Morgunblaðið - 01.11.1977, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1977
21
Skemmtileg keppm
á júdómótinu
ALLGÓÐ þátttaka og skemmtileg I
keppni var i fyrsta júdómóti
þessa keppnistimabils sem fór
fram í íþróttahúsi Kennara-
hásköla íslands um helgina. Var
keppt í fjórum þyngdarflokkum í
mótinu, og mátti sjá margar
skemmtilegar vióureignir, sem
benda til þess að beztu júdó-
mennirnir séu í ágætri æfingu,
enda stórverkefni framundan.
Dagana 19.—20. nóvember n.k.
fer fram í Reykjavík alþjóðlegt
mót, svokallað „Opna skandi-
navíska meistaramótið", og þar
munu íslenzkir júdómenn fá
erfiða andstæðinga til að keppa
við.
í léttasta flokknum, 71 kg og
léttari, sigraði Halldór Guðbjörns-
son JFR á sunnudginn. Annar
varð Baldur Jóelsson, JFR, og
Armenningurinn Hilmar Jónsson
varð í þriðja sæti.
í flokki 71—78 kg sigraði
Garðar Skaptason, Ármanni,
Gunnar Guðmundsson úr Kefla-
vik varð í öðru sæti og Björn
Halldórsson, UMFK, varð í þriðja
sæti. 1 flokki 78—86 kg sigraði
Bjarni Friðriksson, Á Bjarni
Björnsson, JFR, varð í öðru sæti
og Jónas Jónasson, Ármanni, í
þriðja sæti.
i þyngsta flokknum, þar sem
keppendur voru 86 kg eða þyngri,
sigraði Norðurlandameistarinn
Gísli Þorsteinsson, Ármanni. Karl
Gíslason varð annar og Hákon
Halldórsson, JFR, varð þriðji.
Gfsli Þorsteinsson hefur náð góðu taki á andstæðingi sínum og þá er
ekkki að sökum að spyrja.
BEZTU LEIKMENNIRNIR
SAMTÖK íþróttafréttamanna
gengust fyrir vali og veittu
verðlaunagripi til þriggja leik-
manna í Norðurlandameistara-
mótinu i handknattleik.
Var
valinn bezti markvörður
mótsins, bezti varnarleikmaður
og bezti sóknarleikmaður.
Bezti markvörður mótsins
var valinn Norðmaðurinn
Morgan Juul, sem sýndi mjög
góða markvörzlu f öllum
leikjum Norðmanna í mótinu,
sérstaklega þó í leiknum við
ísland, þar sem hann var tví-
mælalaust maðurinn á bak við
norskan sigur. Hann stóð sig
einnig mjög vel í leiknum við
Dani og forðaði liði sínu þar frá
stærra tapi.
Bezti varnarleikmaðurinn
var valinn Ingemar Andersson
frá Svíþjóð, en hann átti stór-
glæsilegan leik með sænska
liðinu f úrslitaleiknum við
Dani. Var Anderson inná nær
allan tímann, og stjórnaði vörn
sænska liðsins, sem var mjög
góð.
Daninn Anders Dahl-Nielsen
var svo valinn bezti sóknarleik-
maður mótsins, og þurfti það
val ekki að koma neinum á
óvart. Það var Dahl-Nielsen
sem bókstaflega vann leik
Dana við tslendinga, skoraði
fimm mörk á stuttum leikkafla
í seinni hálfleik og Nielsen
gerði einnig mjög þýðingar-
mikil mörk í úrslitaleik Dana
og Svfa, auk þess sem hann átti
gullfallegar línusendingar í
öllum leikjum danska liðsins,
sem gáfu mörk eða vítaköst.
Dahl-Nielsen var einnig mark-
hæsti leikmaðurinn f Norður-
landamótinu, skoraði 21 mark,
en íslendingurinn Ólafur
Einarsson var næst mark-
hæstur, skoraði 20 mörk.
Meðfylgjandi m.vnd er af
verðlaunahöfunum. Lengst til
vinstri er Norðmaðurinn
Morgan Juul, Daninn Anders
Dahl-Nielsen er í miðjunni og
lengst til hægri er Svfinn Inge-
mar Andersson.
