Morgunblaðið - 01.11.1977, Side 18

Morgunblaðið - 01.11.1977, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÖVEMBER 1977 Ragnhildur Helgadóttir: I>jódf élagsábyrgd ungs f ólks og kosningaaldur Rætt um lækkun kosningaaldurs í 18 ár til sveitarstjóma 18 ára kosninga- aldur til sveitarstjórna. Benddikt Gröndai (A) mælti f gær fyrirfrumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum þess efnis, að „kosningarétt til sveitarstjórna hafi allir, sem eru 18 ára aó aldri“ og fullnægi aö öðru leyli ákvæðum eldri laga hér um (í stað 20 ára aldurs áður). Benedikt benti á að kosninga- réttur til Alþingis væri ákveðinn í stjórnarskrá. Honurn yrði því ekki breytt nema með stjórnar- skrárbreytingu. Hins vegar mætti breyta kosningaaldri til sveitar- stjórna með einfaldri breylingu kosningalaga. Gæti því lækkun kosningaaldurs komið til fram- kvæmda við sveitarstjórnar- kosningar á næsta ári, ef vilji væri fyrir hendi. Benedikt rakti síðan ýmsar röksemdir fyrir lækkun aldursákvæðis sem og þau afskipti, sem Alþýðuflokkur- inn hefði haft af þessu máli, bæði fyrr og síðar. Jónas Árnason (Abl) sagðist samþykkur efnisákvæöum þessa frumvarps og mælti með sam- þykkt þess. Jóhann Hafstein (S) taldi rétt að sama aldursákvæði gilti um kosningarétt til Alþingis og sveiiarstjórna. Hann væri and- vígur lækkun nú, nema að saman færi lækkun aldursákvæðis varðandi ýmis önnur ákvörðunar- réttindi, er samleið ættu. Karvel Pálmason (SFV) studdi frumvarpið, taldí fólk, sem orðið væri 18 ára, leggja sitt af mörkum í þjóðfélaginu, atvinnulega og sem gjaldendur, og ætti því að hafa sama rétt til áhrifa á fram- vindu mála í kosningum. íí w : í/ Ragnhildur Helgadóttir Réttindi bundin aldursmarki. Ragnhildur Helgadóttir (S) sagðisl lengi hafa verið hlynnt því að kosningaréttur og ýmis önnur réttindi, sem bundin væru aldurs- marki, væru miðuð við lægri aldur en nú er gert. Þessa afstöðu sína mætti rekja til starfs sins í samtökum ungra sjálfstæðis- manna. Það mikil ábyrgð hvílir á ungu fólki i þjöðfélagi okkar, sagði Ragnhildur, að ekki er nema sanngjarnt að það fái nokkru ráðið um það, hverjir hafi forræði um almenn málefni sveitarfélaga og þjóðfélags. Hún rakti og aðdraganda þessa mála, er kosningaaldur var lækkaður í 20 ár. Ragnhildur sagði ekki óeðlilegt að enn rýmri kosningaréttur gilti um kosningu til sveitarstjórna en Alþingis. Svo er víða, sagði hún, einnig á fleiri sviðum en aldurinn varðar. Minnti hún á nýleg ákvæði í lögum allra Norðurlanda (annarra en íslands) þar sem erlent fólk hefur kosningarétt, ef það er búsett í viðkomandi sveitarfélagi og hefur ríkisfang í einhverju Norðurlanda. Ragnhildur vitnaði til um- sagnar ýmissa samlaka ungs fólks um lækkun kosningaaldurs, sem ekki hefðu verið á eina lund. Hún sagði það engu að síður sitt mat að fólk á þessum aldri, 18—20 ára hefði til að bera þekkingu og þroska til að fara með ábyrgð, sem kosningarétti fylgdi. Hún vitnaði til ítrekaðra samþykkta SUS um þetta efni, einnig hvað varðar þátttöku í prófkjörum stjórnmálaflokka. Ungir sjálf- stæðismenn, sem náð hafa 18 ára aldri, hafa slík prófkjörsréttindi. „Ég vonast til,“ sagði Ragnhildur Helgadóttir, „að þessi tillaga, sem ég er efnislega samþykk, fái brautargengi hérí þingsölum.