Morgunblaðið - 13.11.1977, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NOVEMBER 1977
55
af frumstarfi Hollendingsins Jan
Hospers á þvi sviði hérlendis.
Það yrði alltof langt að tíunda
hér allt það, sem Trausti hefur
skrifað síðustu áratugina. Hann
hefur nú um alllangt skeið unnið
markvisst að þvi að hrekja þá
kenningu, kennda við skrið hafs-
botna og Svokallaðar plötur, sem
nú er mest í móð með jarðvisinda-
mönnum. Svo margir hafa nú
aðhyllzt þessa kenningu, að heita
má að hérlendis standi Trausti nú
einn, sem Héðinn í brennunni, en
hann lætur engan bilbug á sér
finna og ekki er ráðlegt neinum
aukvisa i jarðfræðunum að fara
að gantast við hann. Sá gæti
fengið útreið ekki betri en
Lambasonurinn forðum, því
Trausti lumar á ýmsu í pússi sinu.
Að vísu telur sá er þetta ritar
rökin með botnskriðs-
kenningunni sterkari en svo, að
hann treysti sér til að mæla gegn
þeim, enda trúandi á Alfred
Wegenér áður fyrr, en þó er sitt
hvað enn, sem torvelt er að skýra
út frá plötum og botnskriði og því
hollt jarðvísindunum að einhverj-
ir haldi áfram að minna á þetta.
Afköst Trausta Einarssonar á
sviði jarðvísinda eru með ólíkind-
um, þegar haft er í huga, að hann
hefur ætíð haft kennslu að aðal-
starfi og rækt það starf af stakri
samvizkusemi, eins og önnur þau
störf, sem hann hefur tekið að
sér, svo sem vinnu að gerð
almanaks i áratugi. Seint mun ég
gleyma dugnaði hans og ósér-
hlífni í sambandi við alþjóðlegu
jarðfræðingaferðina um ísland
sumarið 1960.
fimmta áratug af fádæma áhuga
og dugnaði. Það hefur verið
honum ærinn styrkur á hans
rannsóknaferli að vera ágætlega
menntaður í stærðfræði og eðlis-
fræði, svo að þar hefur hann
heldur betur skákað jarðfræðing-
unum, en þeir hafa á móti státað
af meiri undirstöðumenntun f
jarðfræðilegum vinnubrögðum.
Framlag Trausta á sviði
jarðvísinda er þvi eðlilega mikil-
vægara á sviði jarðeðlisfræði en
jarðfræði, þótt margt hafi hann
einnig lagt af mörkum á siðar-
nefnda sviðinu og láti þar fátt sér
óviðkomandi.
Fyrstu árin eftir heimkomuna
vann Trausti einkum að könnun á
eðli jarðhitans á íslandi. Hann
birti um þetta greinar i greina-
safni Vísindafélags Islendinga og
dró saman niðurstöður sínar i
ritinu Uber das Wesen der
heissen Quellen Islands, sem út
kom 1942 og er vissulega braut-
ryðjandi rit. Umfangsmiklar
jarðhitarannsóknir siðustu ára-
tuga hafa i engu haggað grund-
vallarniðurstöðum þeim, sem
Trausti setti fram í þessu riti.
Eftir að hafa gert jarðhitanum
skil, tók Trausti móbergsmyndan-
ir landsins til umfjöllunar. Hann
birti um þær rannsóknir langa
ritgerð: Origin of the basic tuffs
of Iceland, árið 1946 og hefur sýnt
mikinn áhuga á þessu viðfangs-
efni æ siðan og verið þar, um
margt á öndverðri skoðun við
aðra íslenzka jarðvísindamenn.
Áður en hann sendi frá sér þetta
móbergsrit hafði hann birt gagn-
merkar greinar um jarðfræði
Vestmannaeyja og sýndi þar m.a.
fram á, að Helgafell hefur ekki
gosið á sögulegum tíma.
