Morgunblaðið - 13.11.1977, Page 10

Morgunblaðið - 13.11.1977, Page 10
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1977 Hjálparsveitarrnenn við björgunarœfing- ar í Egjafjallajöktt Nýverið hélt Hjálpar- sveit skáta í Reykjavík mjög fjölmenna björgunaræfingu i Fall- jökli Eyjafjallajökuls og voru þá meðfylgjandi myndir teknar. í þetta sinn höfðu þeir boðið með sér til æfingarinnar félögum sínum úr hjálparsveitinni í Kópa- vogi og nokkrum félög- um úr Flugbjörgunar- sveitinni í Reykjavík, og voru þarna samankomnir tæplega 50 manns. Aðalverkefni æfingar- innar var á laugardegin- um, þegar fyrst var rifj- uð upp grundvallartækn- in við ferðalög í skrið- jöklum, svo sem hvernig beita skuli mannbrodd- um og ísexi. En seinna um daginn voru teknar fyrir hinar ýmsu aðferðir til að ná slösuðum mönn- um upp úr jökulsprungu, hvort sem björgunar- maður er einn eða ásamt fleiri. í þessu tilviki er um nokkrar aðferðir að ræða. Þó veldur það jafn- an miklum vandræðum að bjarga manni, sem fallið hefur niður í mjög þrönga jökulsprungu, þannig að ekki er hægt að koma böndum á hann. í því tilfelli er nauðsyn- legt að björgunarmaður fari niður til hins slasaða og höggvi ísinn frá hon- um svo hægt sé að koma á hann böndum. Þessar að- ferðir voru allar æfðar. Seinnipart dagsins komu menn sér niður aftur, en þá hafði rignt meira og minna allan daginn. Nokkuð innan við lón jökulsins var svo slegið upp tjöldum. Snemma morguninn eftir voru all- ir vaktir og sagt, að f jórir félagar væru slasaðir uppi í jökli og þyrftu aðstoðar við. Var þá hópnum skipt í fjóra hópa og hinum ýmsa björgunarbúnaði skipt niður á hópana, t.d. sjúkrabörum, spelkum Myndir og texti: Sighvatur Blöndahl fyrir beinbrot, útbúnaði til vökvagjafar o.fl. En hér var að sjálfsögðu um að ræða tilbúið slys, þar sem nokkrir félagar höfðu farið fyrr um nótt- ina og komið sér fyrir á ýmsum stöðum uppi í jöklinum í um 1200 m hæð. Nokkuð greiðlega gekk að komast upp á jökulinn og finna hina slösuðu. Gerðu hóparnir fjórir þegar ráðstafanir til að ná hinum slösuðu upp úr sprungum þar sem þeim hafði verið komið fyrir og gert var að sárum þeirra eins og kostur var á. M.a. var einum sjúkl- ingi gefinn vökvi í æð af lækni sveitarinnar, sem við það tækifæri leið- beindi mönnum ef slík staða kæmu upp og þeir þyrftu að gefa vökva. Þegar búið var að gera að Hér hefur maður fallið f mjög þrönga sprungu, svo að björgunar- maður þarf að fara til hans og höggva frá honum ísinn, til þess að hægt sé að koma á hinn slasaða böndum. Hér má sjá þegar björgunarmaður fer niður í jökulsprungu til sjúklings, sem fallið hefur þar niður, en sfðan mun sá sem niður fer koma hinum slasaða upp í samvinnu við mennina á brúninni. sárum sjúklinganna var þeim komið fyrir á sjúkrabörum og þeir bornir áleiðis niður í bíl- ana, sem biðu niðri. Eftir mjög vel heppn- aða æfingaferð var komið í bæinn seinnihluta sunnudags, og má geta þess að mjög góð sam- vinna hefur skapast milli hinna einstöku björgunaraðila, sem til þessa hafa starfað að mestu leyti alveg sjálf- stætt. gHiP' Haldið heim á leið, ekið yfir jökulána úr lóninu, en hún var óvenju vatnslftil á þessum tfma þrátt fyrir gffurlegar rigningar. Hér er einn hinna slösuðu borinn niður sléttan jökulinn.en þaðer mikilsvert aðvelja greiðfærustu leið með sjúklinga, svo að þeir verði fyrir sem allra minnstu hnjaski. félagar sveitanna fóru æfingarferð um skriðjökulinn. 11 111 i , ['H I I I >il H t;t I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.