“ Þingfréttir í stuttu máli Sundkennsla í sjávarplássum Frumvarp til ættleiöingarlafía Ölafur Jóhannesson, dóms- málaráðherra, mælti fyrir stjórnarfrumvarpi til ættleið- ingarlaga í gær (mánudag), sömdu af sifjalaganefnd. í frumvarpinu felst ekki stefnu- breyling frá núgildandi lögum. Flkki er heldur um stórvægileg- ar efnisbreytingar aö ræða. Frumvarpið er í nteginefni sniðið eftir hliðstæðri löggjöf á Noröurlöndum. Sundlaug;ar/ skólakostnaður Karvel Pálmason (SFV’) mælti fyrir frumvarpi tii laga um breytingu á skölakostnaðar- ákvæðum. þess efnis, að ríkis- sjóður „skuli ávallt greiða 75% áætlaðs stofnkostnaðar sund- lauga í útgerðarstöðum, sem hafa innan við 4000 íbúa“. Karvel rökstuddi tillögu sina (og Jónasar Árnasonar Abl. og Sighvats Björgvinssonar A) með því, að engum væri sund- kunnátta nauðsynlegri en verð- andi sjómönnum. Litlum sveit- arfélögum (sjávarplássum) væri hins vegar um megn að rísa undir stofnkostnaði slíkra mannvirkja nema með hér til- lagðrl ríkisaðstoð. Um helm- ingur útgerðarstaða með undir 4000 íbúa hefðu ekki aðstöðu til sundkennslu i dag. Jónas Árnason (Abl) tók undir orð Karvels. Hann fór og lofsamlegum orðum utn stjórn- endur Reykjavíkurborgar fyrir það framtak, sem þeir hefðu sýnt við uppbyggingu sund- slaða í borginni. Hann hvatti og til almannaþátttöku í líkams- rækt, sem væri bezta heilsu- viirnin. Ellert B. Srliram (S) sagði skylt að stuðla að byggingu sundlauga sem viðast um land. Hitt væri vafasamara, hvort ætti, eins og hér væri lagt til, að taka eina grein íþróttamann- virkja út úr um sérstuðning eða miða ríkisaðstoð við ákveðna íbúastærö sveilarfélaga. Hann vakti athygli á þvi aö í fjárlaga- frumvarpi væri aðeins fjárveit- ing til að standa undir tilfall- andi kostnaði yið iþróttamann- virki, sem þegar væru á fram- kvæmdastigi, ekki til nýrra verkefna. Vandi íþróttasjóðs væri mjög mikill. Ekki væri nóg að benda á verkefni, þó gott væri út af fyrir sig, heldur þyrfti jafnframt að benda á tekjuöflun til að breyta orðum í efndir. Rekstur íþróttahreyf- ingarinnar, á hverrar vegum um 60 þúsund manns stunduðu einhvers konar íþróttir, kostaöi einn sér (fyrir utan fjárfesting- arkostnað) milli 400—500 m. kr. á ári. Fjárveiting hins opin- bera næmi aðeins um 40 m. kr. Fjármagns væri þvi vant — bæði til mannvirkjagerða og al- mennrar íþróttastarfsemi. Fuglafriöun Jónas Árnason (Abl) mælti furir fruntvarpi til laga urn fuglafriðun, þ.e. bann við haglabyssum sem taka fleiri en tvö skothylki, til samræmis við Alþjóðasamþykkt um verndun fugla. Eignarráö yfir landinu, gögnum þoss og sæöum Eggert G. Þorsteinsson og Jón Armann Héðinsson, þing- menn Alþýðuflokks, flytja