Þann 29. apríl 1947 hófst mikið
gos í Heklu eftir rúmlega aldar-
hlé og varaði það i þrettán
mánuði. Var Trausti í hópi þeirra,
er mest lögðu á sig um rannsókn á
því gosi. Kom það einkum í hans
hlut að kanna nýja hraunið. Hann
framkvæmdi m.a. mælingar á hita
og seigju (viscosity) þess og var
hvorttveggja nýiunda hérlendis.
Hann gerði sér sjálfur einfalt
tæki til mælinga á seigjunni,
yddan járnstaf, sem heitir á
vísindamáli þvi virðulega nafni
penetrometer, og hafa ekki önnur
tæki reynzt betri til seigju-
mælinga, enda vitnað til þess í
handbókum um eldfjallafræði.
Eftir að hafa unnið úr
rannsóknum sínum í sambandi
Trausti Einars-
son sjötugur
Nú hin síðari árin hefur Trausti
ekki gengið alheill til skógar, en
visindaáhuginn er óbilaður og
hann reitir af sér hverja ritgerð-
ina af annarri. Hann hefur aldrei
eytt kröftum sínum i sókn i sum
þeirra veraldargæða sem girnileg
þykja. Hann hefur aldrei reynt að
pota sér áfram eftir framastigum
pólitiskra sambanda, aldrei rennt
augum í átt til Arnarness og ekki
einu sinni krækt sér i prófessors-
bústað á háskólasvæðinu, en unað
sér með sínum við Sundlaugaveg-
inn. Og nú afrekar hann það, sem
íslenzkum jarðvísindamönnum
hefur erfiðlega gengið og aðeins
einum íslenzkum jarðfræðingi
hefur áður tekizt, að leggja út á
áttunda áratuginn.
Góða ferð, Trausti.
Sigurður Þórarinsson
alfasud 5M er lítil fjölskyldubifreið
með frábæra aksturseiginleika og
er auk þess sérlega Spameytin
JÖFUR hf
AUOBREKKU 44-46 - KOPAVOGr - SÍMI 42600
Á morgun á sjötugsafmæli
nestor þeirra, er nú starfa að
jarðvísindum á Islandi, Trausti
Einarsson, prófessor. Raunar
voru það aðrir himinhnettir
fremur en Tellus, sem Trausti
hafði hug á að kanna, er hann hóf
háskólanám, því það var stjörnu-
fræði sem hann las sem aðalgrein
við hinn fræga háskóla í
Göttingen. Lauk hann doktors-
prófi í þeirri fræðigrein 1934. En
hér á landi er þess ekki kostur að
keppa við vísindamenn annarra
landa í stjarnfræðiiðkunum og
fór Trausta þvi svipað og fyrir-
rennara hans í þeirri fræðigrein,
Steinþóri Sigurðssyni magister,
að hann sneri sér að
jarðvísindum, samfara kennslu
sem aðalatvinnu. Hann gerðist
kennari við Menntaskólann á
Akureyri 1935 og kenndi þar
stærðfræði og eðlisfræði þar til
hann varð kennari við Verkfræði-
deild Háskóla islands 1944 og
prófessor ári síóar.
Rannsóknum i jarðvisindum
hefur Trausti nú sinnt nokkuð á
við Heklugosið, sneri Trausti sér
að öðru jarðeðlisfræðilegu verk-
efni. Til landsins hafði verið
keypt fullkomið tæki til þyngdar-
mælinga. Með þetta tæki ferðaðist
Trausti um landið þvert og endi-
langt og mældi af miklu kappi og
birti nióurstöðurnar 1954 í grund-
vallarriti: A survey of gravity in
Iceland með korti af þyngdar-
frávikum á landinu og eru þær
niðurstöður, sem þetta kort sýnir,
enn óhaggaðar í höfuðatriðum.
Einnig sinnti hann nú um skeið
bergsegulmælingum í framhaldi