Morgunblaðið - 13.11.1977, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.11.1977, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÖVEMBER 1977 53 birtist um þetta leyti sú frétt að Bing veiddi ekki sjálfur laxinn heldur hefði hann aðstoðar- menn, er sæju um að krækja í hann, en Bing sjálfur landaði honum. Féll Bing augsýnilega miður að þessi frétt hefði kom- ist á kreik. því hann hafði stundað stangaveiði um árabil og verið við veiðar í Alaska, Kanada, Englandi og Bahama- eyjum. Þótti honum, sem þarna hefði ómaklega verið að sér vegið. Reykjavík féll Bing aug- sýnilega vel og bar hann mikið tof á borgina og umhverfi henn- ar. Mikið þótti honum koma til Elliðaánna og eyddi hann þar einni dagstund við laxveíðar. Gekk honum þar mun betur en fyrir norðan og taldi ástæðuna þá, að þar hefði hann verið iaus við kvikmyndatökurnar. Þegar Bing var við veiðar í Elliðaán- um, safnaðist talsverður fjöldi fólks saman og horfði á. Sam- gladdist það honum innilega er hann landaði vænum fiski og snart það hann augsýnilega djúpt. Var Bing ljósmyndaður í bak og fyrir af áhorfendunum, meðan á veiðunum stóð og hafði hann orð á því eftir á, að á íslandi virtust sér allir þekkja sig. Kom það honum nokkuð á óvart, þvi hann hafði ekki búist við því að vera hér jafnvel þekktur og raun bar vitni. Bing Crosby samdi lag um ísland og miðnætursólina og söng hann það i Þjóðleikhúsinu, er hann skoðaði það, fyrir fáeina vini. Að þv loknu sagðist hann aldrei hafa sungið fyrir jafnfáa opip- berlega. Lag hans um island sýnir vel hve mikil áhrif landið hefur haft á hann. Árið 1971 kom upp mikil deila milli Dana og B : ndaríkja- manna út af netaveiðum Dana á laxi út af Grænlandsströnd. Var Bing þar framarlega í flokki þeirra er banna vildu alla veiði Dana, þar sem þeir töldu að hún spillti laxagengd í ám Norður-Ameríku. Var send nefnd á vegum Bandaríkja- manna er skyldi hafa viðræður við Dani. Vakti þá töluverða athygli að Bing Crosby var ekki einn af nefndarmönnum, þó svo hann hefði ætið barist ákaft á móti stefnu Dana. Var haft á orði að hann hefði ekki viljað fara, af ótta við að Danir gerðu alvöru úr því að hætta að kaupa plötur hans, léti hann verða af þvi að koma. Var þessi ráðstöf- un Dana svar við þeirrí áskorun Bandarijamanna til almenn- ings að kaupa ekki danskar vör- ur, fyrr en Danir létu af stefnu sinni. Svo hefur enn ekki orðið, svo segja má að sú barátta hafi öll verið unnin fyrir gýg. Fyrir utan það að vera frá- bær söngvari og skemmtikraft- ur var Bing einnig vel liðtækur i golfi. Hann eyddi oft mörguni klukkustundum á dag við að spila golf og kunnugir sögðu að það hefði aðeins verið þar. sem hann sýndi geðbrigði. Sjálfur sagði hann, að hann væri aldrei jafnánægður og eftir að hafa unnið Bob Hope í golfi. Bing hafði árið 1937 komið á fót hinni árlegu Bing Crosby golf- keppni og lét hann sér ætið mjög annt um hana. Auk þess að leggja mikið fé i golf, átti hann hlut i mörgum fótboltalið- um og fjármagnaði marga hnefaleiki. Þá má og nefna að hann var mikill áhugamaður um veðreiðar og átti fjölda hesta, og m.a. hlut í sigurvegar- anum í „The Irish Derby 1967". Bing Crosby var ólikt mörg- um öðrum stjörnum snjall í við- skiptum og hafði keypt hluta- bréf i mörgum fyrirtækjum. Hann átti hlut i olíulindum. nautabúi og leikfangaf.vrirtæki svo dæmi séu nefnd. Með fráfalli Bing Crosbys er horfinn einn af litríkustu per- sónum skemmtiiðnaðarins. Hann skilur eftir sig stórt skarð