frumvarp til laga um ofanskráð efní. Þar segir að landið allt með gögnum þess og gæðum og ntiðin umhverfis það, svo sem viðtekin efnahags- og fiskveiði- lögsaga hverju sinni greinir, skuli vera sameign þjóðarinnar allrar. að svo miklu leyti sem ekki er öðru vísi ákveðið í lög- um þessum. . . Umráðaréttur eignar þessarar skal vera í höndum Alþingis. Þrátt fyrir þessi ákvæði „skal bændum frjálst, ef og meðan þeir kjósa, að eiga jarðir til eigin búrekstr- ar. Bújörðum skulu fylgja þau hlunnindi, sem þeim hafa fylgt, ef einhver eru, og bændur hafa nýtt til bútekna, svo sem dún- tekja, eggjataka, selver og reki, þó ekki veiöirétur í ám né vötn- um“. Rikinu er skylt að kaupa bújarðir bænda, ef þeir óska, og miðist kaupverð við gildandi gangverð jarða til búrekstrar. Sömuleiðis hús og ræktun. Guðlaugur Þorvaldsson háskólarektor afhendir Ásdfsi Skúladóttur prófskirteini B.A.-prófs i félagsvisindadeiid. t Háskóli Islands: 67 stúdentar í lokaprófum í upphafi haustmisseris hafa eftirtaldir 67 stúdentar lokið prófum við Háskóla Íslands. Embættispróf í læknisfræði: (2) Björn Sigurðsson Kristján K. Víkingsson Aðstoðarlyfjafræðingspróf: (2) Anna Friðriksdóttir María Lovísa Einarsdóttir Embættispróf í lögfræði: (5) BjarniG. Björgvinsson Ingvar J. Rögnvaldsson Jónína Jónasdóttir Lára V. Júlíusdóttir Sigurður I. Halldórsson Kandídatsprófi í viðskiptafræði: (14) Agnar Öttar Norðfjörð Áskell E. Jónsson Finnur Geirsson Guðni Baldursson Helgi Jóhannsson Hermann A. Bjarnason Hilntir Hilmisson Inga Jóna Þórðardóttir Ölafur Haukur Johnson Ölafur Örn Klemensson Snorri Björn Sigurðsson Sturla Jónsson Sveinn Aðalsteinsson Þorkell Sigurlaugsson Kandídatspróf í fslenzku: (1) Eysteinn Þorvaldsson B.A.-pröf í heimspekideild: (12) Björn Pálsson Broddi Broddason Dagný Þorgilsdóttir Friðrik G. Olgeirsson Gunnar B. Arnkelsson Halldís Ármannsdóttir Hallur P. H. Jónsson Ólafur M. Jóhannesson Stefán Andrésson Steingrímur Jónsson Vilborg S. Árnadóttir Örnólfur J. Ólafsson Verkfræði- og raunvísindadeild: (14) Byggingarverkfræði: (1) Þorvaldur St. Jónsson Rafmagnsverkfræði: (1) Pétur E. Þórðarson B.S.-próf í raungreinum Stærðfræði: (2) Franz Árni Siemsen Steinþór Kristjánsson Efnafræði: (1) Kristinn Kristjánsson Líffræði: (4) Guðlaug Torfadóttir Helgi Jensson Sigríður Steingrímsdóttir Vigdis Einarsdóttir Jarðfræði: (2) Einar Hörður Svavarsson Hallgrímur Jónasson Landafræði: (3) Gísli Sváfnisson Guðmundur Guðjónsson Ólafur H. Jónsson B.A.-próf í félagsvísindadeild: (17) Anna G. Jónsdóttir Ásdis Skúladóttir Elisabet Halldórsdóttir Guðbjörg Ragna Ragnarsdótlir Guðríður Ragnarsdóltir Helgi Viborg IngibjörgE. Guðmundsdóttir Ingibjörg G. Guðmundsdóttir Kristín Geirsdóttir Kristin Gústafsdóttir Kristín S. Valdimarsdóttir Magnús Jónsson Ólafur Þ. Harðarson Ragnheiður Indriðadóttir Stefanía Traustadóttir Þorsteinn G uðmundsson Ævar Kjartansson Frá afhendipgu prófsktrteina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.