KR-ingar unnu stórsigur nyðra
KÖRFUKNATTLEIKSLIÐ
KR kom í heimsókn til Ak-
ureyrar um helgina og
hugðist leika tvo æfinga-
leiki gegn Þór. Ekkert varð
þó af síðari leiknum, þar
sem KR-ingar fóru suður
um miðjan dag á laugar-
dag, án þess að gefa nokkr-
ar skýringar og þótti Þórs-
urum að sjálfsögðu slík
framkomu súr í broti.
Liðin leiddu saman hesta sína á
föstudagskvöld og voru margir
áhorfendur mættir, enda nokkur
ár liðin siðan Þór hefir átt Iið i 1.
deild. Fyrri hálfleikurinn var
nokkuð jafn og staðan í hléi 43
stig gegn 31. í síðari hálfleiknum
kom styrkur KR fyrst í ljós og
þeir sigruðu með yfirburðum
skrouðu 123 stig gegn 65.
Athygli manna beindist fyrst og
fremst að þjálfurum liðanna,
Bandaríkjamönnunum, Piazza hjá
KR, og Mark Christensen hjá Þór.
Báðir áttu þeir ágætan Ieik,
Piazza skoraði 31 stig og var stiga-
hæstur KR-inga, en Christensen
skroaði 26 stig og var stigahæstur
Þórsara. Það verður fróðlegt að
sjá hvort Þórsarar halda sæti sínu
í deildinni. Það sem helst háir
liðinu er hversu breiddin er litil
og getur það orðið liðinu dýr-
keypt. Þórsarar virðast annars
ekki komnir í næga æfingu, þann-
ig virtist úthald sumra leikmanna
vera af skornum skammti, en það
stendur án efa til bóta.
Um lið KR er óþarft að fjölyrða.
Það er án efa lang sterkasta
körfuknattleikslið landsins i dag,
raunar á tíðum unun að horfa á
leik liðsins.
Stigahæstir KR-inga voru
Piazza 31, Jón Sigurðsson 19, Ein-
ar Bollason og Ágúst Karlsson 16
hvor, Bjarni Jóhannesson 15 og
aðrir minna.
Mark Christensen skoraði 26
stig fyrir Þór, Jóhannes Magnús-
son 13, Eirikur Sigurðsson 12 og
aðrir minna.
UNGLINGARNIR KEPPA
VIÐ WALES A MORGUN
SEINNI landsleikur Íslendinga
og Walesbúa i UEFA-
unglingakeppninni í knattspyrnu
fer fram á velli Swansea FC,
Veteh Field í Swansea. á morgun,
miðvikudaginn 2. nóvember.
Fyrri leikur liðanna fór fram á
Laugardalsvellinum og lyktaði
honum með jafntefli 1—1 þannig
að búast má við þvi að róðurinn
verði þungur fyrir islenzku pilt-
ana í leiknum í Wales.
islenzka liðið sem keppir IWal-
es verður skipað sömu piltum og
léku fyrri leikinn, og eru þeir
eftirtaldir:
Guðmundur Baldursson, Fram
Bjarni Sigurðsson, ÍBK
Benedikt Guðbjartsson, FH
Pálmi Jónsson, FH
Ágúst Hauksson, Þrótti
Benedikt Guðmundsson, UBK
Ömar Jóhannsson, ÍBV
Skúli Rósantsson, ÍBK
Kristján B. Olgeirsson, Völsungi
Helgi Helgason, Völsungi
Heimir Bergsson, Selfossi
Ingólfur Ingólfsson, Stjörnunni
Páll Ölafsson, Þrótti
Arnór Guðjohnsen, Víkingi
Sigurður V. Halldórsson, UBK
Þorvaldur Hreinsson. Aftureld-
ingu.
Þjálfari liðsins er Lárus Lofts-
son og er hann annar frá hægri i
aftari röð á nieðfvlgjandi myn
sem Friðþjófur Helgason tók ai
landsliðinu áður en það hélt ai
staö til Wales f gær. Lengst til
vinstri i aftari röð er aðalfarar-
stjóri liðsins, Helgi Danielsson
varaformaður KSÍ, og lengst til
hægri í aftari röð er Gisli Már
Olafsson aðstoðarfararstjóri.