Morgunblaðið - 13.11.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.11.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÖVEMBER 1977 47 Nýtt íslenzkt verk í Þjóðleikhúsinu: Stalín er ekki hér Föstudagskvöldið 18. nóvember verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu nýtt (slenzkt leikrit, Stalfn er ekki hér, eftir Véstein Lúðvíks- son. Er þetta þriðja nýja fslenzka verkið sem frumsýnt er f Þjóð- leikhúsinu á þessum vetri. Leik- stjóri er Sigmundur Örn Arn- grfmsson og leikmynd og búninga hefur Magnús Tómasson gert. Leikritið Stalin er ekki hér ger- ist í Reykjavík árið 1957 og sagði höfundurinn á fundi með frétta- mönnum að hann greindi þarna frá fjölskyldu og ýmsum átökum og deilum innan hennar og er höfuðviðfangsefnið fjölskyldan í samfélagslegu samhengi, sagði Vésteinn. Sagði hann að leikritið hefði verið í smíðum síðan í apríl 1973, en hugmyndin væri eldri, og lauk hann þriðju gerðinni s.l. haust. Þá ákvað Þjóðleikhúsið að taka verkið til sýningar og sagði Vésteinn að hann hefði skrifað verkið þrisvar sinnum og reyndar að ýmsar smærri breytingar hefðu verið gerðar nýverið á æf- ingum. Persónur og leikendur eru 6 og ekki um neitt eitt aðal- hlutverk að ræða en þau eru þessi: Rúrik Haraldsson leikur föðurinn, Þórð Karlsson, Bryndís Pétursdóttir leikur Mundu, síðari konu hans, þrjú börn Þórðar af fyrri hjónabandi leika Steinunn Jóhannesdóttir, Sigurður Sigur- jónsson og Anna Kristín Arn- grímsdóttir og tilvonandi tengda- son leikur Sigurður Skúlason. Byrjað var að æfa verkið s.l. vor og síðan haldið áfram nú í haust. Sagði Sveinn Einarsson þjóðleik- hússtjóri að leikritið kæmi út hjá Iðunni á frumsýningardaginn og einnig nefndi hann að það hefði verið notað við bókmennta- kennslu í skólum. Stalín er ekki hér er fyrsta leik- rit höfundar, sem sýnt er í Þjóð- leikhúsinu, en hann hefur áður skrifað smásagnasafn, skáldsögur og eitt leikrit er sýnt var á Akur- eyri, auk styttri leikþátta. Sagðist Vésteinn Lúðvíksson hafa i huga að snúa sér fremur að leikritum en skáldsagnagerð í framtíðinni. Höfundur bókarinnar Barnaleiks skýrir hvernig vinna á flötunguna, en skilgreiningum bókarinnar fylgja svokallaðar rúmmyndir á lituðum blöðum, sem klippa má út og Ifma saman á um 50 mismunandi vegu eftir lögmálum rúmfræðinnar. Tímamótabók í rúmfræði komin út NÝLEGA hefur Bókamiðstöðin f Reykjavfk gefið út bókina Barna- leik eftir Einar Þorstein Asgeirs- son. Með bókinni er í fyrsta skipti gerð tilraun til þess hér á landi að gera nám í flatarmáls- og rúm- fræði aðgengilegt fyrir allt náms- fólk. Að sögn höfundar bókarinnar var það ætlun hans að gera náms- efnið að leik, sem fléttaðist inn í vitund lesandans og verður þann- ig undirstaða að skilningi hans á stærðfræði. í bókinni er fjallað um reglu- Iegar formmyndir, svokallaða flötunga. Af þeim eru til 35 meira eða minna reglulegir, sem tengj- ast saman eftir ákveðnum lögmál- um. í þessu fyrsta hefti er aðeins fjallað um niu fyrstu reglulegu flötungana en hinir koma síðar, þar sem von er á bókaflokki eftir sama höfund um þetta efni. Auk fyrrnefndra 35 flötunga er hægt að mynda fjölmarga aðra siður reglulega flötunga skylda þess- um. Að sögn höfundarins er heftinu ekki fyrst og fremst ætlað að vera stærðfræðikennslubók, heldur öllu 'fremur leiktæki til form- skynjunar og til að æfa rökræna hugsun. Bókin er að sögn útgef- anda upplýsandi bæði fyrir börn og fullorðna og er jafnframt fyrir- hugað að gefa hana út í Banda- rikjunum. Einar Þorsteinn lauk námi i arkitektúr árið 1969 en hefur á síðari árum helgað sig almennri hönnun og könnun á lögmálum rúmfræðinnar. Sigurður Skúlason og Bryndfs Pétursdóttir eru hér f hlutverkum sfnum f Stalfn er ekki hér, sem verður frumsýnt á föstudag. Bók um sjón- varpsstrák- inn Palla Guðrún Helgadóttir. KOMIN er út ný barnahók eftir Guðrúnu Helgadóttur. Nefnist hún „Páll Vilhjálmsson" og er um sjónvarpsstrákinn Palia úr Stundinni okkar, en Guðrún samdi þætti Sirrfar og Palla sem kunnugt er. I bókinni segir höfundur frá Palla eftir að hann hætti i Sjón- varpinu og viðskiptum hans við umheiminn. Gunnar Baldursson, sem upphaflega „hannaði" Palla, hefur gert myndir á myndasíður, en Kristín Pálsdóttir tók myndir, sem prýða bókina. Sérstakar siður úr „brandarabókinni" hans Palla eru í bókinni, en að öðru leyti er hún samfelld saga. Bókin er 112 bls. að stærð. Ut- gefandi er Iðunn. Fyrsta bók Guðrúnar Helgdótt- ur um Jón Odd og Jón Bjarna kemur út í Kaupmannahöfn þessa dagana i þýðingu Helle Degnböl, og verið er að undirbúa útgáfu í fleiri löndum. Mfög óhreinn fatnaður þarf mjög gott þvoUaefnt... Með Ajax þvoUaefní verður mistiti þvotturinn alveg jafn hreinn og suðuþvotturinn. Hinir nýju endurbættu efnakljúfar gera þaÓ kleift aó pvo jafn vel meó öllutn þvottakerfum. Strax við lægsta hitastig leysast óhreinindi og blettir upp og viðkvæmi þvotturinn verður alveg hreinn og blettalaus. Við suðuþvott verður þvotturinn alveg hrpinn og hvítur. Ajax þvottaefni, með hinum nýju efnakljúfum sýnir ótviræða kosti sina, einnig á mislitum þvotti — þegar þvottatíminn er stuttur og hitastigið lágt. Hann verður alveg hreinn og litirnir skýrast. Hreinsandi efni og nýjr. endurbættir efnakljúfar ganga alveg inn i þvottinn og leysa strax upp óhreinindi og bletti i forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök forþvottaefni. Ajax þvoUaefní þýðiri gegnumhreínn þvottur með ölium þvottakerfum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.