Morgunblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÖVEMBER J977
LOKS ER ÍSLENDINGUR
OFARLEGA Á AFREKASKRÁ
Afrek undrabamáns Steuk ber hæst
ÞEGAR litió er á heimsalreks-
skrána f spjótkasti í ár, kemur í
ljós aö þar hafa litlar breytingar
oröið frá f.vrri árum. Iþróttamenn
frá tveimur þjóöum, Finnlandi og
Ungverjalandi, raöa sér í sjö af
tfu efstu sætunum, og er þaö líkt
og vant er. í þessum löndum þyk-
ir þaö tæplega frásagnarvert þótt
spjótió fljúgi 83—84 metra á mót-
um, og slfkt nægir ekki einu sinni
alltaf til verðlaunasæta. Sérstak-
lega er mikil framþróun f þessari
íþróttagrein í Finnlandi, þar sem
margir spjótkaslarar köstuóu
le.ngra en 80 metra s.l. sumar.
Beztum spjótkaStsárangri á
þessu ári náði heimsmethafinn
Miklos Nemeth frá Ungverjal^ndi
er hann kastaði 94,10 metra.- Er
það kast jafnframt þriðja kastið
sem er yfir 94 metra. Sjálfur hef-
ur hann kastað 94,58 metra og
V-Þjóðverjinn Klaus Wolfermann
kastaði 94,08 metra.
í sleggjukasti eru Sovétmenn
atkvæðamestir að venju og eiga
sjö af tíu beztu mönnunum í
greininni. Það er þó enginn
þeirra sem vakti mesta athygli á
árinu, heldur hinn 18 ára gamli
Austur-Þjóðverji Roland Steuk,
sem þeytti sleggjunni hvorki
meira né minna en 76,38 metra.
Er Steuk greinilega undrabarn í
þessari erfiðu íþróttagrein sem
hvað bezt má sjá á þvf að heims-
met í 19 ára aldursflokki er 72,74
metrar, og þótti það frábært afrek
þegar Sovétmaðurinn Sergei Lit-
vinov setti það. Á eflaust eftir að
heyrast mikið um Steuk í framtíð-
inni — hann á alla vega að eiga
jafnmörg ár á toppnum og aldur
hans er nú, ef að Iíkum lætur.
SLECiGJUKAST:
77,«0 Karl-Heins Hielim, V-Þv/kalamli (26)
76,52 Valetin Dmiírenko, S«vC*(r. (26)
76.50 Boris Zajtsjuk. Sovétr. (50)
76,44 Joclien Saclise, A-Þý/.kal. (29)
76,58 Koland Steuk. A-Þýzkal. (18)
75,78 Aleksandr Bunejev, Sovétr. (27)
75,70 Aieksandr Ko/lov, Sovétr. (25)
75,68 Valentin Tsjumak. Sovótr. (28)
75,60 Jurij Sedykli. Sovétr. (22)
75.50 Viktor Koroljev. Sovótr. (27)
SPJOTKAST:
94.10 Míklos Nemetli, l'iiKverjal. (51)
90.40 Ferenc Paragi. UnRverjal. (24)
89,48 Hannu Siitonen, Finnlandi (26)
89,42 Aimo Alio, Finnlandi (26)
89.50 Seppo. Hovinen, Finnlandi (26)
88,64 Nikolaj (Jrebnjev, Sovítr. (29)
88.04 Rod Ewaliko, Bandar. (25)
87,92 Jorma Jaakola, Finnlandi (27)
87,46 Sandor Boros. Unjíverjal. (28)
87,46 Micliael WessinK, V-Þvzkal. (24)
LANGT er orðiö síóan aó Islend-
ingar állu mann á lista yfir 10
beztu í einhverri frjálsíþrólla-
grein. Þaö er því meira en lílió
gleðiefni, aó f ár er nafn Hreins
Halldórssonar, kúluvarpara úr
KR og Evrópumeislara, f fremstu
röó kúluvarpara. Náöu aöeins
fjórir betri árangri en Hreinn á
þessu keppnistímahili, Austur-
Þjóöverjinn Udo Bayer, Terry Al-
britton frá Bandaríkjunum,
Geoff Capes frá Bretiandi og
Finninn Staatilberg. Náöi Al-
britton reyndar sínum bezta
árangri innanhúss s.l. vetur, þ.e.
21,50 m og afrek landa hans lYIe
YVilkins var einnig unniö í innan-
húskeppni.
