Morgunblaðið - 01.11.1977, Side 15

Morgunblaðið - 01.11.1977, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1977 15 Síðari hluti til sætis við eitthvert borðið, og veitingarnar koma skömmu siðar. Lystiganga Nú, berlínarbúar hljóta þó að ganga sér til skemmtunar á „Unt- er den Linden" á svona fallegu. hlýju sumarkvöldi? Bein og breið iiggur „Unter den Linden“ upp að Brandenborgarhliðinu, sem Bismarek lét reisa til minningar um sameiningu þýzku smárikj- anna undir forystu Prússlands i kringum 1870. í dag stendur Brandenborgarhliðið, umvafið nauðsynlegum gaddavir og múr- verki, á mörkum Austur- og Vest- ur-Berlinar eins og skuggalegur minnisvarði um sundrungu Þýzkalands. Velvopnaðir verðir, — alltaf tveir og tveir saman hvor öðrum til trausts og halds, — þramma fram og aftur fyrir fram- an þennan forðum fræga sigur- boga þýzks stórveldis, og verðirn- ir fylgjast með öllum mannaferð- um nálægt Brandenborgarhliðinu af gerhygli; handan sigurborgans leggur bjarmann frá Vestur- Berlin. Mannfjöldinn, sem gekk sér til skemmtunar eftir hinni nafntoguðu glæsigötu „Unter den Linden" þetta júlikvöld reyndust vera aðeins tveir menn. „Getið þér sagt mér, hvar Komische Oper er?“ spyr islendingurinn. „Mér þykir það afar leitt,“ svarar hinn, „ég er vestur-þjóðverji.“ Leiklist og tón- list í hávegum Leikhús borgarinnar eru bæði mjög mörg, góð og vel sótt. Flest leikhúsanna er að finna við Friedrichstrasse eða í námunda við þá götu. Das Theater am Schiffbauerdamm, örskammt frá Friedrichstrasse hýsir leikflokk- inn Berliner Ensemble, sem stofnaður var af Bertolt Brecht á sínum tíma, og sýnir enn ein- göngu verk þessa fræga leikrita- höfundar. Rétt þar hjá er Deutsches Theater und Kammer- spiele, eins konar þjóðleikhús Austur-Þýzkalands, þar sem Max Reinhardt réð rikjum frá því skömmu eftir siðustu aldamót og fram til 1933 og gerði garðinn frægan með nýstárlegum, einföld- uðum sviðsetningum og nýrri túlkun frægra leikhúsverka. Hitl- er féll uppruni Max Reinhardts ekki I geð og lét umsvifalaust reka hann úr landi. Ekki má gleyma hinu virðulega Schauspel- haus við Charlottenstrasse, sem ávallt hefur eitthvað áhugavert á fjölunum, oft yerk yngri höfunda. Yfirleitt er mikil gróska í leiklist- arlifinu um gjörvallt Alþýðulýð- veldið, og jafnvel hinar minni borgir á stærð við Reykjavik hafa oftast starfandi óperuhús eða a.m.k. eitt eða fleiri föst leikhús. Eins og alltaf hjá þjóðverjum er músiserað af hjartans lyst i öllum hornum og skotum i Aiþýðulýð- veldinu, og eru þar að verki nær óteljandi kammerhljómsveitir, dúo, tríó, kvartettar, kvintettar auk allra stóru og virðulegu sin- fóníuhljómsveitanna, og svo heils aragrúa af hornaflokkum, sem eru ómissandi, þegar marsérað er. I Thiiringenhéraði syðst í Aust- ur-Þýzkalandi býr einn víðkunn- asti orgelleikari heims, prófessor Johannes Ernst Köhler í Weimar, hinni fögru og kyrrlátu borg Goethes og Sehillers. Prófessor Köhler er ef til vill einn þekktasti Bach-túlkandi nútimans og leikur annan hvprn sunnudag opinber- lega á orgelið i Herderkirkjunni í Weimar. Það var