Morgunblaðið - 01.11.1977, Page 14

Morgunblaðið - 01.11.1977, Page 14
 14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÖVEMBER 1977 Halldór Vilhjálmsson: Innan dyra Velmegun alþýðulýðveldisins Róðurinn hjá Austur-þýzka al- þýóulýðveldinu er greinilega far- inn að iéttast. Efnahagur landsins stendur í blóma eins og bezt má sjá af því að hlutlaus alþjóðleg hagtíðindi segja brúttóþjóðar- framleiðslu Austur-Þýzkalands árið 1976 rúmlega 800.000 fsl. kr. á hvert mannsbarn I landinu, og mun enn vera í nokkuð örum vexti. Austur-þýzka alþýðulýð- veldið er fyrir allmörgum árum búið að taka forystuna meðal Austur-Evrópulandanna, hvað framleiðslugetu snertir miðað við fólksfjölda að visu. Tékkóslóvakia er næst í röðinni með brúttó- þjóðarframleiðslu sem nemur um 680.000 ísl. kr. á mann, c% Pöl- land, sem er númer 3 í röðinni, verður að láta sér nægja rúmlega hálfa milljón isl. kr. á mann. Önn- ur Austur-Evrópuríki eru enn neðar á blaði, hvað brúttófram- leiðslu snertir. Failegar, ódýrar vörur sjást viða í búðargluggum, einkum í stærstu borgum A-þýzka alþýðu- lýðveldisins. Hér hefði fslending- um áreiðanlega þótt gott að verzla fyrir svo sem 35 árum, því senni- lega hefur vöruframboðið verið ennþá fábreyttara hjá okkur fyrir stríð, heldur en núna í A-þýzka alþýðulýðveldinu. A síðastliðnum 10 árum er höfuðborgin Austur- Berlín, Leipzig og Dresden orðnar hreinasta innkaupa-Mekka fyrir alla Austur-Evrópu. Ferðamönn- um frá hinum kommúnistalönd- unum þykir mun meira varið í að komast i verzlunartúr til Austur- Berlínar, heldur en okkur kann að þykja skreppitúr til Lundúna til þess að fata okkur upp í Ox- fordstræti. Berlin bleiht Berlin, — á sinn hátt Demantarnir i sýníngarglugg- um skartgripasalanna á Kurfur- stendamm i Vestur-Berlin stara stórir eins og barnsaugu fram hjá skoðandanum á bankareikning- inn hans; flest hin sjaldgæfari loðdýr veraldar halda fund í næsta glugga: hlébarðar, bisam- rottur, þvottabirnir, minkar, bjór- ar, úlfar og persnesk lömb. Is- lenzkir og kanadiskir selkópar eiga þarna einnig sína fulltrúa. Göturnar eru fullar af röggsöm- um og kannski dálítið of hávær- um berlínarbúum, sem streyma á millí stórverzlananna og fylla kaffihús og önnur veitingahús miðborgarinnar. Tötralegir tyrkir sópa göturnar, þvo rúður, skræla kartöflur og hreinsa mótatimbur á hinum fjölmörgu byggingar- stöðum borgarinnar. Þeim er gert að búa í sérstökum borgarhlutum, sem eru að verða altyrkneskir; hin nýju gettó Berlínar. Tízku- fatnaður berlinarkvenna virðist innfluttur frá Róm og París, kambgarnsfötin á karlmennina frá London og peysurnar frá Skot- landi. Velmegunarbragurinn á Vestur-Berlin virðist vera áþekk- ur og i Hamborg, ZUrich og Stokk- hólmi. Það er meiri .heimsborg- arabragur yfir vestur- berlínarbúum heldur en öðrum þjóðverjum; ysinn og þysinn er hér meiri en í öðrum þýzkum stór- borgum. Allir virðast yfir sig önn- um kafnir víð störf eða skemmt- an. Ef til vill er það allt þetta annriki og streitan, — eða þá of hár aldur kvenna í V-Berlín, sem gerir það að verkum að v- berlínarbúum gengur heldur bág- lega með blessað barnalánið. Á meðal þeirra tveggja milljóna og tvöhundruð þúsunda, sem byggja eyríkið Vestur-Berlín, virðist vera ofur fátt af uppvaxandi börnum. Flest þau börn sem sjást á ferli á götunum eða leika sér á róluvöll- um borgarinnar tala tyrknesku eða einhverja pakistanska sans- krit. Elli kerling sækir orðið fast á obbann af hinum þýzku vestur- berlínarbúum. HöfuðborKÍn hinum megin Austur-Berlin með sína rúm- tega einu milljón íbúa virðist í senn vera i órafjarlægð frá Vest- ur-Berlín og er þó alls staðar ná- læg. Samgöngukerfið milli borgarhlutanna tveggja, þ.e.a.s. járnbrautin innanborgar, S-Bahn, er í höndum yfirvalda Austur- Berlinar; eimreiðarnar eru mann- aðar austur-berlínarbúum, ög lög- regla og eftirlitsmenn á járn- , brautarstöðvum í S-Bahn f Vest- ur-Berlin eru austanmenn með augu og eyru opin. Eftir u.