Það kom nokkuð á övart að eng-
inn kúluvarpari skyldi ná 22
metra takmarkinu í ár. í febrúar
1974 varð Bandaríkjamaðurinn
George Woods fyrslur allra til
þess að ná því marki, er hann
varpaði 22,02 metra, en 1975
bætti svo landi hans Brian Old-
field um betur og varpaði 22,86
metra, sem er næsta ótrúlegur
árangur. Báðir þessir kappar eru
atvinnumenn í íþróttum og fá því
ekki afrek sfn skráð sem heims-
met. Handhafi heimsmetsins er
Sovétmaðurinn Aleksandr Bary-
sjinikov sem varpaði 22,00 metra f
fyrra. Var heimsmethafinn frá
keppni i sumar vegna meiðsla, og
er taliö ólíklegt að hann eigi eftir
að koiua fram á sjónarsviðiö aft-
ur.
Á því eru engin tvfmæli að
Austur-Þjóðverjinn, Udo Beyer
var bezti kúluvarpari heims á
þessu keppnistímabili Hann var
aðeins 18 ára þegar hann vakti
fyrst á sér verulega athygli sem
kúluvarpari, varpaði þá 19.65
metra. Sigráði Beyer næsta
örugglega bæði í Evrópubikar-
keppninni og í heimsbikar-
keppninni í ár og þau voru fá
mótin sem hann varpaði ekki
lengra en 21 metra á keppnistíma-
bilinu.
Eftir keppni Reykjavíkurleik-
anna í sumar lét Bretinn Geoff
Capes hafa það eftir sér í Morgun-
blaðinu að Hreinn Halldórsson
væri næst bezti kúluvarpari
heims, og er ekki fráleitt að hann
hafi rétt fyrir sér. Hreinn tók
næstum ótrúlegum framförum f
sumar, og átti fjöldamörg köst á
bilinu 20.60—21.00 metri. Hann
haf.ði hins vegar ekki heppnina
með sér, þar sem hann meiddist
síðari hluta sumars, um það leyti
sem hann hafði sjálfur ætlað sér
að vera á toppnum, og gat því
ekkert keppt tvo síðustu mánuði
keppnistímabilsins. Haldi svo sem
horfi er líklegt að Hreinn geri
enn harðari atlögu að toppnum í
kúluvarpinu, og víst er að hann á
alla möguleika. Bandarískir sér-
fræðingar halda því fram að bezti
aldur kúlu- og kringlukastara sé
30—33 ár. og á Hreinn því enn
nokkuö í það að ná toppaldrinum,
ef þessi dómur sérfræöinga er
réttur.
í kringlukastinu náði heims-
methafinn MacWilkins beztum
árangri, kastaði 69,20 metra og
var því nokkuð frá meti sinu.
Wilkins hélt sig mest í Evrópu í
sumar, ferðaðist þar um og tók
þátt í fjölmörgum mótum.
Var árangur hans mjög mis-
munandi, og f þau skipti sem
hann keppti við Austur-
Þjóðverjann Wolfgang Schmidt
tapaði hann. Schmidt varð sigur-
vegari i heimsbikarkeppninni og
náði þar sigurkasti sínu í síðustu
umferð, en hann er frægur fyrir
slíkt — náði t.d. silfurverðlaunun-
um á Olympfuleikunum f Montre-
al í síðustu úmferð.
Elzti maðurinn á afrekaskránni
í kringlukasti er Sovétmaðurinn
Vladimir Ljakhov sem nú er rösk-
Bretinn Geoff Capes. Hann náði frábærum kúluvarpsárangri á árinu,
en varó aó sjá af Evrópumeistaratitii sínum til Hreins Halldórssonar.
lega fertugur. Hann er þó ekki
elstur kringlukastara þeirra sem
eru í fremstu röð, þar sem bæði
Tékkinn Ludvik Danek og Banda-
ríkjamaðurinn A1 öerter eru
eldri, en þeir voru ofarlega á
blaði. Kastaði Danek lengst 64.76
metra i ár, en A1 Oerter sem er
tæplega 42 ára að aldri kastaði
62.51 metra í ár. Hafa bæði Danek
og Oerter lálið svo .um mælt að
þeir verði með á Olympíuleikun-
um í Moskvu 1980 og telja þeir sig
eiga góða möguleika á gullverð-
Iaununum þar. Pólski kúlu-
varparinn Komar, sem er 37 ára
stefnir einnig að þátttöku í
Moskvu.