niikil áriægja að heyra þennan orgelsnilling leika toccötu og fúgu i f-dúr, fantasíu og fúgu i c-moll, auk annarra verka eftir Johann Sebastian Bach, og loks Ricercare eftir Hall- grim Helgason. Prófessor Köhler bar mikið lof á þetta orgelverk íslenzka tónskáldsins og kvaðst hafa löngun til að kynnast fleiri íslenzkum orgelverkum. Hann er Framhald á bls. 37. Nýjar hljómplötur „Blessað striðið" í dag, þriðjudag kemur út ný hljóm- plata frá SG-hljómplötum Á þessari plötu flytur Gisli Rúnar Jónsson létt efni um hernámsárm i tali og tóoum Að sögn Gisla Rúnars tók u þ b fimm mánuði að vmna plötuna. enda þurfti hann fyrst að kynna sér mikið af alls kyns efni frá þessum árum Einnig tók langan tíma að gera umslagið. en á því eru myndir af Gísla Rúnari í ýmsum gervum Nær allur texti sem Gísli flytur á plötunni er eftir hann og hann syngur og rabbar einnig i öllum lögum, nema hvað Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur eitt lag á móti honum og Eva Dögg og Edda Björgvinsdóttir syngja litið eitt i þremur lögum Þessi plata átti að koma á markað fyrir nokkru síðan. en hún tafðist i pressum erlendis i u þ b tvo mánuði Platan ber nafnið ..Blessað striðið. sem gerði syni mina rika og undirtitill er ..Gísli Rúnar Jónsson lofsyngur her námsárin” Meira Mannakorn Út er komin á vegum Fálkans ný plata. sem ber nafnið ..í gegnum tíð- ina” Það er hljómsveitin ..Manna- korn”, sem leikur á þessari plötu lög og texta eftir einn meðlim sveitarinnar. Magnús Eiriksson Eitt lag á plötunni er þó við Ijóð eftir Stein Steinarr Auk Magnúsar skipa hljómsveitina þeir Baldur Már Arngrimsson. Björn Björnsson og Pálmoi Gunnarsson. en ýmsir hljóðfæraleikarar eru þeim til aðstoðar Með sömu hljómsveit kom út plata í fyrra sem bar yfirskiftina „Mann- korn” og hefur það nafn festst við hljómsveitina Að sögn Magnúsar eru lögin búm til á siðustu þremur árum, en sumir text- anna nokkru eldri. Magnús kvaðst upphaflega hafa farið út í textagerð af illri nauðsyn. af þvi hvað honum þótti textar oft á tiðum lélegir Upptaka plötunnar tók langan tima, en stúdió- tímar voru þó einungis u þ b 130 Magnús sagði að þeir félagar hefðu ekki látið sér detta í hug að gera þriðju Mannakornaplötuna, hms vegar væru þeir núna að æfa efni á leikna (instrumental) jassplötu. sem þeir hefðu hug á að gera ásamt Guðmundi Ingólfssym S.B. ÞÉR TRYGGIÐ RÉTT LJÓSMAGN OG GÓÐA LÝSINGU MEÐ ÞVf AÐ VELJA (OSRAM RÉTTA PERU Engin ein pera getur fullnægt öllum kröfum yðar. Þess vegna býður OSRAM yður fjölbreytt úrval af hvers konar perum, til þess að þér getið valið rétta peru og það Ijósmagn sem þér þarfnist. Peru-úrval OSRAM gerir yður kleift að velja rétta lýsingu. OSRAM vegna gæðanna Renault 20 er bíllinn sem sameinar lipurð bcejarbílsins og stcerð og þcegindi ferðabílsins. Bíll sem hentar íslenskum aðstceðum einkar vel. Renault 20 er framhjóladrifinn bíll, með sjálfstceða fjöðrun á hverju hjóli. Vélin er 102 hestöfl og eyðslan aðeins 9 l á 100 km. Renault mest seldi bíllinn í Evrópu 1976. RENAULTO KRISTINN GUSNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.