Morgunblaðið - 13.11.1977, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.11.1977, Qupperneq 8
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1977 saman, svo og í kvikmyndum og á plötum. Til stóð að gerð yrði ein „vegamynd" í viðbót og átti hún að heita ..Vegurinn til eilffrar æsku“ og höfðu þau Bob Hope og Dorothy Lamour iokið við að skrifa handritið en því miður entist Bing eWki ald- ur til að leika i hénni. J Það er ævintýri likast, hvern- ig Bing söng sig inn i hjörtu almennings og frami hans var skjótur innan tónlistarheims- ins. Aðdáendahópur hans var alla tíð mjög stór og náði til flestra Bandaríkjamanna á hans aldri. Utan Bandaríkj- anna var hann einnig mjög vin- sæll og á hljómleikaferðalagi, sem hann tókst á hendur stuttu fyrir andlát sitt, var uppselt á nær alla tónleika hans. Til marks um vinsældir hans má nefna að í vinsældakosningum i Bandarikjunum seint á fimmta áratugnum varð hann vinsa?lli en bæði Eisenhower hershöfð- ingi og Truman fyrrum forseti. Löngu áður en Elvis Presley kom til sögunnar, var hann orð- inn einn af ríkustu skemmti- kröftum i heimi og áhrif hans á aðra söngvara verða seint full- metin. t.júlí 1969 kom Bing í fyrsta og eina skiptið til Islands. Til- gangurinn með þeirri för var að taka upp sjónvarpsþátt með kappanum við laxveiðar i Laxá í Aðaldal. Þar kom hann fram ásamt þekktum bandarískum blaðamanni, i þættinum „American Sortsman" en sá þáttur naut þá gífuriegra vin- sælda þar í landi. Dvaldist Bing við laxveiðar i nokkra daga, en kom siðan til Reykjavíkur. Hon- um líkaði prýðilega vist sín á Islandi og fór fögrum orðum um land og þjóð eins og lesa má i Mbl. frá þessum tima. Um Laxá i Aðaldal sagði hann að hann hefði aldrei séð á sem liti út fyrir að vera jafngóð fiskiá sem þessi. Veiðin fórst honum vel úr hendi, þó ekki veiddi hann mikið og kenndi hann kvikmyndatökunni um það. Sagði hann að allerfitt hefði verið að fylgja kvikmyndatöku- mönnum i einu og öllu, því oft hefði svo háttað til, að þar sem honum hefði litist bezt á, hefði birta veríð ónóg eða aðrar að- stæður ekki hentað kvikmynda- vélinni. Burtséð frá því naut hann þess að veiða í óspilltu umhverfinu og hefði gjarnan viljað koma aftur, og þá með fjölskyldu sina. I fjölmiðlum Á þessum árum var talið mjög gróðavænlegt að hafa fræga söngvara i aðalhlutverk- um í kvikmyndum og þess varð því ekki langt að bíða að Holly- wood fengi augastað á Bing. Honum var boðið hlutverk i myndinni „The Big Broadcast" og var það upphafið að löngum kvikmyndaferli, þar sem hann lék i sextiu og átta myndum. 1 flestum þessum myndum söng Bing og kom hann þá jafnan inn á sviðið, hamingjusamur og áhyggjulaus, syngjandi bjart- sýnissöngva sem almenningur dýrkaði svo nijög á hinum erf- iðu og hörðu kreppuárum. Það er erfitt að imynda sér Bing alvarlegan, en eigi að siður vann hann óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á prestinum í myndinni „Going My Way“ árið 1944. Það eitt sýnir vel hve fjöl- hæfur Bing var að hann skyldi geta skilað jafn alvarlegu hlut- verki eins vel og raun bar vitni. Árið 1940 lék hann ásamt þeim Bob Hope og Dorothy Lamour i fyrstu „vegamynd- inni“ „The Road to Singapore", en þær