þ.b. 10 mín. akstur frá Bahnhof Zoo i Vestur-Berlin með innanborgar brautinni S-Bahn er maður þó Hreinlæti og góð umgengni Tandurhreinar göturnar koma íslendingnum í fyrstu ókunnug- lega fyrir sjónir; glerbrotin, gubbusletturnar og pappirssorpið á götum úti virðist víst helzt til- heyra reykvískri umgengnis- menningu. Mitt í öllu þessu ytra hreinlæti Austur-Berlínar sýnast manni göturnar í sjálfri miðborg- inni i fyrstu vera jafn auðar og mannlausar eins og nýlega hafi verið gefið loftvarnarmerki; að- eins örfáar mannverur á ferli hér og þar á breiðum gangstéttunum. Einstaka ósandi trabant og nokkr- ir strætisvagnar skrönglast eftir hinum mörgu akreinum breið- gatnanna, og hinir gamalkunnu sporvagnar eru hér enn i fullu fjöri. í hinum 365 metra háa sjón- varpsturni steinsnar frá Alexand- ertorgi eru tvö veitingahús: eitt stórt þúsund manna gímald niður við jörðu, og annað miklu minna og mun dýrara í um 200 m hæð, svokallað Tele-Café. I báðum þessum veitingahúsum eins og raunar alls staðar á hinum betri veitingastöðum, hvar sem er í landinu, verða gestirnir að gjöra svo vel að stilla sér upp i biðröð í innganginum; stundum i 15 min- útur, stundum i hálfa klukku- stund, stundum i heila klukku- stund, en þá kemur lika þjónninn og vísar þeim fremstu i biðröðinni kominn til höfuðborgar Austur- þýzka alþýðulýðveldisins, — og beint inn i biðröð. Þessi landa- mærastöð er gluggalaust neðan- jarðarbyrgi með mörgum vel- vopnuðum vörðum við inn- og út- ganginn. Vegabréfsskoðunin tek- ur þetta frá hálftima upp í rúma klukkustund. Þá tekur sjálf höfuðborgin við. Miðað við Vest- ur-Berlín virkar Austur-Berlin á mann eins og ströng, siðavönd piparmey við hliðina á léttúðugri, ofskreyttri heimsdömu. Mikið hefur verið byggt í miðborginni og annars staðar i A-Berlín á undanförnum árum, og árangur- inn er greinilega kominn i Ijós: Nýlegir öskugráir húsakassar, mismunandi háir en allir alveg eins. Einstaka ker eða blómabeð með rauðum geraníum á víðáttu- miklum, mannauðum steintorg- unum, öll alveg eins. Dresden þótti fyrir strið ein fegursta borg í heimi og var einkum fræg fyrir fjölmörg rokoko-hús frá 18. öld, sem prýddu miðborgin, barok-kirkjur og hallir. Snemma árs 1945 gerðu bandamenn sk.vndilega hinar heiftarlegustu loftárásir á Dresden og gjöreyddu miðborginni á einni nóttu, drápu um 30 þúsund manns en særðu um 300 þúsundir að því talið er. IVlikið af miðborginni hefur nú verið endurbyggt í þessum sviplausa stórgerða kassastíl. Myndin sýnir hið endurbyggða Pragstræti í Dresden. Austur-þýzku stórborgirnar veita fleiri tækifæri og bjóða íbúum sfnum oftast betri lífskjör heldur en minni borgirnar. tbúar höfuðborgarinnar, Austur-Berlinar, njóta t.d. mun betri lífskjara en aðrir borgarar landsins. Iþróttir skipa veglegan sess í A-þýzka alþýðulýðveldinu, einkum afreksfþróttir, sem afla ríkinu álits erlendis og treysta móralinn heimafyrir. Hér sýna kornungir a-þýzkir fimleikamenn fjöidaatriði sín á leikvanginum í Leipzig. Austur-þýzkar veggskrcytingar Það sem einkum lifgar upp á umhverfið víða í höfuðborginni, eru langir eldrauðir borðar með flennistóru letri, sem strengdir eru þvert yfir marga húsveggi mjög svo til prýði: „Við elskum Sovétríkin ofar öllu", „Sovétríkin tryggja líf okkar og tilveru!“, „Kommúnistaflokkur A-þýzka al- þýðulýðveldisins gengur arm í arm með Kommúnistaflokki Sovétríkjanna“, „Hið sósíalistiska Þýzkaland samfagnar bræðrum sinum á 60 ára byltingarafmæli Sovétríkjanna!“, „Sameignar- stefnan sigrar!", „Hinn mikli Lenin er okkar leiðarstjarna!“, „Lengi lifi hin dyggóumprýddu, dáðríku Sovétríki!". Þriggja metra háar ljósmyndir af Erich Honecker, aðalritara Kommún- istaflokks Austur-Þýzkalands og forsætisráðherra landsins, álíka stórar myndir af Karli gamla Marx, Friðriki Engels og Valdi- mari Lenin og skötuhjúunum Rósu Luxemburg og Karli Lieb- knecht; allar þessar myndskreyt- ingar á almannafæri virka einkar fegrandi á umhverfið. í DDR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.