á slær — »er vorsins harpa hreina strengi slær.« Slær kallar á fær, blær, grær og nær. Önnur ljóðlinan endar á vek- ur, jákvætt orð, ekki svo? En nú vandast málið því orð sem ríma á móti vekur stefna flest í gagn- Bðkmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON Katrín Josepsdóttir GÆIXJR stæðar áttir merkingarlega séð. Rímlistin setur skáldkonunni kosti, hún verður að notast við hrekur — »er geisli sólar gaddinn burtu hrekur,« og tekur — »hinn fleygi skari bú sér byggja tekur « I kvæðinu Kveðja til Verka- mannsins (blaðsins með því nafni á Akureyri) endar fyrsta linan á verkalýður. Það útheimtir sfður í lok þriðju línu. Önnur línan end- ar á kjör sem skáldkonan getur síðan rímað við sigurför. Á móti þótti i sama erindi kemur ótti. ög auðs botnast að sjálfsögðu með brauðs. Þannig glímir Katrín við rímorðin og má oft ekki á milli sjá hvor betur hefur. Því vissulega hafa rímorðin áhrif á kveðskap af þessu tagi. Þegar skáldið verður að nota þetta orðið en ekki hitt verður það að haga meiningunni sam- kvæmt þvi: málið stýrir þá hugs- uninni. Það gerir Katrin sér vafa- laust ljóst því oft leitast hún við að láta koma krók á móti bragði, þvæla orðunum f þá stöðu að þau þjóni að einhverju leyli fyrirhug- aðri tilætlun. Katrinu' er nefnilega talsvert niðri fyrir. Hún tekur skýra af- stöðu til yrkisefnanna hvort held- ur þau standa lienni nær eða fjær. Hún velur séí' tjáningarform sem hún þekkir og hefur mætur á. Og þar er komið að megingalla þess- ara ljóða: efni og form fellur ekki hvort að öðru, skáldkonan vill segja sína meining refjalausl, rimar og stuðlar en lætur þriðja liðinn í jöfnunni mæta afgangi. það er að segja orðavalið. Það má kalla þveröfugt við meginsjónar- mið i skáldskap undaníarna ára- tugi. Liklega telst Katrín til þess sem sumir kalla lággróðurinn i bók- menntunum, en hann kvað vera nauðsynlegur til viðgangs þvi sem hærra. teygir sig. í fyrsta kvæði bókarinnar, Bækurnar mínar. ját- ar Katrín ást sína til fagurra bók- mennta, einkum ljóðlistarinnar. Þar er meðal annars þetta erindi: Bosla uíkii vr hókin f*óó. IIiiii bri'KZl i‘i viniini símim. — Kk f*o( alllaf lcsió Ijórt. Þau lyfla sinni «« ylja lilórt «K boi'Kiiiála í hiiKaiÍHMini niíiiiim. Svona kynnir Katrín sig: til- finninganæm skáldkona, bókeisk, ljóðræn, opinská, en ekki nenta meðal leikfimismanneskja í fang- brögðum sinum við formið. Þetta er fimm arka bók sem er nærri meðalstærð ljóðabóka nú á döguni. En ljöðin, sem eru fjöru- tíu og fjögur talsins, verða naum- ast lesin með neinum þotuhraða því siðurnar eru vel nýttar; sum kvæðin eru nokkuð orðmörg. Að ytra útliti er bókin svo úr garði gerð að skáldkonan rná vel við una. Eiiendur Jónsson. 60 ára afmælis októberbylting- ar minnst 60 ÁRA afmælis Októberbyltingar innar í Rússlandi verður minnst á hátíðarfundi og tónleikum í Austur bæjarbíói laugardaginn 5. nóvember kl. 14. í upphafi samkomunnar verða flutt nokkur stutt ávörp og meðal ræðu- manna verða þeir Bjarni Þórðarson fyrrum bæjarstjóri i Neskaupstað og Alexei Krassilnikof prófessor, fyrsti sendifulltrúi Sovétríkjanna á íslandi og einn af varaformönnum félagsins Sovétríkin — ísland Að ræðuhöldum loknum hefjast tón- leikar og koma þar fram tékkneskir, íslenskir og sovéskir listamenn Sovésku tónlistarmennirnir. sem koma hingað í boði MÍR ásamt Krassilnikof prófessor gagngert til að taka þátt i hátíðasamkomunm. eru þessir Viktor Pikaizen, fiðluleikari, einleik- ari við Filhamoníuna í Moskvu Hann er kunnur listamaður í heimalandi sinu og viðar og hefur hlotið verðlaun i alþjóðlegri samkeppni fiðluleikara Þá hefur Pikaizen leikið inni á margar hljómplötur, m.a sem einleikari i fiðlu konsertum eftir Dvorak. Mendelssohr og Wieniawski með Filharmoníuhljóm sveitinni í Moskvu undir stjórn Daviðs Oistrakhs og Útvarpshljómsveitarinnar i Moskvu undir stjórn G Roshdestv ensky Evgenia Seidel píanóleikari, undir- leikari með Viktor Pikaizen, er einnig þekktur listamaður og hefur leikið inn á allmargar plötur Vera Kazbanova söngkona syngur rússnesk þjóðlög og rómönsur með undirleik Evgeniu Seidel Fyrir hátíðarfundinum og tónleikun- um í Austurbæjarbiói gangast fjögur félög Tékknesk-íslenska félagið, Félag- ið Ísland-DDR, Pólsk-íslenska félagið og MÍR, Mennmgartengsl íslands og Ráðstjórnarríkjanna, ásamt sendiráð- um viðkomandi ríkja Aðgangur er ókeypis og öllum heimill (Fréttatilkynning) SUNM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.