myndir urðu alls sjö. Vegamyndirnar náðu geysileg- um vinsældum og færðu honum mikinn frama innan kvik- myndalistarinnar, auk þess sem þær urðu upþhafið að kynnum hans og Bob Hope. Þeir tveir bundust þar órjúfanlegum vin- áttuböndum og komu þeir oft- sinnis fram á skemmtunum Bing Crosby sem presturinn ( „Going My Way“. Golfleikarinn Bing Crosby. Bing Crosby og Axel Aspelund með lax sem Bing veiddi í Elliðaánum. Múgur og margmenni safnaðist saman við árnar til þess að horfa á hann landa laxinum. Við það tækifæri sagði Bing: „Ég held að hér séu fleiri áhorfendur en séð hafa þrjár sfðustu myndir ntínar." vert. Þá hneigðist hann snemma að iþróttum og þá einkanlega að stangaveiði og hornabolta. Þrátt fyrir þessi áhugamál sín var hann sendur til háskólans í Conzaga þar sem hann lagði stund á lögfræði. Mun það hafa verið að vilja móður hans sem lagði míkla áherslu á að börn sín færu ekki fyrr en bróðir Bings. Everett. tók við umboðsstarfí hans, að lukkuhjólið tók að snú- ast. Hann fékk talið Bing á að koma fram í útvarpsdagskrám og tókst á þann hátt að skjóta honum upp á stjörnuhimininn. Bíng varð fljótlega geysilega vinsæll og plötur hans tóku að seljast i milljónatali. Arið í ár hefur reynst tónlist- arheiminum þungt í skauti. Með örskömmu millihili hafa þrjár stórstjörnur tónlistarínn- ar fallið i valinn. Fyrst andað- ist Maria Callas ein af mestu óperusöngkonum vorra tíma, þá Elvis Presley rokkkóngur- inn stórkostlegi og nú Bing Crosbv. Bing Crosby lést hinn 14. október sfðastliðinn úr hjartaslagi, sjöHu og fjögurra ára gamall. Hann hafði verið að leika golf ásamt vinum sfnum skammt utan við Madrid er dauða hans har að höndum. Bing Crosby' var einn þekkl- asti og vinsælasti söngvari i heimi. Rödd hans var hvar- vetna þekkt og plötur hans seldust í milljónaupplögum um allan heim. Þegar hann raulaði lög eins og „White Christmas" var eins og allar áhvggjur liðu út I veður og vind og áhevrend- ur glevmdu hæði stund og stað. Hann töfraði alla með látlausri framkomu sinni, gleðin sem hann söng um var sönn og fölskvalaus. Bing Crosby fæddist árið 1903 í borginni Tacoma i Washingtonfylki, var fjórði i röðinni af sjö systkinum. Hann var skirður Harry Lillrs Crosby, en fyrri nöfn hans tolldu ekki við hann og var hann snemma kallaður Bing eftir teikni- myndaseriu, sem hann las nrikið. Fjölskylda hans var mjög músikölsk og tónlist heyrðist íðulega á heimili hans. Bing þótti snemma hafa fallega rödd og í æsku söng hann tals- Vegnrinn til eilífrar æskn menntaveginn. Seinna sagði Bing, að það eina sem hann hefði lært þar, hefði verið að koma fram og halda ræður, en það kom honum að miklu gagni siðar meir. Bing ílengdist ekki í háskóla. Ásamt vini sínum stofnaði hann söngdúett og fóru þeir til Kaliforniu, þar sem þeir komu viða fram. I Kaliforníu heyrði náungi að nafni Paul Whiteman í þeim og hreifst mjög af sviðsframkomu Bíngs. Bauðst hann til að vera umboðsmaður þeirra og stofnað var tríóið „The Rhythm Boys". Það skipuðu þeir Bing og félagi hans úr dúettinum ásamt ein- um öðrum söngvara. „The Rhythm Boys" áttu töluverðu fylgi að fagna en það var þó BINC CROSBY

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.