í tónlistarheiminum sem erfitt mun verða fyrir eftirmenn hans að fylla. En þó að Bing sé horfinn, þá lifir rödd hans á plötum og í hjörtum almenn- ings, þar sem hún mun geymast um ókomna tíð. Minning: Oddný Friðrikka Árnadóttir Oddný Friðrikka Árnadóttir á Ingimarsstöðum á Þórshöfn var fædd 16. júli 1893, hún andaðist 29. september s.l. Minningar- athöfn fór fram á heimili hinnar látnu 8. október, jarðsett var i Sauðaneskirkjugarði. Minningar- ræðu flutti sonur hinnar látnu, sr. Ingimar Ingimarsson (prestur í Vík i Mýrdal). Því miður gat ég ekki verið við jarðarförina en hugurinn var hjá henni og afa þennan dag. Ég frétti hjá vinkonu minni á Þórshöfn, að þaó hefði verið dásamlegt veður á jarðar- farardaginn, logn og sólskin og að afi hefði staðið sig með sóma eins og hans var von og vísa. Já það var sólskin þennan dag og það var alltaf sólskin í kringum ömm.u og og hún hafði gott lag á að koma öllum í gott skap. Amma og afi eignuðust 11 börn, fyrst 8 stúlkur og síðan 3 drengi. Eru 9 þeirra á lífi. Ég á margar góðar endur- minningar frá Þórshöfn, en þar ólst ég upp til 13 ára aldurs hjá móður minni, Þórdísi, og stjúpa, Karli Hjálmarssyni, en þá fluttust þau til Hvammstanga. Það var alveg sama á hvaða tíma við syst- kinin komum í heimsókn til ömmu, alltaf virtist hún hafa nægan tíma til að tala við barna- börnin sín, enda notuðum við okk- ur það óspart. Það var svo ótal margt sem amma kunni, hún var mikil hannyrðakona, það lék allt i höndunum á henni og varð allt svo myndarlegt og fallegt. Hún saumaði alls kyns fatnað, prjón- aði bæði í höndum og á vél, hekl- aði, kunstbroderaði og orkeraði svo eitthvað sé nefnt. Hún stjórn- aði í mörg ár barnakórnum í þorp- inu og einnig kirkjukórnum. Hún kenndi nokkrum börnum á orgel, þar á meðal mér. Ég átti nú oft erfitt með skapið í þá daga_en amma gat alltaf talað mig til með sinni hlýju og fengið mig til að gleðjast á ný og þurfti oft mikla þolinmæði til, en hún amma mín gafst aldrei upp að því hún vissi, að innst inni var ég viðkvæm og endaði það alltaf með, að ég hljóp út frá henni með sippubandið mitt eða tunnugjörð og hoppaði og skoppaði um allar götur og endaði oft niðri i f jöru þar sem ég lét öldurnar elta mig. Amma og afi voru mjög ánægð í sinu hjóna- bandi, þau sátu oft ein í stofunni sinni með kertaljós og iétu vel hvort að öðru. Ættu allir sem þau þekktu að taka þau til fyrirmynd- ar, það hef ég reynt að gera. Amma og afi bjuggu í einu elsta húsinu á Þórshöfn þegar ég átti þar heima, sem þau héldu vel við á meðan þau bjuggu i því, en svo byggðu þau sér hús fyrir um 12 árum uppi á holtinu, afar huggu- legt hús. Allt var svo glerfínt og hreint hjá þeim og alveg merki- legt hvað þau gátu haft þetta allt- af fínt þó að mikill gestagangur væri hjá þeim. Gamla húsið þeirra stendur að vísu á sinum stað en það er til skammar fyrir Þórshafnarbúa hvernig búið er að fara með húsið. Mér fyndist að hreppsbúar ættt að sýna sóma sinn í því að halda húsinu við, þvi að það var staðarprýði á meðan þau bjuggu í því. Húsið var á þremur hæðum og kjallari eins og svo mörg hús voru i gamla daga. Það var orðið of erfitt fyrir svo fullorðin hjón að búa í því, einnig Framhald á bls. 67 alfasud ti er ótrúlega kraftmikil og hraöskreiö bifreiö meö frábæra aksturseiginleika Vió vonum, að næst nái Ijósmyndarinn aö smella af, örlítiö fyrr. JÖFUR HR AUÐBREKKU 44-46 - KÖPAVOGl - SÍMI 42600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.