KtlLLJVARP:
21.74 l'do Bcycr, A-Þyzkal. (22)
21,5» Tcrrv Albritton. Bandar. (22)
21,50 (icoff Capcs. Brctlandi (28)
21.22 Kcijo StaalilbcrK. Finnl. (25)
21.09 Hrcinn Halldórsson. Islandi (28)
21.06 ÍVIac Wilkins. Bandar. (27)
20.82 Kalf Kciclicnhacli. V-Þyzkal. (27)
20.70 Wladyslaw Komar. Póllandi (57)
20.69 Anatolij Jarosj. Sovctr. (25)
20.65 Al Fcucrbacli. Bandar. (29)
KKINGIA KAST:
«9,20 ,\lac Wílkins. Bandar. (27)
«8.2« WolfganK Sdimidt. A-Þyzkal. (25)
«8.08 Hcin Dircck Ncu. V-Þvzkal. (55)
«7.97 Jolin PoyvcII. Bandar. (50)
67.89 Kcn Stadcl, Bandar. (25)
67,06 Markku Tuokko, Finnl. (26)
«6.52 Alvin WaKncr. V-ÞCzkal. (27)
66.28 Knut Hjcltncs, NorcKÍ (26)
«5.58 Jim iVfcfioldrick, Bandari. (24)
65.40 Vladimir Ljakhov, Sovítr. (40)
Hreinn Halldórsson — íslenzki vfkingurinn. Langt er sföan Islending-
ur hefur veriö I hópi tíu beztu.
ENN GETUR ENGINN ÓGNAD
HEIMSMETIBOB BEAMONS
ENGIN stórmerki í langstökki á
þessu keppnistímabili, og er enn
langt í það að hió undraveróa
heimsmet í langstökki sem Bob
Beamon setti á Olympíuleikunum
í Mexikó 1968 veröi bætt. Þaö er
8,90 metrar, 45 sentimetrum
lengra en næsta bezta afrekió sem
unnið hefur veriö í þessari grein,
en þaö á Júgóslavinn Nenad
Stekie, sem stökk 8,45 metra í
fyrra. Bandaríkjamaöurinn Raph
Stekic, sem stökk 8,45 metra í
fvrra. Bandarfkjamaöurinn
Ralph Boston stökk reyndar 8,49
metra, en þá var niiðvindur
aóeins of mikill.
í ár stukku alls 19 lang-
stökkvarar lengra en 8 metra, eða
sex færri en í fyrra. Beztu lang-
stökkin í ár áttu þeir Jacques
Rousseau frá Frakklandi og
Stekic sem stukku lengst 8,33
metra og 8,32 métra, en þá var
miðvindur of mikill.
I þrístökki var hið sama upp á
teningnum. Heimsmetinu varð
ekki einu sinni ógnað. Anatolij
Piskulin frá Sovétríkjunum stökk
reyndar lengst 17,30 og 17,09 i
sumar, en í bæði skiptin var um
meðvind að ræða. Piskulin var
einna jafnastur þrístökkvara í
sumar, og varð sigurvegari á nær
öllum mótum sem hann keppti í.
Beztu heimsafrekin í langstökki
og þrfstökki voru:
Langstökk:
8.27 Ncnad Slckic. JÚKÓslavíti (26)
8.25 Jacqucs Kousscau. Frakklandi (26)
8.24 Arnic Kohinson. Kandarfkjununl (29)
8.22 Larry Douhlcy. Bandar. (19)
8,18 Cliarilon Fliizuclcn, Níkci íu (24)
8,15 Jamcs Loflon. Kandar. (21)
8.12 David Giralt, Kúhu (18)
8.10 Kany Williams, Kandar. (24)
8.10 Frwin PIÖRcr. A-Þýzkal. (21)
8.09 Pliilippc Dcrochc. Frakkl. (25)
Þrístökk:
17.19 Ron Livcrs, Bandar. (22)
17.04 Analolij Piskulin, Osvclr. (25)
16.90 Viklor Sancjcv. Sovclr. (52)
16.90 Juaii Vclasqticz. Kúhu (21)
16.88 Willic Banks, Bandar. (21)
16.84 Tommy Hayncs. Kandar. (25)
16.85 Alcksandr Jakovlcv. Sovclr. (20)
16.82 Jamcs Btills. Bandar. (28)
16,81 J. Carlos dc Olivcira,
Brasilfu (25)
HEIMSAFREKASKRAIN 1977
V